Alþýðublaðið - 17.10.1987, Síða 17
Laugardagur 17. október 1987
17
VERÐGÆSLAN
Þorlákur Helgason
skrifar
Verökönnun Alþýðublaðsins í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og
Reykjavík:
„Ein með öllu“
og réttur dagsins dýrari hér
Þaö er dýrt aö borða úti á
íslandi.
„Réttur dagsins" á ódýrum
matsölustað i Reykjavík er
heimingi dýrari en í Stokk-
hólmi og Kaupmannahöfn.
Þá er „Pulsa meö öllu“
nokkru dýrari hér en í hinum
höfuöborgunum.
Þetta kemur m.a. fram í
verðkönnun Alþýðublaösins
á veröi matvara og þjónustu (
höfuðborgum Noröurlanda.
Það er til mynda ódýrara aö
rússa um i borginni viö Sund-
ið en í Reykjavík, a.m.k. ef
marka má startgjaldið, sem
aðeins er hálfdrættingur í
Kaupmannahöfn á vió hér.
Þess skal getið að taxtar
geta verið mismunandi t.d. í
leikhús. Það er alls ekki
sama hvar er setið í leikhúsi,
en í samanburði okkar er tek-
ið tillit til þessa. Leikhúsmið-
inn á að vera sambærilegur á
öllum Norðurlöndunum í
könnuninni, þar sem miðað
er við venjuleg sæti á sóma-
samlegum stað í leikhúsun-
um.
Hvað finnst þér lesandi um
þessar niðurstöður? Finnst
þér sjálfum að það sé dýrt að
breyta út af vananum, fara út
að borða eða skella sér i bíó?
Tjáðu þig um verðlag á ís-
landi, skrifaðu eða hringdu til
okkar.
Alþýðublaðið — verðgæsla
Ármúla 38,
108 Reykjavík.
Reykjavík Stokkhólmur Kaupmannahöfn
Pylsa meö öllu 75 kr. 58 kr. 56 kr.
Réttur dagsins 380—600 kr. 170 kr. 180 kr.
Startgjald í leigubíl 145 kr. 70—150 kr.* 67 kr.
Vídeóspóla 230 kr. 250 kr. 250 kr.
Hr.framköllun 36 m. 886 kr. 732 kr. 826 kr.
Bíómiði 250 kr. 240 kr. 250 kr.
Leikhúsmiöi 700 kr. 850 kr. 560 kr.**
Áskrift aö dagblaði 600 kr. 440 kr. 660 kr.
Athugasemdir:
*Ódýrastur er bíllinn, ef þú tekur hann á staðnum. Ef þú þarft
að panta hann á ákveðinn stað er startgjaldið hærra.
**Verð í leikhús er ákaflega misjafnt, frá 170 ísl. kr. og upp í
840 kr.
Átak gegn
nagladekkjum
Bifreiðarmeð afturdrifi áónegldum snjóhjólbörðum
hafa betri aksturshæfileika með farg yfir afturöxli.
Sandpokarafhentirí bækistöðvum gatnamálastjóra
við Meistaravelli, Sigtún, Grensásveg og Sævar-
höfða.
Gatnamálastjóri.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskólaníi á Sauðárkróki er laus kenn-
arastaða í viðskipta-ðg hagfræðigreinum frá 1. janú-
ar 1988. Ennfremurerstaðastærðfræðikennaralaus
nú þegar við sama skóla.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík fyrir 10. nóvember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið.
Þeirsem kynnu að óskaeftirviðtali við fjár-
veitinganefnd vegna styrkumsókna þurfa
að pantaviðtal hjástarfsmanni nefndarinn-
ar, Ásdísi Sigurjónsdóttur í síma 11560 (213
eða 200), í síðasta lagi 23. október. Viðtöl
þessi munu eiga sér stað dagana 28. októ-
ber —- 6. nóvember.
Skrifleg erindi skulu hafa borist nefndinni í
síðasta lagi 20. nóvember n.k.
REYKJÞMIKURBORG
Jlautevi Stödívi
Heilsuverndarstöð Reykjavikur óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðinga viðGrunnskólaborgarinnarvíðs
vegar um borgina. Starfið felst m.a. í heilbrigðiseftir-
liti/f ræðslu.
Hjúkrunarfræðinga við Barnadeild. Starfið feist í
heimilisvitjunum, móttöku á deild og fræðslu af
ýmsu tagi.
Bæði eru störfin sjálfstæð og þau má móta og
skipuleggja á ýmsa vegu. Um er að ræða bæði fullt
starf og hlutastarf. Semja má um starf við skóla að-
eins skólaárið.
Aðstoðarmenn við skólatannlækningar og við
heilsugæslu í skólum, til afleysinga.
Upplýsingar um ofangreind störf gefur hjúkrunar-
forstjóri í síma 22400.
Móttökuritara við Heilsugæslustöðina í Árbæ í 60%
stöðu.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðva í síma 22400.
Umsóknarfrestur er til 26. október.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á eyðu-
blöðum sem þar fást.
________________i______________
A Bílbeltin
hafa bjargað