Alþýðublaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 5
5 „Engin flokkur vill láta neitt af hendi; enginn þorir að fórna neinu því sem fyrir er, þótt vonir um annað og meira séu raunhœf- ar, ef aðilar tœkju höndum saman.“ „Eg vil varpa fram þeirri hugmynd, hvort ekki vœri rétt að fé- lagshyggjuöflin í þjóð- félaginu, hvar í flokki sem þau standa nú, tækju saman höndum og undirbyggju sam- eiginlegan rekstur öflugrar útvarpsstöðv- ar“ félagshyggjan ekki upp á pallborð- ið. Og það er svo, að þótt Sjálfstæð- isflokkurinn sýni nú grímulausa hagsmunavörslu fyrir þá er meira mega sín í þjóðfélaginu, þá eru þrátt fyrir það öfl innan flokksins, sem vilja veg félagshyggjunar meiri í þjóðfélagi okkar en nú er. Um ára- tugaskeið hefur Sjálfstæðisflokk- urinn verið laustengd hagsmuna- samtök utan um völd og áhrif. Flokkurinn byggir ekki á mark- vissri stefnu né afdráttarlausum útgangspunktum, heldur reynir að viðhalda ákveðnum sveigjanleika. Slíkt gerir hann m.a. til að auka breidd og vídd gagnvart kjósendum rétt fyrir kosningar, það gerir hann til að geta talist gjaldgengur í sam- starfi við aðra flokka þegar að stjórnarsamstarfi kemur og í þriðja lagi er það flokknum nauðsynlegt til að halda saman þeim fjölmörgu ólíku öflum sem flokkinn skipa. í raun hefur hins vegar félagshyggja Sjálfstæðisflokksins fyrst og síðast birst í því, að láta hið opinbera standa vörð um velferð fyrirtækj- anna, láta fjármuni skattborgar- anna vera eins konar baktryggingu fyrir því að enginn fari á hausinn. Þannig hefur verið byggt upp meira og minna sjálfvirkt tryggingakerfi fyrirtækjanna í landinu. Út á við er látið líta svo út fyrir að hér sé um að ræða aðstoð til að tryggja atvinnu, en í raun er þetta tryggingakerfi at- vinnurekenda. Þessi tegund mið- stýringar er ekki til hagsbóta fyrir launafólk þegar til lengri tíma er lit- ið. Þetta er í raun andhverfa félags- hyggju og jöfnuðar. Þetta hefur verið nefnt sósíalismi andskotans, þetta er pilsfaldakapítalismi. Skatt- greiðendur taka á sig taprekstur fyrirtækjanna þegar illa árar, en at- vinnurekendur hirða gróðann óskiptan í góðu árferði. En Sjálfstæðisflokknum hefur tekist með öflugum áróðri og sterk- um áróðurstækjum, að bregða upp þessari grímu frjálslyndis og félags- hyggju, þegar þörf hefur verið talin á, með þeim afleiðingum að flokk- urinn hefur haldið velli og hlotið umtalsverðan stuðning úr hópi launamanna — hlotið stuðning frá fjölmörgum félagshyggjumönnum. Frá fundi félagshyggjufólks á Hótel Borg, laugardaginn 24. nóvember síðastliðinn. í núverandi stjórnarsamstarfi kem- ur flokkurinn hins vegar meira og minna grimulaus fram á sjónar- sviðið. Það ætti að skapa hinum raunverulegu félagshyggjuöflum í landinu viðspyrnu, stuðla að sam- hjálp og samvinnu um réttlátari þjóðfélagsskipan gegn hinni ólýð- ræðislegu dreifingu valds yfir fjár- magni og atvinnutækjum sem til staðar eru í þjóðfélagi okkar. Það er erfitt að kljást við óvin í dulargervi, óvin, sem kemur ekki til dyranna eins og hann er klæddur, heldur kemur markmiðum sínum fram með klækjum og eftir ýmiss konar bakleiðum. Sjálfstæðis- flokkurinn í dag, þ.e. ráðandi öfl í fyrir breiðfylkingu í baráttunni fyr- ir betra þjóðfélagi fyrir þegna þessa