Alþýðublaðið - 06.01.1987, Page 5

Alþýðublaðið - 06.01.1987, Page 5
Þriðjudagur 6. janúar 1987 5 Alusuisse: Verulega dregið úr hráálsframleiðslu — Þýðir þó ekki framleiðsluskerðingu hjá ISAL í nýju fréttabréfi íslenska Álfé- lagsins hf. er birt grein eftir Ragnar Halldórsson forstjóra þar sem hann rekur stöðu áldeildar Alusuisse og framtíðarhorfur. Þar kemur m.a. fram að ætlunin er að minnka hrá- álsframleiðslu verulega frá því sem nú er, þó talið sé að vegna markaðs- aðstæðna komi ekki til framleiðslu- skerðingar hjá ÍSAL. Hér fer á eftir úrdráttur úr grein Halldórs. Staða Áldeildar Alusuisse er nú í aðalatriðum sem hér segir: 60°7o fjármagnsins eru bundin í hráefnis- framleiðslu, fyrirtækið framleiðir meira hráál en svarar til úrvinnslu- þarfa, en samdráttur á því sviði er bæði dýr og tímafrekur. Alusuisse hefur þokkalega markaðsstöðu í sérframleiðsluvörum, en slaka í stöðluðum vörum. Áldeild Alusuisse hefur að mark- miði, að frá 1989 verði stöðugur hagnaður af fyrirtækinu. Til þess að ná því markmiði verður byggt á yfirburðasviðum Alusuisse miðað við keppinauta. Þessi svið eru fram- leiðsla á álpappír, samsettum efn- um úr áli og öðrum efnum, þ. á m. „Alucobond“, sérhæfðum sniðum, síum úr brenndum leir (keramík) og úðunarbrúsum. Til þess að þetta megi takast þarf að endurskipuleggja hráálsfram- leiðslu, leggja áherzlu á tækniyfir- burði á afmörkuðum sviðum, selja fyrirtæki, sem ekki eru nauðsynleg fyrir rekstur samsteypunnar, og síð- ast en ekki sízt selja eða leggja nið- ur óhagkvæm fyrirtæki. Eins og fram kom í síðasta blaði er fram- kvæmd áætlunar í þessa átt þegar vel á veg komin. TVö atriði skipta ISAL og starfs- menn þess mestu: — Framleiðslugeta á hrááli í samanburði við úrvinnslugetu og — nýting fjármagns innan Al- deildarinnar. Eins og áður hefur komið fram, er framleiðslugeta Alusuisse á hrá- áli nú um 410 þúsund tonn á ári, áð- ur en tekið er tillit til fyrirhugaðrar minnkunar, t.d. í Rheinfelden og Chippis. Úrvinnsluþörfin er svip- uð. Ætlunin er að minnka hrááls- framleiðslu niður í um 260 þúsund árstonn, en kaupa það sem á vantar á frjálsum álmarkaði (LME). Þetta er mikil breyting frá því sem verið hefur, þegar Alusuisse seldi á annað hundrað þúsund tonna af hrááli á Utboð Byggingarnefnd flugstöðvará Keflavíkurflugvelli býður út skilti og merkingar innanhúss I nýrri flug- stöð. Verkinu skal vera lokið 31. mars 1987. Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræði- stofunni, Fellsmúla 26, Reykjavík frá og með mánudeginum 5. jan. gegn 20.000 kr. skilatrygg- ingu. Fyrirspurnirogóskirum upplýsingarskulu berast Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 23. jan. 1987. Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar, Varn- armálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins Skúla- götu 63,105 Reykjavlk, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 30. jan. 1987. Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Skólastarf Fjölbrautaskólans ( Breiðholti á vor- önn 1987 hefst með almennum kennarafundi mánudaginn 5. janúar kl. 9.00—12.00. Sama dag verður svipsstjórafundur kl. 13.00— 15.00 og deildarstjórafundur á sama tlma. Miðvikudaginn 7. janúar verður nýnemakynning I dagskólanum kl. 9.00—16.00. Fimmtudaginn 8. janúar verða nemendum Dag- skóla F.B. afhentar stundatöflur kl. 13.00—15.00. Bóksala skólans verður opin kl. 10.00—16.00. Innritun í Öldungadeild F.B. svo og val náms- áfanga fer fram 5., 7. og 8. janúar frá kl. 18.00— 21.00. Námskynning í öldungadeild verður 12. janúar kl. 18.00. Kennsla hefst í Dagskóla F.B. mánudaginn 12. jan- úar samkvæmt stundaskrá. Kennsla hefst ( Öldungadeild F.B. þriðjudaginn 13. janúar samkvæmt stundaskrá. Skólameistari. ári hverju. Áhrif þess á ISAL eru fyrst og fremst þau, að ekki er lík- legt að af markaðsástæðum komi hér til framleiðsluskerðingar. Einn- ig verður unnt að skipuleggja sölu- framleiðslu okkar lengra fram í tímann en til þessa. Það verður vit- að með góðum fyrirvara hvaða vöru við munum framleiða og fyrir hvaða viðskiptavini. Einsog áður hefur verið frá sagt verður fram- leiðsla okkar fyrst og fremst tiltölu- lega staðlaðir völsunarbarrar og stengur, svo og steypumelmishleif- ar, en framleiðsla á venjulegum hleifum og T-börrum verður í lág- marki. Slíka framleiðslu er hægt að kaupa frá öðrum. 60% fjármagns Áldeildar Alusuisse liggja í hráefnisfram- leiðslu, þ.e. báxíti, súráli, rafskaut- um og hrááli. Hins vegar er aðal- styrkur Alusuisse í sérhæfðum framleiðsluvörum. Á þessu er aug- ljóst misræmi. Fjármagnið þarf að nota, þar sem það kemur að mest- um notum, það er í úrvinnslunni. Þetta þýðir, að erfiðara verður fyrir ISAL að fá fjármagn í ýmsar fram- kvæmdir. Rök okkar fyrir einstök- um fjármagnsfrekum framkvæmd- um þurfa að vera mjög ótvíræð til þess að hljóta samþykki. Sam- keppnin um fjármagnið innan Ál- deildarinnar mun harðna og úr- vinnslufyrirtækin hafa þar forskot vegna góðrar markaðsstöðu sinnar. Ein afleiðing þessa er, að við þurf- um að gæta enn betur að því en hingað til að fjárfestingar nýtist til fullnustu. Það er tómt mál að tala um fjárfestingu í búnaði til hag- ræðingar, sé svo látið við það sitja að koma búnaðinum upp, en van- rækt að nýta hagræðinguna til sparnaðar í mannahaldi og/eða efnisnotkun. Á þessu sviði geta allir starfsmenn haft áhrif, hver á sínum vinnustað. Eftir endurskipulagningu Ál- deildar er staða ISAL sæmilega trygg, ef við stöndum okkur. Fram- leiðsla okkar er hluti af þeim áætl- unum, sem að framan er greint. Við verðum þó að snúa af braut halla- reksturs undanfarinna ára. Við get- um ekki lengur gert ráð fyrir því, að markaðurinn komi okkur til bjarg- ar. Nú er ekki lengur búizt við því aA markaðsverð á áli hækki sem neinu verulegu nemi. Við þurfum að ná því markmiði að framleiða gæðaál við því verði, sem nú ríkir á markaðnum, með hagnaði. Breytt samsetning framleiðslunnar þýðir að vísu verðmætisaukningu, en fyrst og fremst verður að minnka kostnað. Halda verður áfram að hagræða til þess að draga úr kostn- aði og tryggja að sá sparnaður skili sér. Þetta getur verið erfitt, en er óhjákvæmilegt. Framtíðarstaða ISÁL er undir þessu komin. Hrááls- framleiðsla er ekki lengur hátækni- iðnaður, sem veitt geti starfsmönn- um sínum sérstök forréttindi. Til þess að vera góður viðskipta- vinur þurfum við að framleiða það sem viðskiptavinurinn vill, ekki það sem heppilegast er fyrir okkur. Nú í ár voru 17 ár síðan ISAL hóf rekstur. Fjöldi starfsmanna hefur verið hér frá byrjun og meðalstarfs- aldur er yfir 11 ár, þrátt fyrir að nú- verandi framleiðslu hafi