Tíminn - 26.07.1967, Page 7
MffiVHOJÐAGUR 26. juh' 1967.
Forseti íslands, hr. Ásgeir As-
geirsson, hefur að undanförnu
verið á ferðalagi í Vesturheimi.
Fyrst fór forsetinn til Kanada.
þar sem hann m.a. fór á heim-
sýninguna í Montreal. Að
Kanadaheimsókninni lokinni fór
forsetinn í opinbera heimsókn
til Bandaríkjanna og hitti
Johnson forseta í Hvíta hiísinu.
Myndin hér neðst á síðunni m
er frá þeirri athöfn. Þá lagði A
forsetinn einnig blómsveig á 1
gröf óþekkta hermannsins í 1
Ailington-kirkjugarði. 1
Að heimsókn forsetans lok- |
inni í Washington hélt hann 3
til New York, þar sem hann 1
sat boð Lindseys borgarstjóra |
New York borgar, heimsótti \
Sameinuðu þjóðirnar, hitti að j
máli U Thant framkvæmda-
stjóra þeirra, og skoðaði aðal-
b.ckistöðvarnar í New York.
— Myndin á miðri síðunni er
tekin þegar forsetinn hefur
fengið sér sæti við borð íslands j
í Allsherjarþinginu, en hjá
.íonum sitja Emil Jónsson utan j
ríkisráðherra og Hannes Kjart-
ansson ambassador íslands.
Forsetinn heimsótti The ”
American Scandinavian Founda
tion og afhenti þar 50.000 doll-
ara í Thor Thors sjóðinn svo-
nefnda, frá íslandi, en sjóðnum
er ætlað að styrkja íslenzka
namsmenn í Bandaríkjunum.
Að heimsókn forsetans í Banda
-íkjunum lokinni fer hann aftur
til Kanada, þar sem hann verð
ur viðstaddur hátíðahöld fslend
inga, en að því loknu heldur
hann áleiðis heim til íslands
aftur, og verður kominn hingað
upp úr fyrstu vikunni í ágúst.
— Myndin hér lengst til vinstri
er af því, þegar Johnson býður
forseta íslands velkominn til
Ilvíta hússins, en þar sat for-
setinn hádegisverðarboð, sem
haldið var honum til heiðurs.
Fyrsta daginn í Washington
fór Ásgeir Ásgeirsson að gröf
Kennedys fyrrum forscta
Bandaríkjanna, í Arlington-
kirkjugarðinum í Virginia. —