Tíminn - 18.05.1967, Síða 13

Tíminn - 18.05.1967, Síða 13
FIMMTUDAGUR 18. maí 1967. ÍÞRÓTTIR tíminn ÍÞRÓTTIR Myndin a3 ofan er frá bæjakeppnj Reykjavíkur og Keflavíkur. Þarna sést Jón Jóhannsson skora mark Keflavíkur framhjá Guðmundi Péturssyni, markver'ði, eftir mistök Haíldórs Einarssonar, miðvarðar. (Tímamynd Gunnar). Rúmlega 50% mættu áiandsliðsæfingar Tvær landsliðsæfingar í um á laugardag og sunnudag, knattspyrnu vom haldnar í því að 11 mættu hvorn dag. Er Reykjavík um hvítasunnuna. það ekki nema rúmlega 50% af Ekki mun hafa verið of vel þeim 19 leikmönnum, sem vald mætt á þessar tvær æfingar, ir voru til lokaæfinga. sem haldnar voru á Melavellin Mikil starfsemi HSÞ á síðasta ári Sagt frá 54. ársþingi sambandsins Vormót ÍR á Melavellinum í kvöld: Nær Guðmundur því lungþráða marki að slá met Husebys? Alf—Reykjavík, — í 17 ár hef ur hið fræga íslandsmet Gunnars Huseby í kúluvarpi 16,74 metrar, staðið óhaggað, en liver veit, nema það verði slegið í kvöld á fyrsta frjálsíþróttamóti sumarsins, Vor- móti ÍR. Það er garpurinn Guð- mundur Hermannsson, sem steínir að því að sctja nýtt íslandsmet í greininni. Á innanhússmótum í vetur sýndi hann miklar frarn- farir og varpaði leðurkúlu yfir 17 metra markið, þannig, að ekki cr ósennilegt, að hann geti bætt met ið utanhúss, en talið er erfiðara að varpa lcðurkúlu en blýkúlu. Þátttaka í Vormóti ÍR er nokk uð góð, en keppendur verða um 40 talsins. Fer mótið fram á Mela vellinum og hefst klukkan 20. Frjálsíilþróttamenn okkar eru margir hverjir í nokkuð góðri þjálfun og verður væntanlega gam an að fylgjast með keppninni í kvöld. Athyglin mún að sjálfsögðu aðallega beinast að kúluvarpinu, en auk þess verður fróðlegt að vita, hvort Jón Þ. Ólafsson stekk ur. yfir 2 metra í hástökki — og þá hve mikið hærra. í sleggju- kasti eru meðal keppenda Þórður B. Sigurðsson, Jón Magnússon og Þorsteinn Löve, sem mun e.t.v. snúa sér að þessari grein í ríkari mæli. Halldór Guðbjörnsson er líklegur sigurvegari í 1500 m hlaupi, en hann keppir einnig í 400 m hlaupi. Meðal keppenda í Guðmundur Hermannsson. Tekst lonum aS setia met i kvöld? styttri vegalengdum er Ólafur Guð mundsson. Eins og fyrr segir, hefst keppnin í kvöld kl. 20. Fundur hjá Fram Á sunnualaginn verður haldinn fundur í Framhcimilinu fyrir hand knattieiksfólk Fram og hefst liann klukkan 16. Myndataka hjá mcist araflokki karla og kvenna. Leik- menn úr öðrum flokkum eru beðn ir að mæta á fundinn og einnig stúlkur úr 1. og 2. flokki. Stjórnni. Skíðamenn! Lokadansleikur ^kíðamaiirtftiverð ] ur haldinn í Átthagasal Hótel Sögu n. k. laugardagskvöld, en þá fara einnig fram verðlauna- afhendingar. Verðlaun fyrir skíða- fólk, yngra en 16 ára verða afhent í Lindarbæ kl. 3 á laugardaginn. Kvikmyndasýning verður á báðum stöðum. Knattspyrna nær því dagleg á næstunni Alf-Reykjavík. — Það verður mik ið um að vera í knattspymunni á næstunni. Skozka atvinnumanna liðið Hearts er væntanlegt til landsins i dag og mun leika þrjá íeiki. Þá verður Rcykjavíkurmót inu í knattspyrnu haldið áfram — og íslandsmótið, keppni í 1. og 2. deild, hefst innan tíðar. Og leikir í öðrum aldursflokkum hefjast. Verður leikið nær dag lega næstu 3 vikurnar. Á morgun, föstudag, leikur 'Hearts fyrsta teik sinn hér og mætir þá Kef lvikingum á Latig ardalisvelli. Hefst leikurirm klukk an 20.30. Á laugardaginn verður Reykja vikurmótinu haldið áífram með 'leik Vals og Víkings, en hann hefst klukkan 14. Strax á eftir leika Fram og Þróttur í Refykja