Alþýðublaðið - 06.01.1987, Síða 6
6
Þriðjudagur 6. janúar 1987
Amnesty international:
Fangar mánaðarins
— Desember 1986
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli al-
mennings á máli eftirfarandi sam-
viskufanga í desember. Jafnframt
vonast samtökin til að fólk sjái sér
fært að skrifa bréf til hjálpar þess-
um föngum og sýna þannig í verki
andstöðu sína við að slík mannrétt-
indabrot eru framin. íslandsdeild
Amnesty hefur nú einnig hafið út-
gáfu póstkorta til stuðnings föng-
um mánaðarins, og fást áskriftir á
skrifstofu samtakanna.
Perú: Policarpio Condori Vargas
er 48 ára bóndi og verkamaður frá
Puno héraði. Hann var handtekinn
á leið úr vinnu þann 27. júní 1984,
og voru þar að verki varðsveitir
borgara sem komið var á fót vegna
baráttu hersins við skæruliðasam-
tökin „Skínandi braut“. Næstu
tvær vikurnar sætti hann kerfis-
bundnum pyntingum af hálfu her-
lögreglunnar, og var sakaður um
hryðjuverkastarfsemi. Neitaði
hann staðfastlega að hafa beitt eða
hvatt til ofbeldis, og styðja heimild-
ir AI þann vitnisburð; ástæðuna
fyrir handtökunni telur AI vera bú-
setu hans á svæði þar sem skærú-
liðasamtökin eru sterk. Policarpio
var fluttur til E1 Frontón fangelsis
skömmu fyrir 18. júní 1986, en þá
braust út samstillt fangauppreisn
bæði þar og í tveimur öðrum fang-
elsum. Herinn bældi uppreisnina
niður af mikilli hörku, og er vitað
um víðtækar fjöldaaftökur í einu
fangelsinu eftir uppgjöf fanganna.
Opinberar heimildir fullyrða að
fangar í E1 Frontón hafi grafist í
rústum hruninna bygginga, utan 34
sem komust af og 30 sem hafi látist
í átökunum. Hálfu ári síðar hafa
einungis 4 lík fundist, en 115 hafa
„horfið", þ. á m. Policarpio
Condori.
Zimbabwe: Norman Zikhali er
meðlimur stjórnarandstöðuflokks-
ins ZAPU og fyrrum verkalýðsfor-
ingi. Hann var handtekinn af leyni-
þjónustunni ásamt tveim flokksfé-
lögum í nóvember 1984, en þeir
voru á leið frá Bulawayo til Beit-
bridge í erindagjörðum flokksins.
Áttu þeir að rannsaka innanflokks-
átök sem þar höfðu brotist út í kjöl-
far morðs á þingmanni stjórnar-
flokksins. Handtaka þeirra studdist
við sérstaka löggjöf sem heimilar
ótakmarkaða fangavist án réttar-
halda. Þeir voru síðar fluttir til
Chikurubi öryggisfangelsisins í
Harare, og var félögum Norman
Zikhali sleppt án ákæru á árinu
1985. Alls voru 80 manns fangels-
aðir vegna átakanna í Beitbridge,
flestir stuðningsmenn ZAPU; öll-
um nema 22 var síðar sleppt. í júlí
1986 voru fimm fanganna ákærðir
fyrir morð stjórnarþingmannsins,
en hlutu sýknu. Norman Zikhali
virðist ekki liggja undir grun um
aðild að morðinu eða átökunum;
eina ástæðan fyrir varðhaldi hans
virðist vera starf hans fyrir ZAPU.
Hann er einn af brautryðjendum
verkalýðsbaráttu í landi sínu, og var
í fangelsi árin 1973—78 (í tíð fyrri
ríkisstjórnar) af þeim sökum.
Búlgaría: Kostadin Kalmakov er
56 ára gamall rafeindavirki frá
Karnobat. Hann er áhangandi
hvítasunnusafnaðarins, og neitar
að bera vopn, og hefur áður sætt
fangelsisvist fyrir að neita að gegna
herþjónustu. Sonur hans hefur
einnig verið fangelsaður 4 sinnum
af sömu ástæðu. Kostadin var
handtekinn 8. marz 1982 eftir að
hafa límt upp veggblöð gegn fang-
elsun þeirra sem af samvizkuástæð-
um neita að gegna herþjónustu.
Hann var ákærður fyrir „áróður
gegn ríkinu", og dæmdur í 4 ára
fangelsi í nóv. sama ár vegna brots
á 108. grein almennra hegningar-
laga, og á sama tíma gekk í gildi
eins árs skilorðsbundinn dómur
sem hann hafði áður hlotið fyrir
gagnrýnið umtal um fæðuskortinn
í landinu. AI hefur borist til eyrna
að Kostadin hafi sætt slæmri með-
ferð, einkum eftir að hann mót-
mælti því að jóladagur væri gerður
að venjulegum vinnudegi í fangels-
inu.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið mann-
réttindabaráttu almennt, eru vin-
samlegast beðnir að hafa samband
við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykja-
vík, sími 16940. Skrifstofan er opin
frá 16:00—18:00 alla virka daga.
Þar fást nánari upplýsingar sem og
heimilisföng þeirra aðila sem skrifa
skal til. Einnig er veitt aðstoð við
bréfaskriftir ef óskað er.
Fundaherferð
á Austfjörðum
Þeir Guðmundur Einarsson, alþingismaður, og Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, hófu fundaherferð um
Austfirði í gær undir kjörorðinu: „Brjótum múrinn", sem vísar til
þess, að Alþýðuflokkurinn keppir nú að því að fá þingmann kjörinn
í Austfjarðarkjördæmi, en þar hefur flokkurinn ekki átt þingmann
í um aldarfjórðung.
