Tíminn - 28.06.1967, Blaðsíða 3
I
MIÐVIKUDAGUR 28. júní 1967
TÍMINN
í SPEGLITIMANS
Vieðreiðarnar í Ascot á Eng
landi draga ekki aðeins að
sér allan háaðalinn enska,
heldur þekkt fólík víðs vegiar
úr heiminum, endia áreiðan-
lega kunnasita veðreiðarkeppni
heims, þar sem fólk kemur
ekki aðeins til að sjá hestana
★
hlaupa, heldur til að sjá frægt
fólk og sýna sig. Og þarna sjá
um við einn frægan — banda
ríska sönigvarann og leikarann
Bing Croslby með Ascot bop-
hatt og hann snýr pípunni nið
ur enda austandi rigning.
Fyrir rúmu ári síðan, nánar
tiltekið 26. apríl 1966 urðu
miklir jarðskjálftar í borginni
Taskjent í Sovétríkjunum. Um
það bil þriðjungur borgarinn
ar jafnaðist við jörðu og tíu
manns létust af völdum jarð
skjálfitanna- Frá þessum tima
hlafa verið þar jarðákjálfbar
öðru hverju og á þessum
fimmtán mánuðum hafa mælzt
774 jarðskjálftar.
Kvikmyndaeftirlitið í Indó
nesíu hefur bannað sýningar
á öllum Jamés Bond kvik-
myndum þar í landi. Telur eft
irliitið, að kvikmyndimar örvi
fólk til þéss að fremja ýmiss
konar glæpi.
Brezki leikarinn Sir L/aur-
ence Olivier hefur undanfarið
verið undir læknishendi vegna
krabbameins í blöðruháls-
kirtli. Fyrir nokkru var hann
fluttur í sjúkrahús með heift-
uga lugnabólgu og hafa lækn-
ar fyrirskipað leikaranum i ð
halda kyrru fýrir nœstu vik-
urnar. Sir Laurenc? hefur lát
ið að því liggja að hann muni
halda áfram aó leika. þeg r
hann fái leyfi til þess. Eigin-
kona hans, leikkonan Joan
Plowright, hefur sagt frétta-
mönnum það, að þau hafi bæði
vitað ia@ sir Laurence væri
með krabbamein. Sagði Joan,
að þau hafi verið hrædd til
að byrja með, én nú hafi þau
sætt sig við tilhugsunina og
auk þess hafi læknarnir sagt
þeim, eð 85% líkur séu til
þess að Sir Laurence læknist
af sjúkdómnum.
Lee Radziwill, systir Jacque
line Kennedy hefur nú komið
fram sem leikkona í fyrsta
sinn, og var það í litlu leik
húsi í Chioago. Fékk hún góð
ar viðtökur leikhúsgesta.
Luci Baines Johnson Nug-
ent ól son á Seton spítalanum
í Texas í síðustu viku. Forset
lanum, sem þá var í Wiashing
ton, var þegar tilkynnt um
attourðinn, en forsetafrúin,
Lady Bird var á sjúkrahúsinu,
þegar drengurinn fæddist.
☆
Paul McCartney, einn af The
Beatles, átti 25 ára afmæli fyrir
skemmstu. f þvi tilefni birtist
viðtal við hann í enska blaðinu
The People og þar játaði
Paul, að hafa tekið inn örvun-
arlyfið LSD. Sagðist hann hafa
tekið lyfið fjórum sinnum. —
Ég held að það hafi gert mig
umtourðarlyndari gagnvart þjóð
félaginu, sagði Paul — og ég
er þeirrar skoðunar, að LSD
geti hjálpað fólki til þess að
bæta heiminn.
Sean Connery, hefur lýst því
yfir, að hann hafi nú leikið
James Bond í síðasta sinn. —
Hann hefur nú stofnað sitt eig-
ið kvikmyndafélag og verður
fyrsta kvikmyndin, sem gerð
verður á vegum félagsins, tek
in í Mexico.
Margrét Danaprinsessa og
Henrik prins af Danmörku eru
nú sem kunnugt er á brúð-
kaupsferð. Var mikil leynd yfir
því, hvert förinni var heitið
og hafa Ijósmyndarar og blaða
menn leitað þeirra víðs vegar
um heim. Fyrir nokkru fundust
hjónin í afskekktu héraði í
Tyrklandi þar sem þau dveljast
á hóteli undir nafninu herra og
frú Giraud.
