Tíminn - 15.03.1967, Blaðsíða 14
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 15. marz 1967
14
FLOKKSÞINGIÐ
Framhald af bls. 1
er að setj'a í áaetlanir og hvernig
því þýðingarmesta verði komið í
framkvæmd. Auðvitað verða
aldrei allar framkvæmdir settar
í áætlanir né öllu stjórnað, en
taka verður fyrir meginþætti og
tryggja þeim framkvæmd.
Skynsamlegur og farsæll áætl
unarbúskapur getur ekki komizt
í framkvæmd, nema hann sé
byggður á samstarfi stjórnarvaid-
anna annars vegar og einstaklings
framtaks og félagssamtaki hins
vegar. Slíkur búskapur getur ekki
orðið byggður á einhliða starfi
stjórnarvaldanna. Allt veltur á
lífsnauðsynlegu samstarfi, ekki
bara með málfundasniði heldur
varanlegu, nánu og ræktu af
dugnaði, myndarskap og áhuga
og ég trúi því, að þessi stefna
komist svo bezt í framkvæmd að
út verði boðið unga fólkinu i
einstaklingsrekstri, félagsrekstri,
félagasamtökum, frá visind-
unum og af hálfu ríkisvaldsins til
þess að vinna að framkvæmd
'hennar. Eg tel að unga fólkin.i
sé bezt trúandi til þess að tak
ast á við þessi þýðingarmiklu víerk
efni eftir nýjum leiðum og hleypi
dómalaust.
Hér er ekki um haftastefnu að
ræða heldur jákvæða leið. Kjarn
inn er, að höfuðvandinn verði
leystur með samstarfi og forustu,
til þess að koma því framfyrir í
þjóðarbúskapnum, sem mesta þýð
inigu hefur, til þess að efla vel
meg.un atvinnuveganna og menn
ingarlíf með þjóðinni".
VÍNLANDSKORTIÐ
Framhald af bls. 16
munu lögreglumennirnir Eyjólfur
Jónsson, Sveinbjörn Björnsson,
Rúdolf Axelsson og Gísli Björns
son gæta kortsins. Ekki er vitað,
hvort kortið verður geymt að næt
urlagi í Þjóðminjasafninu, eða
einhvei^s staðar annars staðar.
Sýningin á kortinu verður opnuð
við hátíðlega athöfn á morgun, mið
vikudag kl. 4, að viðstöddum for
seta íslands, ríkisstjórn, alþingis
2 ára barn varð fyrir bíl
í Grindavík og beið bana
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Fyrir hádegiú dag varð tæplega
tveggja ára barn undir aftur
•hjólli sorplireinsunarbifreiðar
í Grindavík og beið þegar bana.
Lögreglunni var tilkynnt um
slysið kl. 10.45 í morgun. Bif-
reiðin mun hafa ekið hægt eft
ir Vikurbraut í Grindavík og
þurfti að beygja fyrir horn.
Barnið, sem fórst, átti heima í
þessu hornlhúsi, og höfðu for
eldrarnir leyft því að fara út
og leika sér. Var það að leik á
horninu, og sá bílstjórinn barn
ið. Hann taldi óhætt að aka
framhjá barninu, og taldi sig
vera komin framhjá því, að því
er lögreglan segir. Aftur á
móti mun barnið hafa lent und
ir afturhjóli bifreiðarinnar, og
beðið þegar bana. Fór aftur
hjólið yfir höfuð barnsins.
Hjúkrunahkona staðarins
kom fljótlega á vettvang, og
sá þegar að barnið var látið.
Nafn barnsins verður ekki
birt að sinni, þar sem ekki hef
ur enn náðzt til allra ættingja
þess.
ÞAKKARÁVÖRP
Öllum þeim, er sýndu mér vinsemd á sjötíu ára
afmæli mínu, með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum,
sendi ég mínar innilegustu þakkir og óska þeim allrar
blessunar í nútíð og framtíð.
ión Valgeirsson
frá Ingólfsfirði.
Hjartanlega þakka ég hlýjar kveðjur, heimsóknir og
gjafir á sextugsafmæli mínu 2. febrúar síðastliðinn.
