Alþýðublaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 12
Þriðjudagur 14. apríl 1987 WÍmW: . íiðu lambalæri íhátíðarmatinn. Rauðvínsle< dduðu lambalærin frá SS eru eingöngu un sta flokks hráefni og eru tilbúin í otftinn. 3 gómsætur hátíðarmatur. i María Framh. af bls. 11 stuðlar að friði á vinnumarkaðirf- um og raunverulegu frelsi allra. Hayek, einn af dýrlingum frjáls- hyggjumanna, segir í bók sinni Constitution of Liberty: „ . . . frelsi, getur falið í sér frelsi til að svelta ... “ Þetta kalla ég ónýtt frelsi. Án efnalegs öryggis er enginn maður frjáls. Frelsi er heldur ekki raunverulegt nema tækifæri séu jöfn. Það er óþolandi óréttlæti að erfðafé og forréttindi ráði því að sumir nái ríkidæmi, völdum og vírðingu á meðan þeir sem fæðast inn í fátækt, misrétti og skert tækifæri verða gersamlega undir í lífsbaráttunni. En þessu vilja postular kapítal- ismans ekki breyta. Jafnrétti, hlutdeild launamanna í þjóðartekjum, krafan um félagslegt réttlæti — allt er þetta eitur í bein- um þessara manna. Þeir segja að þetta stuðli að dugleysi og grafi undan fjölskyldunni. Ég spyr: Hvers konar fjölskyldu- líf er það sem haldið er til streitu á grundvelli jafnréttis? Er mannúð þessara manna kannski fólgin í því að kona geti ekki bundið endi á mislukkað hjónaband vegna þess að hún eigi enga möguleika á að sjá fyrir sér og börnum sínum? Það er karlrembukjaftæði að velferð fólksins eyðileggi gott fjölskyldulíf, en hún getur sannarlega bundið endi á hörmungar sem ekki eiga að viðgangast. Það að velferð valdi dugleysi eru harðneskjuleg rök en lýsa sennilega best rugluðum hugmyndaheimi auðhyggjunnar. Ég spyr aftur: Vinnur fólk þá ekki nema það sé stöðugt hrætt um að eiga ekki í sig og á — eða eigi á hættu að missa of- an af sér? Eftir þeirra kokkabókum hætta allir að vinna og lifa þess í stað á kerfinu. Er fólk þá bara í eðli sínu illa innrætt, latt og duglaust? Ég saka þessa menn um að hafa afbakað frelsishugtakið og misskil- ið hvað felst í orðinu lýðræði. Raunverulegt lýðræði felst í jöfn- um, lagalegum, pólitískum og fé- lagslegum rétti allra þjóðfélags- þegna. Þeir undanskilja eina af höfuðforsendunum. Lýðræði þeirra er því plat. Frelsi getur aldrei grundvallast á öryggisleysi. Það er vængstýft frelsi. Við jafnaðarmenn afneitum því frumskógarlögmáli sem frjáls- hyggjumenn nánast tilbiðja. Við viljum virða hvert annað og bera í sameiningu ábyrgðina hvert á öðru. Á ég að gæta bróður míns? Nei, segja þeir, við segjum já. í því felst alvöru lýðræði og frelsi allra. Hefur þú kynnt þér stefnu Alþýðuflokksins varðandi almannatryggingar? í stefnuskrá flokksins fyrir kosn- ingarnar í vor segir m.a. í kaflanum um endurskoðun almannatrygg- inga: „Alþýðuflokkurinn vill að áfram sé haldið á þeirri braut að auka fé- lagslegt réttlæti og jöfnuð í þjóðfé- laginu með almannatryggingum, en þær eru skornar niður eins og ýmis önnur öfl hafa krafist. Einnig er ærin ástæða til að einfalda reglur trygginganna og stefna ber að því að samanlagður lífeyrir almanna- trygginga og lífeyrisjóðs allra lands- manna verði ekki lægri en lág- markslaun Alþýðusambandsfé- laga. Aukin áhersla verði lögð á hlutverk tryggingakerfisins í tekju- jöfnun í þjóðfélaginu. Framfærslulög verði endurskoð- uð og félagsleg aðstoð sveitarfélaga og almannatrygginga verði sam- ræmd. Fæðingarorlof verði lengt í áföngum og réttur heimavinnandi fólks til fæðingarorlofs, sjúkradag- peninga og lífeyris verði aukinn. Tannlækningar verði felldar und- ir tryggingakerfið í auknum mæli.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.