Alþýðublaðið - 05.12.1984, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 05.12.1984, Qupperneq 2
.2 alþýðu- blaðið Miövikudagur 5. desember 1984 Úlgefandi: Blað h.f. Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Árni Stefánsson. Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson. Skrífstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvik, 3. hæð. Sfmi:81866. Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Siðumúía 12. Áskriftarsíminn er 81866 — RITSTJÓRNARGREIN Alþýðuflokkurinn á erindi við launamenn Almennur og vaxandi áhugi er á Alþýöuflokknum og stefnumiðum hans. Þetta hef- ur birst I ýmsum myndum. Allt frá flokksþingi Alþýöuflokks- ins um miðjan nóvember sl. hefur ekki linnt frásögnum í fjölmiðlum af forystumönnum Alþýðuflokksins og málatii- búnaði þeirra. Opnir fundir sem alþýðuflokksmenn hafa efnt til vlða um land hafa sömuleiðis endurspeglaö þennan áhuga fólks, því fund- irnir hafa verið feikivel sóttir. Þá hefur mikill fjöldi fóiks gengið I Alþýðuflokkinn á sið- ustu dögum. Staðreyndin er sú aö fólk skynjar i auknum mæli að til- lögur jafnaðarmanna um auk- inn jöfnuð i þjóðfélaginu meö tilfærslu fjármagns fráhinum fáu stóru til hinnamörgu smáu — frá fyrirtækjunum og fjár- magnseigendum i landinu til almennra launamanna. í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur straumur fjármagnsins verið frá fólkinu. Þeirri þróun ætla jafnaðarmenn að snúa við og lýsa eftir stuðningi iaunafólks við það ætlunarverk. Réttlæt- iö krefst þess, að nú verði færðir fjármunir frá þeim sem hafa hrifsað til sín meira en þeim ber, til hinna sem fært hafa fórnir en ekki hlotið. Ekki sist á Alþýöuflokkurinn erindi við ungu kynslóðina. Unga fólkið varð hart úti vegna vaxandi misréttis í lok ve“rð- bólguáratugarins. Skömmu eftir að full verðtrygging var tekin upp á húsnæðislánum hrundi hið félagslega hús- næðislánakerfi. Það unga fólk, sem nú leitar á vinnu- markaðinn að loknu námi, og byrjar að stofna fjölskyldur, færóblíðar viótökur í íslensku þjóðfélagi. Það er með náms- skuldir á bakinu. Og það unga fólk, sem ekki á kost á stuðn- ingi efnaðra foreldra, fær ekki risið undirgreiðslubyrði af lán- um, sem taka þarf til að byggja eða kaupa íbúð. Þetta unga fólk á síðan að standa straum af afborgunum og vöxtum af þeirri þjóðarskuld, sem eldri kynslóðir, veróbólgukynslóð- in, stofnaði til. Af þessum sökum er ungt fólk i uppreisnarhug gegn ranglátu þjóðfélagi. Það kallar á róttækar þjóðfélagsumbæt- ur — í anda jafnaðarstefnu og mannúðar. Alþýðuflokkurinn — flokkur islenskra jafnaðar- manna — á brýnt erindi við þetta fóik og það við hann. Sókn Alþýöuflokksins verður ekki stöðvuð. Andstæöingar Alþýðuflokksins reyndu að halda því fram aö flokkurinn væri að dauða kominn. Slíkt hljómar sem hin mestu öfug- mæli. í besta falli lélegur brandari. Alþýðuflokkurinn mun eflast að áhrifum og krafti á næstu mánuðum. Undirtekt- ir almennings við stefnumið flokksins sýna það. Alþýðu- flokkurinn mun ekki bregðast vaxandi trausti og tiltrú kjós- enda. Alþýöuflokkurinn hefur sýnt það og sannað að hann stendur við stefnu sína og fyr- irheit. Það verðurekki sagt um þá flokka, sem haldið hafa um stjórnvölinn hér á landi