Tíminn - 26.07.1967, Síða 3
3
M H)VI KUI>A<ytTR 26. jöí 1967.
TIMINN
í SPEGU TÍMAIMS
Brasilíslcur blaðamaður,
Helio Fernandes, hefur verið
dæmdur til fangelsisvistar á
fangaeyju fyrir að hafa skrif
að, að heimurinn hafi ekki
misst mikið við lát Castellos
Brango fyrverandi forseta
Brasilíu, sem lézt sem kunm-
uigt er fyrir skömmu í flug-
slysi. Blaðamaðurinn hefur
áður verið sviptur kosninga-
rétti sínum í tíu ár vegna
stjórnmálaafskipta sinna.
★
Natalia Wood hefur krafizt
óhemjukaups fyrir næstu kvik
mynd, sem hún leikur í og
gefur hún eftirfarandi skýr-
ingu á kröfu sinni: Við hverju
búizt þér eiginlega af einni
vesalings konu, sem verður að
sjlá fyrir tólf ómögulegum og
vesælum umboðsmönnum og
blaðafulltrúum að sjá.
*
Sophia Loren útskýrði eitt
sinn fyrir blaðamönnum hvern
ig hægast væri að komast yfir
miklar umferðargötur í stór
bongum: Á Ítalíu verður mað
ur að leiða lítið barn sér við
hönd, í Frakklandi að leiða
töfrandi konu, í Englandi að
hafa hund í bandi og í Þýzka
landi að vera í einkennisbún
ingi.
★
Shirley Temple, sem flestir
kvikmyndahúsagestir um og
eftir 1940 dáðu og dýrkuðu,
sérstaklega hinir yngri, hefur
nýlega tilkynnt það, að hún sé
nokkurn veginn ákveðin í
því að bjóða sig fram til al-
þingiskosninga í Bandaríkjun-
um. Shirley heitir nú ekki
lengur Temple heldur Blaek
og er 39 ára gömul. Hún er
republikani og hefur oft tekið
þátt í ýmsu stjórnmálastarfi i
San Francisco og hefur áður
verið talað um að hún hyggð-
ist fara í framboð.
*
Eins og frá hefur verið skýrt
í fréttum áttu þeir Johnson og
Kosyigin fund saman í Glass-
boro. Eftir fundinn ákváðu
nokkrir íbúar GÍassboro að
★
safna sér fé til þess að geta
farið, í heimsókn til Sovétríkj
anna. Hér sjáum við 17 íbúa,
sem komnir eru til Moskvu og
þeir ætla að dveljast í Sovét-
ríkjunum í þrjár vikur. Þeir
hafa meðal annars meðferðis
gjöf handa Kosygin.
★
Bandaríski kvikmyndaleikar-
inn, Basil Rathbone lézt síð-
ustu viku sjötíu og fimm ára
að aldri. Hann var sérstaklega
þekktur fyrir leik sinn í ýms
um skúrkahlutverkum, en
þekktastur var hann þó í hlut
verki leynilögreglumannsins
fræga, Sherlocks Holmes.
Rathbone fæddist í Suður
Afríku og kom til New York
1922 til þess að leika í leikrit
um S'hakespears. Árið 1925
hóf hann svo kvikmyndaleik
og og lék síðan óslitið í kvik
myndum bæði í Englandi og
Bandaríkjunum.
•k j
Danska leikkonan Anna Kar
ina, sem nú er algjörlega talin
frönsk á nú að fara að leika
aðalhlutverkið í franskri giæpa
mynd sem nefnist Six crimes
sans assasin. (Sex glæpir án
morðingja). Leikstjóri kvik-
myndarinnar er óþekktur og
heitir Jacques Guymont.
★
Lady Orr-Lewis, sem er eig
inkona kanadiska milljónamær
ingsins Duncan Orr-Lewis er
ekki sérlega hrifin af lífinu á
frönsku rívíerunni. Segir hún
að það sé eins og að vera í
litlu þorpi þar sem íbúarnir
gera ekki annað en að kjafta
hver um annan og þegar mað
ur hóstar að kveldi í Cannes
er sagt frá því í Cannes næsta
dag.
*
Að sögn John Lennons ætla
The Beatles að leika saman í
kvikmynd síðar á þessu ári.
