Alþýðublaðið - 17.10.1987, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 17.10.1987, Qupperneq 3
Laugardagur 17. október 1987 3 FRETTIR Alþýðubandalagið: Spennan í hámarki í dag ræðst hverjir verða fulltrúar Reykjavíkurfélagsins á landsfundi flokksins í næsta mánuði. Önnur atkvæða- greiðsla í Neskaupstað. Harka hlaupin í undirbúninginn. Úrslitin í Reykjavík gætu ráðið úrslitum. Urslita úr talningu at- kvæða í Alþýðubandalaginu í Reykjavik er nú beöið meö mikilli eftirvæntingu. Mikill fjöldi manns tók þátt í at- kvæðagreiðslunni á fimmtu- dagskvöldið og á fundinum var ógerlegt að gera sér neina grein fyrir fylgishlut- föllum þeirra tveggja fylkinga sem nú takast á um völdin í flokknum. Ekki þyrfti nema tiltölulega lítinn meirihluta til aö gera út um kosninguna á annan hvorn veginn. Tvennt er þó talið geta komiö i veg fyrir mjög „hrein” úrslit. Annars vegar er fjöldi flokksmanna sem neitar að láta skipa sér í fylkingar og kýs fulltrúa beggja, hins vegar er í gildi kynjakvótaregla, sem gæti riðlað fylkingum. Samkvæmt kvótareglunni mega ekki fleiri en 60% full- trúanna vera af fjölmennara kyninu. Verði þannig kosnir 70 karlar en 30 konur, færast 10 efstu varakonur upp en jafnmargir karlmenn færast niður í sæti varamanna. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaösins munu hafa ver- ið of mörg karlmannsnöfn á lista stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar en skipt til helminga á hinum listun- um báðum. Þetta hefur í för með sér að ef beita þarf kyn- kvótareglunni verður það Sig- ríðarmönnum í hag. Þrír listar voru í gangi við kosninguna á fundinum i fyrrakvöld. Lista uppstilling- arnefndar var að sjálfsögðu dreift meðal fundarmanna. Talið er að á honum hafi ver- ið talsvert fleiri nöfn sem kenna megi við Sigríði Stefánsdóttur en Olaf Ragnar Grimsson. Þegar Ijóst varó að fleiri tillögur myndu ber- ast en frá uppstillingarnefnd þannig að kosning yrði óum- flýjanleg, brugðu stuðnings- menn beggja formannskandi- datanna á það ráð að útbúa sérstaka lista til að auðvelda sínu fólki kosninguna. Stuðningsmenn beggja að- ila munu hafa notað lista uppstillinganefndar sem uppistöðu og strikað út af honum andstæðinga sina. í því sambandi var engum hlíft og má nefna sem dæmi að stuðningsmenn Sigríðar strikuðu nöfn á borð við Guð- rúnu Helgadóttur, Kristínu Á. Ólafsdóttur og Össur Skarp- héðinsson, en stuðnings- menn Ólafs Ragnars strikuðu út sjálfan fráfarandi formann flokksins, Svavar Gestsson ásamt forseta ASÍ, Ásmundi Stefánssyni. Að venju eru þó allmargir flokksmenn sem ekki vilja láta draga sig í dilka á þenn- an hátt og kjósa fólk úr báð- um fylkingum. Þessi hópur verður væntanlega til þess að koma í veg fyrir að allir fulltrúar Reykjavíkurfélagsins á landsfundinum verði úr annarri hvorri fylkingunni. Að sjálfsögðu er fylgst með kosningu landsfundar- fulltrúa úti á landi af miklum spenningi í báðum herbúð- um. Þar hefur viða komið til átaka nú þegar, en annars- staðar er búist við átökum. Þetta gildir t.d. um Neskaup- stað, þar sem nánir sam- starfsmenn Hjörleifs