Tíminn - 26.07.1967, Side 13
MWVIKUÐAG 1>R 26. júlí 1967
TÍMINN
13
1. deiídar keppnin í knattspyrnu á lokastigi:
Rmm af sex liðum
hafa ennþá möguleika
r
Fyrirsögnin hljómar ótrú-
lega, en enjiþá hafa þó fimm af
KR hlaut
flest stig
í Meistara-
móti Rvíkur
Grindahlaup kvenna sem átti
eftir að fara fram í Meistara-
móti Reykjavíbur 14. júlí
fór fram á Melavellinum föstu-
daginn 21. júlí og varð Halldóra
Helgadóttir ER Reykjaivíkur-
meistari. Hijóp hún á 13,5 sek.
Önnur varð Berglþóra Jónsd. ÍR
á 13.7 sek. og þriðja Guðný Ei-
ríksdóttir, ER á 16,1 sek.
Endanleg úrslit urðu því þau,
að í stigakeppninni milli félag-
anna hlaut ER flest stig, 301, ÍR
283 og Ármann 39 stig.
ÍR hlatit flesta Reykjavikur-
meistara eða 17 alls ER hlaut 14
og Árrnann 1 meistara.
sex liðurn 1. deildar mönleika á
sigri í mótinu, en auðvitað mis-
jafnlega mikla. Aðeins Skagamenn
eru ekki lengur með í kapphlaup-
inu. Þeir hafa barizt hetjulegri bar
áttu fyrir lífi sínu í deildinni, en
það syrti í álinn eftir tapið fyrir
íslandsmeisturum Vals á sunnu-
daginn. Sá leikur var jafnari
en gefið var til kynna á íþrótta
síðunni í gær. Skagamemi eiga eft
ir að leika gegn Keflavík og
Fram og mega ekki tapa stigi,
— og ennfremur má næst neðsta
liðið, KR, ekki hljóta stig til við-
bótar, ef Akranes á að halda sæti
sínu. Sem sé, mjög veikar (vonir
Skagamanna.
En snúum okkur að efsta sæt-
inu. Valsmenn standa bezt að
vígi, en þeir eiga þó erfiða leiki
eftir, ekki einn, heldur tvo. Leik
ur þeirra við Akureyringa verður
mikill baráttuleikur, en ekki má
lieldur gleyma Keflvíkingum. Eins
og Kcflvíkingar léku gegn KR á
sunnudaginn, verður erfitt að
sigra þá. Sá möguleiki er fyrir
hendi, að- Valur liljóti ekki stig
til viðbótar við þau 12, sem
liðið hefur þegar hlotið, en
persónulega hef ég þó þá trú, að
Valur eigi eftir að hljóta fleiri
stig.
Fram og Akureyri hafa
iTramhald á bls. 15.
Engir ný-
ir milli-
ríkja-
dómar
Alf — Refkjavík. — KSÍ
hefur heimild til að gera til-
lögu um samtals 7 íslenzka
knattspyrnudómara sem milli
ríkjadómara. í gær rann út
frestur til að skila alþjóða
knattspyrnusambandinu til
lögum um milliríkjadómara og
verður skrájn yfir íslenzku
dómarana óbreytt næsta ár,
þ.e. Hannes Þ. Sigurðsson og
Framhald á bls. 15.
Frá úrslitunum í 100 metra hlaupi kveona. Sigurvegarinn, Kristín Jónsdóttirj Kópavpgi,. sést önnur til vinstri.
“ K' í-ýij v <■; .£■-•?! \t 5 I j (Tímamynd Gunnar)
Meistaramót íslands í frjálsíþróttum hafið:
KR vann 7 meistarastig
fyrsta keppniskvöldið
Meistaramót íslands í frjáls-
íþróttum hófst á Laugardalsvell-
inum í fyrrakvöld. Þátttaka var
*njög góð og voru skráðir kepp
endur á annað hundrað. Einhver
forföll munu þó hafa orðið.
