Tíminn - 10.06.1967, Blaðsíða 9
9
FÖSTUDAGUR 9. júní 1967 TIMINN
Utgefandi: FRAMSOKNARF-LOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G Þorstejnsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug-
lýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur í Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr 105.00 á mán. innanlands. — í
lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
Hið mikla fjölmenni, sem iótti kosningafund Fram-
sóknarflokksins í Háskólabíói í fyrrakvöld, hefur vakið
mikla athygli í borginni, og í gær mátti heyra, að mjög
var um hann talað. Fundinn sótti á þriðja þúsund manns,
en örðugt er þó að segja nák/æmlega, hver mannfjöld-
inn var. Það var e'kki aðeins, að hvert sæti væri skipað
í þessum stærsta fundarsal borgarinnar, heldur stóð mað-
ur við mann eins þétt og unnt var, með öllum veggjum
og út úr hliðardyrum, svo og í uppgöngu og gangi milli
sæta, og bætt var stólum í salinn eins og unnt var. Og
í hinu stóra anddyri bíósins stóðu og sátu mörg hundruð
manna, svo að þéttskipað var meginhluta fundartímans.
Framsóknarmenn höfðu að vísu gert sér vonir um
góða fundarsókn og fullt hús, en þeim kom á óvart þetta
geysilega aðstreymi fólks. Það er ekki aðeins, að þetta
sé langsamlega fjölmennasti fundur á vegum Fram-
sóknarflokksins, heldur var það álit margra að fjöl-
mennari kosningafundur hafi aidrei verið haldinn innan
húss hér í höfuðborginni.
Fundur þessi sýnir gerla, hver staða Framsóknar-
flokksins er í þessum kosningum og hverjar horfur eru
á úrslitum. Hann sýnir að traust og fylgi Framsóknar-
flokksins vex jafnt og þétt og foík gerir sér æ betur ljóst,
að þessar kosningar eru barátta milli Framsóknarflokks-
ins og stjórnarflokkanna, að frjálslyndum stjómarand-
stæðingum sé sá kostur einn fyrir hendi, vilji þeir fella
ríkisstjórnina að fylkja sér um Framsóknarflokkinn, efla
einn stóran flokk umbótamanna gegn ríkisstjóminni.
Hann sýnir einnig, að æ fleiri sKilja, hve þessar kosning-
ar eru örlagaríkar, og hve mikilvægt er nú að víkja frá
þeirri ríkisstjórn, sem sett hetur íslenzkt framtak og
íslenzkt atvinnulíf á hinn óæðn bekk. Fólk veit, að haldi
ríkisstjórnin nú velli, mun hún líta á það sem trausts-
yfirlýsingu og herða enn meira á þeirri „viðreisn“, sem
hún hefur beitt og lýst yfir að hún muni beita áfram.
Þjóðin veit, að það má ekki gerast.
En sóknarfundurinn í Reykjavík eru ekki einu merkin
um góðar kosningahortur F'-amsóknarflokksins. Hvar
vetna annars staðar af landinu oerast fregnir um þessa
sókn og vaxandi stuðning við Framsóknarflokkinn. Fregn-
ir berast af nýjum mönnum sem koma til hðs við flokk-
inn og lýsa yfir stuðningi við hann Fundir fiokksins eru
hvarvetna vel sóttir og málflutmngi hans vei tekið. Jafnt
andstæðingar sem aðrir gera sér ljóst, að Farmsóknar-
flokkurinn muni bæta við sig í hverju einasta kjördæmi
landsins og hafi víða góða moguleika á að vinna þing-
sæti. En jafnframt er það ljóst af því. hvernig straum-
urinn liggur til Framsóknarflokksins i þessum kosning-
um, að hann getur vel unnið uppbótarsæti, takist ekki
að vinna kjördæmissæti og þvi getur eitt einasta atkvæði
ráðið úrslitum hvar sem er á 'andinu.
