Tíminn - 25.02.1967, Page 16
47. tbl. — Laugardagur 25. febrúar 1967. — 51. árg.
Fjölmenni viö útför Helga Þorsteinssonar
Útför Helga Þorsfeinssonar framkvæmdastjóra innfl utningsdeildar SÍS var gerð í gær frá Dómk. aS við-
stöddu miklu fjölmenni. Sr. Jakob Jónsson jarðsöng, Páll ísólfsson lék á orgel og Dómkórinn söng, og
Einar Vigfússon lék einleik á cello. Úrkirkjubáru kistuna Jakob Frímannsson stjórnarformaður
SIS, Harry Fredriksen framkvæmdastjóri, Bjarni V. Magnússon framkvæmdastjóri, Agnar Tryggvason
framkvæmdastjóri. Erlendur Einarsson forstjóri, Hj örtur Hjartar framkvæmdastjóri, Hjalti Pálsson fram
kvæmdastjóri og Helgi Bergs framkvæmdastjóri. (Tímamynd GE
Framsóknarfélag
Skagfirðinga
Sviðsmynd úr Marat tekin á æfingu í gær.
Firamsóknarfélag Skagfirðinga
heldur fund á Sauðárkróki laugar
daginn 4. marz n. k. í Framsókn
! arhúsinu vig Suðurgötu og hefst
| klukkan 2. e. h. Kosnir verða full
| trúar á 16. flokksþing Framsóknar
I flokksins. Björn Pálsson og Jón
(Tímamynd GE) jKjartansson mæta á fundinum.
MARAT SADE FRUM-
SÝNT A FIMMTUDAG
BT-Reykjavík, föstadag.
Þjóðleik'húsið mun hefja sýn-
ingar á leikri'tinu Marat/Sade
eftir Peter Weiss n.ik. fimmtadag.
Er þetta eitt viðamesta og at-
hyglisverðasta viðfangsefni Þjóð-
leikhússins til þessa, enda eru
leikendur 33 auk fimm manna
hljómsveitar, og verða þessir 38
menn allir á sviðinu alla sýning-
una. Leikstjóri er Kevin Palmer.
Þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur
Rósinkranz, boðaði ti'l blaða-
mannafundar í dag, og fengu
blaðamenn þar einnig tækifæri til
að ræða við Kevin Palmer, leik-
stjóra. Þjóðleikhiússtjóri skýrði írá
því, að njk. fimmtadag myndu
hefjast sýningar á leikritinu Mar-
at/Sade eftir Peter Weiiss. fs’
lenzka þýðingu hefur Árni Björns
son, cand. mag., gert, og var þýð-
ingin hið mesta vandaverk, enda
er hluti leikritsins í ljóðum.
Höfundur leikritsins, Peter
Weiss, er fæddur árið 1916 í Ber-
lín, en ólst upp í Þýzkalandi,
TékkóslóvaMu og Sviss. Síðustu
25 árin hefur hann verið búsett-
ur í Svílþjóð og er hú sænskur
ríkisborgari. Á fyrri árum sínum
lagði Weiss stund á málaralist, en
eftir stríðið sneri hann sér að
ritstörfum. Hann samdi á þeim
árum nokkra einþáttunga, og fyrst
var sýnt eftir hann leikrit árið
1950 í Stokkhólmi. Leikritið Mar-
at/Sade var frumflutt í Söhiller-
leikhúsinu í V.-iBerln 29. aprál
1964 undir leikstjórn Konrads
Swinarski. Weiss er auk ritstarfa
sinna þekktur í Svíþjóð fyrir þátt-
töku í umræðum um menningar-
mál.
Guðlaugur Rósinkranz sagði, að
hann hefði séð leikrit það, er hér
um ræðir, er það var frumsýnt
í Berlin og hefði hann orðið fyr-
ir mjög sterkum áhrifum af þeirri
sýningu. Þjóðleikhússtjóri sagði,
að einna frægasta uppfærsla leik-
ritsins til þessa væri annars upp-
setning Peters Brooks í London,
en eftir þeirri uppsetningu hefur
verið gerð kvikmynd, sem frum-
sýnd verður í London nú í marz.
Tónlistin, sem Þjóðleikhúsið not-1
ar við leikritið, er fengin frá uipp I
setningu Brooks, og er hún sam-;
in af Ridhard Peaslee. Weiss hefur'
samið fleiri leikrit nýlega, og má
þar nefna Réttarrannsóknina, sem
fjallar um Niirniberg-réttarhöldin,
oig annað, sem nýlega hefur verið
frum-sýnt og fjallar um nýlendu-
pólitik Portúgala í Angóla.
Þjóðleikhússtjóri tók fram, að
leikritið Marat/Sadc væri ekki
beinlíni-s sögulegt verk, það fj-ali-
aði ekki um frönsku stjórnarbylt-
inguna sjálfa, þótt í því kæmu
fram ýmsar þe-kktar persónur frá
því tímabili í s-ögu Frakklands.