Segjast þeir ekki ætla að leika
eftir handriti né heldur hafa
leikstjóra. — Við ætlum að
leika okkur sjálfa — ekki sem
hópur heldur sem einstakling
ar — og kvikmyndin verður
bara til af sjálfu sér eins og
þegar við erum að syngja irin
á grammófónplötu, saði Lenn-
on.
★
Það hefur mörgum reynzt
erfitt að þola hitann, sem ver
ið hefur í Parísarborg undan
farið. — Hér sjáum við lítinn
dreng, sem ekki stenzt freist
inguna að reyna að ná sér í
smá vatnsdreitil og sjálfsagt
hafa margir öfundað hann af
því hversu fáklæddur ham
var.
Iliil
'AVSwíX'X'XíwX
Á VÍÐAVANGI
Náttúruspjöll
Undanfarna daga hafa blöðin
flutt af því fregnir, að ýmis
náttúruspjöll hafi verið unnin.
Okuþórar knýja jeppa sínaotip
á r'jöll og hóla og skemma gróð
ur og stofna til uppblásturs-
hættu. Heilum mosatorfum,
lnnni fíngerðu, ægifögru en
viðkvæmu strautábreiðu ís-
lenzkra hrauna er svipt af, svo
að svöðusár blasa við. Ótal
margt annað blasir hvarvetna
við, eyðilegging, skemmdir,
hirðuleysi og hreint og beint
siðleysi í umgengni við náttúr-
una. Ruslið, sem fólk fleygir
frá sér þar sem það stendur,
fyllir lautir og gjár, á tjald-
stæðum í viðkvæmum birki-
Iundum eru svört sár eftir
elda, og ýmsir landráðendur
iifa í sífelldum ótta við land-
bruna. Margir ferðamenn tjalda
hvar sem þeim býður við að
horfa og biðja einskis leyfis.
Siík Ieyfi eru þó oftast góðfús-
lega veitt, ef um er beðið, en
þá ben á heppilega staði og
reynt að binda tjaldstæðin við
ákveðin svæði, svo að ekki sé
allt undir lagt.
Fyrir nokkrum dögum varð
mikill mosabruni í Reykjanes-
nrauni. vafalítið af ógætni
þeirra, er leiðir áttu þar um.
Svona mætti lengi telja það,
sem miður fer í sambúð fólks-
ins við land sitt.
Sök hins opinbera
En cinstaklingarnir eru ekki
einir sekir um náttúruspjöllin.
Hið opinbera, ,sem svo er kall-
að, á þar einnig sinn hlnt og
ekki ósmáan. Alkunn' er löng
og gömul saga um vegasárin,
sem vegagerð ríkfsins hefur lítt
hugsað um á Iiðnúm árum og
valdið hafa uppblæstri víða,
eins og illa hirt sár, sem ígerð
hleypur í. Nú eru komin laga-
ákvæði um græðslu vegasára
og sérstök tæki til þess flutt
til landsins. En litlar athafnir
sjást enn. Er þess nú að vænta,
_að hafizt verði handa.
Allir vita, hvernig opinberir
aðilar fóru með Rauðhólana
við Reykjavík. Víða um land
hafa gerzt svipaðar sögur í
minni mæli. Nú sem stendur
er togstreita um það hvernig
leggja skuli veg við Mývatn og
talin þar hætta á náttúruspjöll
um, ef þa” verður haldið sem
horfir.
Þegar síðasta Sogsvirkjun
var gcrð var mývargur harð-
leikinn við starfsmenn, og var
þá gripið til þess ráðs að eyða
mýinu með kynstrum af skor-
dýiaeitri. Það hreif, en mýið
hefur ekki náð sér aftur á þessu
svæði ,og þar með hvarf mjö?
silungsgegnd á þessum slóðum.
Þannig var náttúruaðfctæðum
breytt með vafasömum hætti.
Öflugt viðnám
Vugljóst er,' að hinni sérkenni
legu en viðkvæmu náttúru
landsins stafar æ meiri hætta af
vaxandi umferð fólks og marg-
vislegri nýrri ferðatækni og
stórvirkum vélum, svo og vega-
iögnum og fleiru. Engar viðhlít
andi náttúruverndarreglur eru
i 'ögum, og reglum ekki nóg-
samlega fram fylgt hvað þá
að náttúruspjallamenn sæti viö
urlögum svo að nokkru nemi.
Náttúruverndarráð hefur engin
skilyrði til þess að rísa undir
nafni. Hér verður að vinda bráð
Framnald á hls 15