Alþýðublaðið - 06.01.1987, Page 1
Þriðiudaaur 6. ianúar 1987 2. tbl. 68. árn.
„Málatilbúnaður-
inn hneyksli“
— segir Kjartan Jóhannsson alþingismaður um vinnu-
brögðin við Lánasjóðsfrumvarpið.
„Málatilbúnaðurinn í þessu er
hið mesta hneyksli. Tillögunum
hefur í heild sinni verið haldið
leyndum. Ráðherra hefur ekkert
kynnt málið fyrir fulltrúum stjórn-
málaflokkanna öðrum en þeim sem
eru í klíkunni hjá honum,“ sagði
Kjartan Jóhannsson alþingismaður
í samtali við Alþýðublaðið í gær
þegar hann var spurður álits á
vinnubrögðum stjórnarflokkanna
við gerð lánasjóðsfrumvarpsins.
„Fulltrúar stjórnarflokkanna
eru komnir í hár saman um sérstök
atriði í tillögum sem hvergi hafa
birst. Einn þeirra, Finnur Ingólfs-
son er að reyna að slá sér upp á því
að hlaupast frá tillögum sem hann
sjálfur hefur verið að móta, og
koma fram með einhverjar prívat
tillögur. Enginn veit um hvað málið
snýst og svo virðist sem enginn eigi
heldur neitt að fá að vita,“ sagði
Kjartan. Hann sagðist hafa lagt
fram fyrirspurn til eins nefndar-
manna um að fá að sjá tillögurnar,
því hafi hins vegar verið þannig
svarað, að hér væri um trúnaðarmál
að ræða og tillögurnar því ekki til
dreifingar.
„Frammistaða Finns Ingólfsson-
ar er náttúrlega fyrir neðan allar
hellur, en það er einnig alvarlegt að
ráðherra skuli geta verið með þetta
í klíkum einhvers staðar út í bæ, án
þess að birta neitt og fá umræðu um
málin í einhverri alvöruþ sagði
Kjartan. Hann sagði, að auðvitað
hefðu alþýðuflokksmenn getað
hnuplað tillögunum einhvers stað-
ar, en það væri bara ekki þeirra stíll.'
Sjómannasamningarnir:
Slitnað upp
úr viðræðum
— rnikil óvissa um framhaldið
Upp úr slitnaði í sáttaviðræðum
milli sjómanna og Landsambands
útvegsmanna klukkan 4 í fyrrinótt,
en þeir höfðu hótað fyrir helgina að
grípa til harðra aðgerða gegn skip-
um sem verið hafa á veiðum síðan
um áramót, ef samningar tækjust
ekki um helgina. Þegar Alþýðu-
blaðið fór í prentun í gærkveldi, lá
enn ekki Ijóst fyrir hvort Sjó-
mannasambandið léti verða af þess-
ari hótun sinni, en um 50 skip munu
vera á sjó.
Fulltrúar Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, Skipstjóra og
stýrimannafélagsins Bylgjunnar á
Vestfjörðum og Alþýðusambands
Vestfjarða voru boðaðir á fund hjá
sáttasemjara klukkan 14.00 í gær,
en fundi fulltrúa skipaútgerðanna
með undirmönnum á kaupskipum
sem boðaður var klukkan 10.00 í
gærmorgun hjá sáttasemjara, var
frestað til klukkan 16.00 í gær.
Undirmenn á kaupskipum hafa
boðað verkfall frá miðnætti síðast-
liðna nótt. Allt er því óljóst á þess-
ari stundu hvernig máli þessu kann
að reiða af og er þungur tónn í
samningsaðilum og ekki verður
betur fundið en að illt blóð sé að
hlaupa i allt saman.
Blaðaprent og blöðin
í sameiginlegt húsnæði
Blaðaprent h.f., sem er sameign
og sameiginleg prentsmiðja Al-
þýðublaðsins, Tímans og Þjóðvilj-
ans, hefur nú fest kaup á húsi, sem
er i smíðum að Lynghálsi 9 í
Reykjavík. Jafnframt hefur fyrir-
tækið keypt nýja og fullkomna
prentvél og pökkunarvél.
Þá hafa dagblöðin þrjú keypt
húsnæði í sama húsi, og verður því
allur rekstur og útgáfustarfsemi
blaðanna og Blaðaprents undir
sama þaki, væntanlega að ári liðnu.
Jafnframt hefur Blaðaprent selt
húsnæði sitt í Síðumúla 11.
