Tíminn - 30.06.1967, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.06.1967, Blaðsíða 6
TIMINN FÖSTUDAGUR 30. jání 1967 Leirmunir unnir Steinunni Marteinsdóttur. Sýning, sem helguð er kvenlegri listskopun Ymsir merkir andans menn m.a. Búdda, haía fullyrt, að lcvenflólk sé almennt fieiri og betri kostum búið heldur en hið steilka kyn, sem svo er kall- að, en auðvitað eru ekki allir sammála um það frekar en önn ur þau stónmál, sem ekki verða leyst með stærðfræðilegum for- múlum, og líklega verður seint fengið niðurstaða þar um. Hitt má þó fullyrða, að konur hafa til að bera félagsanda í talsvert ríkara mæli en karlmenn. Þær þurfa ekki að vera nema tvær eða þrjár á hverjum stað, óðara hafa þær stofnað með sér kvenfélag eða vísi að kven félagi, og það er ekkert smá- ræði, hverju þau fá áorkað. Síðasta og nærtækasta dæmið um það, er hin nýja og stór- glæsilega byigging félagssam- taka kvenna, Hallveigarstaðir við Túngötu, sem vígð var 19. júní s. 1. Það er eflaust lýðum ljóst, að nafngiftin er til orð in í virðingarskyni við fyrstu húsfreyjuna í Rieykjavík, Hall- veigu Fróðadóttur, en húsið stendur líklega á „miðju tún- inu“ hans Ingólfs bónda henn- ar. „Þá undansldljum við ekki karlmennina". Etoki er ætlunin hér að rekja sögu Hallveigarstaða, elegar lýsa byggingunni í hólf og gólf en hún hefur að mestu leyti verið tekin í notkun, því mið ur að litlu leyti í þágu kvenna samtakanna sjálfra, heldur hafa þau þurft að leigja út stóran hluta hennar til að hafa upp í byggingarkostnaðinn, sem er orðinn býsna hár. Það er eiginlega nokkuð þver- stæðukennt, að kvennasamtök skuli hýsa skrifstofur borgar- I .............................iiiiiiiiw| !*• ''t í *t,rt %yz. V«Í-V.V.' .V.V.VAV.-,'.'.' --3 „Fanginn“ eftir GerSI Helgadóttur. dómaraemlbættisins í Reykja- vík, en svona er það nú samt, og sýnir fátt betur hvers þau eru megnug.En hluta þess rým is, er samtökin hafla' til umráða hafa þau nýtt nú í byrjun á afar sérstæðan og skemmtileg an háitt, — með listsýningu sem eimgöngu er helguð kvenlegri listsköpun, 27 íslenzkar lista konur sýna þar verk sín, sem eru ærið misjöfn að gæðum og margibreytdleg að gerð, eins og hið kvenlega eðli yfirleitt. — Það er ætlunin, að leigja salinn fyrir málverkasýningar a.m.k. árlega í framtíðinni, og þá undanskiljum við ekki karl mennina — sagði hinn aldni kvenskörungur, Sigríður J. Magnúsison, fyrrum_ formaður Hvenréttindafélags íslands við blaðakonu Tímans, sem skoð- aði sýninguna nú fyrir skömmu. Hún sagði einnig að stjórn Halveigarstaðanefndar hefði orðið ásátt um, að vígsia þess arar myndarlegu byggingar færi fram með listsýningu kvenna, og hefðu þær Petrína Jakobsdóttir, Sigríður Thoria- cius og Guðrún Heiðberg verið valdar til að sjá um framkvæmd hennar, en uppsetningu lista- verka hefðu annazt listakonum ar Guðmunda Andnésdóttir, Steinunn Marteinsdóttir o>g Ólöff Pálsdóttir. Sýningin er í kjallara húss ins, í anddiyri og tveimur söl- um, annar þeirra er framtáðar athafnasvæði Húsmæðrafélags . Reykjavíkur, en hinn væntan legur