Alþýðublaðið - 06.01.1987, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 06.01.1987, Qupperneq 7
Þriðjudagur 6. janúar 1987 7 Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar: Bætur vegna barna til 18 ára aldurs í stað 17 Á síðustu vinnudögum Alþingis fyrir jól var samþykkt frumvarp til laga um breytingu á lögum um at- vinnuleysistryggingar. Samþykkt frumvarpsins tryggir, að bætur at- vinnuleysistrygginga vegna fram- færslu barna verða greiddar þar til barn verður 18 ára í stað 17 ára eins og verið hefur. — Fyrsti flutnings- maður þessa frumvarps var Jóhanna Sigurðardóttir og sam- flutningsmenn Karvel Pálmason, Guðrún Helgadóttir og Guðmund- ur Bjarnason. Frumvarpið, ásamt greinargerð, fer hér á eftir: 1. gr. 2. mgr. 23. gr. laganna orðast svo: Að auki skal greiða bótaþegum, sem hafa börn sín yngri en 18 ára á framfæri á heimili sínu eða greiða sannanlega með þeim meðlag utan heimilis, 4% af framangreindum launum með hverju barni. 2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1987. Greinargerð: Markmið þessa frumvarps er að tryggja að bætur atvinnuleysis- trygginga vegna framfærslu barna séu greiddar þar til barn verður 18 ára í stað 17 ára eins og nú er. Um er að ræða að samræma ákvæði um atvinnuleysistryggingar því sem er í öðrum hliðstæðum lög- um og reglum um framfærslu barna. Má þar nefna: Lands- bankinn gefur út „banka- bréf“ Landsbankinn hefur hleypt af stað nýjung í verðbréfaviðskiptum bankans með útgáfu skuldabréfa, sem kosið hefur verið að kalla bankabréf. Þessi útgáfa byggir á heimildum til verðbréfaviðskipta í nýjum lögum um viðskiptabanka. Með útgáfu Bankabréfa er Landsbankinn að bjóða nýjan val- kost á sviði verðbréfaviðskipta. Bankabréf Landsbankans eru ein- greiðslubréf, svonefnd kúlubréf, með endursölutryggingu en slík bréf hafa ekki verið böðin til sölu áður. Með því að bjóða þessi verð- bréf er Landsbankinn að uppfylla þær óskir viðskiptavina sinna að verðbréf séu örugg, í stöðluðum einingum, og endursala sé tryggð. Til að byrja með verða Banka- bréfin seld í aðalbanka en hægt er að panta þau í öllum útibúum og afgreiðslum Landsbankans. Við kaup á Bankabréfunum geta við- skiptavinir óskað þess að bankinn varðveiti bréfin og ráðstafi greiðsl- um inn á reikning í bankanum, við- skiptavinum að kostnaðarlausu. Ef eiganda Bankabréfs hentar ekki að innleysa bréfið á gjalddaga mun Landsbankinn greiða honum spari- sjóðsbókarvexti frá gjalddaga þar til bréfið er innleyst. Með því að veita endursölutrygg- ingu á Bankabréfunum er Lands- bankinn að sjá til þess að eigendur bréfanna geti litið á þau sem kvika (liquid) eign og séu ekki að binda fjármuni til lengri tíma. Útgáfa Bankabréfa er einn liður í eflingu Verðbréfaviðskipta Lands- bankans. Á komandi ári er að vænta fleiri nýjunga á því sviði og mun Landsbankinn sem hingað til ávallt leitast við að veita sem besta þjónustu. — barnalögin, þar sem réttindi og skyldur framfærenda miðast við 18 ára aldur barns, — reglur lífeyrissjóða um barna- bætur, — ákvæði almannatryggingalaga um barnalífeyri, meðlög, mæðralaun og sjúkradagpen- inga þar sem bótaréttur og framfærsla erumiðuð við 18ára aldur barns. Öll þessi ákvæði, sem hér hafa verið tilgreind, kveða annaðhvort á um framfærsluskyldu framfærenda eða bótarétt þeirra til 18 ára aldurs barna. Af sjálfu Ieiðir að forsenda fyrir greiðslu atvinnuleysistrygg- inga á barnabótum til 18 ára aldurs er sú sama. Þar er um að ræða að tryggja framfærslu barna og bóta- rétt ef atvinnuleysi hindrar