Tíminn - 20.05.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.05.1967, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 20. maí 1967. TÍMINN MENNING Benedikt Sveinsson bókari, Borgarnesi í dag er gerð frá Borgarnes- kirkju, útför Benedikts Sveins- sonar, bókara og fyrr'verandi kaup félagsstjóra í Borgarneisi. Benedikt Sveinsson var fæddur að Kolsstöðum í Miðdölum 19. nóv. 1898 soniur hjónanna Sveins Finnssonar bónda þar og konu hans Helgu Eysteinsdóttux. Börn þeirra Sveins og Helgu voru alHs elilefu, og ennþá níu á lífi. Einn son Eystein misstu iþau Kolstaðahjón innan við þrítugt, að öðru leyti var ekki í þann bóp höggvið, þar til nú við frá fall Benedikts. Benedikt Sveins son, var aif myndar, greindar og hagleiksfólki koiminn, og bar þess sjlálfur giögg merki. Hann var vel gefinn og vel gerður maður. Ung ur sótti hann fram á menntabraut, stundaði fynst nám að Hjárðar- holti í Dölum, síðar í Verzlunar skóla íslands. Efeki lét hann þar staðar numið, heldur sigldi hann utan og lagði leið sína ti'l Berilínar og stundaði þar fram- haldsnám. Allur iærdómur og nám reyndist honum mjög auð- velt, enda náði hann góðri mennt un. Eftir heimkomu frá námi stundaði 'hann störf á ýmsum stöðum, aðallega hjá kaup- félögum. Skömmu fyrir 1930 flutti hann í Borgarnes, og gerð ist starfsmaður Kaupfélags Borg- firðinga og vann þar meðan starfs knaftar leyfðu. Benedikt varð kauptfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga 1930, og gengdi því stanfi um tveggja ára skeið. Enda þótt Benedikt kyisi ekki að starfa lengur hjá Kaupfélagi Borgfirðinga sem kaupfélags- stjótí, á hann þó sinn þátt í sögu þess. Á þeim árum sem hann var kaupíélagsstjóri, tókst að sameina Sláturfél. Borgfirðinga kaupfélag- inu og í framh. af því einnig mjólk uriðnaðinn. Við þetta skipulag býr K.B.-enn þann dag í dag, og hefur haft mikinn sóma atf. Etftir að Benedikt hætti kaup- félagsstjórastanfinu, varð hann aða'lbókari K.B. Því starfi gegndi hann af mikillli snilld, meðan heils an leyfði. Benedikt Sveinsson var að öðlisfari mikill iistamaður, eins og hann átti kyn til. Skrift hans og frágangur á reikningum, var það snilldarlega gerð, að unuu er að eiga og geyma, þótt að eins og tölur einar á blaði. Bene- dikt Sveinsson var mikill og einlæg ur samvinnumaður, maður er bar hag þeirra fyrir brjósti er minna máttu sín í þjóðíélaginu, og eygði í samvinnustefnunni meiri möguleika til hjálpar í lífsbar- áttunni. Einnig sá Benedikt hvað þjóðin í heild gæti skilað verk- efnum sínum betur, með samein uðum kröftuim, við að lyfta þung um byrðurn. Eins og getið er í upphafi, átti Benedikt til listrænna að telj.a. Meðal bræðra hans er Ásmundur Sveinsson myndhöggvari, einn af fremstu listamönnum lands vors. Tveir bræður hans Bjarni og Finnur, hafa búið í Eskiholti í I Borgarhreppi, við mikla reisn og ' alkunna snyrtimennsku. Listræn | ir hætfilei'kar voru því einkennandi i fyrir Benedifct Sveinsson. Benedikt kvæntist ekki, en bjó hin síðari ár í sambýli við Jóhönnu Jóhannsdóttur, ljósmóð- ur, tfrá Skógum á Fellsströnd. Jóhanna reyndist Benedikt mikil tryggðar manneskja, eins og hún á kyn til. Hún annaðist hann .er heilsa hans var þrotin, og varð þar ekki um betra kosið. Með Benedikt Sveinssyni er genginn mikiilihæfur og glæsilegur mannkostamaður. Maður er bar gæfu til og átti þátt í að leysa mál, er varðaði heill þessa héraðs, maður er ekki briást í framaistanfi. Blessuð sé minning hans. HaUdór E. Sigurðsson. MEUVOLLUR Reykjavíkurmótið í knattspyrnu. í dag kl. 