lands, fyrir þjóðfélagi þar sem hver maður njóti afraksturs síns vinnu- framlags, og hver maður geti vænst réttlætis og öryggis, hvort hann er sjúkur eða heilbrigður, karl eða kona ungur eða gamall, hvort hann er úr dreifbýli eða þéttbýli. Á leið til þessa þjóðfélags efnahagslegs og félagslegs réttlætis allra eru margar torfærur. Flokkarnir eru margir, forystumennirnir eru margir, og all- ir telja þeir sig kallaða til að vera í fararbroddi baráttunnar. Alþýðu- flokkurinn og Alþýðubandalag eru flokkar á gömlum merg. Þeir vísa til fyrri afreka og verka. Þeir kalla kannana, sem sýna augljóslega að þessi öfl eiga vísan stuðning hjá ákveðnum hópi kjósenda. Og Al- þýðubandalag og Alþýðuflokkur eiga sömuleiðis vísan stuðning, mismikinn frá einum tíma til ann- ars, en þó alltaf ákveðinn fastan hóp ötulla stuningsmanna og kjós- enda. Allir þessir flokkar telja sig hinn eina og sanna málsvara félags- hyggju í landinu. Enginn vill láta neitt af hendi, enginn þorir að fórna því sem fyrir er, þótt vonir um annað og meira séu raunhæfar, ef aðilar tækju höndum saman. Oft hafa verið gerðar tilraunir til að ná saman öllu félagshyggjufólki undir einn hatt. Samtök frjáls- „En nýjar kynslóðir eru komnar tilsögunn- ar. Þeir einstaklingar sem nú bera hita og þunga baráttunnar þurfa ekki að láta erj- urforveranna flœkjast fyrir“ „Meiri kraftur hefur oftsinnis farið í að berja á hver á öðrum, heldur en aðalóvinin- um — sjálfu íhaldinu. Það er kominn tími til aðslíðra sverðin í þeim slag.“ „Það er vegið að mannréttindum fólks og félagshyggjan á í vök að verjast. Er stœtt á því að félags- hyggjumenn eyði mestu púðrinu i að berja hver á öðrum, meðan markaðs- hyggjuöflin, gróðaöfl- in, vaða uppi?“ honum, hafa hins vegar gert lítið til að fela raunveruleg markmið, trúin á frelsi til ofsagróða, hagsmuna- varsla um styrk og stöðu valdaafla, er öllum ljós sem á annað borð vilja horfast í augu við raunveruleikann. Þetta ætti að gera baráttu félags- hyggjuaflanna markvissari og bein- skeyttari, ætti að verða til þess að fólk gerir ljósan greinarmun á þjóð- félagi því sem vinstri öflin draga upp og þeirri útópíu sem markaðs- hyggjuöflin dásama. Hræðsla við uppstokkun En ljón eru á veginum til heil- steyptrar og víðtækrar framsóknar söguna til vitnis um nauðsyn þess að við þeirra tilvist verði ekki hrófl- að. Nýju framboðin, Bandalag jafnaðarmanna og Samtök um kvennalista, eru til orðin, vegna þess að hvatamenn að stofnun þeirra, töldu ekki að þeir félags- hyggjuflokkar sem fyrir voru, stæðu sig nógu vel, þeir væru staðn- aðir og fastir; þeirra slagkraftur væri ekki nægilegur. Og Bandalag jafnaðarmanna og Kvennalistinn telja því sjálfstæðu hlutverki sínu langt í frá lokið í íslenskri pólitík. Og vitanlega eru aðilar fast- heldnir á það sem fyrir er. Bandalag jafnaðarmanna og Kvennalistinn vísa til kosningaúrslita og skoðana- lyndra og vinstri manna voru bein- línis stofnuð til þess á sínum tíma, að vera sameiningartákn vinstri manna og félagshyggjuafla. Og nú á síðari árum hafa flestir vinstri flokkanna viljað spenna út regnhlíf sína og boðið öðrum flokkum, öðr- um samtökum á svipaðri línu, und- ir og í samflot, og nú hafa verið spenntar upp fjórar regnhlífar af þessu