Alþýðublaðið - 17.10.1987, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 17.10.1987, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 17. október 1987 „GUÐ MINN GÓÐUR, EG HELD ÉG SÉ AÐ MISSA STJÓRN Á BÍLNUM“ LÍÐAN EFTIR ATVIKUM LÁRA MAGNÚSDÓTTIR OG AÐALBJÖRG GUÐGEIRSDÓTTIR ERU FÓRNARLÖMB UMFERÐARSLYSA „Líðan eftir atvikum” herma fjölmiðlar — og síð- an ekki söguna meir. Það var slys. Annað vitum við ekki. En „atvikin“ tala sínu máli. Stundum er það barátta upp á Uf og dauða. Legið á gjörgœslu- deild í viku, 10 daga — allt upp í mánuð. Öll sam- anlögð lœknisfrœðin í einni manneskju. Lára og Aðalbjörg lentu báðar í umferðarslys- um. Aðalbjörg í Kúagerði í desember sl. en Lára í bílveltu norður á Ströndum fyrir 15 mánuðum. Á einu augnabliki breyttist líf þeirra. Aðalbjörg er lömuð fyrir neðan mitti, en Lára brotnaði á sjötta og sjöunda hálslið og mœnan fór í sundur. Hún er lömuð frá brjósti og niður, og hefur enga tilfinn- ingu í fingrum. Ég hitti þœr stöllur í vikunni inni á Grensásdeild Borgarspítalans. Grensás er endur- hœfingardeild spítalans. Þangað fara sjúklingar að lokinni lœkningu á spítalanum sjálfum. Lára og Aðalbjörg voru báðar 2 mánuði á gjörgœslu- og legudeildum spítalans áður en þcer voru lagðar inn á Grensás. Það kemur fljótlega í Ijós í samtali okk- ar að Lára hefur átt erfiðara uppdráttar en Aðal- björg. Það er auðheyrt að Aðalbjörg hefur stappað stálinu í Láru. Viötal: Þorlákur Helgason Aðalbjörg, 21 árs, er úr Fljótshlíðinni: Ég fór i brúðkaup laugardaginn 27. desember og var i brúðkaupinu til klukk- an tíu um kvöldið, en fór þá út á Hellu. Krakkarnir báðu mig um að koma með út á flugvöl! með eina vinkonu okk- ar meö flugvélinni, svo að þau þyrftu ekki að vera bara 2 á leiðinni heim í bilnum. Ég sló til, og svo þegar við vor- um á leiðinni til baka skeði þetta. í Kúagerði. Ég var sof- andi í aftursætinu, vaknaði og lít upp og só að bíllinn er farinn að snúast svona svolitið mikið, og ég hugsa með mér, ja hann hlýtur að rétta hann við — og legg mig aft- ur. Svo vissi ég ekki meir fyrr en ég lá úti í móa. Þar var einhver kona hjá mér sem ég veit ekki hver er, ég hef aldrei haft neitt samband við hana. Ég hefði gaman af þvi að hitta hana aftur. Hún sat hjá mér eftir að þau fundu mig. Það gekk nú erfiðlega að finna mig. Það var svo mik- ið myrkur og ég var mjög dökkklædd. Þeir runnu eígin- lega á hljóðið en sáu mig ekki. Við biðum i þrjú korter eftir sjúkrabilnum. Það var kallað fyrst á sjúkrabilinn i Keflavík i stað þess að kalla i Hafnarfjörðinn. Þess vegna þurftum við að bíða svo lengi. Leigubílstjóranm sem kom að okkur var farið aö lengja eftir sjúkrabílnum og hringdi í Hafnarfjörð og hann sótti mig. „Ég er búin að vera hér á Grensás I þrettán mánuði. Þetta er ansi hörð barátta að eiga við. Þetta er hörð vinna. Sú erfiðasta sem óg hef lent ( allavegana," segir Lára. Hún er 29 ára. „Það var ekki fyrr en fyrir 3 eða 4 mánuöum sem ég fór að taka framför- um að einhverju leyti. Ég var mjög neikvæð og langt niðri fram að þvl. Núna er maöur hræddur við það sem kemur. Hér lifir maður I vernduðu umhverfi og fær alla aðstoð og hjálp. Bæði I sambandi við þvagið og hægöir og ann- að sem maöur getur ekki stjórnað. Og þrifnaö. Það kemur einhvern tima aö þvi að maöur útskrifast héöan. Þá er maöur voða nervös um framtlðina, hvað veröur og hvert maöur fer. Það er allt óráöið.“ Hefurðu ástæðu til að óttast það, Lára? „Já. Þeg- ar maður sér fram á að fara úr þessu umhverfi, þar sem maöur fær alla hjálp, veit maður ekki hvort maöur get- ur búið á slnu eigin heimili eða þarf að fara inn á aðra stofnun. Þetta er allt mjög óljóst ennþá.“ Lára segist hafa veriö I ágætisvinnu, áð- ur en slysið varð. „Maður byrjar alveg nýtt lif frá grunni, þegar maður lendir i svona löguöu. Það hefur tek- ið mig langan tima að sætta Lára Þjálfarinn teygir á Láru til að styrkja hana.Lára gerir llka jafnvægisæfingar. Húp flytur sig I stól og úr stól. Eftir langa legu eftir slysið, var jafnvægiö æft hægt og slg- andi. Fyrsta æfingin var fólg- in I þvi að reisa llkamann smám saman I hærri stelling- ar á bekk úr láréttri stöðu. Lára hefur verið I iðjuþjálfun, þar sem hún lærir að klæða sig upp á nýtt og þrifa sig. „Maður styrkist hægt og ró- lega frá degi til dags, þó að ég eigi langt í land,“ segir Lára. sig við það sem hefur gerst. Kannski sættir maöur sig aldrei við aö lifa með þessu.“ Heldur þú, Aðalbjörg að þú sleppir við að efast? „Já, ég hugsa þaö. Ég fer héðan I fbúð, sem Öryrkjabandalagiö á, og fæ að vera þar i eitt ár. Svo veröur maöur að reyna að kaupa sitt eigið. Maður verður eitthvað að gera alla- vegana. Ég er ekkert hrædd, þvl að ég get alveg séð um mig sjálf. En þetta er ofsa- lega verndað hérna og væri maður lengi hérna væri fer- lega erfitt að komast héöan út. Manni eru allir vegir færir hérna inni, kemst um allt á hjólastólnum, engir þröskuld- ar, ekki neitt.“ „Svo koma þeir, þegar maöur kemur aft- ur út ( lífið," skýtur Lára inn I, Og þær eru sammála um að ekki sé vel tekið á móti löm- uðu fólki úti I samfélaginu. Höfðu þær hugsað út I þessa hlið áður en þær lentu Hór er teygt og togað á henni Láru. „Þetta er erfiðasta vlnna sem ég hef lent í,“ segir hún. Hægt og rólega styrklst Lóra, „þó að óg eigi langt i land.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.