Alþýðublaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 19

Alþýðublaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 19
Þriðjöéagwr 14. aprfl 1987 19 ..Máffinnstalltof mikiðum það I pólitlk, aömenn séu að karpaum fortíðinaog togast áum hagsmuni llðandi stund- ar. — Það sem menn veröaað geral pólitíkinni erað leitaeftirsem vlðtækustu samstöðu, meöal þjóðarinnarallrar, um heildarstefnu I sem flestum rnálurn." Viðtal: Kristján Þorvaldsson. Varð ráðherra áður en Kjartan Jóhannsson er Hafnfirðingur, — Ha/narfjarðarkrati. „Eg er reyndar fœdd- ur í Reykjavík, en það var af tœknileg- um ástœðum, af því að það var engin fœðingardeild í Hafn- arfirði og ég svo hausstór, að það var talið nauðsynlegt að ég fœddist á fœðing- ardeild. “ Kjartan segir bernskuminningarnar bjartar: „Eg átti mér góða leikfélaga og sérstaklega góða for- eldra. Faðir minn og ég vorum mjög miklir félagar. Hann talaði snemma við mig eins og fullorðinn mann og bar fyrir mér mikla umhyggju. Ég held að af þeim ástœðum hafi ég til- tölulega snemma tek- ið út verulegan þroska. “ hann settist á þing Rœtt við Kjartan Jóhannsson um lífið og tilveruna, afskiptin af stjórnmálunum og hugmyndir um stöðu og framtíð sjávarútvegsins. Faðir Kjartans, Jóhann Þor- steinsson, er nú látinn. Móðir Kjartans er Astrid Þorsteinsson, hjúkrunarkona, frá Svíþjóð. Hún fluttist hingað til lands og giftist hér föður hans. Jóhann var úr Holtum í Rangárvallasýslu. Um tvítugt braust hann til mennta, fór fyrst i Flensborgarskólann og síðan í Kennaraskólann. Að því námi loknu settist hann að sem kennari í Hafnarfirði. Nakinn með brúði sína í fossinum Á þeim árum er Kjartan var að alast upp var til siðs að senda börn í sveit. „Ég held ég hafi verið 6 ára gamall þegar ég var sendur í fyrsta skipti til frændfólks míns í Rangár- vallasýslu.“ Þar var strákur síðan í nokkur sumur, en síðan eitt sumar hjá föðursystur sinni í Skaftafelli. Kjartan hreifst mjög að náttúru- fegurðinni í Skaftafelli, eins og svo margir sem þangað hafa komið: „Ég komst að því að það var foss með heitu vatni alveg undir upptök- um Skeiðarár innan við Bæjarstað- arskóg í jökulfellinu. Ég setti mér það, 12 eða 13 ára snáðinn að þang- að skyldi ég fara í brúðkaupsferð með brúði mína og við skyldum baða okkur í fossinum. Síðan leið og beið, ég gifti mig, og ekki efndi ég þetta heit. Þegar þeir tóku síðan upp á því að leggja hringveginn og brúa Skeiðará, þá hugsaði ég með mér: „Ekki er þetta nú gott; þeir verða búnir að eyði- leggja þetta allt saman áður en ég veit af.“ Ég tók mig því upp með konu mína. Við flugum á Florna- fjörð, tókum bílaleigubíl og tjöld- uðum í túninu á Skaftafelli. Við gengum síðan allar götur yfir Mos- árdal og inn að fossinum og böðuð-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.