Tíminn - 30.06.1967, Síða 2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 30. júm' 1967
ÁSKORUN FRÁ SAMBANDSÞINGIBFÖ:
HEFJAST BER HANDA UM
LENGINGU VEGRÆSANNA
Sambandsþing Bindindisfclags
ökumanna, hið 5. í röðinni, var
haldið 23. júní s.L í húsi SVFÍ
á Grandagarði. Á þingið mættu
19 fulltrúar víðsvegar að af land-
inu. Þingið setti forscti sambands
ins, Sigurgeir Albertsson, kl. 14.
Þingforsetar voní kjörnir Helgi
Hannesson, dcildarstjóri, og
Óðinn S. Geirdal, skrifstofustjóri.
Mdklar umræður urðu á þing-
inu og voru ýmsar tillögur sam-
þytaktar. Fara nokkrar hér á eftir.
Tillaga til Aflþingiiá um að leyfi-
legt hámarks alkóhólmagn í blóði
ökumanns verði með lögum lækk-
að úr 0,5 af þúsundi í 0,35 af
þúsundi. EÆri mörk, svo kölluð,
einnig lækkuð verulega. Tillaga
um áskorun á lögreglustjóra, bæj-
arfógeta og sýslumenn að láta
gera yifirlitsskýrslu um bifreiða-
stjóra með fyrsta árs ökuskýr-
teini í því skyni að kanna hæfni
og vandvirkni ökukennara. Til-
laga um áskorun á ríkisstjórnina
að hlutast til um að 56. gr. laga
nr. 26 1958, um hámarksþunga
ökiutækja, svo og tiliheyrandi reglu
gerðanáikvæði verði haldin og
beytt verði ströngum viðurlögum
gegn brotum á þeim. Tillaga um
áskorun til samgöngumálaráð-
herra að hlutast til um: 1) að
þegar verði hafizt handa um nauð
synlega lengingu á vegarræsum
og að þessu verði lokið fyrir H-
daginn. 2) að lagfærðar verði
Sænskir þjóðdansar í Arbæ
f vikulokin er væntanlegur hing
að til lands flokkur 32 ungmenna
Prestskosningar
Prestskosning fór fram í Sauða
nesprestakalli í Norður-Þingeyjar
prófastsdæmi 11. júní. Atkvæði
voru talin á skrifstofu biskups 27.
júní s.l. Einn umsækjandi var í
kjöri, sr. Marinó Kristinsson, sett-
ur prófastur. Á kjörskná í presta-
kallinu voru 339, þar af kusu 293.
Umsækjandinn hlaut 280 atkvæði,
auðir seðlar voru 12, ógildur 1.
Kosningin var lögmæt.
Prestskosning fór fram í Skinna
staðaprestakalli í Norður-Þingeyj-
arprófastsdæmi 11. júní. Atkvæði
voru talin á skrifstofu biskups
27. juní s.l. Einn umsækjandi var
í kjöri, sr. Sigurvin Elíasson, sókn
arprestur á Raufarhöfn. Á kjör-
skrá i prestakallinu voru 347, þar
af kusu 273. Umsækjandi hlaut
202 atkvæði, auðir seðlar voru 71.
Kosning var lögmæt.
frá Ungdomsringen í Málmey á
vegum Þjóðdansafélags Rej’kjavík-
ur.
Flokkurinn er í skemmti- og
kynningarferð og er ekki ætlunin
að sýna þjóðdansa í ferðinni fyrir
almenning annarsstaðar en í Ár-
bæ.
Sýningin fer fram, ef veðrið er
hagstætt, _kl. 4 á danspallinum eða
túninu í Árbæ sunnudaginn 2. júlí,
en annars sunnudaginn 9. júlí,
þegar flokkurinn kemur aftur til
borgarinnar úr ferðalagi sínu um
landið.