Gutt- ormssonar eru sagöir hafa sig alla við til að tryggja stuðning við Sigriði Stefáns- dóttur á landsfundinum. Stuðningsmenn Ólafs Ragn- ars á Neskaupstað hyggjast einnig fjölmenna á fundinn í dag þar sem fulltrúar á lands fundinn verða kosnir. Kjör fulltrúa er nýlega af- staðið í Kópavogi, þar sem Ólafur Ragnar fékk öruggan meirihluta. Ofug varó niður- staðan á Akureyri sem kunn- ugt er, en þaðan koma ein- ungis stuðningsmenn Sigríð- ar til landsfundarins. Fulltrúar frá Reykjavíkurfé- laginu verða um þriðjungur fulltrúa á landsfundinum, þannig að úrslitin sem koma upp úr innsigluðum kjör- kassa i dag, skipta verulegu máli og gætu hugsanlega ráðið úrslitum. Almennt er Tvær undantekningar frá bifreiðagjaldinu Tvær undantekningar verða gerðar frá innheimtu bifreiða- gjaldsins sem bætist við skattalista landsmanna á þessu hausti. Öryrkjar verða undanþegnir gjaldinu og fram til 1. nóvember gefst mönnum færi á að afskrá ónýta bíla og komast þá hjá gjaldinu. Fjármálaráðuneytið sendi í gær frá sér itarlega fréttatil- kynningu um bifreiðagjaldið þar sem þetta kemur m.a. fram. í lögum um bifreiða- gjaldið er heimild til að und- anþiggja öryrkja gjaldinu og hefur fjármálaráðherra ákveð- ið að nýta sér þá heimild. Þar sem þetta fólk er ekki að- greint frá öðrum bíleigendum f skrá Bifreiðaeftirlitsins, var að sögn fjármálaráðuneytis- ins ókleift að sleppa þeim við rukkun. Öryrkjar sem eiga bíla, fá því giróseðla eins og aðrir en þurfa ekki að greiöa þá! Þeir sem hafa gert það munu fá bifreiðagjaldfð end- urgreitt hjá viðkomandi inn- heimtumanni rikissjóðs. Bifreiöagjaldiö nemur sem kunnugt er tveim krónum á hvert kiló. Skatturinn verður þó ekki hærri en 5000 krónur af hverjum bfl og ekki lægri en 1000 krónur. talið að Ólafur Ragnar njóti meiri stuðnings en Sigríður á landsbyggðinni. Þetta hefur í för með sér að stuðnings- menn Sigríðar þurfa rífan meirihluta í Reykjavik til að tryggja kjör hennar. Það er sem sagt fyllsta harka í undirbúningi lands- fundarins og greinilegt að nú stefnir í það að misklíðarefn- in í flokknum verði gerð upp i eitt skipti fyrir öll. Kaupstaður á tveimur hæðum Kaupstaður í Mjódd í Reykjavik bætti við sig húsnæði þegar efri hæð hússins var tekin í notkun. Þar verða m.a. fatadeild og heimilisvör- ur. Húsið er nú alls um 8000 fermetrar og auk verslunar- og skrifstofu- húsnæðis er þarna aðstaða til kjötvinnslu og starfsmannaaðstaða. Auk þess er nú komið i gagnið kaffiteria fyrir almenning og barnahorn fyrir viðskiptavinina. Það voru þeir Ólafur St. Sveinsson, kaupfélagsstjóri, Þröstur Ólafsson, stjórnarformaður KRON og Pálmi Guðmundsson, verslunarstjóri, sem kynntu starfsemina fyrir blaðamönnum við opnun- ina. Á-mynd: Róbert. Arni Gunnarsson aiþingismaður: „Vaxtahækkanirnar óeðlilegar“ Frá áramótum hafa vextir á óverðtryggðum skuldabréfum hækkað um 85 prósent. Frá fyrsta janúar sl. hafa auglýstir meðalvextir Seðla- bankans hækkað um 85 pró- sent á almennum óverð- tryggðum skuldabréfum. í umræðum um efnahagsmál, utan dagskrár á Alþingi, vakti Árni Gunnarsson alþingis- maður athygli á þessari