Tíminn - 16.09.1967, Page 9

Tíminn - 16.09.1967, Page 9
9 LAUGARDAGUR 16. sept. 1967. TÍMINN Utgefandi: FRAMSOKNARFLOKKURlNN Framkvæmdastióri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jön Helgason og Indrlði G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Aug- (ýsingastióri: Steingrimur Gislason Ritst.1.skrifstofur ' Eddu húsinu. simai 18300—18305 Skrifstofu.'- Bankastrætl 7 Af- greiðslusimi 12323 Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innanlands — t lausasölu kr 7.00 eint - Prentsmiðjan EDDA b t * Islenzku framtaki má treysta Hér í blaðinu hefur það áður verið rifjað upp í til- efni af hinni fróðlegu bók Þorsteins Thorarensens, að stofnun íslandsbanka var framfaraspor á sínum tíma, þótt langt hefði verið gengið af þeim, sem þá vildu leggja Landsbankann niður. Með stofnun íslandsbanka fékkst allmikið erlent lánsfé inn í landið, er var lánað íslenzkum framtaksmönnum til ýrnissa framkvæmda. Það sýndi sig fljótt, að ekki skorti íslenzkt framtak, þegar fjármagn var fyrir hendi. Stofnun Íslandsbanka markaði að þessu leyti rétta stefnu, er síðar hefur verið fylgt að mestu leyti. Hún er sú að fá inn í landið erlent lánsfé eftir því, sem skyn- samlegt er til að efla íslenzkt framtak. íslenzkt framtak brestur ekki, þegar fjármagn er fyrir hendi. Því hafa ís- lendingar aldrei orðið fyrir hnekki af erlendum lántök- um, sem hafa verið skynsamlega notaðar. Þrátt fyrir þessa reynslu ber nú orðið á nýjum hugs- unarhætti, sem einkum virðist eiga sér formælendur í út- breiddasta blaði landsins, Morgunblaðinu. Þessi hugsun- arháttur er fólginn í því, að það sé hættuminna að flytja inn erlent fjármagn á þann hátt. að útlendir menn eigi hér og starfræki fyrirtækin, en að flytja inn erlent láns- fé, sem notað sé til eflingar atvinnufyrirtækjum lands- manna sjálfra. Þessi nýi hugsunarháttur getur ekki byggzt á öðru en vantr.ú á íslenzku framtaki. Því sé ekki hægt að treysta til að byggja upp blómlegt atvinnulíf. Vegna þess sé tilvinnandi að fá erlenda menn til að reka hér atvinnu- fyrirtæki, enda þótt því fylgi, að þá séu ekki aðeins vextir og afborganir af erlenda fjármagninu fluttir úr landinu, héldur einnig gróðinn, sem verða kann af atvinnurekstrinum. Þessi vantrú er fullkomlega órökstudd. Hinar miklu framfarir, sem hafa orðið hér seinustu áratugina, sýna þvert á móti, að íslenzku framtaki má hiklaust treysta. Á sviði landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar blasa hvar- vetna við sannanirnar um glæsilegan árangur af starfi íslenzkra framtaksmanna. Það skortir ekki framtak ein- staklinga á íslandi. Það, sem þarf, er að búa enn betur að þessú íslenzka framtaki, svo að það fái notið sín betur. Til þess þarf bæði að nýta betur hið innlenda fjármagn, sem fyrir hendi er og fá erlent lánsfé til við- bótar eftir því, sem skynsamlegt þykir. Það er óhætt fyrir íslendinga að treysta á sitt eigið framtak. Það hefur reynsla seinustu áratuga sannað ótvírætt. En það þarf að búa að þessu íslenzka framtaki eins vel og kostur er á. Þá þarf þjóðin ekki að óttast um, að hún geti ekki lifað góðu lífi í landi sínu, öllum óháð. Hvorl var hyggilegra Það er upplýst, að gjaldeynsvarasjóðurinn hefur rýrn- ”.m hálfan milljarð hina fyrstu sex mánuði þessa árs.. Þá varð ekki samdráttur í útfhitningstekjum á þessum árshelmingi. Rýrnun gjaldeyrisvarasjóðsins stafar mest af hóflitlum innflutningi á ýmsum miður þörfum varn- ingi. Hefði ekki verið hyggilegra að verja þessum 500 milljónum króna til að auka framleiðni íslenzkra atvinnu- vega, eins og Helgi Bergs lagði til, en að láta þennan dýrmæta gjaldeyri fara í súginn vegna gagnslítils inn- flutnings? ERLENT YFIRLIT Viöhorfin í Evrópu eru gleggri eftir Póllandsför de Gauíie Óttinn við Þjóðverja er enn rótgróinn í Austur-Evrópu. De Gaulle og frú FERÐALAGI de Gaulle Frakklandsforseta til Póllands er lokið. Mjög er um það rætt, hvort iþað hafi borið tilaetlaðan ánaagur eða ekki. Hafi menn búizt við því, að það myndi bera einhvern skjótan árangur, hefur það ekki heppnazt. Hafi það hins vegar verið tilgangur de Gaulle að skýra betur sam- búðarvandamálin í Evrópu og greiða fyrir framtíðarlausn þeirra hefur ferðalag forset- ans ótvirætt orðið spor í rétta átt. Tilgangur de