tagi, regnhlífasamtökin eru jafnmörg þeim félagshyggjuflokk- um sem fulltrúa eiga á Alþingi. Hverjum þykir sinn fugl fagur, allir telja það sitt hlutverk að vera það sameiningartákn, sem félags- hyggjufólk leitar eftir með logandi ljósi. Persónur og hagsmunir Smæð íslensks þjóðfélags, per- sónuleg nálægð íslenskra stjórn- málamanna, gerir allt samstarf og öll samvinnáform þyngri í vöfum en ella. Persónur, skipa oft stærri sess í þessum hugleiðingum um öflug og sameiginleg samtök félagshyggju- fólks, en spurningar um málefna og áhersluatriði. Forystumennirnir spyrja sjálfa sig um sína stöðu, þeg- ar breiðfylkingarhugmyndir koma upp. Hvað yrði um Svavar, Jón Baldvin, Stefán Benediktsson og Guðrúnu Agnarsdóttur í breiðfylk- ingu vinstri manna? Myndu þau halda sínum áhrifum? Fengju þau örugg þingsæti? Hvað um alla þingmennina, sem vilja ganga að sínum sætum vísum? Yrði þeirra staða ekki ótrygg? Hvað um trún- aðarmenn flokkanna hér og þar i kerfinu? Myndu þeir verða útund- an í nýju sameiginlegu stjórnmála- afli? Ég geng út frá því að almennur vilji sé rrieðal félagshyggjufólks í öllum flokkum að til sé sterkt, öfl- ugt sameiginlegt afl félagshyggju- manna — mótvægi gegn veldi íhaldsaflanna, en ekki að hver sé að berjast út af fyrir sig, án mikils ár- angurs. Sömuleiðis geng ég út frá ákveðinni tortryggni meðal forystu- manna vinstri flokkanna á þeim persónulegu forsendum sem ég nefndi áðan. Og hinu skulum við heldur ekki gleyma að samkomulag foringjanna, einhvers konar for- ingjaráðstefnur og ákvarðanir um samvinnu og jafnvel sameiginlegt framboð, þurfa ekki endilega að ná niður í rót. Reynslan af slíku er ekki alltof góð. Vilji og starf af slíkri samvinnu þarf að koma neðan frá, úr grasrótinni, frá fólkinu sjálfu, ekki foringjunum einum. Ráðstefn- ur, á borð við þá, sem hér er haldin, er einmitt leiðin til traustrar og fölskvalausrar samvinnu vinstri afl- anna. Vinstri flokkarnir hafa gengið í gegnum ýmis vandamál á langri leið. Persónulegar heitingar for- ystumanna ólíkra stjórnmála- flokka, klofningur í flokkum, harður ágreiningur. Þetta óveður á vinstri vængnum hefur sett sitt mark á alla möguleika til aukinnar samvinnu. Harður slagur verka- lýðsflokkanna, Alþýðuflokks og Álþýðubandalags hefur skilið eftir sig vík milli vina. Og í því er oft erf- iðast að yfirvinna persónulegar heitstrengingar foringjanna. For- tíðin hefur t.a.m. verið sem fleygur milli Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks. Átökin sem áttu sér stað með aðskilnaði Alþýðuflokks og Alþýðusambands íslands á sínum tíma og atburðir sem þá fylgdu í kjölfarið hafa í gegnum áratugina verið stór steinn í vegi fyrir sam- starfi Alþýðubandalags ogAlþýðu- flokks. En nýjar kynslóðir eru komnar til sögunnar. Þeir einstaklingar sem nú bera hita og þunga baráttunnar þurfa ekki að láta erjur forveranna flækjast fyrir. Aðstæður fyrir auk- inni samvinnu og samstarfi eru því aðrar og betri nú, en áður gerðist. Margir telja þetta léttvægt, þegar málefnin ættu að vera í fyrsta sæti, en staðreyndin er engu að síður sú, að persónulegar tilfinningar ráða meiru um stjórnmálaþróun hér á landi, en margan grunar. Frh. á bls. 15

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.