víikurmóti 1. flokks. Þessir leik ir |ara fram á Melaveliinium. Á sunnudaginn fer fram leik Framhald af bls. 15 54. ársþing HS var haldið 6. og 7. maí 1967 í félagsheimili Reyk- hverfinga að Hveravöllum í boði umf. Reykhverfings. Mættir voru fulltrúar frá öllum sambandsfé- lögunum 11 að tölu að undan- skildu 1 félagi. Gestur þingsins var Brynjar Halldórsson formaður Ungmennasambands Norður-Þing eyinga. Formaður HSÞ Óskar Ágústs- son setti þingið og skipaði þing- forseta þá Þórð Jónsson, Laufa- hlíð og Jón Á. Sigfússon, Víkur- nesi og rit^ra þá Gunnlaug Tr. Gunnarsson, Kasthvammi og Óskar Sigtryggsson, Reykjarhóli. Ósrar Ágústsson flutti skýrslu sambandsins sem lögð var fram prentuð- Ljóst var af skýrslu stjórn ar að starfsemi sambandsins hafði verið mjög margþætt og umfangs- mikil og kostað mikla fyrirhöfn og mikið fé. Arngrímur Geirsson las og skýrði reikninga sambandsins. Voru niðurstöðutölur rekstrar- reiknings um 510,000,00 kr. en rekstrarhalli var rúmar 26,000.00 kr. eignaauknnig var rúma. 37, 000,00 kr. Mikill áhugi ríkti á árs þinginu um málcfni sambandsins og félaganna. Margar samþykktir voru gerðar og er þessar helztar: „Aðalfundur HSÞ haldinn 6. og 7. maí 1967, samþykkir að neimila stjórninni að ráða framkvæmda- stjóra efíir því, sem efni og að- stæður leyfa.“ „Aðalfundur HSÞ haldinr, b, og 7. maí 1967 lýsir sig fylgjandi frumvarpi Alfreðs Gíslasonr um bann við tóbaksauglýsingum, sem fram kom á síðasta þingi, og skor ar á hið háa Alþingi, að það hlut- is-t :.il um, að sett verði bann við tóbaksauglýsingum." „Aðalfundur HSÞ haldinn 6. og 7. maí 1967, lítur svo á, að Laugaskóli sé sjálfkjörin miðstöð fyrir starfsemi HSÞ. Fundurinn lýsir undrun sinni og óánægju yfir því, hve litlar eru fjárveitingar til stofnframkvæmda Laugaskóla undanfarin ár, eink- um ef samanburður er gerður við aðra héraðsskóla. Skorar fundur inn á fjárveitingavaldið að rétta hlut Laugaskóla og veita á næstu árum ríflegar fjárhæðir til upp- byggingar staðarins." „Aðalfundur HSÞ haldinn 6. og 7- maí 1967 samþykkir að stofna sérsr.akan sjóð af fé því, sem inn kann að koma vegna ævifélags- i Laugaskóli — miðstöð starfsemi HSÞ. gjalda. Tekjum sjóðsins skal varið til þess að jafna aðstöðu íþrótta manna til að sækja æfingar. Sjóð- urinn skal starfa samkvæmt reglu gerð sem samþykkt verði af aðalfundi sambandsins." Eftirfarandi íþróttamót á vegum sambandsins í frjálsum íþróttum voru ákveðin: Drengjamót 25. júní héraðsmót 8. og 9. júlí, úrslita- keppni í unglingakeppni HSÞ 11. ! ágúst og tugþraut 2. og 3. sept. | | Ennfremur voru ákveðin héraðs- i mót í knattspyrnu og sundi. ! Úr stjórn sambandsins áttu að ganga Óskar Ágústsson, Sigurður | Jónsson og Vilhjálmur Pálsson en j ivoru allir endurkjörnir. Stjórn I HSÞ er þannig skipuð: Óskar j son meðstjórnandi. Ágústsson formaður, Vilhjálmur ; Á næstunni verður getið um ein Pálsson varaformaður, Sigurður staka þætti í hinu mikla og öfluga Jónsson ritari, Arngrímur Geirs- íþróttastarfi HSÞ á síðasta ári hér son gjaldkeri og Stefán Kristjáns I á síðunni. Handknattleiksmót utanhúss haldiö 15, júlí til 15. ágúst Ákveðið hefur verið að Hand knattleiksmót íslands utanhúss fyrir árið 1967 verði haldið á límabilinu 15. júlí til 15. ágúst. Að venju verður keppt í meist- araflokki karla og kvenna og 2 flokki kvenna. Þeir sambandsaðilar, sem hafa hug á að annast fram kvæmd mótsins, þurfa að senda skriflega umsókn til HSÍ fyrir 1. júní n. k.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.