Tíminn - 11.07.1967, Page 9

Tíminn - 11.07.1967, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. júlí 1967. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur t Eddu- liúsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastræti 7 Af. greiðslusímj 12323 Augiýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands — í j lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. ,,Umframtekjur af útsvörum“ í forystugrein í Morgunblaðinu í gær. er hækkun íhaldsins á útsvörum Reykvíkinga um allt að 30 millj. kr. frá löglega gerðri og gildandi fjárhagsáætlun fyrir þetta ár, kölluð „umframtekjur af útsvörum“. Þannig er viðhorfið til borgaranna. Borgaryfirvöld líta á borgar- ana eins og mjólkurkýr og telja sér heimilt að fá til ráðstöfunar ákveðinn hluta tekna þeirra, alveg án tillits til þess, hvað ákveðið hefur verið í fjárhagsáætlun. Ef í ljós kemur, að unnt er að kreista ofurlítið meira út úr borgurunum með sömu töngum og í fyrra, þá er það gert, og það er ekki kallað hækkun útsvaranna eða auka- álagning, heldur aðeins „umframtekjur af útsvörum“. Borgarstjórinn í Reykjavík reynir nú að réttlæta bakreikning sinn og innheimtu þessara „umframtekna af útsvörum“ með því að hann hafi sagt við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar í des. s.l. að hugsa yrði fyrir greiðslu á skuldum Bæjarútgerðarinnar síðar. Það er að vísu rétt, en það réttlætir á engan hátt bakreikning- inn á borgarana nú. Staðreynair málsins eru þær, að það var harðlega gagnrýnt af borgarfulltrúum minni- hlutaflokkanna, að fjárhagsáætlunin skyldi ekki vera raunhæf að því leyti, að þar vantaði framlag Bæjar- útgerðarinnar, og þeir fluttu tillögu um slíka leiðrétt- ingu. En borgarstjórinn þorði ekki að sýna Reykvíking- um þá hækkun útsvara, sem til þess þurfti — fyrir kosningar — og felldi þessa tillögu, neitaði að semja raunhæfa fjárhagsáætlun eða sýna hana. Hann greip til þess smámannlega ráðs að fela vænan skuldabagga fram yfir kosningar til þess að geta sýnt borgarbúum blekkingartöiu í útsvarsupphæð Eftir á kemur svo bakreikningurinn, veruleg ný hækkun útsvara, svo að útsvörin hækka yfir 20% svona til samræmis við „stöðvunarstefnuna", sem fer nú að bera nafn með rentu! Svona vinnubrögð eiga enga stoð í lögum, þótt við- gengizt hafi. Þetta er þverbrot á þeim anda sveitar- stjórnarlaganna, sem eiga með ákvæðum um bindandi gerð fjárhagsáætlunar að tryggja borgurunum siðmann- leg vinnubrögð við álagningu gjalda og veita þeim vörn gegn bakreikningum þeirra, sem leika sér að blekking- um í pólitískum tilgangi. Æskufólk í vínnuleit Það er hastarlegt til þess að vita, að á þessu vori og sumri hefur fjöldi myndarlegs æskufólks, flest á framhaldsskólaaldri, gengið um í atvinnuleit og hvergi fengið sumaratvinnu. Þetta er nú vandamál mjög margra heimila. Þegar þetta unga og duglega æskufólk reis upp af skólabekknum í vor og ætlaði að taka til starfa til þess að vinna fyrir sér og geta haldið áfram námi, voru því allar dyr lokaðar. Samdrátturinn í at- vinnulífiríti t.d. iðnaði, kemur fyrst niður á þessu unga fólki, og vinnuleysi þess yfir sumarmánuðina verður þungur baggi á mörgu heimili, par sem heimilisfaðirinn hefur sannarlega nægan vanda fyrir við að sjá fjöl- skyldu sinni farborða. Að tryggjá sæmilega sumarat- vinnu skó'Iafólks er mikilvæg skylda hins opinbera, en núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa dug til þess að sýna lit á því að ráða bót á þessum vanda. TÍMINN Skuldir borgarsjóðs Reykjavíkur hækkuðu um 60 millj. síðastl. ár Nokkur atriði úr skýrslu borgarstjóra við fyrri umræðu um borgarreikninginn s.l. ár. í skýrslu Geirs Hallgrímsson- ar, borgarstjóra með reikning- um R*eykj avíkurborgar fyrir árið 1966, en hann var til fyrri um ræðu í borgarstjórn s.l. fimmtu- dag, er að finna ýmsar upplýs- ingar' um bograrreksturinn og fjárhag borgarinnar. Rekstursgjöld borgarinnar urðu nær sléttar 700 millj. kr. á árinu 1966. en voru áætluð 664 