Gaulie með ferðalaginu hefur sennilega verið fyrst og fremst sá að á- rétta þá stefnu hans, að í framtíðinni eigi Evrópa, sem nær allt til Úralfjalla, að vinna saman sem ein heild, en innan þeirrar heildar eigi þó þjóðríkin að halda fullri sér stöðu sinni. Þetta þýðir að ryðja verður úr vegi þeim tor færum, sem aðskilja Vestur- og Austur-Evrópu. Sú tor- færan, sem er einna verst að yfirstóga, er sameiginlegur ótti þjóðanna í Austur-Evrópu við Þjóðverja. Ferðalag de Gaulle var fyrst og fremst farið til þess að vinna bug á þessum ótta. Kjaminn í boðsbap hans var sá, að Frakkar hefðu tek ið upp nána samvinnu við Þjóðverja, þrátt fyrir fjand- skap og styrjaldir í margar ald- ir. Það hefði verið óhjákvæmi- legt skref til að koma á sam- vinnu ríkjanna í Vestur-Evr ópu. Svipað skref yrðu Pól- verjar einnig að stíga og ef þeir stigju það, gætu þeir treyst á vináttu Frakka. DE GAULLE lét það óspart koma í ljós, að skoðun hans væri sú, að Pólverjar gætu ekki stiigið þetta skref, nema þeir fengju vesturlandamæri sín viðurkennd eða Oder-Neiss er-landamiærin svokölluðu. Hann hefur bæði nú og áður lýst sig þvi fylgjandi, að þessi landamæri fengi allþjóðlega viðurkenningu. Vestur-þýzka stjómin hefur hins vegar enn ekki viljað fall ast á þessa viðurkenningu. Hún segir, að landamærin eigi end- anlega að ákveða á friðarráð stefnu. Það kemur ekki ljóst fram nú orðið, hvort hún muni á slíkri friðarráðstefnu gera kröfu til landamæranna frá 1938, en flest bendir þó til þéss. Meðan Vestur-Þjóðverjar hafa þessa afstöðu, verður erf itt að bæta sambúð þeirra og Pólverja að ráði. Þessi afstaða Vestur Þjóðverja viðheldur Þjóðverjahræðslunni í Austur Evrópu, enda þótt Þjóðverjar segi jafnframt, að þeir muni ekki reyna að breyta landa- mærunum með valdi. Með því að láta í ljós þá skoðun sína í Póllandsferðinni, að viðurkenna bæri vesturlanda mæri Póllands, hefur de Gaulle viljað gera Vestur-Þjóðverjum ljóst, að þetta væri það gjald. sem þeir þurfa að greiða, ef sambúð þeirra við Austur-Evr ópu á að komast í eðlilegt horf. Þessi afstaða de Gaulle valdi að sjálfsögðu gagnrýni i Vestur-Þýzkalandi. Ráðandi menn í VestursÞýzkalandi munu að vísu vera búnir að gera sér þetta ljóst, en af póli- tískum ástæðum heima fyrir er erfitt fyrir þá að segja þetta opinberlega. ÞAÐ KOM hins vegar í ljós í viðræðum de Gaulle og pólsku sjórnmálamannia, að ótti þeirra við Þjóðverja er svo rík ur, að þeim myndi ekki nægja að fá viðurkenningu á vestur landamæruinum. Þeir vilja einn ig, að Austur-Þýzkaland fái við urkenningu með einum eða öðrum hætti. Pólverjar eru ó- fáanlegir til þess á þessu stigi að fallast á sameiningu Þýzka lands í eitt ríki. Svo mjög ótt ast þeir öflugt sameinað Þýzka land. Þess vegrna vilja þeir láta tvískiptingu Þýzkalands hald ast áfram um ófyrirsjáanleg an tíma. í þessum efnum hafa þeir sömu afstöðu og Rússar. De Gaulle vildi hins vegar ekki ganga svo langt til móts við Pólverja að fallast á viður kenningu Austur-Þýzkalands. Hann vissi, að það var Vest- ur-Þjóðverjum enn viðkvæm- ara mál en viðurkenning Od- er-Neisse-landamæranna. Hann telur, að á þessu sviði verði frumkvæðið að koma frá Vest urÞjóðverjum sjálfum. Vestur-Þjóðverjar margir gera sér það ljóst, að bæði þjóðum Austur-Evrópu og Vest ur-Evrópu myndi standa ótti af sameinuðu Þýzkalandi. Þetta viðurkenndi Kiesinger kansl- ari, þegar hann ræddi við blaðamenn í Waslhington fyrir nokkru. Hann gaf jafnframt til kynna, að sameinað Þýzkaland með 80 millj. fbúa, gæti hvorki verið í vesturblökk eða austurblökk í Evrópu (“A reunified Germany has a criti- cal size, or a critical weight. It wouid be hard to see a reunifield Germany of 80 million peopie going to one side or the other'). Af þessum ummælum Kiesingers mætti ætla, að hann gæti hugsað sér, að sameinað Þýzkaland hefði einhverja sérstöðu. Vel má vera að eitthvað svipað vaki fyrir honum og de Gaulle, þeg ar hann ræddi í Póllandsför sinni um Vestur-Evrópu, Mið- Evrópu og Austur-Evrópu. ÓTVÍRÆTT er, að Pólverj- ar hlustuðu vel á það, sem de Gaulle hafði að segja. Honum v^ar lika forkun«ar vel tekið. Áhrifin af ferð hans geta því orðið veruleg, þótt þau komi ekki fram strax. Að sinni hef Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.