Alþýðublaðið - 10.05.1984, Page 6

Alþýðublaðið - 10.05.1984, Page 6
6 Vandi annarra þjóða síst minni en okkar Framhald af bls. 4 að tekið sinn þátt í greiðslu á óskiptum kostnaði Sambandsins. Ástæður fyrir þessum lágu um- boðslaunum eru, að Sambandið er þjónustustofnun við bændur, en þeir hafa löngum verið öflugir stuðningsmenn samvinnustarfs- ins. Ótrúleg grunnhyggni Hefur Sambandið stuðlað að uppbyggingu markaða erlendis fyrir íslenskar afurðir, t.d. kjöt, með markaðskönnun, auglýs- ingaherferð o.sv.frv.? Sambandið hefur sinnt því hlutverki að selja það kjöt, sem þörf hefur verið talin á að flytja úr landi ár hvert og því hefur að öllu jöfnu tekist að halda hærra verði á íslenska lambakjötinu en lambakjöti frá öðrum löndum. Venjulega eru það kaupendur okkar, sem standa að auglýsing- um á þeirra eigin markaði, þar sem það þykir eiga við, en þó hef- ur þeim í nokkrum tilvikum verið veitt aðstoð í þessum efnum. Markaðskönnun á smásölustigi hefur ekki verið gerð á okkar veg- um, enda seljum við eingöngu á heildsölugrunni til innflytjenda, en tökum ekki þátt í smásöluversl- un á neinum markaði. Auk þess er magn okkar svo lítið brot af þvi sem selt er á þessum mörkuðum, að víðtæk könnun mundi verða of kostnaðarsöm fyrir okkur. Ann- ars er rétt að vekja athygli á því, að nálægt 'A af kindakjötsfram- leiðslunni í landinu er í höndum annarra aðilja en kaupfélaganna og Sambandsins. Þessir aðilar eiga að sjálfsögðu kost á að flytja kjöt á erlenda markaði og þá sýna, hvort unnt sé að ná betri söiuverðum en Sambandið nær. Hafa sláturhús kaupfélaganna hagnast á því að geyma kjöt frek- ar en að selja það? í flestum héruðum hafa slátur- leyfishafar einhverja fyrsti- geymslu samhliða sláturhúsi sínu, yfirleitt nægjanlega fyrir árs- neyslu viðkomandi héraðs. Þar sem svo háttar til að geymslurými er umfram þarfir héraðsins er fyrstirýmið notað til að geyma það kjöt, sem annað hvort er sett á markað á höfuðborgarsvæðinu eða erlendis. Til að sinna álaginu þegar það er mest eru auk þess leigðar margar geymslur hjá fyrir- tækjum, sem öðru jöfnu eru ekki tengd Iandbúnaðarframleiðslu. Þessar geymslur eru í felstum til- vikum í nágrenni Reykjavíkur til þess að kjötið sé sem nærtækast fyrir markaðinn og þær eru hafð- ar eins stutt í leigu og kostur er á til að spara geymslukostnað. Þetta fyrirkomulag gerir það tvennt að verkum að tryggja skjóta afgreiðslu þegar til þarf að taka og einnig að nýta sem best þá fjárfestingu, sem lagt hefur verið í af hálfu sláturhúsa við uppbygg- ingu á frystigeymslum. Enda þótt það sé að sjálfsögðu hagkvæmt fyrir sláturleyfishafa að nýta geymslu sína sem lengst, þá er óhagræðið af því að selja seint enn meira og þarf því ekki að ótt- ast annað en að vilji sláturleyfis- hafa til að selja sé ótvíræður. Það hefur aldrei komið fyrir, að útflutningur hafi ekki geta átt sér stað eða sala á innanlands- markaði hafi átt í erfiðleikum, vegna þess að sláturhús hafi ekki viljað láta af hendi afurðir í því skyni að fullnýta frystigeymslur sína. Allar aðdróttanir í þessa átt lýsa alveg ótrúlegri grunnhyggni. Alþjóðlegt vandamál Landbúnaðarmálin í heild eru mjög til umræðu þessa dagana. Hvað viltu að lokum segja um þau almennt? Já, það er rétt, og ekki að ástæðulausu, því að erfiðleikar landbúnaðarins eru miklir um þessar mundir. Ofan á þau vanda- mál sem fyrir voru hefur hvert harðærið á fætur öðru dunið yfir. í slíku árferði hefur orðið fellir hér á árum áður. Það hefur komið í hlut kaupfélaganna að hlaupa undir bagga með bændum, ef þess hefur verið nokkur kostur. Á síðasta ári þurfti víða að gefa fóðurbæti fram á mitt