verið náð í þrepum á 11 árum. Vegna góðra starfsmanna hefur ISAL lagt kapp á að vera góður atvinnurekandi og mörg dæmi þess er hægt að nefna, að ISAL hafi verið í fararbroddi. Mikilvægi þess að vera góður at- vinnurekandi hefur ekki minnkað, en aðstæður hafa að ýmsu leyti breytzt. Sú staðreynd vegur þungt, að hráálsframleiðsla er ekki lengur sá hátækniiðnaður, sem hún áður var talin. í Bandaríkjunum hafa starfsmenn í áliðnaði og álfyrirtæk- in staðið í ströngum vinnudeilum á þessu ári. Tilefnið var ekki auknar launakröfur starfsmanna, heldur krafa fyrirtækjanna um lækkaðan launakostnað. Kröfur fyrirtækj- anna voru vegna óhagstæðra ytri skilyrða, en þau eru m.a. gífurlega hátt rafmagnsverð, svo og lágt markaðsverð á framleiðslunni. Niðurstaðan var yfirleitt Iækkun launakostnaðar um rúmlega 20%, |þar af bein lækkun launa um 3—4%. Ekki er frá þessu skýrt hér til þess að gefa í skyn, að ISAL ætli að fara iað krefjast launalækkunar starfs- manna. Þetta sýnir okkur hins veg- ar til hvaða ráða aðrir hafa þurft að grípa. Einskis hefur verið látið ófreistað til að lækka kostnað. Lækkun kostnaðar við starfs- mannahald er líka markmið ISAL. Því viljum við ná með hagræðingu og eðlilegum starfslokum þeirra sem hverfa til annarra starfa eða skólanáms eða hætta af öðrum eðlilegum ástæðum. Bezta lausnin er auðvitað stækkun ISAL. Bæði ríkisstjórnin og Alusuisse/ISAL hafa lýst áhuga sínum í þessum efn- um. Framtíðin ein fær skorið úr um, hvort af slíkum áformum verð- ur eitthvað eða ekki. Rekstur ISAL og afkoma geta hér skipt sköpum. Sem betur fer hafa laun í öðrum fyrirtækjum batnað, í sumum til- fellum meira en hjá ISAL. Það sýn- ir að íslenzkur atvinnurekstur hefur styrkzt og orðið fjölbreyttari, en þýðir ekki að laun hjá ISAL, þar sem aðstæður hafa versnað á und- anförnum árum, geti ávallt fylgt þeirri þróun. Starfsmenn ISAL geta búizt við að kjör annarra batni, án þess að sú staðreynd gefi þeim rétt á tilsvarandi kauphækkun. ISAL vill vera góður þjóðfélags- þegn. Á undangengnum árum hafa oft staðið deilur um fyrirtækið, sem hafa verið áþján á fyrirtækinu og Istarfsmönnum. Sem betur fer virð- ast langtímaáhrif þeirra deilna vera lítil, ef marka má niðurstöður skoð- anakönnunar, sem greint var frá í ;síðasta blaði. Ábyrg afstaða til starfsmanna, samfélagsins og kaupanauta á hér áreiðanlega drýgstan hlut. Styrktarfélag vangefinna Vinningsnúmer: 1. vinningur: Volvo 740 GLE nr. 85727 2. vinningur: bifreið að eigin vali fyrir kr. 450 þús. nr. 69513. 3. -10. vinningur: bifreið að eigin vali, hver að upphæð 250 þús. krónur: nr. 3712, 25525, 26456, 61770, 63789, 72661, 81722, 90208. Styrktarfélag vangefinna INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓÐS [ 1. FLB1986 Hinn 10. janúar 1987 er annar fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 2 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini kr. 2.294,80 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1986 til 10. janúar 1987 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu í 364 hinn 1. janúar s.l. til 1565 hinn 1. janúar nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 2 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1987. Reykjavík, 29.desember 1986 SEÐLABANKIISLANDS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.