Fundaherferðin hófst á Vopnafirði
Þriðjudagurinn 6. janúar: Fáskrúðsfjörður, Breiðdalsvík og
Stöðvarfjörður. Fundarstaðir auglýstir síðar.
Miðvikudagurinn 7. janúar: Djúpavík kl. 17:00 og Höfn í
Hornafirði kl. 21:00. Fundarstaðir auglýstir síðar.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI
1973-2. fl. 25.01.87-25.01.88 kr. 17.266,35
1975-1. fl. 10.01.87-10.01.88 kr. 8.565,53
1975-2. fl. 25.01.87-25.01.88 kr. 6.463,71
1976-1. fl. 10.03.87-10.03.88 kr. 6.157,11
1976-2. fl. 25.01.87-25.01.88 kr. 4.784,74
1977-1. fl. 25.03.87-25.03.88 kr. 4.465,76
1978-1. fl. 25.03.87-25.03.88 kr. 3.027,74
1979-1. fl. 25.02.87-25.02.88 kr. 2.002,15
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1981 -1. fl. 25.01.87-25.01.88 kr. 846,20
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðból
Innlausn spariskírteina og árgreiðslumiöa ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka Islands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavíkjanúar 1987
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Þessi mynd er frá œfingu á leikritinu „í smásjá“ eftir Þórunni Sigurðar-
dóttur. Frá vinstri: Anna Kristín Arngrímsdóttir (Dúna), Ragnheiður
Steindórsdóttir (Hildur, aðstoðaryfirlæknir) ogArnarJónsson (Bjarni, yf-
irlœknir).
Nýtt leikrit í
nýju leikhúsi
í gærkvöldi var opnað nýtt leik-
hús undir handarjaðri Þjóðleik-
hússins, en það er Litla sviðið að
Lindargötu 7, sem var tekið í
notkun með frumsýningu á nýju ís-
lensku leikriti „í smásjá“ eftir Þór-
unni Sigurðardóttur.
Áður en sýningin hófst fóru leik-
arar og starfsmenn Þjóðleikhússins
blysför við undirleik barnalúðra-
sveitar Mosfellssveitar frá anddyri
Þjóðleikhússins að Litla sviðinu.
Það er Þórhallur Sigurðsson,
sem ieikstýrir „í smásjá". Gerla
hannaði leikmyndir, Björn Berg-
steinn Guðmundsson sér um ljós og
leikhljóð samdi Árni Harðarson.
Leikarar eru fjórir í sýningunni
og fara þeir allir með stór hlutverk,
en þeir eru: Arnar Jónsson (Bjarni,
prófessor og yfirlæknir), Anna
Kristín Arngrímsdóttir (Dúna,
kona hans, ritari), Sigurður Skúla-
son (Alli, aðstoðarlæknir) og
Ragnheiður Steindórsdóttir (Hild-
ur, kona hans, aðstoðaryfirlæknir).
í smásjá er dramatískt nútíma-
verk eftir leikarann, leikstjórann og
höfundinn Þórunni Sigurðardótt-
ur. Leikritið fjallar um tvenn hjón,
og eru þrjú þeirra læknar. Það ger-
ist á heimili og vinnustað yfirlækn-
is, sem er um það bil að öðlast al-
þjóðlega viðurkenningu fyrir störf
sín. Inn í leikinn tvinnast samskipti
hans við konu sína og nánustu sam-
starfsmenn. Óvænt örlög eiga eftir
að gjörbreyta afstöðu og lífi
persónanna. Glímt er um tilfinn-
ingar, ást og vináttu. Það er tekist á
um stóra hluti í þessu magnaða
verki Þórunnar.
Fleiri ný íslensk verk eiga eftir að
koma á fjalir Litla sviðsins í vetur,
en einn megintilgangur lítils leik-
sviðs er að huga að nýjum gróðri
með frumsköpun. Tilhögun áhorf-
endasvæðis og leiksviðs verður
breytileg í þessu nýja leikhúsi og
getur sætafjöldi verið 120—150
sæti. Forstjóri Litla sviðsins er Þor-
lákur Þórðarson.
Styrkir til náms í Noregi
1. Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði
fram styrk handa íslenskum stúdent eða
kandldat til háskólanáms I Noregi háskólaárið
1987—88. Styrktímabilið er niu mánuðir frá 1.
september 1987 að telja. Til greina kemur að
skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn
nemur 4.100 n.kr. á mánuði. Umsækjendur
skulu verayngri en 35 áraog hafastundað nám
a.m.k. tvö ár við háskóla utan Noregs.
2. Ennfremur bjóða norsk stjórnvöld fram styrki
handa erlendum ungmennum til námsdvalar
við norska lýðháskóla eða menntaskóla skóla-
árið 1987—88. Ekki er vitað fyrirfram hvort
nokkur styrkjanna kemur í hlut íslendinga.
Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir fæði, hús-
næði, bókakaupum og einhverjum vasapen-
ingum. — Umsækjendur skulu eigi vera yngri
en 18 ára og ganga þeir að öðru jöfnu fyrir sem
geta lagt fram gögn um starfsreynslu á sviði fé-
lags- og menningarmála.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið
til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavfk, fyrir 31. janúar n.k., á sérstökum eyðu-
blöðum sem þar fást, og fylgi staðfest afrit próf-
skirteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
29. desember 1986.