sumar, og þá urðu margir bændur að reiða sig á kaupfélagið, svo að takast mætti að halda Iífi í búpeningi þeirra. Ég verð að segja það í fullri hreinskilni, að umræða fjölmiðla um landbúnaðarmál að undan- förnu hefur vakið furðu mína. Það er engu líkara en menn haldi, að landbúnaðarvandinn sé ein- angrað fyrirbæri hér á íslandi — og bændum og samvinnumönn- um er kennt um. Sannleikurinn er sá, að í flest- um löndum Vestur-Évrópu og Norður-Ameríku hefur verið um offramleiðslu á landbúnaðar- afurðum að ræða undanfarin ár, birgðir hafa safnast upp og reynt hefur verið að selja þær á erlend- um mörkuðum á stórlega niður- greiddu verði. Hvað veldur offramleiðslunni, spyrja menn eðlilega, og svarið er einfalt: Að verulegu leyti aukin tækni og hagræðing, nýjar að- ferðir í ræktun og kynbætur. Sennilega er vandinn hvergi stærri en í löndum Efnahags- bandalags Evrópu, en það hefur verið eitt af markmiðum þess að samræma stefnuna í landbúnað- armálum. Settir hafa verið tollar og kvótar á aðfluttar landbún- aðarvörur, en auk þess hefur Efnahagsbandalagið tekið upp mikla fjárstyrki til landbúnaðar- ins, sem fólgnir eru i því að tryggja bændum ákveðið verð fyrir afurðirnar, sem er miklu hærra en heimsmarkaðsverðið. Gert er ráð fyrir, að Efnahags- bandalagið verði að verja 16 millj- örðum dollara til landbúnaðar- styrkja á þessu ári. Þetta er þó aðeinsbrot afþeim styrkjum, sem landbúnaðurinn fær, því að öll þátttökuríkin veita margvíslega styrki til landbúnaðarins í lönd- um sínum. Þessi stefna Efnahagsband- lagsins byggist á því, að bændum beri að tryggja sviðað afkomu og öðrum hliðstæðum stéttum og sporna verði gegn óeðlilegum fólksflótta úr sveitum. En þrátt fyrir þessar aðgerðir heldur bændum áfram að fækka eða um hvorki meira né minna en þriðj- ung í löndum Efnahagsbanda- lagsins síðasta áratug. Bandaríkjamenn hafa gagn- rýnt styrkjastefnu Efnahags- bandalagsins, en ástandið hjá þeim sjálfum er síst betra. Síðasta ár var 22 milljörðum dollara varið í styrki til landbúnaðarins úr ríkissjóði Bandaríkjanna og þar við bættust styrkir frá hinum ein- stöku fylkjum. í skýrslu, sem Chemical Bank í New York hefur gefið út og sagt var frá í blaðinu The Economist nýlega, er talið að samtals hafi bandarískir bændur fengið um 60 milljarða dollara í styrki á síðastliðnu ári. Lengst eru Japanir taldir ganga í þessari styrkjastarfsemi, en þeir veita bændum verðtryggingu, sem tryggir þeim til jafnaðar 45% hærra verð en heimsmarkaðsverð. Á þessu má sjá, að vandi ann- arra þjóða er síst minni en okkar. Það er von mín, að umræðan um vanda landbúnaðarins hér á landi verði eftirleiðis málefnalegri og skynsamlegri og leiði til þess, að unnt reynist að bæta erfiða stöðu bænda — án þess að grípa til ör- þrifaráða, sem hafa í för með sér stórfellda byggðaröskun og ófyrirsjáanlegar hörmungar. Samvinnumenn munu gera sitt ítrasta til að finna farsæla lausn á þessu vandamáli, og í þeim til- gangi verða landbúnaðarmálin til dæmis aðalumræðuefni næsta aðalfundar Sambandsins, sem haldinn verður dagana 13. og 14. júní næstkomandi. PermaGlass bílabón Glansandí brynvörn PEBmik GLASS ONE STEP POLYMER SEALANT Perma Glass er ný tegund af bílabóni, ólík þeim sem fyrireru á markaðinum. í fyrsta lagi bindst Perma Glass lakk- efnum og myndar harða húð sem ver viðkvæmt bíllakkið gegn tjöru, salti, ryði og öðrum skaðvöldum. í öðru lagi myndar Perma Glass góða gljááferð sem endist margfalt lengur en eldri gerðir bílabóns. Reyndu Perma Glass Polymer Sea- lant á bílinn þinn næst þegar þú bónar. STÖÐVARIMAR — G.T.K.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.