Alþýðublaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 14
14 Rauði kross íslands sextugur Margþætt hlutverk í heilbrigðis- og hjálparstarfi 10. desember nk. á Rauði kross íslands sextugsafmæli. Hann var stofnaður 10. des. 1924 í Reykjavík og nokkrum vikum seinna var fyrsta deildin stofnuð úti á landi. Það var á Akureyri 19. janúar 1925. Nú eru 48 Rauðakrossdeildir starfandi á öllum helstu þéttbýl- isstöðum landsins. Félagsmannafjöldi Rauða kross íslands var tæp 20 þúsund um síðustu áramót, þar af var rúmlega helmingur í Reykjavík. Aðal- skrifstofa Rauða krossins er við Nóatún 21 í Reykjavík. Þar starfa nú 11 manns. Reykjavíkurdeildin hefur líka sérstaka skrifstofu og á henni starfa þrír starfsmenn. Einn starfsmaður er hjá Akureyrar- deildinni en öll önnur störf eru unnin í sjálfboðavinnu. ar tæki til skammtíma nota, auk þess sem þar starfar iðjuþjálfi, sem veitir fólki leiðbeiningar í heima- húsum um hyggilegustu notkun þeirra margvíslegu tækja sem Hjálpartækjabankinn hefur á boð- stólum. Sjúkrahótel RKÍ var stofnað 1974. Starfsemi þess er að Skipholti 21 í Reykjavík. Þar eru rúm fyrir 28 sjúklinga en húsnæðið þarf að stækka um a.m.k. helming til að Bresk Rauða-kross hjúkrunarkona við vinnu í einni af rnatvœlamiðstöðv- um Rauða-krossins i Eþíópiu Margþætt starfsemi Starfsemi Rauða kross íslands er ákaflega margþætt. Mikill hluti starfseminnar snertir heilbrigðis og hjálparstarfsemi innanlands, en auk þess tekur Rauði kross Islands virkan þátt í alþjóðastarfsemi hjálparstofnana, bæði hvað varðar flóttamannahjálp og þróunarhjálp, auk þess sem neyðarhjálp er mjög stór þáttur í starfsemi RKÍ, nægir þar að nefna þá hjálparstarfsemi sem nú er innt af hendi í Eþíópíu og RKÍ tekur virkan þátt í. Hér á eftir verður gerð grein fyrir hinni margþættu starfsemi Rauða krossins: Fyrst ber að telja sjúkraflutn- inga, en af þeim 66 sjúkrabifreið- um, sem starfræktar eru hér hefur Rauði krossinn fjármagnað að verulegu leyti eða öllu kaup á rúm- um 50 sjúkrabifreiðum. Reglulega eru haldin námskeið í skyndihjálp, kennslubækur gefnar út og kennar- ar í skyndihjálp útskrifaðir. Sam- komulag er við Almannavarnir ríkisins um að Rauði krossinn hafi forystu um kennslu í skyndihjálp og samræmingu á kennsluaðferðum. Rauði krossinn er með samvinnu við Blóðbankann um blóðsöfnun. Árlega eru margar ferðir farnar til blóðsöfnunar ásamt starfsfólki Blóðbankans. Með samkomulagi Almanna- varna ríkisins og RKI sér RKÍ um að annast þann þátt almannavarna í landinu, sem nefnist fjölda- og félagslegt hjálparstarf, öðru nafni neyðarvarnir. I dag eru 64 fjölda- hjálparstöðvar skipulagðar af RKÍ um allt Iand. 1976 var Hjálpartækjabankinn opnaður. Hann er við Nóatún 21 í Reykjavík, sér hann um sölu á hjálpartækjum fyrir fatlaða og lán- fullnægja eftirspurn því hótelið er fullsetið allan ársins hring. Hótel- inu er ætlað að þjóna því hlutverki að hýsa fólk, sem vegna veikinda þarf áð vera í stöðugu sambandi við lækna eða hjúkrunarfólk í Reykja- vík, en á ekki heimili þar eða getur ekki búið eitt, er ekki heilbrigt en þó ekki svo veikt að réttlætanlegt sé talið að fá því vist á sjúkrahúsi. 6. janúar 1983 hófst kennsla í Skóla fatlaðra í Reykjavík. Þar geta fatlaðir fengið þjálfun til starfa, sem þeir geta innt af hendi þó allir limir séu ekki í lagi. Þá um vorið út- skrifuðust fyrstu 6 nemendurnir. Enn er óvíst hvort fjárhagsgrund- völlur er nægilega traustur til skóla- starfs veturinn 1984-1985. 