Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 26. september 1987 Á sjávarútvegssýningunni í Laugardals- höll voru kynntar nokkrar nýjungar í vélum fyrir fiskvinnsluna. Þessar vélar munu innan tíöar gera mörg hefðbundin störf í fiskvinnslunni óþörf. Þegar eru komnar vélar á markaðinn, sem geta leyst mannekluvandann víða um land. Á sjávarútvegssýning- unni í Laugardal komu fram margar nýjungar sem í næstu framtíð eiga eftir að valda byltingu í fisk- vinnslunni hér á landi. Áhugi fyrir þessari sýningu var líka sérlega mikill og fagmenn í greininni telja hana einstaklega vel heppnaða og boða miklar tœkniframfar- ir í undirstöðugrein- inni. Manneklan Það er kannski ekki að ástæðu- lausu, sem forsvarsmenn fisk- vinnslufyrirtækja sýna vélum og tækjum svo mikinn áhuga nú, þeg- ar gífurleg mannekla er hjá fisk- vinnslunni víða um land. Sjávarút- vegssýningin færir mönnum í raun heim sanninn um það, að ástæðu- laust er að óttast mannekluna i næstu framtíð því nú virðist alvar- lega verið komið að spurningunni um hvort vélarnar ryðji fólkinu út. Alþýðublaðið leitaði til nokk- urra fagmanna i fiskvinnslunni og bað þá að nefna þær nýjungar á sýningunni sem þeir teldu mestum sköpum eiga eftir að skipta fyrir ís- lendinga á næstu árum. Allir þeir sem Alþýðublaðið leitaði til nefndu sérstaklega nýja vél frá BAADER, sem að þeirra mati boðar á raun- hæfan hátt mjög aukna sjálfvirkni í frystihúsunum. Um er að ræða nýja og bætta flökunarvél sem BAADER kallar 184. Verkstjóri í stóru frystihúsi sem Alþýðublaðið talaði við sagði að þessi vélasamstæða væri sú fyrsta sem gæfi mönnum raunhæf- ar vonir um að fljótlega verði hægt að stinga fiskinum inn í hausara á öðrum enda og fá hann út pakkað- an á hinum. Eins og samstæðan er í dag gerir hún strax nokkur hefð- bundin störf óþörf, og gæti jafnvel þar sem manneklan er mest komið í veg fyrir slík vandamál. Beinagarðarnir vélskornir BAADER 184 er flökunarvél, sem tengd er við hausara, en vélin er þeim eiginleikum gerð að hún er með sérstakan skurðarhníf sem sker burt beinagarðana og þunn- ildi, auk þess að roðfletta. Við vél- ina verður síðan hægt að tengja nið- urskurðarvél, sem þversker flökin, en sérstök tölva les út og reiknar út flökin fyrir niðurskurðinn, væntan- lega eftir þeim pakkningum sem verið er að vinna í. Ýmis tæknileg vandamál eru þó enn við slíkan nið- urskurð, en vélin er væntanleg á markað eftir tvö ár. í þessum ferli vantar því aðeins mannshöndina við að týna orma og yfirfara flökin fyrir niðurskurðinn, auk þess að mata vélina. Fyrsta samstæða hér á landi búin þessum hæfileikum hefur verið til reynslu í Bolungarvík um skeið. Á fundi hjá Fagfélagi fiskiðnaðarins, < f Vchtmhkk sem shmtkist snúnhtg Áhugamenn um bíla og akstur kannast við Pirelli. Einn helsta framleiðanda hjólbarða fyrir kappakstursbifreiðar í heiminum í dag. Við framleiðslu fólks- og vörubílahjólbarða slær Pirelli hvergi af kröfunum. Þess vegna velja menn Pirelli. EIGUM FYRIRLIGGJANDI VETRARDEKK FRÁ PIRELLI í EFTIRTÖLDUM STÆRÐUM: FYRIR FÓLKSBÍLA: 175x70x13 185x70x14 FYRIR VÖRUBÍLA: 12 R 22,5 13 R 22,5 SÉRPÖNJUM EF ÓSKAÐ ER SKEIFUNNI 15, SlMI: 91-35200.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.