síö- asta rúman áratug. _ gÁS. INNTÖKUBEIÐNI Ég undirritaður sœki hér með um að gerast félagi í ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGI Nafn Fædd(ur) Heimili Sími Atvinna ................. Nafnnr. Vinnustaður Sími Fagfélag Maki ...................................... Reykjavík, (Undirskrift umsœkjanda) Sendist skrifstofu Alþýðuflokksins að Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík, eða til viðkomandi flokksfélags. ^OSS 4, (ti (/> HVERNIG STARFAR RAUÐI KROSSINN? Þannig starfar Rauði krossinn Sjúkraflutningar: Deildir RKÍ vinna aö sjukraflutningum m. a. með kaupum á sjúkrabifreiöum og sums staðar meö rekstri þeirra. Skyndihjálp: RKÍ samræmir kennslu í skyndihjálp, heldur námskeið fyrir skyndihjálparkenn- ara og eflir fræöslu um skyndihjálp í skól- um. Deildir halda almenn námskeiö í skyndihjálp. Neyðarvarnir: RKÍ vinnur í samstarfi viö Almannavarnir ríkisins aö heildarskipulagi neyöarvarna i landinu. Þegar neyðarástand rikir ber björgunar- og hjálparsveitum aö vinna á hættusvæöum og RKÍ að sinna félagsleg- um hjálparstörfum þar sem skjóls er leitað. Sjúkrahótel: RKÍ rekur sjúkrahótel í Reykjavík. Þaö er ætlað sjúklíngum sem þurfa ekki nauð- synlega aö vera í sjúkrahúsi en veröa þó aö njóta aðhlynningar. Hjálpartækjabanki: RKÍ rekur hjálpartækjabanka í Reykjavik í samvinnu viö Sjálfsbjörgu, landssamband fatlaöra. Þar er hægt aö fá margvísleg hjálpartæki keypt eöa leigö. Blóðsöfnun: RKÍ hefur um árabil tekiö þátt í blóösöfnun í samvinnu viö Blóðbankann. Þjónusta í sjúkrahúsum: Fjölmargar konur vinna sjálfboöastörf i ýmsum heilbrigðisstofnunum, einkum í Reykjavík. Öldrunarmál: Flestar deildir RKÍ vinna mikil störf á ýms- um sviðum öldrunarmála, t d. dagvist, heimsóknaþjónustu, heimsendingu mat- ar, ,,opnu húsi', orlofsferöum o. fl. Flóttamannamái: RKÍ annast móttöku erlendra flóttamanna og aðstoð viö þá i umboði rikisstjórnar- innar. Aðstoð erlendis: Þegar hjálpar er leitaö frá aðalstöðvum Rauöa krossins i Genf vegna þess aö mikil vá er fyrir dyrum veitir RKI oft aðstoð meö sérþjálfuðum sendifulltrúum eöa send- ingum fjármuna og/eöa hjálpargagna. Alþjóðlegt samstarf: RKÍ er aðili aö alþjóöasamtökum Rauöa krossins og tekur þátt í samstarfi viö Rauöakrossfélög um allan heim. Hjálparsjóður: RKÍ reynir ávallt aö hafa fé fyrirliggjandi i hjálparsjóöi til aö geta brugðist fljótt viö þegar vá veröur skyndilega fyrir dyrum. Þannig öflum við fjár Söfnunarkassar: Söfnunarkassar eru aöaltekjulind RKÍ. Tekjum af þeim er aöal- lega variö til innlendra verkefna. Félagsgjöld: Árgjöld félagsmanna renna óskipt til deildanna. Smámiðahappdrætti: Reykjavíkurdeild RKÍ rekur smámiöahappdrætti og útvegar öörum deildum happdrættismiöa. Safnanir: RKÍ efnir stundum til fjársafnana til eflingar hjálparsjóöi. Gjafir: RKÍ berast oft gjafir til hjálparsjóös og almennra starfa. Margir senda einnig fé vegna áheita. Minningarkort: RKÍ hefur til sölu sérstók minningarkort fyrir þá sem vilja gefa Rauða krossinum fé til minningar um látna vini eöa aðstand- endur. Merkjasala: Merki Rauöa krossins eru ávallt seld á öskudag. 80% söluverðs rennur til deilda en 20% til RKÍ.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.