Blaðaprent h.f. ákvað að endur-
nýja húsnæði og vélar, enda þau
tæki, sem nú eru í notkun, slitin og
að mörgu leyti úrelt. Blöðin munu á
ný reka sameiginlega setningu og
umbrot og leita allra leiða til spam-
aðar í útgáfu og rekstri.
Lánasjóðssóló Finns Insólfssonar:
„Dapurlegt mál“
— segir Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra. Sverrir tekur málið fyrir á ríkis-
stjórnarfundi í dag.
„Ég er ófær um að tjá mig um
málið fyrr en ég hef náð að ræða
það í ríkisstjórn. Þetta er svo sér-
stætt mál sem kom mér í opna
skjöldu að ég verð að fá tækifæri til
þess að ræða þetta við samstarfs-
flokkinn og mína flokksforystu,“
sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Finnur Ingólfsson aðstoðarmað-
ur sjávarútvegsráðherra sem sæti á
í samstarfsnefnd stjórnarflokk-
anna sem fjallað hefur um málefni
Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
hefur lagt fram sínar eigin tillögur
varðandi Lín og byggir þær að meg-
inhluta til á kröfum námsmanna-
hreyfinganna. Friðrik Sophusson
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sem sæti á í sömu nefnd telur
hins vegar Finn hafa leikið tveim
skjöldum í málinu og hafa sam-
þykkt þau frumvarpsdrög sem lágu
fyrir. Friðrik segir að samkomulag
hafa legið fyrir í nefndinni meira að
segja uppáskrifað af Finni sem og
af öðrum nefndarmönnum. Talið
er að sóló Finns Ingólfssonar,
Sverrir Hermannsson
kunni jafnvel að reka alvarlegan
fleyg milli stjórnarflokkanna nú
þegar liður að kosningum. Auk
þess er talið að tillögur Finns ef þær
túlka skoðun Framsóknar geti leitt
til þess að nýtt frumvarp nái ekki
fram að ganga á þessu þingi.
„Ég vona að það blasi við mönn-
um hvernig þetta mál er í pottinn
búið. Þetta er mjög dapurlegt mál
allt saman,“ sagði Sverrir Her-
„Það er hefð fyrir þessum vinnu-
brögðum og ekkert óeðlilegt við
þau. Fulltrúaráð hefur venjulega
ekki komið saman fyrr en í janúar
ef prófkjör eru að hausti,“ sagði
Sveinn H. Skúlason formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær, aðspurður hvers vegna
ekki væri enn búið að ganga frá
lista flokksins í Reykjavík. Sveinn
sagði af og frá að verið væri að bíða
eftir hugsanlegri kæru á hendur
„sigurvegara“ prófkjörsins.
Samkvæmt reglum flokksins eru
niðurstöður prófkjörsins bindandi
fyrir 10 efstu sæti listans, en kjör-
nefnd gerir síðan tillögur um skip-
an annarra sæta. Það er hins vegar
á valdi fulltrúaráðsins að breyta
listanum án tillits til prófkjörsins.
Sveinn sagði að fulltrúaráðið gæti
ekki fjallað um málið fyrr en kjör-
nefnd hefði lokið störfum, en kjör-
I nefnd kom saman til fundar í gær.
mannsson. Hann sagðist taka mál-
ið upp á ríkisstjórnarfundi í dag.
Frumvarp Sverris gerir m.a. ráð
fyrir sérstöku þaki á námslán, vexti
af lánum, lántökugjaldi og inn-
heimtugjöldum. Frumvarpið hefur
sætt mikilli gagnrýni námsmanna
sem telja það með öllu óviðunandi.
í tillögum Finns er hins vegar, sem
fyrr segir, að mestu byggt á þeirra
kröfum.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins er ólíklegt að línur skýrist
í Hafskipsmálinu fyrr en í fyrsta
lagi í mars. Það komi heldur ekki að
sök þar sem Albert Guðmundsson
muni halda sínu striki þrátt fyrir
allar hugsanlegar kærur. Dregur
því senn til tíðinda og sagðist
Sveinn gera ráð fyrir að fundur
verði haldinn fyrir lok mánaðarins
svo sem venja hafi verið. Sam-
kvæmt heimiidum Alþýðublaðsins
var óskastaðan sú að Albert Guð-
mundsson afsalaði sér sjálfur sæti á
listanum og sé það helsta skýringin
á þeim drætti sem orðinn er á mál-
inu frá hendi kjörnefndar. Sveinn
sagði að samkvæmt hans vissu væri
þessi háttur hafður á svo öll sár
mættu gróa eftir prófkjörsbarátt-
una og hefði þá ekkert að gera með
Albert Guðmundsson sérstaklega,
en auðvitað væri æskilegast, að frá
listanum væri gengið sem fyrst því
fyrr gæti kosningabaráttan ekki
hafist.