Guð blessi ýkkur, kæru vinir.
Ingveldur Eyjólfsdóttir
Pétursey.
FaSir okkar
andaðist 13. þ. m.
Árni Benediktsson,
Þórdís Árnadóttir,
Benedikt Árnason.
Faðir okkar
Sigurjón Sigurðsson,
andaðist að heimili sfnu Bólstaðahlíð 25, þann 13. þessa mánaðar.
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Magnús Sigurjónsson,
Konan mfn
Árdís Ólöf Þórðardóttir,
andaðist 10. marz s.l. að heimili okkar Grund í Kolbeinsstaðahreppi.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaglnn. 17. marz kl.
13,30.
Guðmundur Benjamínsson.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Friðfinnur V. Stefánsson,
múrarameistari Húsafeili,
Hringbraut 27, Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Hafnarf jarðarkirkju fimmtudaglnn 16.
marz kl. 2 e. h.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Systir okkar,
Þóra Kristjánsdóttir,
Snorrabraut 79,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. marz kl.
3 slðdegls.
Kristjana Pálsdóttir,
Árni Kristjánsson,
Sigríður Mallinson,
Ragnar Kristjánsson,
Magný Kristjánsdóttir,
Sfgurður Kristjánsson,
Viktorfa Kennett.
í mönnuip, sendiherrum erlendra
ríkja og fleirum. Við opnun sýn-
ingarinnar flytia þeir ávörp am-
bassador Bandaríkjanna, James
K. Penfield og dr. Konstantine
Reichardt, prófessor við Yale há-
skóla, en hann er fulltrúi Yale
við opnun ^ýninjarinnar. Síðan
mun Gylfi Þ- Gíslason, mennta-
málaráðherra, opna sýninguna.
Sýningin verður opin almenningi
frá kl. 18—22 þann sama dag, og
síðan daglega til og með 30. marz
frá kl. 13,30 til 22. Héðan fer
kortið 1. apríl, væntanlega til Dan
merkur.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis, og fá gestir prentaðar upp
lýsingar um kortið og fylgirit þess
á sýningunni.
FRÉTTIR í STUTTU MÁLI
Frrm*- - *■'
ols 'í
Kosin var stjórn fyrir næsta
kjörtímabil. Sverrir Hermannsson
var endurkjöri.nn formaður. Aðrir
í stjórn voru kjörnir: Björn Þór-
hallsson, Óskar Jónsson, Ragnar
Guðmundsson, Hannes Þ. Sigurðs
son, Björgúlfur Sigurðsson, —
Kristján Guðlaugsson, Böðvar Pét
ursson og Örlygur Geirsson.
Styrkir frá S.Þ.
Sameinuðu þjóðirnar munu
veita á þessu ári, eins og áður,
allmarga rannsóknarstyrki á
sviði mannréttinda. Er umsóknar
frestur um styrki þessa til 17.
apríl 1967. Á síðasta ári voru
28 slíkir rannsóknarstyrkir veittir
umsækjendum í 19 löndum, til
fræðilegra rannsókna á sviði mann
réttinda.
Frekari upplýsingar gefur utan
ríkisráðuneytið.
Gefa Hjartavernd 550 þúsund
Stjórn Múrarafélags Reykjavík
ur mætti á fundi framkvæmda-
stjórnar Hjartaverndar . nýlega.
Formaður Múrarafélags Reykja-
víkur afhenti þar gjöf, að upphæð
kr. 50.000,00.
Á aðalfundi félagsins, sem ný-
lega var haldinn, var gjöf þessi
samþykkt í tilefni af 50 ára afmæli
Múrarafélags Reykjavíkur.
17. marz dagur frímerkis S.þ.
f tilefni þess hve mörg ríki hafa
hlotið sjálfstæði á síðustu misser
um og gerzt aðilar að Sameinuðu
þióðunum, hafa samtökin ákveðið
að gefa út nýtt frímerki til þess
að minnast sjálfstæðisbaráttu
hinna nýju þjóða. Mun frímerki
þetta gefið út í aðalstöðvum S. Þ.
