Alþýðublaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. júlí 1987 3 Sögulegar sættir? Það hefur lengi verið grunnt á því góðamilli tveggjaaf stjórnarflokkunum. Nú vinna Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur saman I ríkisstjórn. MÁLEFNASAMNINGUR RÍKISSTJÓRNARINNAR Ný ríkisstjórn undir forsæti Þorsteins Pálssonar sest að völd- um í stjórnarráðinu í dag. Alþýðublaðið birtir málefnasamning stjórnarinnar í heild. I. STEFNUYFIRLÝSIN G Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðu- flokkur hafa náð samkomulagi um myndun nýrrar rík- isstjórnar. Helstu verkefni ríkisstjórnarinnar verða að stuðla að jafnvægi, stöðugleika og nýsköpun í efna- hags- og atvinnulífi, bæta lifskjör og draga úr verð- bólgu. Markmið stjórnarsamstarfsins er að auka einstakl- ingsfrelsi og jafnrétti, vinna að valddreifingu og félags- legum umbótum og treysta afkomuöryggi allra lands- manna. Ríkisstjórnin mun standa vörð um efnahags- legt, stjórnarfarslegt og menningarlegt sjálfstæði þjóð- arinnar. Undirstaða hagsældar er jafnvægi í efnahagsmálum og öflugt atvinnulíf. Ríkisstjórnin leggur áherslu á stöðugt verðlag og atvinnuöryggi. Hún mun nú þegar grípa til ráðstafana til þess að draga úr þenslu í þjóðar- búskapnum og sporna við verðbólgu. Meginatriði í stefnu ríkisstjórnarinnar og þingmeiri- hluta hennar eru: • Gengi krónunnar verði haldið stöðugu, stefnt að hallalausum viðskiptum við útlönd og lækkun er- lendra skulda í hlutfalli við þjóðarframleiðslu. • Jafnvægi í rikisfjármálum verði náð á næstu þremur árum. Tekjuöflun ríkisins verði gerð einfaldari, rétt- látari og skilvirkari. Útgjöld ríkisins verði endur- skoðuð þannig að gætt verði fyllsta aðhalds og sparnaðar og þau vaxi ekki örar en þjóðarfram- leiðsla. Skatttekjur nýtist sem best í þágu almenn- ings. • Eftirlit með framkvæmd skattalaga verði bætt. Ein- földun við öflun ríkistekna mun sjálfkrafa draga úr möguleikum til skattsvika og stuðla að sanngjarnari greiðslum einstaklinga og fyrirtækja til sameigin- legra þarfa. • Stuðlað að eðlilegri byggðaþróun i landinu og varð- veislu auðlinda lands og sjávar og skynsamlegri hag- nýtingu þeirra. Fylgt verði byggðastefnu, sem byggist á atvinnuuppbyggingu, átaki í samgöngumálum, efl- ingu þjónustukjarna og bættri fjármagnsþjónustu heima í héraði. • Fylgt verður sjálfstæðri utanríkisstefnu sem tryggir öryggi landsins og fullveldi þjóðarinnar. Stefnan mótast af þátttöku íslands í norrænni samvinnu, starfi Sameinuðu þjóðanna og varnarsamstarfi vest- rænna ríkja. • í samvinnu við aðila á vinnumarkaði verður unnið að því að auka framleiðni þannig að unnt sé að stytta vinnutíma og bæta kjör hinna tekjulægstu. • Kjör kvenna og aðstaða barna verði bætt og áhrif kvenna í þjóðlífinu aukin. • Komið verður á samræmdu lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Undirstöður samfélags mannúðar og menningar verða treystar, stuðlað verður að jafnari skiptingu lífskjara og bættri aðstöðu aldraðra og fatlaðra. • Fjárhagsgrundvöllur húsnæðiskerfisins verði treyst- ur þannig að sem flestir geti eignast húsnæði. Val- frelsi verði aukið í húsnæðismálum. • Gerðar verða breytingar á stjórnkerfi hins opinbera til að gera það virkara. • Lagður verður traustur grunnur að samfélagi fram- tíðarinnar með þvi að efla íslenska menningu, menntun, rannsóknir og vísindi. II. STARFSÁÆTLUN Ríkisstjórnin hefur sett sér starfsáœtl- un fyrir kjörtímabilið sem hér segir: 1. Efnahagsstefna: Helstu markmið. MARKMIÐ efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar eru að örva hagvöxt og framfarir í atvinnulífinu á grundvelli aukinnar framleiðni og nýsköpunar, að bæta lífskjör, tryggja jafnvægi í viðskiptum við útlönd, sem stöðug- ast verðlag og fulla atvinnu. Þessum markmiðum hyggst ríkisstjórnin fyrst og fremst ná með því að móta meginreglur um efnahagsleg samskipti og umgjörð atvinnu- og efnahagslífs, sem tryggi eðlilega samkeppni og samkeppnishæfni ís- lenskra atvinnuvega. Afskipti ríkisins af einstökum at- vinnugreinum og fyrirtækjum verði sem minnst. Með almennum aðgerðum verði skapaðar aðstæður fyrir tækniþróun, aukinn útflutning og fjölbreytni i at- vinnulífinu. Ríkisstjórnin mun beita hagstjórnartækjum með samræmdum hætti. Fjárlögum, lánsfjáráætlun, pen- inga- og gengismálum verður markvisst beitt til þess að draga úr sveiflum og treysta jafnvægi í þjóðarbúskapn- um. Stjórn peningamála mun miða að jákvæðum, en hóflegum raunvöxtum. Lánastofnanir munu njóta frjálsræðis en verður veitt aðhald frá ríki og Seðla- banka innan ramma gildandi laga. Ríkisstjórnin mun stuðla að jafnvægi á lánamarkaði og lækkun vaxta. Gengisákvarðanir munu miðast við að veita aðhald að verðlagsþróun innanlands og tryggja jafnvægi í ut- anríkisviðskiptum. Dregið verði úr erlendum lántökum hins opinbera. Meginþættir i efnahagsstefnunni á næsíu árum eru: • Að verðbólgu verði náð niður á svipað stig og í helstu viðskipta- og samkeppnislöndum. • Að halla á ríkissjóði verði eytt á næstu þremur árum. • Að jafnvægi verði náð í viðskiptum við útlönd. • Að erlendar skuldir sem hlutfall af þjóðartekjum x lækki. • Að innlendur sparnaður aukist. Ríkisstjórnin mun stuðla að því að launaákvarðanir í þjóðfélaginu samræmist þessum markmiðum, jafn- framt því sem kaupmáttur lægstu launa verði aukinn. Ríkisstjórnin stefnir að uppbyggingu öflugs atvinnu- lífs og menntakerfis, sem tryggi hagvöxt til framtiðar og treysti undirstöður velferoar þjóðarinnar. 2. Atvinnustefna: Efling atvinnuvega — nýsköpun atvinnulífs. MARKMIÐ ATVINNUSTEFNUNNAR er aö ia at- vinnulífinu sem best vaxtarskilyrði. Allar atvin ;rein- ar njóti sem jafnastra starfsskiiyrða. Hlutverk Gsins er fyrst og fremst að tryggja stöðug almenn skilyrði fyr- ir atvinnulífið hvað varðar gengi, skatta og lánakjör. Ríkisafskipti og ríkisrekstur á atvinnufyrirtækjum verði sem minnstur. Opinber afskipti af verðlagningu verði sem minnst, en stuðlað að aukinni samkeppni og verðgæsla efld, þar sem samkeppni er ófullnægjandi. Löggjöf gegn hringamyndun, samkeppnishömlum og óeðlilegum

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.