Keppnin fyrsta kvöldið var
skemmtileg í nokkrum grein-
um. KR vann flest meistarastig,
eða 7 talsins, þar af unnu þeir
Valbjörn Þorláksson og Halldór
Guðbjörnsson 2 hvor, Valbjörn
í 200 metra hlaupi (22,4 sek.) og
spjótkasti (56.27 m) og Halldór
í 400 mcíra grindahlaupi (56,1
sek) og 5000 m lilaupi 16.07,7 mín.
Aðrir íslandsmeistarar KR
urðu þeir Guðmundur Her-
mannsson, sem sigraði í kúlu-
var.pinu, eins og sagt var frá í
blaðimi í gær, en hann varpaði
17,69 metra — og Þorsteinn Þoi
steinsson, sem sgiraði í 800 metra
hlaupi á 1-55,3 mínútum. Þá
j sigraðj KR-sveitin í 4x100 metra
‘ boðtolaupi á 44,4 sok.
ÍR hiaut aðeins eina meistaira-
tign fyrsía kvöldið. Jón Þ. Ólafs-
j son varð sigurvegari í hástökkinu
og stökk aðeins 1,85 metra. Jón
í dag höldum viS áfram me3 spurningarnar:
1. Leikmenn eru a3 berjast um knöttinn úti á miðjum vellinum,
þegar dómarinn sér, a3 markvörðurinn í öðru liðinu hleypur út úr
markinu og bregður sóknarmanni inni í vítateig. Knötturinn var
um 40 metra frá þeim stað, þar sem brotið átti sér stað. Hvað á
dómarinn að dæma?
a) Vítaspyrnu?
b) Óbeina spyrnu á markvörðinn, þar sem knötturinn var ekki
í markfæri?
e) Beina spyrnu, þar sem knötturinn var, er dómarinn stöðvaði
leikinn?
d) Gefa markverðinum áminningu og láta framkvæma dómara-
kast, þar sem knötturinn var, er dómarinn stöðvaði leikinn?
2. Oft heyrum við, að menn eru að tala um það á vellinum, að
þessi og þessi knattspyrnumaður hafi farið of hátt með fótinn.
Nú er spurningin, hvað má fara hátt með fótinn, svo löglegt sé?
(Svör við spurningunum birtast á morgun).
Alf — Reykjavík. — Baráttan
í b-riðii 2., deildar, stendur nú
eingöngu niilli Vestmannaey-
inga og Víkinga. Vestmannaeying
ar sigrúðu ísfirðinga í leik, sem
fram fór í Eyjum sl, sunnudag,
3-0, og í fyrrakvöld sigruðu Vík-
ingar Hauka í Hafnarfirði, 4-2.
Með þessum úrslitum hafa bæði
Vestmannaeyingar og Víking-
ar hlotið 7 stig, en Eyjamenn
standa betur að vígi að því leyti,
að þeir eiga tvo leiki eftir, en
Vikingur einíi. Tákist Vestmanna-
virðist ekki „dús“ við stökkbraut
ina í Laugardal, enda er hún ekki
upp á marga fiska, að sögn kunn
áttumanna. í langstökki varð ís-
landsmeistari Gestur Þorsteins-
son, UMSS, stökk 6,82 metra.
Ung stúlka úr Kópavogi, Krist
ín Jónsdóttir, sigraði í 100 metra
hlaupinu á 13,4 sek. en í undan-
rásum hafði hún hlaupið á 13,0
sek. Sigrún Sæmundsdóttir HSÞ.
varð Isiandsmeistari í hástökki
kvenna, stökk 1,45 metra, sem
er meistaramótsmet. í kúluvarpi
kvenna varð Emilía Baldursdóttir
UMSE, íslandsmeistari, varpaði
9,75 meíra.
Mótinu verður haldið áfram í
kvöld o<g lýkur þá.