í NY 17. marz n. k. Mun það hafa
tvenns konar verðgildi, 5 cent og
11 cent.
Jafnframt hefur verið ákveðið
að 17. marz verði lýstur dagur frí-
merkis Sameinuðu þjóðanna og
hans minizt um heim allan.
Dýralæknar um samníngs-
BHM
Dýralækningafélag fslands beln
ir þeirri eindregni áskorun til rík-
isstjórnarinnar, að hún beiti sér
nú þegar fyrir þeirri breytingu á
lögum um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna nr. 55/1962,
að Bandalag Háskólamanna verði
falið að fara með samningarétt
um laun og önnur kjör háskóla-
menntaðra manna í opinberri
þjónustu.
Innan vé'banda B.H.M. eru nú
12 stéttarfélög háskólamenntaðra
manna og bvenna með um 1400 fé-
laga eða nær alla háskólamennt-
aða fslandinga.
Því verður ekki, að óreyndu.
trúað að ríkisvaldið beri ekki það
traust til þessara samtaka að þeim
sé ekki vel treystandi til þess að
túlka sjónarmið háskólamenntaðs
fólks og að semja um kjör þeirra.
Dýralækningafélag íslands mót-
mælir eindregið þeirri hugmynd
B.S.R.B. að samningsréttargjald á
alla rikisstarfsmenn verði lögfest.
Dýralækningafélag íslands legg-
ur áherzlu á, að ríkisstjórnin
virði ekki lengur að vettugi þær
eðlilegu kröfur háskólagenginna
manna, að fá rétt til að semja
um launakjör sín á vegum eigin
samtaka og þurfa ekki lengur að
hiíta í þeim efnum, forsjá sam
taka, sem við erum ekki aðilar
að og óskum eigi að fari með
kjarasamninga stéttarinnar.
(Fréttatilkynning)
40-50 árekstrar
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Mikil hálka var á götum Reykja
víkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar
í dag. í Hafnarfirði urðu 10 árekstr
ar vegna hálkunnar, 5—6 í Kópa-
vogi og 32 í Reykjavík. Enginn
þessara árekstra var alvarlegur.
Massey Ferguson
DRÁTTARVÉLA-
OG GRÖFUEIGENDUR.
Nú er rétti tíminn tfl a5
láta yfirfara og gera við vél
arnar fyrir vorið.
Massey Ferguson-viðgerða-
þjónustu annast.
VÉLSMIÐJA
EYSTEINS LEIFSSONAR
H. P.
Síðumúla 17.
Sími 30662.
Vélahreingerning —
Þrifaleg,
fljótleg,
vöndur
vinna.
Þ R I F —
símar
41957 og
33049.
VERÐLA UNASAMKEPPNI
UM ÍSLEN2K TÓNVERK
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Tónlistarfélagið hefur ákveðið að
efna til samkeppni um kammer-
tónverk fyrir þrjú til sjö hljóð-
færi. Geta öll íslenzk tónskáld und
ir fjörutíu ára aidri tekið þátt í
samkeppninni. Er þetta í fyrsta
sinn sem Tónlistarfélagið efnir
tii keppni sem þessarar og er þetta
gert til að örva ung íslenzk tón-
skáld. Ein verðlaun verða veitt
að upphæð 60 þúsund krónur.
Lengd tónverksins á að vera
10—20 mínútur. Hljóðfæraskipan
er frjáls, en tónskáldin verða að
hafa í huga að íslenzkir hljóðfæra
leikarar geti flutt verkið. Frestur
til að skila tónverkum í samkeppn
ina er til 1. apríl 1968. Dómnefnd
verður skipuð þrem mönnum, —
tveimur íslenzkum tónlistarmönn-
um og einum viðurkenndum er-
lendum tónlistarmanni. Enn er
ekki ákveðið hverjir skipa dóm
nefndina.
Úrslii samkeppninnar verður
tilkynnt í júni 1968 og áskilur
Tóniistarfélagið sér rétt til frum-
flutnings á verðlaunaverkinu og
fer hann fram snemma vetrar
1968—69. .
i