Leikritið geri-st á geðveikralhæli,
og höfuðpersónurnar eru Jean-
Paul Marat, byltingarforingi, og
de Sade, greitfi. Verkið er mjög
Framhald á bls. 14.
KAFFIKLUBBUR
Framsóknarfé-
lag Reykjavík-
ur og FUF kem
ur saman í
Tjarnarg. 26 í
dag, laugardag,
kl. 3 síðd. —
Jóhanncs Elías-
son bankastjóri
talar um sein-
asta þing Sam-
einuðu þjóð- j
anna og svarari
fyrirspurnum. !
HEFUR FALSAÐ ÁVÍSANIR
FYRIR 50-60 ÞÚS. KRÓNUR
KJ—Reykjavík, föstudag.
Einn manna þeirra, scm við
koin stuldinum á frystiskáp og
ísskáp fyrir nokkru, er afkasta-
mikill í að gefa út innstæðulaus-
ar ávísanir, því nú á tiltölulega
VIETNAM-RAÐSTEFNA
HALDIN UM HELGINA
BT—Reykjavik, föstudag.
Almenn ráðste-fna um Vietnam-j
málið verður haldin á morgun,
laugardag, og sunnudag í Tjarnar-
búð, niðri. Ráðstefnan hefst kl. 14
á morgun.
Sjö félagssamtök hafa boðað til
þessarar ráðstefn-u, og er húnj
haldin til að örva umræður um
og vekja athygli á því mikla vanda
máli, sem hér um ræðir. Thor
Vilhjálmsson rithöfundur setur
ráðstefnuna kl. 14 á morgun í
Tjarnarbúð, en síðan flytja erindi!
þeir Magnús T. Ólafsson og Árni;
Gunnarsson, en að þeim loknum
verða frjálsar umræður.
Á sunnudag hefst ráðstefnan
að nýju kl. 10, og^ flytja þá erindi
Andri fsaksson, Ólafur Einarsson
og Tómas Karlsson.
Eftir hádegi á sunnudag hefst
ráðstefnan kl. 14 og tala þá Stefán
Jónsson fréttamaður og Sigurður
A. Magnússon. Þá verða frjálsar
umræður.
Fundarsljórar báöa dagana
verða Sighvatur Björgvinsson,
Ragnar Stefánsson og Björn
Teitsson. Öllum er heimill aðgang
ur að ráðstefnunni, en það skal
tekið fram, að hún mun ekki sam
þykkja neina ályktun.
sluttum tíma hefur liann gefið út
48 innstæðulausar ávísanir, þar af
var ein fölsuð.
Talið er að enn eigi eftir að
koma í ljós ávísanir sem maður
þessi hefur gefið út án þess að
innstæða væri fyrir henni. Saman
lögð upphæð þessara ávísana, sem
komnar eru í ljós, er á milli 50
og 30 þúsund krónur, en flestar
ávísanirnar er að upphæð í krin
um eitt þúsund krónur.
Þá mun maður þessi hafa barið
fyrrverandi eiginkomu sdna til ó-
bóta á heimili konunnar, og var
konan flutt á sjúkrahús á eftir.
Það má segja að maður þessi
hafi komið víða við á afbrota-
sviðinu, verið viðriðinn innbrot,
gefið út innstæðulausar og falskar
ávísanir og misþyrmt konu sinni.
riarða- og Bessa-
laðahreppur
Aðalfundur Framsóknarfélags
Garða og Bessastaðahrepps verð
ur haldinn í dag, laugardag,
i fundarsal félagsins, Goðatúni 1
kL 14,00. Auk aðilfundarstarfa
verða kjörnir fulltrúar á 14. flokks
þing Framsóknarflokksins, sem
hefst 14. marz n.k. Jón Skaftason
aiþingismaður og. Jóhann Niels-
son légfræðingur mæta á fundjn-
um.
Kjósarsýsla
Aðalfundur Framsóknarfélags
Kjósarsýslu og FUF í Kjósarsýslu
verða Iialdnir að Hlégarði fimmtu
daginn 2. marz ld. 9. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa, verða kosn
ir fulltrúar á 14. flokksþing Fram
sóknarflokksins. Jdn Skaftason og
Björn Sveinbjörnsson mæta á fund
inum. Stjómimar.
Kópavogur
Fundur verður í Framsóknarfé-
lagi Kópavogs mánudaginn 27.
febr. í Neðstutröð 4, fundarefni: 1.
kosning fulltrúa á flokksþing Fram
sóknarflokksins, 2. önnur mál, á
íundinum mæta Jón Skaftason al-
þingismaður og Björn Sveinbjörns
son hæstaréttarlögmaður. Mætið
ve-1 og standvíslega. Stjórnin.