Alþýðublaðið - 10.04.1987, Page 1

Alþýðublaðið - 10.04.1987, Page 1
alþýðiH blaðið 1 Föstudagur 10. apríl 1987_________70. tbl. 68. árg. Axel Kristjánsson, aðallösfrœðinsur Útvessbankans: „Mér kemur þetta ekki á óvart“ Kosningabarátta á ameríska vísu: Brýtur Framsókn samkomulag flokkanna? Samkvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins ætlar Framsóknarflokkur- inn í Reykjaneskjördæmi, að brjóta samkomulag flokkanna um að fara ekki út í dýrar sjónvarpsauglýsingar eða þáttagerð fyrir alþingiskosn- ingarnar. Mikil taugaveiklun er sögð ríkja meðal framsóknarmanna í kjör- dæminu og vilja þeir leggja allt í sölurnar til að reyna að tryggja for- sætisráðherra, formanni Fram- sóknar, sæti á Alþingi. Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins er verið að tala um dagskrá á Stöð-tvö sem gæti kostað um 1.5 milljón króna. Flokkarnir hafa hingað til neitað auglýsingatilboðum í sjónvarpi. Þeir hafa hins vegar þegið ókeypis kynningar og sýningartíma. Gerð framboðskynninganna í ríkissjón- varpinu var kostuð af flokkunum, en sýningarnar án endurgjalds. Stöð-tvö hefur einnig boðið flokk- unum 15 mínútna kynningu, en býður einnig auglýsingatíma, eða þátt. Hermann Sveinbjörnsson, kosn- ingastjóri Framsóknar í Reykja- nesi, vildi ekki staðfesta að floickur- inn færi út í þessa dýru auglýsingu á stöð tvö. „No comment;* sagði Hermann. Hann gaf heldur ekkert út á hvaða upphæðir væri um að ræða. Ljóst þykir að ef Framsókn lætur til leiðast, þá fylgi hinir flokkarnir á eftir. Menn eru hins vegar á einu máli um að kostnaðurinn sé allt of mikill og á endanum verði pening- amir sóttir í vasa skattborgaranna. Emil Þór Guðbjörnsson, Stykkishólmi: „Ungt fólk kýs Alþýðuflokkinn „Þetta kemur mér ekki á óvart að það sé gefin út ákæra, miðað við það moldviðri sem búið er að vera í kringum þetta mál. En það sem kemur mér á óvart er að það sem á að kallast réttarríki eins og á ís- landi, er það að ákærur skuli birtast í fjölmiðli, áður en þær eru birtar í sakadómi. Þetta máttu hafa eftir mér og annað ekki,“ sagði Axel Kristjánsson, aðallögfræðingur Út- vegsbankans í samtali við Alþýðu- blaðið, vegna umfjöllunar Helgar- póstsins í gær um Útvegsbankann og Hafskipsmálið. Axel Kristjánsson, aðallögfrœðing- ur Útvegsbankans. í HP í gær er fullyrt að von sé á ákæru á allra næstu dögum í Haf- skips/Útvegsbankamálinu og að bankastjórar Útvegsbankans muni verða ákærðir, bæði núverandi bankastjórar og eins fyrrverandi. Þá er einnig sagt í HP: „Þá er Helg- arpóstinum kunnugt um, að Axel Kristjánsson aðallögfræðingur Út- vegsbankans, sem hafði á hendi eins konar eftirlit með Hafskipi fyrir hönd Útvegsbankans, verði einnig ákærður" í gær voru svo birtar ákærur í Hafskipsmálinu hjá embætti sak- sóknara. Eftirtöldum voru birtar ákærur: Ragnari Kjartanssyni, Björgólfi Guðmundssyni, Páli Braga Kristjónssyni, Helga Magnússyni, JónasiRafnar, Bjarna Guðbjörnssyni, Ármanni Jakobs- syni, Ólafi Helgasyni, Halldóri Guðbjarnasyni, Lárusi Jónssyni og Axel Kristjánssyni. Búist er við að Albert Guð- mundsson, fyrrverandi stjórnarfor- maður Hafskips og fyrrverandi for- maður bankaráðs utvegsbankans, muni sleppa við ákæru í málinu. Ekki náðist í Hallvarð Einvarðs- son ríkissaksóknara í gær og ekki heldur Braga Steinarsson. Neytendasamtökin vara mjög eindregið við nýjum tilraunum til framleiðslu- og verðstýringar, hvort sem um er að ræða stjórnvöld eða framleiðendur. Samtökin segja að ástæða sé til að ætla að nú þegar séu kjúklingaframleiðendur að koma á slíkri framleiðslustjórnun sem ætlað sé að hindra að nýir framleiðendur geti hafið fram- leiðslu á kjúklingaafurðum. — Samþykkt þessa efnis var gerð á fundi sfjórnar Neytendasamtak- anna s.l. þriðjudag. í lok síðasta árs tókst að koma í veg fyrir að þær greinar landbúnað- ar, sem búið hafa við frjálsræði í framleiðslu og verðmyndun væru teknar undir miðstýrða fram- leiðslustjórnun og verðmyndun. Neytendasamtökin gagnrýndu þau „það er mikill hugur í Alþýðu- flokksfólki hér á Stykkishólmi. Alþýðuflokkurinn virðist vera hér í stórsókn, en það sem einkennir Sjálfstæðisflokkinn á Vesturlandi aftur á móti er að hann virðist vera sprunginn í marga hluta. Það er því áform harkalega, en segja nú að ástæða sé til að vera áfram á verði gagnvart þessum hugmyndum. Það er skoðun Neytendasamtak- anna að eftirspurn