millj. Hækkunin stafar m.a. af 4,63% meðallaunahækk- un á árinu, en verður nokkru meiri. þannig að reksturinn fer raunverulega töluvert fram úr áætlun. • Stjórn borgarinnar fór 1,7 millj. fram úr áætlun, og stafar það m.a af nokkurri fjölgun starfsmanna. Um fræðslumálin segir borgarstjóri svo í greinar- gerð sinni; „l'iárveiting til þessara mála var. að viðbótum meðtöldum, kr. 85,5 millj. Gjöldin urðu hins vegar kr. 93,7 millj. Munar þar 8,2 millj. kr. Verulegar umfram greiðslur urðu í viðhaldi barna og gagnfræðaskóla, en töluvert átak var gert á árinu yið lóðar- lögun eldri skóla. Þá fór kostn- aður við ræstingu skólalhúsa fram úr áætlun. Stöðugt er unn ið að þvi að koma á aukinni hagráeðingu við ræstingu skól- anna, en þó fer kostnaður árlega hækkandi, sem meðal annars stafar af því, að nýtt skólahús- nœði kemur til notkunar á hverju ári. Þá má og minna á, að fjárveiting til vinnuskóla hef ur verið allt of lág ,vegna mik- illai aðsóknar að þessum skóla, enda varð veruleg umfram- greiðsla á gjaldaliðum, eða um 1,5 millj. kr.“ Um félagsmálin, sem eru hæsti liður á hverjum bæjar- og borg arreikningi, sagði borgarstjóri: „Fjárveiting og viðbætur vegna þessa mikla gjaldabálks námu alls 212.3 millj. kr., en gjöldin reyndust samkvæmt reikningi 214 7 milb- kr. Umframgreiðslur urðu þannig 2,4 millj. kr. Nokkr ir gjaldaliðir fóru ekki í áætl- un. Má þar nefna útgjöld vegna styrkþega 60 ára og. eldri, er urðu 2,6 millj. kr. lægri en ráð var fyrir gert. Hins vegar varð veruleg hækkun á kostnaði vegna sjúkra manna og örkumla, enda fór sá gjaldaliður 3,4 millj. kr. tram úr áætlun. Framlag til Hafnarbúða fór nærri 1 millj. kr. fram úr áætlun, eða um 120%. Hér er þó ekki eingöngu um aukin rekstrarútgjöld að ræða, þar eð á árinu var lokið smíði kæiiklefa í húsinu, og nam sá kostnaður tæpum 400 þús. kr. Er hér í raun réttri um stofn- kostnaðargreiðslu að ræða. Þrátt fyrir þetta hafa þó rekstrarút- gjöld aukizt að mun. f því sam- bandi skal á það bent, að borgar :tjóin hefur gert nýtt samkomu- lag við forstöðumann Hafnar búða Samkv því tekur hann að sér rekstur hússins gegn um»am- inni greiðslu.“ Gatna- og holræsagerð er hæsti framkvæmdaliður í rekstri borg artunax. og hefur hlutfall hans í heildarrekstrarkostnaði borgar innar hækkað nokkuð hin síðari ár, og varð 24% árið 1966, og er það aðeins lægra en árið 1965. en bá munu þessar framkvæmd- ir hafa verið hlutfallslega mest- ar. Gatnamál borgarinnar hafa verið i langyarandi niðurlæg- ingu, og borgin hefur alls ekki haidið við í þeim efnum síðustu tuttugu árin, og er því þörf stór- átaKa Þótt reynt hafi verið að klóra í bakkann síðustu ár, vant- rr mjög á að nógu myndarlega sé að þessu unnið Um gatna- og holræsagerðina sagði borgar- stjóri: „Til þessara framkvæmda var á árinu varið 210,0 millj. kr. í borgarreikningi færast þeirri upp hæð til frádráttar hluti borgar- sjóðs af benzínskatti, kr. 14,0 mill;. ki og gatnagerðargjöld 47 5 millj. kr., en geymslufé til næsta árs, kr. 12,2 millj., bætist við, þannig að á reksrtarreikn- ingi er færðar til gjalda 160,7 millj. kr. Brúttókostnaður við nýbygg mgu gatna og holræsa, svo og ýmsar framkvæmdir, sem nýbygg inganni erú tengdar, nemur alls 169,6 millj. kr. Til næsta árs færast kr. 12,2 millj. af fjárveitingu ársins 1966. Þess skal getið, að heildar- mnborgun gatnagerðargjalda var 67.2 millj. kr. á árinu 1966. Af þeirri upphæð voru 8,8 millj. kr. innborgaðar eftirstöðvar frá fyrra ári og innifaldar í frá- draúti gjl. 08 á árinu 1965, en '0,9 millj. af gatnagerðargjöld- um gengu til kaupa á fasteign- um, sem i vegi gatnagerðarfram kvæmda voru, og færðust þannig 47,5 millj. kr. til frádráttar gjaldalið gatna -og holræsagerð- ar á árinu 1966." Um tekjur borgarsjóðs árið 1966 sagði borgarstjóri að þær hefðu verið áætlaðar 842 millj. ■n nefðu orðið 851 millj. kr. á reÍKningi og fóru því rúmlega 1% fram úr áætlun. En vegria þess að ýmsár rekstrarliðir fóru töluvert fram úr