14 keppa Valur — Víkingur Mótanefnd Kvennaskótinn a Blönduósi Námsmeyjar við Kennaraskólann á Blönduósi, er burtskráðust skólaárið 1936—37, eru vinsamlega beðnir, vegna þessara tímamóta, að hafa sam- band við frú Þorgerði Sæmundsen, Blönduósi, eða frú Margréti Sigurðardóttur, sími 18493, Reykjavík, fyrir 25. þ.m. V örubílst jóraf élagið Þróttur Bifreiðamerki Þessa árs merki á bifreiðar félagsmanna verða afhent á stöðinni frá 25. maí til 15. júní n.k. — ATH.: Að þeir, sem eKKi hafa merkt bifreiðar sínar með hinu nýja merki fyrir 16. júní njóta ekki lengur réttinda, sem fullgildir félagsmenn og er samningsaðilum Þróttar eftir það óheimilt að taka þá til vinnu. STJÓRNIN Auglýsið í HMANUM Framleiðandi: æjsxi.-tokí'os BRxrct SKULAGOTU 63 SÍMI 19133 B.H.WEISTAD&Co. Skúlngötu 63III.hœð • Sími 19133 • Pósthólf 579 Á VÍÐAVANGI „Valið stendur um öryggi eða upplausn — frelsi eða höft" Þessi orð eru flennt yfir þvera forsíðu Morgunblaðsins í gær sem kosningahróp Bjarna Benediktssonar á íhaldsfundi í Holsteini. Oft hefur Bjarni mælt ósannari orð Það er deg inum ljósara, að kosningarnar núna snúast fyrst og fremst um það, hvort menn vilja una þeirri upplausn, sem nú ríkir í atvinnumáluin, efnahagsmál- um og fjármálum og fer hrað- vaxandi samfara því að hlaðið er undir erlenda auðhringi en. þrengt- að íslenzkum atvinnu- vegum, eða kjósa öryggi ís- lenzks framtaks, íslenzkrar upp byggingar — nýja stjórnar- stefnu, sem miðar að því að tryggja öryggi afkomunnar með raunverulegri eflingu íslenzkra atvinnuvega en ekki því íhalds- ráði að fólk eigi atvinnuöryggi sitt undir því að gerast vinnu lýður hjá erlendri stóriðju, eins og nú er helzti fagnaðarboð- skapur Bjarna. Valið stendur um áframhald andi upplausn „viðreisnarinn- ar“, sem birtist í þrengingum íslenzkra atvinnuvega og ör- yggi íslenzkrar stjórnarstefnu. Valið stendur um höft og skömmtun „viðreisnarinnar“ og frelsi íslenzkrar atvinnuupp- byggingar og viðskipta á þeim grunni. Um þetta snúast kosn- ingamar. W Slysni Bjarna Eins og mönnum er kunnugt, hata geyúlfar Bjarna á Mogga þrástagazt á. því undanfarnar vikur, að þing Framsóknar- manna hafi fellt þá Jakob Frí- mannsson og Þorstein Sigurðs- son úr miðstjórn flokksins og pað í einhverju hefndarskyni. Vú þykir Bjarna sem þessi ósannindi séu búin að fá þá fætur, að honum sé óhætt að hlaupa með þau. Þetta gerir hann á fundi íhaldsins, og Moggi endurprentar þetta svo einu sinni enn og nú úr munni forsætisráðherra á þessa ieið: „Samkomulagið innan Fram- sóknarflokksins sést bezt á því, að úr 1.00 manna miðstjórn F.'amsóknarflokksins eru felld- ir Þorsteinn á Vatnsleysu, for- maður Búnaðarfélags fslands og Jakob Fvímannsson formað ur Sambands ísl. samvinnufé- laga. Það hefði einhverntíma þott tíðindum sæta, að Fram- sóknarflokkurinn þættist hafa efní á því að fella slíka mei’.n úr miðstjórn sinni. Ástæðan getur ekki verið önnur en sú, að þessir menu þykja ekki lík- ægir til að fylgja nógu hart eftn þeirri baráttu. sem Fram sótnarmenn heyja nú í örvænt mgu sínni“. SíúSurkerlingin í stjórnarrgðinu En svo ber við, að éinmitt sama daginn Rjarni lætur Mugga ílytja þessi orð eftir ser með áberandi hætti. hnekkja píii báðir laKob og Þorsteinn uppspuna Morgunblaðsins, með yfirlýsingun- i Tímanum svo eftirminnilega, að þess eru fá dæmi, að menn hafi verið gerð ir svo rækilega ómerkir orða sinna sem þeir Morgunblaðs- ritstjórar og einnig sjálfur for- sætisráðherrann. Þess munu fá Framhald a 15. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.