eftir kjúklinga- kjöti sé ekki fullnægt. Of hátt verð þessarar vöru, í samanburði við ná- grannalönd okkar, hefur leitt til minni neyslu en ella. Hér eiga spá margra hér fyrir vestan núna að Alþýðuflokkurinn muni fá tvo menn kjörna á þing í kosningunum, 25. apríl,“ sagði Emil Þór Guð- björnsson, skipasmiðameistari á Stykkishólmi, þegar Alþýðublaðið hafði samband við hann í gær. kjarnfóðurskatturinn og ýmsar framleiðsluhindranir megin sök, en kjarnfóðurskatturinn leggst á allt innflutt kjarnfóður. Neytendasam- tökin ítreka fyrri mótmæli sín gegn þessum óréttláta skatti, sem greidd- ur er úr matarbuddu almennings. Jafnframt mótmæla samtökin marg endurteknum fullyrðingum fulltrúa hefðbundinna búgreina um að þessi skattlagning sé nauðsynleg vegna niðurgreiðslna á kjarnfóðri erlendis. Þær niðurgreiðslur eru eingöngu til komnar til þess að gera kjarnfóður frá löndum Vestur-Evr- ópu samkeppnusfært í verði, borið saman við heimsmarkaðsverð á þessari vöru. „Við búumst því við að bæði Eið- ur Guðnason og Sveinn Hálfdánar- son verði í þingliði okkar Vestlend- inga á næsta kjörtímabili, — og líst vel á. Það hafa verið haldnir ágætir framboðsfundir hér í kjördæminu sem hafa leitt í ljós sterka málefna- lega stöðu Alþýðuflokksins. Helstu málin í Vesturlandskjör- dæmi sem þola ekki bið eru vega- málin og hafnarmálin. Fram- kvæmdir eru nú loksins hafnar við smábátahöfn hér í Stykkishólmi og eins eru framkvæmdir að fara i gang við nýja höfn vegna hinnar nýju Breiðafjarðarferju, eða nýja Baldurs. Það nýja skip verður miklu stærra og meira en það sem nú er í notkun og því verður hægt að anna betur ferðamönnum og ferðaþörfum þeirra með tilkomu hins nýja skips. Lengi hefur staðið til að hefja framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Stykkishólmi og mikil nauðsyn að framkvæmdir verði hafnar á sumri komanda. Teikningar munu nú loksins vera tilbúnar og því ekkert til fyrirstöðu að hefjast handa og bjóða verkið út. Alþýðuflokkurinn er í stórsókn hér á Vesturlandi, — það er engin spurning. Við höfum á að skipa mörgu ungu og áhugasömu bar- áttufólki og ég vil skora á unga kjósendur í kjördæminu að fylkja sér um Alþýðuflokkinn og gera sig- ur hans sem glæsilegastan í kosn- ingunum 25. aprílý sagði Emil Þór Guðbjörnsson. Kiúklinsaframleiðendur: Ný tilraun til fram- leiðslustýringar? Framleiðsla Sambandshúsanna fyrstu mánuði ársins: HEILDARFRYSTINGIN JOKST UM 3 % — Framleiðsla frystra botnfisk- afurða þó 11% minni en á sama tíma í fyrra. Á tímabilínu frá áramótum til 4. apríl jókst heildarfrysting Sam- bandshúsanna um 3%, miðað við sama tímabil í fyrra. Heildarfryst- ingin þetta tímabil er um 12.030 tonn á móti 11.670 tonnum í fyrra. Þessi aukning er aðallega vegna aukinnar framleiðslu frystrar loðnu og frystra loðnu- hrogna. Ef litið er á botnfiskaf- urðirnar þá er framleiðsla þeirra 11% minni en á sama tíma í fyrra. Minni framleiðsla botnfisk- afurða stafar fyrst og fremst af áhrifum verkfallanna, upp úr ára- mótum. „Það er nokkuð blendið hljóð í mönnumý segir Sigurður Mark- ússon, framkvæmdastjóri Sjávar- afurðadeildar Sambandsins, að- spurður um afkomuna í greininni. „Hann sagði að menn hefðu þungar áhyggjur af því hve dollar- inn hefur lækkað og lika út af þeirri miklu óvissu sem rikir um dollarann. „En, jákvæða hliðin er sú, að mér finnst vera mikill hug- ur í mönnum í frystingunni. Menn vilja standa sig í samkeppn- inni, t.d. í samkeppninni við ferska fiskinn. það er mikið talað um vöruþróun og þróun á nýjum vinnsluaðferðum í frystingunni. — Menn vænta mikils af því starfi, sem verið er að vinna á því sviðiý segir Sigurður. — En gerir óhagstætt gengi dollars að verkum að menn fram- Ieiða frekar fyrir aðra gjaldmiðla? „Nei, því má ekki gleyma að það hafa orðið töluverðar hækk- anir í Bandaríkjunum og senni- lega nokkuð meiri en á öðrum mörkuðum. Þessar hækkanir hafa því meira en vegið upp á móti lækkun dollarans. En, við hefð- um auðvitað gjarnan viljað hafa þessar hækkanir, án þess að þurfa að afskrifa hluta af þeim vegna lækkunar á dollaranum.“ / aukningunni í heildarfrystingunni, munar mestu um aukna fram- leiðslu fryslrar loðnu og loðnuhrogna. Framleiðsla frystra botnfisk- afurða er hins vegar 11% minnifyrstufjóra mánuðina, miðað við sama tíma í fyrra. 4!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.