fram- færanda í að afla vinnutekna. Ef til vill niá benda á ákvæði um sjúkradagpeninga í almannatrygg- ingalögunt sem helstu hliðstæðu við greiðslu atvinnuleysistrygginga- bóta. Sjúkradagpeningar eru greiddir ef launatekjur falla niður vegna veikinda. Bótaþegi á þá rétt á' greiðslu dagpeninga og til viðbótar ákveðinni upphæð fyrir hvert barn á framfæri til 18 ára aldurs. At- vinnuleysisbætur eru greiddar þeg- ar launatekjur falla niður vegna at- vinnuleysis. Bótaþegi á þá rétt á greiðslu dagpeninga og til viðbótar ákveðinni upphæð vegna barna yngri en 17 ára á framfæri sínu. Ætla verður að misbrestur hafi orð- ið á því að færa ákvæði atvinnuleys- istryggingalaga, að því er varðar bótarétt vegna barna, til 18 ára ald- urs, en í kjölfar barnalaganna, sem sett voru árið 1981, voru almanna- tryggingalögin samræmd þeim lög- um að þessu leyti. Með hliðsjón af þeim breyting- um, sem orðið hafa á hliðstæðum lögum og áður hefur verið rakið, verður að ætla að víðtæk samstaða geti náðst um það frumvarp sem hér er flutt. Samkvæmt upplýsingum At- vinnuleysistryggingasjóðs hafa barnadagpeningar undanfarin ár numið á bilinu 3,8% til 4,2% af heildarbótagreiðslum atvinnuleys- istrygginga. Sú breyting, sem hér er gert ráð fyrir, leiðir af sér hækkun barnadagpeninga í u.þ.b. 5,9% af heildarbótagreiðslum. Árið 1985 voru heildarútgjöld atvinnuleysis- trygginga vegna barnabóta rúmar 6,4 millj'ónir króna. Útgjöld at- vinnuleysistrygginga hefðu því auk- ist unt 400 þús. kr. á árinu 1985 vegna ákvæða þessa frumvarps. Af framangreindu er ljóst að frumvarpið felur það eitt í sér að löggjafinn lagfæri ákvæðin um barnabætur atvinnuleysistrygginga svo að þau samræmist því sem er í öðrum hliðstæðum lögum. Sú breyting mun hafa sáralítinn kostn- að í för með sér fyrir Atvinnuleysis- tryggingasjóð. msxmm GERUM BETUR! Kæri lesandi. upphafi nýs árs langar mig til að senda þér fáeinar línur um málefni sem skiptir okkur öll miklu máli, en það eru umferðarmálin. Á þessum tímamótum blasir sú staðreynd við okkur, að við stóðum okkur hvergi nógu vel í umferðinni 1986. verjar eru ástæðurnar fyrir öllum þessum gífurlegu umferðarslysum sem kosta ómældar fjárhæðir, svo ekki sé talað um þjáningar sem aldrei verða mældar í peningum? Sem dæmi vil ég greina frá því að Almennar Tryggingar greiddu á fyrstu ellefu mánuðum ársins 1986 yfir 110 milljónir vegna tjóna í umferðinni. Þessar háu tölur sýna að allt of mikið er af óhöppum og slysum í umferðinni. Það undirstrikar virðingarleysi ökumanna fyrir algengustu umferðarreglum. - r t.d. ekki svo, að of margir ökumenn virða ekki reglur og umferðarmerkingar á gatnamótum? Ýmsir sinna ekki stöðvunarskyldu við aðalbrautir. Enn aðrir aka eftir fjölförnum umferðargötum eins og þeir séu einir í heiminum og skipta jafnvel um akreinar fyrirvaralaust án þess að gefa merki. Svona dæmi eru dapurlegur vitnisburður um umferðarmenningu okkar. igum við ekki öll sem einn að gera betur á nýju ári í umferðinni. Eigum við ekki að sýna aukna tillitssemi og kurteisi hvert við annað. Fylgjum umferðarreglum og hugsum um öryggi samferðamannsins í umferðinni. eð samstilltu átaki getum við dregið stórlega úr umferðarslysum. Takist okkur það kemur það öllum til góða. g skora á þig, kæri samferðamaður, að standa þig enn betur í umferðinni í ár. Hafðu hugfast að þitt framlag, eins og mitt, er mikilvægur hlekkur í öryggiskeðjunni. Með bestu nýárskveðjum, / Ólafur B. Tljors MnT3íTTlE?T? TRYGGINGAR

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.