áætlun, varð yfirfærsla á eignabreytingar minni en áætlað var, eða ekki nema 150 millj. kr. í stað 178 milij kr áætlunar. Um eignabreytingar sagði oorgarstjóri: „í greinargerð borgarritara er samandregið yfirlit um eigna- breytingar borgarsjóðsins. Gefur það yfirsýn yfir framkvæmdir á árinu svo og lántökur, afborg- anir og breytingar viðskipta- mannareikninga. Eignabreytingagjöld eru 205,7 millj. kr„ eða 40,4 millj. hærri en fjárhagsáætlun. Lækkun á sjóðseign varð 4 millj. kr. Er meginástæða þess sú, að yfir- færsia af rekstrarreikningi varð 28,4 millj lægri en gert var ráð fyrii i fjárhagsáætlun. Aðrar úgnabreytingatekjur nægðu ekki 'il að vega á móti þeim mismun. Á árinu jókst hrein eign borg- arsjóðs og fyrirtækja hans um 328.2 millj. kr Á skrá urn b’^vt ingai á höfuðstólsreikningi. bls. 12 og 13 í borgarreikmngi svo og greinargerð þeirri, sem reikningnum fylgir er að finna ailítarlegar upplýsingar um það, hvernig eignaaukningin skiptist nuUi borgarsjóðsins og fyrir- oæki? hans. svo og milli ein- stakra eignaliða borgarsjóðsins. At eignaaukningum koma í hlut borgarsjóðsins sjálfs 184.9 millj. en eignaaukning fyrir- tækmnna var 143,3 millj 1 árslok 1966 voru skuldir borgarsjóðs 301,9 millj. kr. í stað 232.1 millj kr. í ársbyrjun Er aukringin 69,8 millj kr Hin.-. vegai kemur á móti þessari skuldaaukningu lækkun geymdra fjárveitinga um 10,5 millj. kr. bannig, að skuldaraukning á ár- inu er raunverulega 59.3 millj. krótia Afborgunarlán hækka um 27.9 millj. Vega þar mest lán vegna fasieignakaupa og erlend lántaka vegna byggingar Borgarsjúkra- ússins. Launaskuldir lækka "m 6,5 millj Skuldir við stof~ borjarinnar hækka um 21.3 millj kr.. þannig að inneign Vélamiðstöðvar hækkar um 1.3 miLj. kr.. inneign Ráðhúss-s'jóðs eykst um 13,7 millj. og inneign Stöðumælasjóðs eykst um 0,2 milij. f árslok myndaðist inn- eign Byggingarsjóðs kr. 7,7 millj. Húsatryggingar- og Lífeyrissjóð ur, sem áður áttu inneign í borg arsjóði, komast nú í skuld við hann Skuldar Lífeyrissjóður borgarsjóði nú 0,1 miUj. og Húsa tryggingar skulda 4,9 millj. A móti skuldum við ýmsar stofnanir borgarinnar samtak kr. 47,075 millj. kr. á borgarsjóð ur inni hjá öðrum stofnunum borgarinr.ar kr. 102,159 millj. kr. •>g hafa þær inneignir aukizt á árinu um 9,5 millj kr.“ Af lokum sagði borgarstjóri: „I árslok 1966 nam skuld ríkis sjóðs við borgarsjóð 71,4 millj. kr. ng hafði aukizt um 35,4 milj. ' r. 6 árinu. Stafar hækkunin að langmestu leyti af byggingar- kostnaði Borgarsjúkrahússins, og er skuldaraukningin vegna smiði þess kr. 32,5 millj á árinu. Á s.l. ári var varið til smíði sjúkra hússins samtals kr 81,4 millj. !cr. Af þeirri upphæð fóru 13.8 milli til kaupa á lausabúnaði og áhöldum, en þann kostnað ber borgarsjóðui einn. Stofn- sostnaðui húss. að meðtöldum þeim tækjum, sem eru múr- og naglföst, nam 67,6 millj. kr.. en þar af ber ríkissjóði lögum sam- kvæmt að leggja fram 60%. eða kr 40,5 millj. Framlag í fjár- lögum ti! Borgarsjúkrahússins var hið sama og á árinu 1965. eða samtals 8 millj kr. Eins og borgarstjórninni er kunnugt um útvegaði ríkisstjórnin borgarsjóði ánnu 1966 lán, að fjárihæð 30 millj kr. í Seðlabanka íslands. Láti þetla greiðir ríkissjóður á fjórum árum með fjárlagafram- lagi til sjúkrahússins. Að undan förnu hafa staðið yfir samning- ir milli borgarsjóðs og heilbrigð isstiórnarinnai um frekari lán, sem ríkissjóðui tæki að sér að greiða. með svipuðu móti og lántökuna á árinu 1966. — Hefio þegar náðst sá árang- ur að loforð er fengið fyrir 20 millj. kr. láni vegna bygg- inga eitthvað út í loftið Hafa heilbrigðismálaráðuneytið og fjármálaráðuneytið gefið ákveð ið fyrirheit um að taka að sér að greiða lánið, og munu þese: ráðuneyti beita sér fyrir því, að framlög í fjárlögum verði því hækkuð verulega. Tafnframt standa vonir til þess, að við- bótarlán, að fjárhæð 10 millj. kr. muni fást fyrir atbeina ríkis FYamhald a bls 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.