Fregnirnar um sókn Framsóknarflokksins eru ekki
sízt góðar úr Reykjaneskjöraæmí enda er fjölgun á
kjörskrá þar langmest, og sók.j flukksins þar síðustu ár
heldur áfram með vaxandi þunga Það er til dæmis á
almanna vitorði þar, að fundir fiokksins í Reykjanes-
^jördæmi hafa verið bezt sóttir allra f'okka þar.
En bótt siqurhorfur séu góðar er allt komið undir því,
að vel sé unnið fram á kjördagskvöld, því að hálfur sigur
kemur ekki að nægilegu haldi. aðeins fullur sigur.
‘Jtuðningsfólk B-listans, samtaka nú í sókninni til loka.
Góðar horfur
Sóknarfundur
Stefna ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum:
SJUKRAHUS LATIN ÞOKA
FYRIR SKRIFSTOFUHOLUIM
Viðbyggingunum við Landsspítalann hefði verið lckið fyrir árslok 1962,
ef tillögur Framsóknarmanna hefðu verið samþykktar.
Þórarlnn Þórarinsson
Það vakti óskipta athygli
á s.l. vetri, þegar Jóhann
Hafstein heilbrigðismálaráð
herra lét stöðva útvarps-
þátt, þar sem fimm læknar
komu fram og lýstu því á-
standi, sem ríkjandi er í
sjúkrahús- og heilbrigðis-
málum landsins. Að vissu
leyti var þetta þó til gagns,
því að það rifjaði upp hið
furðulega sleifarlag, sem
hefur verið ríkjandi í þess-
um málum.
Það er bezta sönnunin
um sleifarlagiS í þessum
efnum, að árum saman hafa
verið í smíðum viðbygging-
ar við Landsspítalann og
sérstakur borgarspítali, og
bær mjakast áfram meðan
bver skrifstofuhöllin hefur
risið upp á fætur annarri
á örstuttum tíma. Haustið
1961 fluttu þeir Þórarinn
Þórarinsson, Halldór E. Sig
urðsson og Jón Skaftason,
Halldór E. Sigurðsson
frv. um lántöku til að ljúka
þeim viðbyggingum, sem
þá voru hafnar við Lands-
spítalann, en þar var að
ræða um þrjár álmur með
um 220 sjúkrarúmum. Þá
var talið, að hægt væri að
ljúka þeim á rúmu ári, ef
fjárskortur stöðvaði ekki
framkvæmdir, enda voru
þær vel á veg komnar. Frv.
þetta var svæft og fram-
kvæmdahraðinn varð sá, að
enn er ólokið einni álmu
með 90 sjúkrarúmum og er
áætlað nú, að hún verði í
fyrsta lagi fullbúin í árslok
1968.
Enn meira sleifarlag hef-
ur ríkt við byggingu Borg-
arsjúkrahússins. Komið er
talsvert á annan áratug síð-
an bygging þess var hafin.
Þó er enn ekki tekinn þar
ti) starfa nema ein deild,
röntgendeild, án sjúkra-
rúma. Slysavarðstofunni er
ætlað framtíðarhúsnæði í
Jón Skaftason
þessari nýju byggingu, en
hefur vegna áðurgreinds
dráttar orðið að búa við
algerlega ófullnægjandi að-
átöðu.
Svo mikill er spítalarúma
skorturinn í Reykjavík, að
sjúklingar hafa oft orðið að
bíða langdvölum eftir
sjúkrahúsvist, enda eru
Reykjavíkurspítalarnir ekki
aðeins fyrir Reykvíkinga,
heldur alla landsmenn. Þá
svarai starfsaðstaðan á
sjúkrahúsunum hvergi
nærri tii þeirra miklu fram
fara, sem orðið hafa annars
staðar í seinni tíð.
Sú stefna ríkisstjórnarinn
ar að láta skrifstofubygg-
ingar stórgróðamanna
ganga fyrir nauðsynlegum
spítalabyggingum, er vissu-
lega óverjandi, en henni
verður ekki breytt, nema
skipt verði um ríkisstjórn á
sunnudaginn kemur.
MeSan skrifstofuhallirnar hafa þotiS upp, hefur það dregizt ár frá árl aS Ijúka viðbyggingum viS Lands-
spítalans.