gífur- legu hækkun og beindi þeim tilmælum til ríkisstjórnarinn- ar, að hún hefði í heiðri þær yfirlýsingar Alþýðuflokksins að hóflegir vextir væru það sem stefna bæri að, en að mati Árna hefur hækkun vaxta á ríkisskuldabréfum áhrif til enn frekari hækkunar vaxta, — hjá verðbréfamörk- uðunum, í bankakerfinu og siðan í húsnæðislánakerfinu. „Ég treysti ríkisstjórninni til þess að stuðla að því í efnahagsaðgerðum sínum að vextir hækki ekki, frekar fari þeir lækkandi," sagði Árni Gunnarsson í samtali við Al- þýðublaðið. „Það hefur verið stefna Alþýðuflokksins frá þvi að verðtrygging fjárskuld- bindinga tók gildi, og við börðumst fyrir henni, að hér væru hóflegir raunvextir. Þeg- ar við erum að tala um hóf- lega raunvexti, þá erum við að tala um vexti á bilinu 2,5 —4 prósent." Árni sagði að þegar allt væri orðið verð- tryggt væri engan veginn réttlætanlegt að vera með vexti í gangi á bilinu 10—12 prósent. „Það er fásinna." Hvaða konur? Þau mistök urðu í viðtali við Þórhildi Þorleifsdóttur, i laugardagsblaðinu 10. október, að hluti af spurn- ingu blaðamannsins slædd- ist inn l svar Þórhildar. Hiö rétta er: — En eruð þið ekki fyrst og fremst menntakonur, sæmilega staðsettar í samfé- laginu? Eru nokkrar aðrar konur í framboði? „Sko, við höfum ekki kann- að hvaða kona kemur hvaðan. Okkur kemur það ekki við. Kannski kæmi þetta munstur ( Ijós, en flestar konur sem starfa meö okkur, hafa hvergi verið flokksbundnar áður.“ Að mati Arna er hávaxta- stefna afsprengi nýfrjáls- hyggjunnar, óhefts markaðs- búskapar. Hann segir enn- fremur að vaxtahækkanir undanfarið hafi með öllu ver- ið óeðlilegar. „Þeir sem hafa fengið frelsi til að fara með peninga að vild, hafa misnot- að það frelsi. Verðbréfamark- aðirnir hafa að minu viti hækkað vexti óeðlilega mik- ið. Það hefur síðan pressað á bankana að hækka vexti og ríkissjóður hefur i samkeppni við þennan markað verið neyddur til að hækka sína vexti.“ Þá kvaðst Árni hafa veru- legar áhyggjur af því að há- vaxtastefnan yki verðbólguna meira heldur en menn gerðu sér almennt grein fyrir. Auk þess væru háir vextir til þess fallnir að lagskipta þjóðinni meira en ástæða væri til. „Þeir sem eiga fjármagnið hagnast á háum vöxtum, en hinir verða undir I baráttunni, verða fátækari." Nýir pennar Alþýöublaösins: Halldór Halldórsson skrifar um íþróttir Halldór Halldórsson fyrrum landsliðsmaður I knattspyrnu og handknatt- leiksmaður mun skrifa um íþróttirog mál sem tengj- ast (þróttahreyfingunni I Alþýðublaðið. Halldór hefur um árabil verið virkur þátt- takandi I íþróttalífi þjóðar- innar og skrifað um þau málefni, m.a. fjallað reglu- lega um unglingaíþróttir I Dagblaðinu/Vísi. Alþýðu- blaðið býður Halldór vel- kominn til starfa. Fyrsta grein Halldórs birtist I blaðinu I dag á bls. 14-15. Halldór Halldórsson Ibúð óskast! Starfstúlka á Alþýðublaðinu óskar eftir 2ja-3ja herb. íbúð á leigu í 1 ár. Fyrirframgreiðsla fyrir hendi ef óskað er. Vinsamlegast hafið samband við Alþýðublaðið frá kl. 9—5, (Olöf), eða í síma 79313 á kvöldin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.