Alþýðublaðið - 10.04.1987, Side 2
2
Föstudagur 10. apríl 1987
RIT3TJ Q R N A.RG R EIN . .. .
Réttlátara skattakerfi
Eitt af meginstefnumálum Alþýðuflokksins í
komandi kosningum er heildarendurskoðun
og einföldun skattkerfisins jafnframt hertum
aðgerðum gegn skattsvikum. Núverandi skatt-
kerfi er ranglátt og þjónar illa tilgangi sínum.
Og enn hefurverið lítið gert til að vinna bug á
stærstu göllum skattkerfisins. Staðgreiðsla
skattaer jákvætt skref fram ávið, en hún erað-
eins eitt af mörgum skrefum sem taka þarf.
Skattkerfið þarf að afla ríki og sveitarfélögum
nauðsynlegra tekna til sameiginlegra verkefna
landsmanna á þann hátt, að allir — einstakl-
ingar jafnt sem fyrirtæki — leggi sitt af mörk-
um. Skattreglurverðurað geraþannig úrgarði,
að álagningin verði réttlát en jafnframt skilvirk-
ari en nú er. Skattkerfið á að stuðla að jöfnun
afkomu í þjóðfélaginu. Þessum markmiðum
hyggst Alþýðuflokkurinn ná með því að fækka
undanþágum og sérreglum, afnema álagningu
áalmennar launatekjur, og hækka skattfrelsis-
mörk með aukningu persónuafsláttar og
barnabóta. Auk þess er eðlilegt, að tekjur af
eignum sem eru umfram venjulegar eignir al-
mennings, verði skattlagðar eins og tekjur af
atvinnu. Þáereinnig þarft að kanna, hvort setja
eigi sérstakt skattþrep á mjög háar tekjur.
að sem sérstaklega verður að tryggja í nýju
skattkerfi er, að skattafsláttur færist að fullu
milli hjóna, húsnæðisbætur og sjómannaaf-
sláttur verði að minnsta kosti jafn gildar þvl
sem nú er, og að tekið verði tillit til sérstakra
aðstæðna námsmanna sem eru að hefja störf
að loknu námi. Alþýðuflokkurinn leggur
áherslu áað skattlagning atvinnurekstrarverði
endurskoðuð, þannig að atvinnurekendur og
fyrirtæki beri meiri og jafnari skatta en nú er.
Heimildir til að draga frá tekjum fyrirtækja
varasjóðs- og fjárfestingarsjóðstillög, niður-
færslu vörubirgða og útistandandi krafna á að
takmarka verulega um leið og skattahlutfall
lækki. Þá ber að samræma launaskatt og
tryggingariðgjöld atvinnurekenda og leggist
eins á allar atvinnugreinar.
Söluskatturinn er heill kapítuli út af fyrir sig.
Hinar flóknu afsláttarreglur sem nú gilda og
allt það bruðl og stórkostlegu svik sem höfð
eru frammi hvað söluskatt varðar, benda að-
eins I einaátt: Söluskatt berað leggja niðurog
taka upp virðisaukaskatt I staðinn. Ennfremur
er nauðsynelgt að tryggja að neysluskattar
leggist ekki með meiri þunga á almennar
launafjölskyldur en nú er. Álagningu virðis-
aukaskatts verði hagað þannig að hanri inn-
heimtist betur en söluskattur gerir nú.
Alþýðuflokkurinn telur að fram eigi að fara
heildarendurskoðun á tekjustofnum sveitarfé-
laga og verði hún gerð I samráði við þau. Sam-
hliða þessari breytingu færist ný verkefni til
sveitarfélaganna I kjölfarið. Þessi breyting yrði
hluti af heildarendurskoðun á tekjustofnum
sveitarfélaga sem gerð verði I samráði við þau.
Markmiðið verði að auka fjárhagslegt sjálf-
stæði sveitarfélaga og þar með valddreifingu I
Islensku þjóðfélagi. Með þvl að endurskoða
skattkerfið verður lögð áhersla á að loka skatt-
svikaleiðum og bæta leiðbeiningar af hálfu
skattyfirvalda.
Þannig vill Alþýðuflokkurinn leggja sitt af
mörkum til þess að á íslandi rlki sanngjarnt og
réttlátt skattakerfi þar sem þegnar landsins
leggja hlutfallslega jafnt af mörkum til upp-
byggingar velferðarríkis á íslandi.
Framkvœmdanefnd um framtíðarhorfur:
Fyrstu sérritin lögð fram
Kaupmannahöfn
Lögreglu
hótað með
eyðnismiti
nýverið kynntu Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra og Jón
Sigurðsson fyrrum forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar útgáfu fyrstu sérrita
svonefndrar framkvæmdanefndar
um framtiðarhorfur. Voru sérrit 1
og sérrit 3 svo og viðaukarit lagt
formlega fram á blaðamannafundi
í vikunni. I þessum þremur bókum
eru tíu af tuttugu ritgerðum fram-
tiðarkönnunar og eru hinar vænt-
anlegar á næstu vikum.