1980 var tíu ára framtíðaráætlun RKÍ ákveðin og á því tímabili verða öldrunarmál eitt af forgangsverk- efnum allra deilda. Átti RKÍ mik- inn þátt í að landssamtök um Vannœrt barn í Eþíópíu öldrunarmál, Öldrunarráð íslands, var stofnað 21. okt. 1981. Meðal verkþátta öldrunarmála er viðleitni til að gefa sem flestum aldurhnign- um og vanheilum kost á að njóta dagvistar. Á því sviði hefur mestum árangri verið náð í Reykjavík með stofnun Múlabæjar, dagvistar aldraðra og fatlaðra, sem RKÍ kom upp 27. jan 1983 í samvinnu við SIBS og Samtök aldraðra. Stofnun- in er jafnan fullsetin. Margar deildir RKI skipuleggja sjálfboðavinnu á sjúkrahúsum og elliheimilum. Þar er unnið við bókasöfn sjúklinga og allvíða eru opnar sölubúðir. Fjármunum er aflað m.a. með sölu á munum sem unnir eru á vikulegum fundum sjálfboðaliða og útgáfu jólakorta. Rauðakrossdeildirnar hafa skipulagt heimsóknaþjónustu þar sem sambandi er komið á milli þeirra sem einsemd þjakar og sjálf- boðaliða, sem fúsir eru til að gera öðrum lífið léttbærara með heim- sóknum. Öll störf að málefnum RKÍ eru unnin í sjálfboðavinnu önnur en þau sem framkvæmd eru af fast- ráðnu starfsfólki RKÍ. Flóttamanna- og þróunar hjálp Eitt þeirra vandamála, sem Rauði krossinn reynir að leysa eru hin bágu kjör þeirra milljóna manna, sem hvergi eiga óskoraðan rétt til búsetu. Framlag íslendinga til flótta- mannahjálpar hefur verið tiltölu- lega minni en margra annarra þjóða. Sú hjálp sem við höfum veitt er tvíþætt, annars vegar aðstoð við þá sem eru í flóttamannabúðum og hins vegar hjálp til þeirra flötta- manna sem leyfi hafa fengið til bú- setu hér á landi. Að því er hið fyrra varðar þá hefur RKÍ skipulagt söfnun fjármuna, fatnaðar og mat- væla vegna flóttafólks í Afríku og Asíu og sent fólk til starfa í flótta- mannabúðum þar að loknum und- irbúningsnámskeiðum hér heima. Rauði krossinn hafði forgöngu um stofnun Flóttamannaráðs Is- lands og sér í umboði rikisstjórnar- Frh. á bls 13 ÞESSI BÓK ER K J ORGRIPUR Þjóðsaga gefur nú út bók sem er hreinn hvalreki á fjör- ur þeirra sem unna Ijóðum Jónasar Hallgrímssonar. Bókin er Ijósprentuð eftir 1. útgáfu Ljóðmœla eftir Jón- as Hallgrímsson, sem þeir Fjölnisfélagar Brynjólfur Pét- ursson og Konráð Gíslason sáu um árið 1847, tveimur árum eftir andlát Jónasar. Pappír bókarinnar er sérstaklega valinn til að líkjast sem mest þeim pappír sem var í upphaflegu útgáfunni, brot- ið er nákvœmlega það sama og var á frumútgáfunni og upplagið er allt bundið í ekta skinn, — pergament. Upplag bókarinnar er takmarkað, en fyrir bókasafnara er rétt að hafa í huga að 105 tölusett eintök voru sér- staklega prentuð fyrir þá. |$ófeaútsáfan^3 jóíiöaga Þingholtsstrœti 27 — Símar 13510—17059 LJÓÐMÆLI Eftirprentun þessi er gerö eitir fyrstu útgáfu Ljóömæla Jónasar Hallgrimssonar. Brot er nákvæmlega hiö sama. Útgáfa sú hefur veriö ófáanleg nema ef til vill fyrir stórfé og ekki þótt þaö væri i boöi. Bókin er öll i sama bandi ..pergamenti". Prentun annaöist GuöjónÓ hf. prentstofa. Filmugerö ber aö þakka Prentþjónustunni og bókbandiö er handunniö af Bókfelli hf. BÓKAÚJBAFAH-HJÓDSAGA. eptir JÓSÍA8 HALLGBmSgON. B. PJETURSSON og K. GÍSLASON hafa sjeh um prentunina. KAUPMANNAHÖFN. Hjii J. D. KvihTi, búkft-prcnlar* 05 núlua. 1817. Hinir fjölmörgu unnendur Ijóða listaskáldsins góða œttu ekki að láta þetta tœkifœri úr hendi sleppa.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.