Alþýðublaðið - 10.11.1987, Side 4

Alþýðublaðið - 10.11.1987, Side 4
4 Þriðjudagur 10. nóvember 1987 KVIKMYNDIR Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar ALLT í JÁRHUM Húskólabíó: Riddari götunnar (Robocob): Bandarísk, árgerð 1987. Framleiðandi: Jon Davison. Leikstjórn: Paul Verhoeven. Handrit. Edward Neuheimer og Michael Miner. Kvikmyndun: Jost Vacano. Aðalleikarar: Peter Welter, Nancy Allen, Daniel O’Herlihy og Ronny Cox. Eftir því sem kvikmyndum fjölgar eykst ofbeldi, segja sumir. Aðrir alhæfa álíka léttilega að því meira sem of- beldið er áberandi í samfé- lagi manna verði fleiri bíó- myndir framleiddar. Hvað sem þessum sjónarmiðum líður er Ijóst að ofbeldi hefur og verður snar þáttur í efnis- tökum kvikmyndagerðar- manna, þó ekki væri nema vegna þess að enn eru til nokkrir leikstjórar sem vilja fjalla um veruleikann og víst er hann grimmur, ósanngjarn — og slær frá sér. Svo eru of beldismyndir einfaldlega vin- sælar. Fólk unir því vel að sjá meðbræður sína limlestaða og alla vega drepna á hvítu tjaldi. Fólk hefur gaman af því að upplifa aðstæður sem það óttast sjálft og vildi ekki fyrir nokkurn mun lenda sjálft í og sæta afleiðingun- um. Paul Verhoeven veit vel af þessu. Þessi hollenski leik- stjóri hefur farið hamförum á hvíta tjaldinu nokkur undan- farin misseri með margar of- beldiskenndustu kvikmyndir þess tíma sem náð hafa dreifingu. Oftast nær hefur hann notið liðsinni félaga síns og gamals skólabróður Rutger Hauer frá Rotterdam, svo sem eins og myndunum Flesh and Blood og Hitcher, sem báðar voru einkar athygl- isverðar afþreyingarmyndir, þrátt fyrir linnulitið ofbeldi. Ástæðan var einfaldlega sú að Paul kann að spinna sögu, kann mikið fyrir sér í sam- spili klippingar og töku, kann myndmál hraðans. Flesh and Blood var óvenjulega vel heppnuð períóðumynd frá strlðshrjáðu miðöldum, þar sem Hauer lúskraði grimmt á verri mönnum en sér, Hitcher var roadmovie, hryllilega magnaður óður um enda- sprettinn í ævi geðveikileg- asta putalings í kvikmynda- sögunni. Nýjasta mynd Verhoevens, Robocop, er ómenguð of- beldismynd úr nútímanum, nánar til tekið í borg óttans, Detroit þar sem glæpir eru viðlíka algengir og blaðasala í Austurstræti. Forráðamenn OCP fyrirtækjasamsteypunn- ar sjá sér leik á borði og taka að sér löggæslu gegn þókn- un. Jones forstjóri hefur á prjónunum að fela vélmenn- um löggæsluna og sýnir stofnanda fyrirtækisins og nánustu samstarfsmönnum gripinn en árangurinn er ekki sá sem hann vonaðist eftir. Þá sér einn samstarfsmanna hans, Bob Morten sér leik á borði og lætur vísindamenn fyrirtækisins glæða lögreglu- manninn Murphy nýju Iffi, en hann hafði særst til ólifis I skotbardaga við glæpamenn í borginni. Þetta er semsé söguþráðurinn, svona um það bil mjög óliklegur, enda er hér á ferðinni einskonar jarðbundinn He-man sem krakkar þekkja úr teiknimynd- um og leikfangabúðum. Verhoeven leikstjóri fer vel kunnar slóðir i framsetningu þessa efniviðar, hæðir og lægðir eru þar sem vera skal í stígandinni og engar áhætt- ur teknar í persónusköpun- inni; vondu karlarnir eru vondir og þeir góðu góðir. Verhoeven hefur samt tals- vert umfram flestar kæruleys- islega' unnar afþreyingar- myndir í þessum dúr. I fyrsta lagi hefur hann húmor fyrir viðfangsefni sínu, veit ber- sýnilega að hann er ekki að skapa meistaraverk og ein- beitir sér þess í stað alveg að afþreyingargildinu; skemmtir fólki á kuldalegan og meinlegan máta eins og unnendur ofbeldismynda kunna að meta það. Tökur eru á tíðum kraftmiklar, klipp- ing snotur og gefur þaö myndinni það andrúm spennu og ótta sem hæfir inntakinu. Þá sakar ekki ákaf- lega góð leikmynd og bún- ingar, einkum gervi vélmenni- löggunnar, sem hlýturað snerta hverja taug í unnend- um málms og skrúfa. Til marks um skjótan og staðgóðan frama Paul Ver- hoevens i Bandaríkjunum eru þeir leikarar sem hann fær hér til liðs við sig og gefa myndinni nokkurt gildi. Þetta eru mest allt kunnar kempur frá fyrri árum, svo sem Ronny Cox og Daniel O’Herlihy sem eiga að baki myndir eins og Deliverance og