Vakin er athygli á því, að að-
j gangseyrir er hinn sami og venju
'lega kr. 20,00 fyrir fullorðna og
íkr. t0,00 fyrir börn. Eins er þess
að geta, að einkabílar þurfa ekki
að seyra allar götur upp fyrir
Bæjatriháls, heldur fari styttri og
skemmtilegri leið upp hjá Raf-
stöð við Elliðaár. Leiðin er mörk-
uð með vegvísum frá beygjunni við
eystri brúna og áfram uppeftir.
blindhæðir og blindbeygjur svo og
þröngar beygjur. 3) að aðeins þeir
menn, sem hafa sérþekkingu þar
á, verði látnir setja upp aðvör-
unar- og leiðbeiningarmerki. 4)
að aðeins verði notaður harpaður
ofaníburður á vegina, alls staðar
á landinu.
Ýmsar fleiri tillögur komu
fram, svo sem tillögur um áskor-
anir til Alþingis um breytingar
á umferðarlögunum, en var vísað
til stjórnar BFÖ til nánari atlhug-
unar og fyrirgreiðslu. Þá áikvað
þingið að beina því til deilda og
stærri hópa innan BFÖ að komið
yrði á almennum samtökum um
undirbúning að breytingu úr V-
umferð í H-umferð, svo sem með
almennum námskeiðum og ann
ari upplýsingastarfsemi. Var
Reykjavíkurdeild BFÖ falið að að-
stoða deildir utan Reykjavíkur á
þessu sviði svo sem henni væri
unnt, fyrst og fremst með upp-
rifjunarnámskeiðum varðandi gild
andi umferðarlög. Mikill áhugi
kom fram á þinginu um framtíð-
arstörfin. Tala félaga er nú 950.
Porseti var kjörinn Helgi Hann-
esson, deildarstj. Þinginu lauk kl.
20 s.d.
ENDURSKOÐA
LÖGIN UM
MANNANÖFN
Menntamálaráðuneytið hefur í
dag skipað nefnd til þess að end-
urskoða lög nr. 54 frá 27. júní
1925, um jnannanöfn.
Nefndarmenn eru: Klemenz
Tryggvason, hagstofustjóri, form.,
Ármann Snævarr, háskólarektor,
Einar Bjarnason, ríkisendurskoð-
andi, dr. Halldór Halldórsson próf.
og Matthías Jóhannesen, ritstjóri.
Menntamálaráðuneytið,
27. júní 1967.
Sjónvarpstæki og brjóstahöld
á uppboði
Vel var fjölmennt á uppboð
sem haldið var í gær að Ár-
múla 26, en þar var seldur
margs konar varningur, ótoll-
lafgreiddar vörur sem fluttar
voru inn á árinu 1965 og varn
ingur sem tollverðir hafa gert
upptækan. Einnig voru boðnir
upp munir sem teknir hafa ver
ið lögtaki.
Á uppboðinu kenndi margra
grasa. Boðin voru upp forn-
fáleg húsgögn og útvarpstæki
og fór þarna mörg mublan fyrir
lítið, og ekki öalgengt að borð,
stóliar og skápar væru slegin á
20—30 kr. stykkið. Þá var selt
talsvert magn af sjónvarpstækj
um og rándýrum útvarps-
grammifónum og eins og vant
er á þessum uppboðum nokkur
hundruð brjóstahöld og mikið
af barnafatnaði, en tollverðir
virðast einkiar fundvísir á þess
ar vörutegundir.
Á myndinni er verið að bjóða
upp rúmlega 30 ára gamalt út-
varpstæki, sem fór á 40 krón
ur og er efamál hvor gerði betri
kaup seljandi eða kaupandi-
(Tímamynd: GE).
Óvenju margir
smiðir útskrifaðir nú
Síðastlliðnar þrjár vikur hafa
staðið yfir sveinspróf í Húsgagna-
smíði og þreyttu það 23 nemend-
ur, og hafa þeir aldrei verið jafn
margir í eimu. Flestir nemend-
anna hafa teiknað prófstykki sín
sjálfir og hefur komið mikil fjöl-
breytni fram í stykkjavali. Þar
má nefna: saumaborð, skrifborð,
snyrtiborð og borðstofuskápa af
mörgum gerðum og stærðum. Próf
nefnd skipar Iðnfræðsluráð venju
lega eftir tilnefningu Húsgagna-
meistarafélags r/ykjavíkur og
Sveinafélags húsgagnasmiða.
l
34 skip tilkynntu
síldarafla
Síldarfréttir síðasta sólarhring
Sæmilegt veður var fram eftir
degi í gær, en versnaði þegar á
kvöldið leið og nóttina.
