Alþýðublaðið - 14.12.1985, Page 7
Ritsafn Jóns Þor-,
lákssonar komið út
Út er komið ritsafn Jón Þorláks-
sonar, verkfræðings, kaupmanns
og forsætisráðherra, á vegum
Stofnunar Jóns Þorlákssonar, nýrr-
ar rannsóknastofnunar í stjórnmál-
um og atvinnumálum, en Almenna
bókafélagið annast dreifingu. Þetta
ritsafn er gefið út í tilefni fimmtug-
ustu ártíðar Jóns, en hún var 20.
mars á þessu ári. Dr. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, sagnfræðingur
og stjórnmálaheimspekingur, sá
um útgáfuna, en inngangur er eftir
dr. Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra, sem þekkti Jón vel per-
sónulega, en það er erindi sem dr.
Gunnar flutti í útvarpið á hundrað
ára afmæli Jóns 1977.
Jón Þorláksson var sem kunnugt
er einn helsti framfaramaður á ís-
landi á sinni tíð. Hann var þriðji ís-
lendingurinn sem lauk verkfræði-
prófi, og það féll í hans hlut að hafa
forystu um verklegar framkvæmdir
hér sem landsverkfræðingur á
heimastjórnarárunum. Hann varð
einnig snemma virkur í stjórnmál-
um, ötull stuðningsmaður Hannes-
ar Hafsteins, á meðan hans naut
við, en síðan forgöngumaður um að
fylkja þeim mönnum, sem höfnuðu
innííuttum stéttabaráttuhugmynd-
um saman i einn flokk. Hann var
sem kunnugt er fyrsti formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ritsafn Jóns er allmikið að vöxt-
um eða 640 bls. Það skiptist í fimm
hluta. í fyrsta hlutanum, „Frá
heimastjórn til fullveldis", eru birt-
ar stjórnmálaritgerðir Jóns á árun-
um 1907—1935. Þar leiðir Jón með-
al annars rök að því, að frjálslynd
íhaldsstefna hæfiísiendingum best,
og telur, að atvinnufrelsi á grund-
velli séreignar sé besta leiðarljós
þjóðarinnar á veginum frá fátækt
til bjargálna. Hann andmælir öll-
um hugmyndum um að stjórnmála-
flokkar eigi að vera stéttarflokkar,
skýrir sameiningu íhaldsflokksins
og Frjálslynda flokksins 1929, fær-
ir rök gegn þingrofinu 1931, mælir
með kjördæmaskipan svipaðri
þeirri, sem tekin var upp 1959, og
lýsir yfir stuðningi við erlent fjár-
magn á íslandi, ef það er á réttum
forsendum.
í öðrum hlutanum er bók sú um
peningamál sem Jón samdi 1924,
Lággengið. Ýmsar ritgerðir Jóns
um fjármál og peningamál eru í
þriðja hlutanum, og má efalaust
segja, að Lággengið og þessar rit-
gerðir séu einhverjar merkustu
heimildir um hagsögu landsins á
tuttugustu öld, sem völ er á. Birt er
meðal annars hið fræga erindi sem
Jón flutti í Bárubúð 12. febrúar
1924, en þar gerði hann upp ríkis-
reikningana sem höfðu fram að því
verið mjög óskýrir, og sýndi fram á
stórfelldan hallarekstur ríkissjóðs.
Jón hafði síðan forystu um það sem
fjármálaráðherra og síðar forsætis-
ráðherra 1924—1927 að jafna þenn-
an hallarekstur, greiða niður skuld-
ir íslendinga erlendis og selja ríkis-
fyrirtæki. í þriðja hlutanum er
einnig ritgerð eftir Jón um peninga-
mál þjóðveldisaldar, en þar beitir
hann annálaðri vísindalegri skarp-
skyggni sinni til þess að skýra atvik
i Þorvaldar þætti víðförla.
í fjórða hlutanum eru ýmsar rit-
gerðir Jóns um verkleg efni, svo
sem um samgöngubætur innan-
lands, byggingarlag, en Jón var for-
göngumaður um notkun stein-
steypu og rak sjálfur byggingavöru-
verslun um árabil í Reykjavík, hita-
veitu og rafmagnsveitu i Reykjavík
og verklega hagnýtingu jarð-
varmans. í fimmta hlutanum er síð-
an birt mikið rit, sem Jón tók sam-
an að tilhlutan Fossanefndar árið
1919, en það nefnist „Vatnorka á ís-
landi og notkun hennar“. Þar ræðir
Jón möguleikana hérlendis á
áburðarverksmiðju, álbræðslu,
karbitvinnslu, kísiliðju, járnblendi-
verksmiðju og svo framvegis.