Leiklr 11. apríl 1987 1
1 X 2
1 Leeds-Coventry'(sd.)
2 Watford - Tottenham1 s)
3 Everton - West Hain2
4 Leicester - Aston Vllla2
5 Man. City - Southampton3
6 Norwich - Liverpool2 %
7 Oxford - Newcastle2 X
8 Q.P.R. - Luton2 I
9 Crystal Palace - Plymouth- I
10 Derby-Stoke3 1
11 Huddersfield - lpswich° 1
I2 Portsmouth - Oldharrv'- l
Getraunir
Fjórar raðir komu fram með tólf
réttum leikum hjá íslenskum get-
raunum um helgina. Þeir heppnu
voru, karlmaður í vesturbænum
sem fékk um kr. 500.000 því átta ell-
efur fylgdu hans seðli, kvenmaður í
Breiðholtinu og karlmaður á Sel-
fossi fengu hvor um sig rúmar kr.
420.000r því þeirra seðlum fylgdu
fjórar ellefur. Loks var það kona á
Seltjarnarnesinu sem krækti sér í
tólfu á einn hv í tan seðil og hlaut kr.
342.845 í vinning.
Alls komu fram þrjátíu seðlar
með 11 réttum leikjum og hlaut hver
kr. 19.591 í vinning.
Alþýðublaðið heldur áfram að
rúlla yfir auman spámann Helgar-
póstsins, í innbyrðisviðureigninni.
Alþýðublaðið hefur aftur náð fjög-
urra stiga forystu, eftir að staðan
var orðin jöfn fyrir aðeins tveimur
vikum.
Vegna tæknilegra mistaka hjá
Helgarpóstinum, láðist að birta
spána fyrir leiki helgarinnar. En,
vegna góðmennsku tippara Al-
þýðublaðsins verður leiknum fram-
haldið og Alþýðublaðið birtir hér
spá HP: 221 llx lxl lxl. < 1.
Við áramótin 1983—1984 sam-
þykkti ríkisstjórnin að tillögu
Steingríms Hermannssonar, for-
sætisráðherra, að gerð skyldi víð-
tæk könnun á framtíðarhorfum á
íslandi næsta aldarfjórðung. Til-
gangur verksins var að vekja um-
ræður um langtímasjónarmið í
þjóðmálum og auðvelda fólki, fyr-
irtækjum og stjórnvöldum að móta
stefnu til langs tíma.
í framhaldi af þessari samþykkt
skipaði forsætisráðherra í apríl
1984 fjölmenna ráðgjafanefnd til
þess að Ieggja á ráð um það, hvernig
best væri að standa að þessu verki.
Sjö menn úr þessari ráðgjafanefnd
voru síðan skipaðir í framkvæmda-
nefnd til þess að standa fyrir verk-
inu og hafa yfirumsjón með því.
Framkvæmdanefndin ákvað að
skipta verkinu í sextán þætti og var
myndaður starfshópur um hvern
þeirra. Auk þess var Félagsvísinda-
stofnun Háskóla íslands falið að
gera könnun á viðhorfum ung-
menna til framtíðarinnar. Þá má
nefna þrjár sérstakar viðauka-
skýrslur, sem voru skrifaðar á veg-
Félagsvist
á Hótel Sögu
Alþýðuflokkurinn efnir til fé-
lagsvistar og dansleiks á Hótel
Sögu n.k. sunnudagskvöld 12.
apríl. Skemmtunin hefst kl. 21.00.
Ræðumaður kvöldins verður Jón
Baldvin Hannibalsson.
Vinningar í félagsvist verða þrír.
Fyrstu verðlaun eru ferð fyrir tvo til
London. Önnur verðlaun er vöruút-
tekt í Hljómbæ að verðmæti 10
þús., og þriðju verðlaun vöruúttekt
í Vörumarkaðnum að verðmæti 5
þúsund kr.
Þá minnum við á Baráttuhátíð
Alþýðuflokksfólks í Reykjanes-
kjördæmi í Digranesi í Kópavogi í
kvöld fimmtudag 9. apríl kl. 20.30.
Fundi Jóns Baldvins á Gauki á
Stöng sem auglýstur var n.k. laug-
ardag, hefur verið frestað um
óákveðinn tíma. Á sunnudag held-
ur Jón Baldvin hins vegar fund á
Eiðstorgi í nýju verslunarmiðstö*
mni undir glerhimninum kl. 15.00.
Og um kvöldið er félagsvist á Hótel
Sögu sem fyrr segir.
um ems starfshópsins, þannig að
segja má, að álitsgerðir framtíðar-
könnunar séu alls tuttugu að tölu.
Eðli málsins vegna voru notuð
mjög mismunandi vinnubrögð í
hinum ýmsu hópum. í sumum til-
fellum var mögulegt að setja fram
beinar tölulegar spár um framtið-
ina, eins og t.d. varðandi mann-
fjölda, en í öðrum er frekar reynt að
greina meginstrauma. í öllum til-
fellum var hins vegar, beint eða
óbeint, reynt að svara þeirri spurn-
ingu hvernig íslendingum komi til
með að reiða af við upphaf nýrrar
aldar.