Sjálfstœðisflokkurinn í Reykjavík:
Kjörnefnd lúrir
enn á listanum
Morgunblaðið boðar
óbreytta ríkisstjórn
Sjálfstæöismenn, með Morg-
unblaðið í broddi fylkingar, leita
nú með logandi Ijósi að ágrein-
ingsefnum við stjórnarandstöð-
una, einkum þó Alþýðuflokkinn.
Og nú er lausnin fundin! Morgun-
blaðið hefur hamrað á því síöustu
dagana, að stjórnarandstaðan
hafi núr fundið eitt sameiginlegt
baráttumál; stóreignaskatt, sem
muni bitna á öllum, sem einhverj-
ar eignir ejga, miklar eða litlar.
Morgunblaðið hefur gert ítrek-
aðar tilraunir til að spyrða stjórn-
arandstöðuna saman og koma því
inn hjá almenningi, að leynt og
Ijóst sé að því stefnt að mynda
vinstri stjórn eftir næstu kosning-
ar. Tilgangur Morgunblaðsins
með þessum skrifum er augljós-
lega sá að hræða fyrrverandi kjós-
endur Sjálfstæðisflokksins frá því
að greiða Alþýðuflokknum at-
kvæði sitt. Blaðinu stendur stugg-
ur af niðurstöðum skoðanakann-
ana siðustu mánuði, og vill um-
fram allt breiða yfir þann gífur-
lega vanda, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn á nú við að stríða vegna inn-
byrðis deilna og átaka.
Varla verður sagt, að Morgun-
blaðið kunni sér hóf í áróðri sín-
um. Höfundur Reykjavíkurbréfs
blaðsins á sunnudag gengur svo
langt, að hóta þjóðinni áfram-
haldandi stjórnarsamvinnu Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
flokks eftir næstu kosningar.
Blaðið tekur þarna umtalsverða
áhættu þar eð mikill meirihluti
sjálfstæðismanna má ekki til þess
hugsa að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi áfram samstarfinu við
Framsókn.
Höfundur Reykjavikurbréfsins
hælist nokkuð um vegna árangurs
núverandi ríkisstjórnar, einkum í
verðbólgumálum, og segir síðan
orðrétt: „Það er ekki víst að fólk
kasti umhugsunarlaust á kaldan
klakann ríkisstjórn, sem hefur
náð slíkum árangri, hvað sem um
hana má segja að öðru leyti“ —
Úr þessum orðum verður ekki
annað lesið en það, að Morgun-
blaðið aðhyllist nú áframhald-
andi samstarf núverandi stjórnar-
flokka og hlýtur það að vera mjög
eftirtektarvert fyrir alla sjálfstæð-
ismenn.
Með þessu hefur orðið veruleg
stefnubreyting í skrifum Morgun-
blaðsins, sem að undanförnu hef-
ur fundið Framsóknarflokknum
allt til foráttu og gagnrýnt ýmsar
uppákomur í ríkisstjórnarsam-
starfinu, sem það hefur rakið til
Framsóknar. Það verður fróðlegt
að fylgjast með skrifum blaðsins
urn síðustu atburðina á stjórnar-
heimilinu, t.d. framtak Finns Ing-
ólfssonar, aðstoðarráðherra, í
málefnum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, sem varaformaður
Sjálfstæðisflokksins hefur gagn-
rýnt harkalega.
Morgunblaðið virðist enga
grein gera sér fyrir því, að innan
Framsóknarflokksins ríkir ekkert
minni andúð á stjórnarsamstarf-
inu en innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Framsóknarmönnum er að
verða það ljóst, að áframhaldandi
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn
getur orðið skapadómur Fram-
sóknar. Það er i anda þessa skiln-
ings, að Finnur Ingólfsson gerir
uppreisn gegn samstarfsflokkn-
um og fleiri mál af þessu tagi eru
að koma upp á sjóndeildarhring-
inn.
Pólitískur vandi Sjálfstæðis-
flokksins fer því vaxandi en ekki
minnkandi. Morgunblaðið reynir
að beina athygli almennings frá
þessum vanda með því að búa til
ríkisstjórnir til vinstri og hægri og
er komið í þá úlfakreppu að eiga
enga aðra útgönguleið en áfram-
haldandi samstarf við Framsókn.
En líklega er þetta versta áróðurs-
leiðin, sem Morgunblaðið gat val-
ið.