Alþýðublaðið - 20.10.1987, Side 1
Sambandsmenn segjast hafa gefið viðhlítandi skýringar og að
aldrei hafi vantað þau 700 tonn af kjöti sem „vantaði“.
„Ég tel aö viö séum komn-
ir meö viðhlítandi skýringar,"
sagði Magnús Friðgeirsson
framkvæmdastjóri búvöru-
deildar Sambands islenskra
samvinnufélaga i samtali við
Alþýðublaðið. Magnús telur
að aldrei hafi vantað þau 700
tonn af kindakjöti sem Al-
þýðublaðið sagði frá í síð-
ustu viku. „Þessar tölur frá
bönkunum voru á frum-
vinnslustigi og það átti eftir
að vinna betur i málinu. —
Þá kom i Ijós hver ágallinn
var.“
Það var að beiðni fram-
kvæmdanefndar búvöru-
samnings sem bankarnir
tóku sig til og gerðu um-
fangsmikla talningu á kinda-
kjötsbirgðum í landinu. Sam-
kvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins reyndust birgðirnar
vera 1700 tonn í lok verðlags-
árs 31. ágúst, í stað 2387
tonna sem áætlun búvöru-
samnings gerði ráð fyrirog
upplýsingar framleiðsluráðs
gáfu tilefni til að ætla.
Afurðadeildir Landsbank-
ans, Búnaöarbankans og
Samvinnubankans fram-
kvæmdu talninguna, sem er
sú fyrsta yfirgripsmikla sem
bankarnir gera, þrátt fyrir aö
þeir hafi í áraraðir tekið veð í
kjötinu vegna lána.
Bankarnir hafa síðan fyrir
helgi verið að meta skýringar
sem gefnar hafa verið á
„vöntuninni". Samkvæmt
heimildum Alþýðublaðsins
eiga niðurstöður að liggja
fyrir í dag og gefa þær ekki
vísbendingu um að vanti mik-
ið af kjötinu.
„Ef það er eitthvað sem
skilur á milli manna ennþá,
þá er það í svo litlum mæli
að það getur rúmast innan
eins prósents rýrnunartölu á
ársgrundvelli," sagði Magnús
Friðgeirsson, en hann átti þá
eftir að fá tölur frá þremur
birgðastöðum. „Jafnvel þó að
við séum ekki búnir að fá
þessar tölur frá þeim, þá tel
ég að við séum búnir að gefa
viðhlitandi skýringar."
Það virðist því vera sem
bankarnir hafi mistaliö birgð-
irnar og skeikað um 700
tonnum. Það magn gæti fyllt
140 vöruflutningabíla. Alþýðu-
blaðið spurði Magnús hvern-
ig stæöi á því að bankarnir
gætu ekki framkvæmt ná-
kvæmari talningu en raun ber
vitni: „Þetta er góð spurning
en ég get ekki svarað henni,“
sagði Magnús.
Bankamenn sem Alþýðu-
blaðið talaði við í gær voru
fáorðir en sögðu að málið
ætti að liggja Ijóst fyrir í dag.
„Það er leikur að læra,“ segir í kvæðinu. Líklega finnst þó flestum krökkum miklu skemmtilegra í fríminútunum. A-mynd/Róbert
Stéttarsamband bænda:
Fjárlagafrumvarpið brot á samkomulagi
Stjórn Stéttarsambands
bænda telur fjárlagafrum-
varpið brjóta í bága við þá
landbúnaðarstefnu sem
bændur hafa gengið til sam-
vinnu um og mörkuð var með
búvörulögunum frá 1985.
Þetta kemur fram í athuga-
semdum sem stjórn Stétta-
sambandsins sendi ríkis-
stjórninni ( gær vegna fjár-
lagafrumvarpsins, en þar seg-
ir m.a. að forsendum fyrir bú-
vörusamningum við ríkið sé
kollvarpað með álagningu
söluskatts á matvæli og
lækkandi hlutfalli niður-
greiðslna.
Stjórnin segir að minnk-
andi hlutdeild innlendra mat-
væla kippi grundvellinum
undan atvinnumöguleikum
verulegs hluta bændastéttar-
innar. Auk þess segir að
minnkandi innanlandssala i
kjölfar verðhækkana muni
auka þörfina fyrir útflutning á
búvöru.
„Stjórnin mótmælir þvi
harðlega að ríkisvaldið skuli
hverfa frá stefnu búvörulag-
anna og umsömdum mark-
miðum búvörusamningsins,"
segir m.a. í bréfinu til rikis-
stjórnarinnar.
Þá telur stjórn Stéttarsam-
bandsins að niðurskurður á
framlögum til rannsókna og
leiðbeininga í landbúnaði
tefji nauðsynlegar búháttar-
breytingar í sveitum, en þær
séu einmitt eitt af stefnumið-
um búvörulaganna frá 1985.
Að endingu er varað við sam-
drætti á framlögum ríkisins
til jarðræktar og búfjárrækt-
ar.
Fíknó í feitt:
Langstærsta
„kók“smygliö
Ávana- og fíkniefnalögregl-
an í Reykjavík gerði upptækt
mikið magn af kókaini sl.
laugardag. Um er að ræða
450 gr. og eru þaö brasilísk
hjón sem höfðu það í fórum
sinum. Þetta er mesta magn
af kókaini, sem að Fíkniefna-
lögregian hefur, frá upphafi,
lagt hald á.
Hjónin, sem að eru 40 ára
kona og 25 ára karlmaður, eru
talin hafa komið hingað 1.
október, með flugi frá Luxem-
borg, og haft kókainið með
sér í farangrinum. Þau hafa
síöan dvalið hér á höfuöborg-
arsvæðinu, en höfðu síðan
dvalið einn dag i Hveragerði
þegar þau voru handtekin.
Fyrir utan kókainið höfðu
þau um 780.000 kr. í seðlum
á sér, mest í dollurum en þó
einnig íslenska peninga.
Eins og áður sagði er þetta
mesta magn sem að náðst
hefur hér áður. Nokkuð hefur
verið um það að kókaini sé -
smyglað inn til landsins um
leiö og amfetamíni og hassi
en það hefur aldrei áður verið
neitt verulegt magn. Mesta
magn sem hefurverið gert
upptækt í einu er u.þ.b. 20 gr.
Það var fyrir tveimur árum og
þá var einnig um brasilískt
par aö ræða.
Við frumrannsókn bendir
allt til að efnið sem náðist á
laugardaginn sé mjög sterkt
en það er þó ekki vitað með
vissu.
Til glöggvunar má geta
þess að gangverð á kókaíni
hefur verið um 8—10 þúsund
grammið, hér á íslandi, en þá
er ekki um að ræða alveg
hreint kókaín. Grammið er yf-
irleitt áætlað u.þ.b. 10
skammtar en þaö er þó dálít-
ið breytilegt eftir styrk efnis-
ins.