Baráttan á milli Vest
mannaeyinga og Víkinga
eyingum að sigra Víking í leik
liðanna, sem fram fer um mán-
aðamótin, eru Vestmannaeying-
ar sigurvegarar í riðlinum, en
tapi þeir hins vegar, geta þeiir náð
Víkin@um með því að sigra Hauka.
Yrðu liðin þá bæði með 9 stig,
og yrðu að leika aukaleik.
Eins og fyrr segir, eru Vest-
mannaevingar og Víkingar með 7
stig. Haukar eru í 3. sæti, með 4
stig og Ísfiíðingar reka lestipa,
eru með 2 stig, en þeir unnu
Ilauka 2-0, nýlega.
Hvern
varðar
um bað?
Þeir komu frá Selfossi í
fyrrakvöld, 14 piltar í 5. ald
ursflokki til að taka þátt í
knattspyrnuleik í lands-
mótinu gegn Gróttu. Leik-
urinn átti að fara fram á
Háskólavelli og hefjast
klukkan 7.30 e.h. Þeir voru
broshýrir og eftirvænting
arfullir, enda ævintýri að fá
að koma til höfuðborg
arinnar til þess að taka þátt
í knattspyrnuleik.
Þeir lögðu leið sína í
búningsklefana og voru til
búnjr að taka þátt í leikn
um á tilsettum tíma. En
leikurinn hófst ekki á rétt-
um tíma. Það vantaði dóm
ara. Það var beðið í sniá-
stund í von um að dóm-
aranum hefði seinkað. En
ekki bólaði á neinum. Geng
ust þá forystumenn liðanna
í það að reyna að útvega
dómara og sneru sér til
framkvæmdastjóra Dóm-
arafélags Reykjavíkur,
Gunnars Gunnarssonar,
sem jafnan hefur bjargað
málunum og útvegað dóm-
ara, þegar svona stendur
á. En svar Gunnars var:
„Okkur varðar ekkert um
þetta.“ Átti liann þar sjálf-
sagt við, að Knattspyrnu
dómarafélagi Reykjavíkur
kæmi málið ekki við.
Nú voru góð ráð dýr.
Hringt var í allar áttir til
að reyna að útvega dóm-
ara, því að fararstjóri Sel-
fossliðsins vildi ógjarnan,
að piltarnir færu fýluferð,
sérstaklega, þar sem það
hafði skeð áður í þessu
sama móti, en þá komu þeir
til Reykjavíkur og áttu að
keppa við Þrótt. Þeir biðu
þá í heila klukkustund, en
var loks tilkynnt, að Þrótt
ur hefðj dregið sig út úr
mótinu. Engum hafði dott-
ið í hug að hringja til Sel-
foss, áður en piltarn-
ir lögðu af stað, til að til-
kynna um þetta!
En víkjum sögunni aftur
að því, sem gerðist í fyrra
kvöld. Eftir langa bið, tókst
loks að ná til dómara, sem
vildi dæma, en þá voru liðn
ar tvær heilar klukkustund
ir frá því að leikurinn átti
upphaflega að hefjast.
Hófst leikurinn klukkan
9,30 og var lokið um 10,30.
Þá áttu piltarnir eftir að
skipta um föt, en jögðu að
því búnu af stað heim til
Selfoss og hafa komið þang
að um miðnætti.
Út af þessu máli, langar
undirritaðan að spyrja:
Fyrst KnattspjTnudóm-
arafélag Reykjavíkur varð-
ar ekki um það, að dómari
mætir ekki á leik í Reykja-
vík, hvern varðar þá um
það? Hver ber ábyrgð á því
að utanbæjarpiltum er
stefnt um langa Ieið til
einskis, en svo hefði verið,
hefði ekki komið til þraut-
seigja þeirra manna, er
stóðu að liðunum og ann-
arra viðstaddra, við að út-
vega dómara.
— alf.