Dr. Gunnar Thoroddsen segir
meðal annars í inngangi sínum um
Jón Þorláksson: „Hann boðaði af
eldmóði framfarir, framsókn og
framkvæmdir og réðst þá einnig af
ritsnilld á afturhald og kyrrstöðu.
Verklegar framfarir, frjálslyndi og
bætt kjör þjóðarinnar voru leiðar-
stjarna hans og lífshugsjón, sem
hann reyndist trúr í orði og verki allt
til æviloka“.
8 fengu styrki úr
vísindasjóði NATO
Menntamálaráðuneytið hefur út-
hlutað styrkjum af fé því sem kom
í hlut íslendinga til ráðstöfunar til 2.
vísindastyrkja á vegum Atlants-
hafsbandalagsins (NATO Science
Fellowships) á árinu 1985.
Umsækjendur voru 27 og hlutu 8
þeirra styrki sem hér segir:
1. Ágústa Guðmundsdóttir, B.S.,
110.000r kr„ til framhaldsnáms í
Góð gjöf
Heilsugæslustöðinni í Fossvogi
hefur borist góð gjöf frá Kvenna-
deild Reykjavíkurdeildar Rauða
Kross íslands. Er hér um að ræða
eyrnaþrýstingsmæli (tympano-
meter). Slíkt tæki er ómetanlegt til
þess að fylgja eftir börnum sem
fengið hafa eyrnabólgu með tilliti
til vökva í miðeyra en slíkt getur
valdið heyrnartapi. Einnig getur
tækið hjálpað til að greina dulda
heyrnargalla hjá börnum og full-
orðnum.
Starfsfólk stöðvarinnar fagnar
tilkomu þessa nýja tækis sem við
teljum einnig að stuðli að þvi að
fólk þurfi síður að leita út fyrir
stöðina til þess að fá sambærilega
þjónustu.
örverufræði og lífefnafræði við
University of Virginia, U.S.A.
Björgvin S. Gunnlaugsson, B.S.,
70.000r kr., til framhaldsnáms í
tölvunarfræði við McGill Uni-
versity í Kanada.
3. Fjalar Kristjánsson, cand.
pharm., llO.OOOr kr., til fram-
haldsnáms í lyfjaefnafræði við
University of Kansas, U.S.A.
4. Gestur Valgarðsson, M.S.,
1 lO.OOOr kr„ til framhaldsnáms í
vélaverkfræði við University og
Tennessee, U.S.A.
5. Guðmundur Stefánsson, B.S.,
llO.OOOr kr„ til framhaldsnáms í
matvælafræði við Leeds Uni-
versity í Bretlandi.
6. Guðrún Marteinsdóttir, M.S.,
1 lO.OOOr kr„ til framhaldsnáms í
vistfræði við Rutgers University,
U.S.A.
7. Hans Kr. Guðmundsson, Ph.D.,
145.000r kr„ til 4 mánaða dvalar
við University of Illinois í Ur-
bana-Champaign, U.S.A., til að
vinna að rannsóknum á fram-
leiðslu og eiginleikum málm-
glerja og örfínt kristallaðra
efna.
8. Kolbeinn Arinbjarnarson, B.S.,
70.000r kr„ til framhaldsnáms í
aðgerðagreiningu við Stanford
University, U.S.A.
Laus staöa
Staða matráðskonu Mötuneytisins í Arnarhvoli er
laustil umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi op-
inberra starfsmanna. Þeir sem sækja um stöðuna
skili umsóknum (fjármálaráðuneytið fyrir20. des-
ember 1985.
Fjármálaráöuneytiö
SVARTÍR
KinVfHIAR
Svartir Kínverjar eru ótrúlega al-
gengir. Enda þægilegir í umgengni,
liprir og notalegir. Betri heimilisvinir
þekkjast varla. Kínverjar eru gott
fólk. Svartir Kínverjar eru gó&ir skór
við allra hæfi.
KOMN/K'-AFTVtf^
ÓSA