fundarsalur kvenna- samtakanna. Listaverkin eru fjögurra tegunda: málverk, höggmyndir, listvefnaður og leirmunir, og er þeim mjög vel fyrir komið í hinum vistlegu húsakynnum. „Margir gamlir kuiuiingjar“ Árlega halda fjöimargir lista menn yfirlitssýningar á verkum sínum hér í borginni, en senni lega er þar aðeins í 1—2 til- vikum af 10 um listakonur að rœða. Líklega er það vegna þessa að flestir álíta konur miklu smátækari á vettvangi myndlistar en karlmenn, og fullyrðingin hans Búdöha um hæfileika kvenþjóðarinnar eigi alls ekki við á því sviðjnu. Kannski er þetta rótt, en þeir, sem sjá listsýniniguna að Hallveigarstöðum bomast að raun um, að við íslendingar eig um miklu fleiri listakonur en almenningur gerir sér grein fyrir, og þó er ekki þar með sagt, að allar listakonur okkar eigi verk á þessari sýningu. Lík lega er það hin kvenlega sjálfs gagnrýni, hlédrægni og hátt- viisi, sem gerir það að verkum, að listaverk kvennla eru miklu síður á sjónarsviðinu en karla, þótt þau séu engu síðri. Á sýningunni eru mörg góð verk eftir ýmsar listakonur, sem all ur almenningur hefur tæpazt heyrt nefndar á nafn og hafa sjaldan tekið þátt í sýningum hérlendis. Að sjálfsögðu getur þó þama að lita marga „gamla kunningja", verk eftir þær íslenzkar konur, sem einna lengst hafa náð á listabrautinni, m.a. Júlíönu Sveinsdóttur, sem lézt á síðasta ári, og hafði á- unnið sér mifcla frægð víða á erlendri grund. Þarna eru 3 verka hennar, öll í eigu Lista- safns ríkisins. Af öðrum eldri listakonum sem verk eiga á sýningunni ber að nefna þær Kristínu Jónsdóttur og Nínu Sæmundsson. Þær Barbara Árnason og Karen Agnete Þórarinsson eiga báðar tvær myndir á sýningunni, og sömu leiðis Gréta Björnsson, sem er þó aðallega þekkt fyrir kirkjuskreytingar sínar hér á landi, en þessar þrjár konur, sem allar eru af erlendu bergi brotnar, og giftar íslenzkum listamönnum hafa getið sér mjög gott orð fyrir list sína hér á landi, og eru líklega einna þekktastar af núlifandi „íslen2kum“ listakonum. Þrjár systur eiga verk á sýningunni. Þrjár íslenzkar konur, bú- settar vestianhafs eiga verk á sýningunni, Nína Tryggva- dóttir og Ragnlheiður Jóns- dóttir Ream, sem báðar hafa nýlega háldið yfirlitssýningar á verkum sínum hér á landi, svo og Louise Mattihiasdóttir. Verk þeirrar síðasttöldu hafa sj'aldan verið sýnd hér á landi, og þessi þrjú, sem eru á sýn ingunni eru öll í einkaeign. Þau eru „figurativ“og ljómandi skemmtileg. Þá sýna þarna þrjár systur, Ingibjörg Eggerz, Ólöf og Þorbjörg Pálsdætur, Ingiibjörg sýnir tvö málverk, en hinar höggmyndir. AIls eru á sýningunni 16 höggmiyndir, ær ið misjafnar að gœðum og gerð, flestar eru þær naturalist ískar nema verk Gerðar Helga dóttur, Fanginn, sem er nýtízku legt og sker sig talsvert úr öðrum verkum á sýningunni. Eria ísteifcdttir á þarna tvœr ágætar höggmyndir, og Gunn- fríður Jónsdóttir fjórar.Melitta Urbancic hefur gefið Hallveig Framhald á bls. 15. Styttan sem Melitta Urbancic hefur gefið HallveigarstöSum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.