Niðurstöður framtiðarkönnunar
verða gefnar út í fimm sérritum
(með sérriti 3 fylgir einnig sérstakt
viðaukarit) og eru þau:
Sérrit LGróandi þjóðlíf — Mann-
fjöldi, heilbrigði, byggð og um-
hverfi og framtíðarsýn æskufólks
fram yfir aldamót.
Sérrit 2: Menning og menntun á
tækniöld — íslensk menning,
skólakerfi og tæknibreytingar
næsta aldarfjórðung.
Sérrit 3: Auðlindir um aldamót —
Nýting náttúruauðlinda til sjós og
lands næsta aldarfjórðung.
Sérrit 4: Framfaraöld — Efnahags-
horfur fram yfir aldamót.
Sérrit 5: Löggjöf og landshagir —
Löggjöf og stjórnarfar, fjárhagur
hins opinbera og myndun og miðl-
un fjármagns við upphaf nýrrar
aldar.
í viðaukaritinu með sérriti 3 er
fjallað um verðurfarsbreytingar,
sauðfjárrækt og skógrækt.
Það er e.t.v. aðeins tímaspursmál
hvenær lögregluþjónn skýtur í
fyrsta skipti á fólk sem verst hand-
töku með hótun um eyðnismit.
Ennþá hefur það ekki gerst, en
lögreglan hefur vaxandi áhyggjur af
þeim tilfellum þegar eiturlyfjaneyt-
endur segjast vera með eyðni og
hóta að smita þann sem gerir sig llk-
legan til að handtaka þá.
Ole Norgaard, einn af yfirmönn-
um lögreglunnar í Kaupmanna-
höfn, segir að ef til þess komi að
lögreglumaður dragi upp byssu og
skjóti að manni sem hótar með
eyðnismiti, eftir að hafa reynt hand-
töku með venjulegum hætti, þá eigi
sá lögreglumaður vísan stuðning
sinn.
Valdbeiting af nauðsyn
Það gengur ekki að hætta við að
handtaka hvern þann sem beitir fyr-
ir sig hótunum, segir hann. — í
okkar starfi verðum við að beita
valdi, ef annað bregst. í langflest-
um tilvikum nægir að nota kylfuna,
t.d. ef eiturlyfjaneytandi reynir að
komast hjá handtöku með því að
ota sprautu að lögreglumanninum.
En ef allt annað bregst getur þurft
að grípa til þess örþrifaráðs að
draga upp byssu. í þeim tilvikum er
það oftast nær nóg að miða byss-
unni, en einstöku sinnum er sá sem
á að handtaka viti sínu fjær og þá
getur það verið nauðsynlegt að yfir-
buga hann með skoti.
Norgaard segir að í 90 af hverjum
100 tilvikum sem byssan er dregin
fram, sé hún aðeins notuð til hótun-
ar.
Lögreglu ógnað
Fyrir skemmstu ógnaði ung
kona, eiturlyfjaneytandi, nokkrum
lögreglumönnum og öryggisverði
með því að hún hefði tvær sprautur
með eyðnismiti í lófunum og hún
myndi nota þær ef þeir gerðu al-
vöru úr því að taka hana fasta. Hún
hafði verið staðin að töskuþjófnaði
á Vesterbrogade í Kaupmannahöfn.
Konan var yfirbuguð, án þess
það þyrfti að nota kylfuna eða byss-
una og síðar kom í ljós að hún var
ekki smituð af eyðni. En nokkru
áður kom það fyrir, þegar lögreglan
þurfti að nota kylfuna á eiturlyfja-
neytanda, að hann beit sig til blóðs
í handlegginn og reyndi að smyrja
blóðinu á lögreglumennina. í þetta
skipti var hætta á ferðum. Maður-
inn reyndist smitaður af eyðni.
Afstaða stjórnvalda
Stjórnvöld virðast vera jafn ber-
skjölduð gagnvart þessari nýju ógn-
un við þá sem eiga að gæta laga og
réttar og þeir sjálfir. Ole Espersen,
sem á sæti í réttarfarsnefnd, er í
grundvallaratriðum sammála Ole
Norgaard. Hann segist þó eiga bágt
með að sætta sig við þá tilhugsun
að það verði fastur liður í starfi lög-
reglumanna að skjóta á fólk. í
rauninni sé ekkert nýtt á ferðinni.
Lögreglan verði að sinna skyldum
sínum og nota þær valdbeitingarað-
ferðir sem reynast nauðsynlegar
hverju sinni.
SAMVirSINUTRVGGIINGIAR
Áimúla 3 - Raykjavfk - 8lmi 31411
Aðalfundur Samvinnutrygginga g.t. og Líftrygg-
ingafélagsins Andvöku, verða haldnir I Samvinnu-
tryggingahúsinu, Ármúla 3, Reykjavík, föstu-
daginn 8. maí n.k. og hefjast kl. 16.00.
Dagskrá verður samkvæmt samþykktum félag-
anna.
Stjórnir félaganna