Samkvæmt opmbetrum
skýrslum í Bandaríkjun'um
hefur þriðji hver Bandaríkja-
maður skotvopn á heimili sínu
sem vörn gegn innbrots- og
árásarmönnum. Það eru sem
sagt yfir sextíu milljónir skot
vopna í eigu einstaklinga í
Bandaríkjunum. Þessiar skýrsl
ur eru gerðar af lögregluyfir-
völdum par vestra — og eru
þau ekki alltof hrifin af þess
um fjölda skotvopna, sem þau
segja, að eigi mikinn þátt í að
alls konar glæpir eru fnamd
ir, þó þau hins vegar hindri
miargan glæpamanninn í því
að fremja innbrot eða rán, þar
sem allitaf má búast við vopn-
uðum manni á hverju heimili.
Italska leikkonan Sophia
Loren og brezka leikkonan
Margarethe sjást hér í atriði
í kvikmyndinni Ttoe Best
House in Nlaples, sem byggð
er á sögu eftir Edouardo de
Filippo. Vittorio Gassmam og
Vittorio de Sica leika einnig
í myndinni.
I
Á VÍÐAVANGI
,Hlutlægni'
Á laugardaginn var fluttur
þáttur í útvarpið, þar sem
Magnúsi Kjartanssyni var gef
inn kostur á að tala í rneira en
20 mínútur eintal um kosn-
ingaúrslitin, klofninginn í Al-
þýðubandalaginu og Hannibal
Valdimarsson, hugmyndir
hans og fylgismanna hans.
Að vísu sagði stjórnanxli þátt-
arins, sem er einn af föstum
starfsmönnum Ríkisútvarps
ins að hann hafi boðið Hanni-
bal Valdimarssyni að mæta
Magnúsi Kjartanssyni til rök
ræðna um málið en Hannibal
afþakkað. Fn bætti svo við,
að þar sem Magnús Kjartans-
syni væri ekki á móti skapi,
að þjóðfélagsleg deilumál
væru rædd af hreinskilni í
útvarpið þá væri hann hér
kominn og síðan hófst 20
mínútna ræða Magnúsar Kjart
anssonar, hápólitísk með á-
deilum í allar áttir!!!
Fyrr má nú rota en dauð-
rota.
„Regla forráðamann-
anna"
Það er auðvitað fáránlegt
að leyfa stjórnmálamanni að
tala um viðkvæmt deilumál í
svo löngu máli, þótt hinn að-
ilinn telji sér ekki fært að
mæta til leiksins. Fyrst Hanni
bal Valdimarsson vildi ckki
ræða málið í þessum þætti
átti áuðvitað ekki að koma til
greina hjá starfsmanni útvarps
ins, að hann rcfsaði Hanni-
bal með því að láta Magnús
Kjartansson ausa yfir hann og
fylgismenn hans svívirðingum
í 20 mínútur. Því furðulegra
er þetta af starfsmanni út-
varpsins, þar sem nýlega er
búinn að standa mikill styrr
um stjórn á slikum þáttum
sem þessum og forráðamenn
útvarpsins ftrekað og undir-
strikað, að útvarpið vildi
gæta fyllstu hlutlægni í með-
ferð þjóðmála í útvarpinu og í
viðkvæmum deilumálum kæmi
ekki til greina að leyfa aðcins
öðrurn aðilanum að skýra sitt
sjónarmið hvernig sem á
stæði. Var einum stjórnanda
útvarpsþáttar vikið frá starfi
vegna þess að liann var talinn
hafa brotið gegn þcssari reglu
útvarpsins og höfðu þó full-
yrðingar forráðamannaútvarps
ins varðandi þetta atriði í þvi
máli við engin rök að styðjasi.
En þeir rökstuddu aðgerðir
sínar sámt á þennan veg og
þegja nú þunnu hljóði þegar
um gróft og alvarlegt brot á
þessari reglu þeirra hefur ver
ið framið af föstum starfs-
manni útvarpsins.
Hrösum ekki
Útvarpið hefur síðustu ár-
in leitazt við að skapa breið-
ari grundvöll fyrir umræðum
um þjóðmá! og ýmis viðkvæm
þjóðfélagsmál í dagskrá sinni.
Yfirleitt hefur þetta tekizt vel
og fyllstu hlutlægm gætt '<e
lipurðai er tryggði báðum að-
iium að deilumáli jafnan
rétt með sinai skiptu skoðanir.
Má benda á þáttinn „Á rök-
stólum“ til fyrirmyndar i þess
um efnum. Útvarpið og sjón-
varpið eiga að vera hcr hjá
okkur ekki síður en erlendis
vettvangur almennra um-
ræðna um þjóðmálin. En hafa
verður í huga, að þessar stofn
Framhald a bls If
I