McArthur, auk þátttöku í kunnum sjónvarps- seríum. Kvenmannsrullu þessa verks fer Nancy Allen (The Last Detail, Carrie) ágætlega með, og kæmi manni ekki á óvart að eigin- maður hennar, Brian de „Leikstjórinn Verhoeven skemmtir fólki á kuldalegan og meiniegan hátt eins og unnendur ofbeidismynda kunna að meta,“ kemst Sig- mundur Ernirm. a. að orði i umsögn sinni um Robocop sem Háskólabíó sýnir um þessar mundir. Palma, hefði hvatt hana frem- ur en latt að taka þátt í þess- ari mynd, enda nóg af blóði og dauðakippum í Robocop. Nancy Allen er reyndar systir annarrar kunnrar kvikmynda- menneskju, Karen Allen sem kunn er til dæmis úr Starman og Raiders of the last Ark. PeterWeller, væntanlegur arftaki Bronson og Eastwood að margra dómi, skröltir svo inni í vélmenni myndarinnar og túlkar Robocop, kannski full einhæflega, enda settar þar miklar skorður. h'DHPmuceiJoiiDáii nii ey EM lileumeiep s Michsel Minep • produhd bv Arne Schmi • dibecied by Paul Verhoeven phíiíi WKHTmCTHÐ <SgT~ PSHnsetBetua® An ORjon %CTURES R&ease ©IM7 0>oo picturM Cocporauxv M RigMa H»t*rv«d BÓKAFRÉTTIR Sverra Nv&w Orðlð cr laust Orðið er laust Hörpuútgáfan á Akranesi hefur gefið út bókina ORÐIÐ ER LAUST — Ráð og hug- myndir fyrir ræðufólk. Höf- undurinn, Sverre Nyflöt, er þekktur í heimalandi slnu, Noregi, fyrir hnyttnar ræður. Þessi bók hefur að geyma hagnýt ráð og leiðbeiningar fyrir þá sem þurfa að tjá sig á fundum og í samkvæmum með snjöllum tækifærisræð- um. Auk ráða og leiðbeininga eru f bókinni smásögur, skrýtlur og málshættir, sem raðað er í 30 efnisflokka til þess að auðvelda notkun hennar. Bókin „Orðið er laust“ er 80 bls. með myndum. Gissur Ó. Erlingsson þýddi bókina. Prentsmiðjan Oddi hf. annað- ist prentun og bókband. Rússnesk ævintýri Fjöður hauksins hugprúða og fleiri rússnesk ævintýri nefnist bók sem bókaforlag Máls og menningar hefur gefið út. Hún hefur að geyma fjögur gömul ævintýri fyrir börn sem Ingibjörg Haralds- dóttir hefur þýtt úr rúss- nesku. Hér er sagt frá prins- um og karlsdætrum, stjúp- um, riddurum og froskaprins- essum og nornin Baba Jaga kemur líka við sögu. Ævintýr- in eru ríkulega skreytt mynd- um í fullum litum eftir lista- manninn I.A. Bilibin, þar af eru 11 heilsfðumyndir. Bókin er 48 bls. að stærð, prentuð á Möltu. VOÚH. Á hljóðum stundum Hörpuútgáfan hefur gefið út Ijóðabókina „Á hljóðum stundum" eftir Öskar Þórðar- son frá Haga í Skorradal. Höfundur er f. 1920 og fyrsta kvæði hans birtist á prenti 1936, þegar hann var aðeins 16 ára gamall. í bókinni er safn af kvæðum og stökum sem ort eru á 50 ára tímabili (1936-1986). í for- mála segir höfundur: „Kvæði mín og stökur hafa sprottið fram nokkurn veginn ósjálf- rátt... Erfiðismaðurinn sest niður að loknu dagsverki og párar á blað sinar hugdettur... Von mín er sú að þegar þetta tómstundagaman mitt er komið til lesenda, þá hafi þeir haft af því nokkra ánægju." Bókin er 108 bls. Prentuð í Prentverki Akra- ness. Ljósmynd á forsíöu er eftir Friðþjóf Helgason. Pollýanna Pollýanna eftir bandarfska rithöfundinn Eleanor H. Porter er komin út að nýju f þýðingu Freysteins Gunnars- sonar. Það er bókaforlag Máls og menningar sem gefur bókina út. Pollýana var ekki gömul þegar hún lærði dálítinn leik sem oft kom í góðar þarfir. Hann fólst í því að reyna ævinlega að sjá bjartar hliðar á hverju máli. Þegar hún hafði misst báða foreldra sína var hún send til frænku sinnar í fóstur. Ungfrú Pollý hafði aldrei haft neitt af börn- um að segja og langaði ekkert til að breyta því. Og hvernig á maður að bregðast við krakka sem ævinlega sér eitthvað gott við allt sem fyr- ir kemur — jafnvel fótbrot? Pollýanna er í hópi klass- ískra barnabókmennta. Hún var fyrst gefin út í Bandaríkj- unum árið 1913 en hefur síðan verið þýdd á ótal tungumál, sett á svið og kvik- mynduð. Pollýanna kemur nú út f þriðja sinn á íslandi og nú bæði innbundin og í kilju. Bókin er 219 bls. að stærð, prentuð hjá Norhaven bog- trykkeri a/s í Danmörku. Kápumynd gerði Brian Pilk- ington.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.