Tíminn - 10.06.1967, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.06.1967, Blaðsíða 1
Urslitasigurinn getur oltið á einu atkvæði SEGIR EYSTEINN JÓNSSON, FORMAÐUR FRAMSÓKNAR- FLOKKSINS í VIÐTALI VIÐ TÍMANN Tíminn bað formann Fram- sóknarflokkinn að segja örfá orð om það sem honum væri efst í huga í lok kosningabar- áttunnar. — Mér er, held ég, efst í huga nauSsyn þess, að hver og einn kjósi eins og hann hefur mestu löngun til og vill helzt. Að menn láti ekki blekkingaráróður af neinu tagi trufla sig í þeim ásetn- ingi, né gömul flokkstengsl. Sporin hræða í því efni eins og t.d. í bæjarstjómarkosning unum síðast, þegar Alþýðu- bandalagsmenn björguðu tví- mælalaust íhaldsmeirihlutan- um i Reykjavík, með áróðr- inum um „umframatkvæði“ Framsóknarflokksins, og enn eru þeir, úr öllum hinum flokkunum á stúfunum, með samskonar blekkingaáróður. Þeir hafa á hinn bóginn orðið varir við það, að marga langar til þess að kjósa með okkur núna. því annars væru ekki þessar eilífu grátbænir úr öllum áttum til manna um að gera það ekki. — En hvað viltu segja um málefnin? — Nú er kosið um það, hvort taka skuli upp nýja stefnu, hliðstæða þeirri, sem bezt hefur gefizt annars stað- ar, eða halda áfram að fylgja þessari úreltu, sem svo illa hefur íeikið atvinnulífið og komið kjaramálunum í sjálf- heldu. Þá ekki síður um hitt, hvort núverandi stjórnarflokk ar eigi að geta ráðið stöðu fslands gagnvart Efnahags- bandalagi Evrópu, eins og þeim einum sýnist. Það er þung ábyrgð að fela þeim slíkt vald og verður ekki aftur snúið. þegar seðillinn er kom- inn 1 kassann. Loks nefni ég nauðsyn þess að efla nú enn Framsóknarflokkinn og magna hann sem forustuflokk um- bótafólks í landinu. Það er fásinna að byggja utan um kommúnistakjarnann og ömur legt til þess að vita að enn skuli vera með nýjum hrögð- um, eins og framboði Hanni- bals, gerð tilraun til þess að ginna menn til fylgis við glunaroðann. — Hverju viltu spá umi úrslitin? — Ég spái aldrei um kosn- ingaúrslit. Ég tel okkur hafa byr, en jafnframt að þetta standi glöggt og nú geti allt oltið á því að vel sé unnið í lokasprettinum. Það getur oltið á einum kjósanda hvar sem er á landinu, hvort Fram- sóknarflokknum tekst að vinna úrslitasigur. Ég vona að nógu margir velji nú nina leiðina þegar menn eru staddir á vegamót- unum í kjörklefanum, segir Eysteinn Jónsson að lokum og brosir. ÖFLUG SÖKN í REYKJANES KJÖRDÆMI I Reykjaneskjördæmi hef- nr kjósendnm á kjörskrá fjölgaö nm rúm 24% sfðan 1963, og er það eina kjör- dæmi landsins, þar sem f jölgnn er meiri en heildar- aukning í iandinn, sem er 9,5% síðan 1963. Eins og gefur að skilja er nngt fólk hlutfallslega mikln fleira en annars staðar þarna, eins og ætíð er á fjölgunarsvæðum. f þessu kjördæmi hefur Framsóknarflokkurinn vaxið hlutfallslega mest á síðustu árum, og gefur það nokkra vísbendingu um, hverja sam leið hann á með unga fólkinu í Iandinu. f sfðustu Alþingiskosn- ingum jók Framsóknarflokk- urinn atkvæðamagn sitt þarna um 40% og bætti hlutfall sitt í heildaratkvæða magni kjördæmisins úr 16% í 20,1%. í bæjarstjórnarkosninguu um í fyrra kom í Ijós, að þessi mikla sókn lieldur enn áfram, jafnvel með enn meiri hraða, og allar fregnir úr kjördæminu nú benda til þess, að hann hafi mikla möguleika til þess að bæta við sig þingmanni þar og koma Valtý Guðjónssyni á þing, ef vel er unnið. En til þess að því marki verði náð má enginn liggja á Iiði sínu, og eitt einasta atkvæði getur ráðið úrslitum. Á 8. síðu Timans í dag eru bir> stutt viðtöl við þrjá efstu menn B-Iistans í Reykja nesk;ordæmi, þá Jón Skafta- son, Valtý Guðjónsson og Björn Sveinbjörnsson. Ræða þeir kosningahorfurnar, mál eíni kjördæmisins og álirif .tjórnarstefnunnar á atvinnu lífið. SJÁ BLS. 8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.