Alþýðublaðið - 22.12.1984, Síða 5
Laugardagur 22. desember 1984
5
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin
á liðna árinu
BURSTAFELL
Byggingavöruverslun,
Bíldshöföa 14
Gleðileg jól og
farsælt nýár!
Þökkum
viðskiptin á
liðna árinu.
MJOLKURBU
FLÓAMANNA
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin
á liðna árinu
BlLABORG H.F.
SMIÐSHÖFÐA 23
Blóðbankinn
sendir öllum blóögjöfum og velunnurum sínum bestu
jóla- og nýársóskir meö þakklæti fyrir hjálpina á und-
anförnum árum.
Sorptœknir í Grafarvogi:
Þjóðarátak til hjálpar
jólasveinunum
Ég hef verið að velta þessum ís-
lensku jólasveinum fyrir mér nú í
nokkra daga og get ekki orða bund-
ist. Þeir virðast eiga ákaflega fátt
sameiginlegt með honunr Sankti
Kláusi, sem i útlandinu ferðast um
með pakkana á stórum sleða, sem
nokkur hreindýr draga, undir for-
ystu Rúdólfs með rauða nefið.
Heimildir segja að íslensku jóla-
sveinarnir tilheyri 15 manna stór-
fjölskyldu ofan af fjöllum (aðrar
heimildir segja reyndar að jóla-
sveinarnir séu„einn og átta“og því
um minni fjólskyldu að ræða, en
færri aðhyllast þá söguskoðun). Og
almennt virðist heimildum bera
saman um að aldeilis sé ekki um
pena fjölskyldu að rreða.
Til dæmis fer heldur óhugnan-
legum sögum af móður íslensku
jólasveinanna, en hún ku nefnast
Grýla. Henni er á einum stað lýst
svo:
„Tröllkerling leið og ljót
með ferlega hönd og haltan fót“.
En það er ekki nóg með að hún sé
ljót þessi skessa, heldur er sagt að
hún sé mannæta og að í þokkabót
finnist henni best að borða börn, -
þau er slysast hafa til að vera óþekk.
Treður þeim í poka sinn og sýður
þau! En gagnvart sinum eigin börn-
um, jólasveinunum, virðist hún láta
sér minniháttar refsingar duga; hún
„flengir þá með vendi“. Óþarfi er
að fjölyrða um fjölskylduföðurinn,
Leppalúða, hann mun einnig vera
Ieiður og ljótur, en þegar að sonunt
þeirra hjóna kemur, er ljóst að þeir
hafa lært ýmsa óknyttina og hlotið
afleitan arf í bernsku (að hugsa sér,
13 synir í röð. Voru engar dætur?
Bornar út eða étnar?). Þannig segir
ein helsta heimildin um íslensku
jólasveinana að þeir séu:
„Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir
ef enginn nærri var“.
Þeir sem sé hika ekki við að
hrekkja fólk og trufla þess heimilis-
frið, en umfram allt virðast þeir
hafa „heilann í maganum" þvi mat-
ur virðist þeirra „ær og kýr“. Þann-
ig segir sagan um þessa hungruðu
félaga:
Stekkjastaur nýtur þess mest að
sjúga ærnar. Giljagaur felur sig í
fjósum og stelur froðunni af mjólk-
urafurðunum. Stúfur krækir í
pönnur og hirðir agnirnar. Þvöru-
sleikir stelst í þvörur til að sleikja
þær. Pottaskefill platar skófir af
börnum. Askasleikir stelur öskum
frá hundum og köttum. Hurða-
skellir nýtur þess að trufla svefnfrið
manna (ekkert minnst á mat!). -
Skyrgámur brýtur hlemma og hám-
ar í sig skyr þar til Itann stendur á
blístri. Bjúgnakrækir brögðótti
hnuplar og étur bjúgu. Gluggagæg-
irgrályndi húkir á gluggunt og reyn-
ir að ná í allt sem álitlegt er, sjálf-
sagt fyrst og fremst matarkyns. -
Gáttaþefur rennur á lyktina af
laufabrauði. Ketkrókur krækir sér í
kettutlu þegar kostur er á. En -
Kertasníkir tekur fram yfir matinn
að elta litlu börnin til að ná af þeim
kerti!
En þrátt fyrir þessa ntjög svo
óprúðmannlegu framkontu jóla-
sveinanna, greina heimildir frá því
að þeir séu í raun fyrirtaks skinn.
Ástæðan:
„Reyndar á bakinu bera þeir poka,
bætir það töluvert mikið úr skák“.
Með öðrum orðum blasir eftir-
farandi við: Þrátt fyrir mannætu-
foreldra og brögðótta, lævísa, þjóf-
ótta, forvitna og hávaðasama jóla-
sveina, má fyrirgefa alla slíka
ókosti, með þvi að jólasveinarnir
bæta þá upp með (mútu)gjöfum!
Og svo sýna þeir þá kurteisi að
koma til byggða og inn á heimilin í
skömmtum, einn á dag, þannig að
úr ósköpunum teygist og dregur,
sem betur fer. Eða getið þið ekki
imyndað ykkur ástandið ef öll fjöl-
skyldan kæmi í einu inn á saklaust
heimili:
Öllu matarkyns yrði umsvifa-
laust hnuplað, allur heimilisfriður
yrði fyrir bý, menn og húsdýr of-
sótt, hvergi næði fyrir glápi á
glugga, hurðaskellir glymdu o. s.
frv., allt fram á jólanótt! Og ímynd-
ið ykkur örlög þeirra barna sem
ekki gætu setið prúð og stillt undir
þessum ósköpum: Grýla stingur
þeint snarlega í poka, sýður þau og
étur! Hætt er við, að gjafirnar yrðu
að vera ansi stórar til að bæta hér úr
skák. Ekki dygðu kerti og spil; und-
ir slíkum kringumstæðum nægði
ekkert minna en eins og ein sólar-
landaferð, nýtt vídeó, verðtryggður
sparireikningur með 10% vöxtum,
Black & Decker borvél, ritsafn
Halldórs Laxness og a. m. k. tvö bíl-
hlöss af leikföngum, ásamt skaða-
bótagreiðslum vegna skemmda og
horfinna barna.
Annars er ekkert undarlegt að
þessi fjölskylda sé dulitið skrýtin,
það er varla heppilegasti staðurinn
til að hola sér niður, fjöllin. Er ekki
ráð að grípa til landssöfnunar svo
reisa megi jólasveinaathvarf ein-
hvers staðar í byggð — að efna til
þjóðarátaks til hjálpar jólasveinun-
um? Sorptæknir í Grafarvogi.
Gleðileg
jól!