Veiðisvæðið var 60 mílur ASA
frá Jan Mayen. 34 skip tilkynntu
um afla, alls 6.745 lestir.
Eins og kunnugt er hóf félag-
ið í samráði við neytendasamtök-
in ábyrgðarmerkingu á fram-
leiðslu félagsmanna. Merki þetta
á að tryggja neytendum góða
vöru og létta þeim húsgagnaval.
Raufarhöfn
Sigurbjörg OF
Gunnar SU
Helga II RE
Örfirisey RE
Akurey RE
Víkingur III ÍS
lestir
290
160
320
250
270
145
Frambald á bls. 15.
PILTUR
0RUKKNAR
\
Eins og skýrt hefur verið frá
i Tímanum drukknaði Ævar Hólm
geirsson, skipverji á Sigurborgu
frá Siglufirði aðfaranótt þriðju-
dagsins, er skipið var á síldveið-
um. Ævar var 22 ára, sonur hjón-
anna Hólmgeirs Árnasonar og Sig-
riðar Sigurbjörnsdóttur.
AL BISH0P í hringferð um landið
Hinn heimsfrægi bassasöngvari
A1 Bishop er orðinn Reykvíking-
um að góðu kunnur fyrir sinn sér
stæða söng, en hann hefur skemmt
á Hótel Borg undanfarið. Ilann
ætlar nú að leggja land undir fót
og ferðast um landið og skemmta
ásamt danshljómsveitinni Faxar.
A1 Bisihop er fæddur í Balti-
| more í Marylandfylki í Bandaríkj-
unum. Kom fyrst til íslands árið
1959 með Deep Riverboys og síð
an aftur árið 1962. Árið 1963
hætti A1 Bishop að syngja með
Deep Riverboys og fluttist til Sví-
þjóðar, en þaðan til Noregs árið
1964 og hefur skemmt á öllum
Norðurlöndunum og gefið út
fjöldan allan af plötum. Slíku ást-
SUMARHÁTÍÐ FRAMSÓKNARMANNA í ATLAVÍK
Sumarhátíð Framsóknar-
manna á Austurlandi verður
haldin dagana 8. til 9. júlí
næstkomandi í Atlavík. Dag-
skrá verður mjög fjölbreytt
og vönduð eins og venja het
ur verið á þessari sumarhátíð.
og verður hennar getið í blað-
inu síðar.
fóstri er hann búinn að taka við
ísland, að hann sagði að hann
gæti vel hugsað sér að setjast hér
að.
Hljómsveitþi Faxar sem fer
með A1 Bisihop um landið og mun
leika á dansleikjum en þar ætlar
hann að skemmta. Hljómsveitin
er skipuð fimm ungum hljóm-
sveitarmönnum, þeir heita: Tóm-
as Sveinbjörnsson, sólógítar, Páll
Dungal bassi, Þorgils Baldursson
rythmagítar, Þórhallur Sigurðsson
trommur og Haraldur Sigurðsson
söngvari. Þeir tveir síðast nefndu
eru bræður.
Danslélkirnir byrja allir kl. 9
eða 10 og .uun Bishop skemmta
í hálftíma. eða klukkutíma í bvert
sinn En annars mun hann korna
fraan af og til og skemmta dans-
gestum. Faxar og Bishop halda
sína fyrstu skemmtun á Hellis-
sandi á laugardaginn, en fara það
an til Vestfjarða. Síðan verður
haldið norður og austur um land
og komið aftur 25. júlí og fara síð-
an um Suðurlandið og til Vest-
mannaeyja.