Alþýðublaðið - 19.11.1987, Síða 3
Fimmtudagur 19. nóvember 1987
3
FRÉTTIR
KJÖT
STRÍÐ-
INU
LOKID
Kjötstriðinu virdist lokið á
farsælan hátt fyrir alia aðila
og án blóðsúthellinga. Sam-
kvæmt niðurstöðum talning-
ar sem framkvæmd var 9.
nóvember að beiðni fram-
kvæmdanefndar búvöru-
samnings undir eftirliti lög-
reglu reyndust birgðir gam-
als kjöts vera 650 tonn.
Samkvæmt upplýsingum
Framleiðsluráðs landbúnað-
arins voru kjötbirgðir í land-
inu 1. september um 2200
tonn. Landsmenn hafa þvi
torgað 1550 tonnum á tveim-
ur mánuðum og níu dögum.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins mun horfið frá
þeim ráðagerðum að kalla
allt kjöt til Reykjavíkur. Það
virðist því vera búið að af-
sanna hinn meinta glæp.
35 YFIR
Á RAUÐU
Umferðarlagabrotum hefur
fjölgað frá því í fyrra, sam-
kvæmt könnun sem nemend-
ur þriggja grunnskóla í
Reykjavik framkvæmdu þann
28. okt. sl. i samráði við Um-
ferðarráð og lögregluna. Hlið-
stæð könnun var gerð fyrir
nákvæmlega ári.
Af 1878 bílum sem fóru um
tiltekin svæði á einni klukku-
stund, voru 738 sem ekki
fóru eftir umferðarlögum.
Árið ’86 voru bílarnir 1907, en
brotin 580. Af þeim voru
flestir sem ekki notuðu
stefnuljós eða 265, en 250
stöðvuðu of framarlega viö
stöðvunarlínu. Það vekur at-
hygli að 35 bilar óku yfir á
rauðu Ijósi á þeim þremur
gatnamótum sem athugunin
fór fram við. Árið ’86 voru
þeir 29. 58 ökumenn virtu
ekki stöðvunarskyldu, en þaö
er 6 ökumönnum færra en
siöasta ár.
Könnun Umferðarráðs
FLEIRI NOTA BÍLBELTIN
Mun fleiri nota bilbelti nú
en áður, og eru konur „sam-
viskusamari“ en karlar í þeim
efnum og virðast höfuðborg-
arbúar frekar treysta beltun-
um, en aðrir landsmenn.
Flestir virðast vera á þeirri
skoðun að helsti slysavaldur-
inn sé of hraður akstur.
Hagvangur framkvæmdi
skoðanakönnun fyrir Umferð-
arráð á timabilinu 16—25 okt.
s.l. Úrtakið var 1000 manns
og svöruðu 782. í könnuninni
kemur fram m.a. að bilbelta-
notkun eykst stöðugt. Kom í
Ijós að tæp 60% sögðust
nota beltin, en tæp 18%
ekki. Fyrir ári síðan sögðust
rúm 48% nota þau, en riflega
25% ekki. Sé hins vegar at-
huguð vettvangskönnun sem
Umferðarráð stóð fyrir á
þessu ári kemur í Ijós að
47.7% ökumanna nota beltin.
Virðist þvi sem svarendur
reyni að „fegra“ bilbeltanotk-
un sína i könnuninni.
Fleiri höfuðborgarbúar
nota beltin en aðrir lands-
menn eða 65% á móti 52.6%,
og virðist sem aukningin sé
meiri á höfuðborgarsvæðinu.
Það kom einnig I Ijós að af
þeim er sögðust stundum
nota belti, settu höfuðborgar-
búar þau yfirleitt á sig er þeir
fóru úr Reykjavlk, en fólk
utan af landi setti þau hins
vegar á sig er það nálgaðist
borgina. Konur nota beltin
frekar en karlar, eða 67.5% á
móti 51.5%.
Flestir töldu of hraðan
akstur vera helsta slysavald-
inn. Þó voru konur frekar á
þeirri skoðun en karlar. Fólk
utan af landi virtist hafa
ákveðnari skoðun á því en
höfuðbórgarfólk.
Spurt var einnig um við-
horf til negldra hjólbarða, og
töldu 61.3% þá nauðsynlega,
en 25.2% ekki. Notkun þeirra
var einnig töluvert almennari
úti á landi, en I Reykjavlk.
Varðandi endurskinsmerki
töldu langflestir almennt
hugsunarleysi ástæðuna fyrir
þvl að þau væru ekki notuð,
en mörgum sérstaklega fólki
undir 29 ára fannst þau
barnaleg.
Loftur Jónsson gef-
ur út bók:
FLOKKUR
KRISTS
LÖGIN HANS JÓNS MÚLA
Frumraun Afmenna bókafé-
lagsins í plötuútgáfu eru
tvær hljómplötur, „Hinsegin
blús“ og „Lög Jóns Múla
Árnasonar við texta Jónasar
Árnasonar.“ Öll lögin á plötu
Jóns Mula og Jónasar eru vel
þekkt, nema eitt „Það vaxa
blóm á þaki“. Útsetningar eru
eftir Eyþór Gunnarsson, Árna
Scheving og Stefán S.
Stefánsson.
Ýmsir söngvarar syngja lög
Jóns Múla þ. a. m. Bjarni Ara-
son, Bubbi Morthens, Ellen
Kristjánsdóttir, Magnús
Eiríksson, Sif Ragnhildardótt-
ir og bræðurnir Jónas og Jón
Múii.
Á blaðamannafundi sem
aðstandendur plötunnar
héldu þakkaði Jón Múli öll-
um þeim sem lögðu hönd á
plóginn viö að koma hljóm-
plötunni út. Af því tilefni
færði hann Ellenu, Sif og
Bjarna Arasyni blómvendi.
Hinsegin blús er jazzplata
með samnefndu tríói. Það er
skipað þeim Eyþóri Gunnars-
syni, Tómasi R. Einarssyni og
Gunnlaugi Briem. Lögin eru
eftir Tómas og Eyþór.
Mun bjóða fram í
næstu kosningum
„Hvildardagurinn, Skammt-
urinn, Þjónninn = Flokkur
Krists, nefnist nýútkomin
bók Lofts Jónssonar.
í samtali við Alþýðublaðið
sagðist Loftur ekki eiga gott
með að segja í stuttu máli
hver væri tilgangur bókarinn-
ar.
Það má þó segja, sagði
Loftur, að hér sé til umræðu
spádómar Biblíunnar og hlut-
verk okkar mannanna á jöröu,
sem fer að koma í Ijós hvert
er, nú bráðlega. Ennfremur
væri þetta kynning á nýjum
flokki. Flokki Krists, sem
mun bjóða sig fram í næstu
kosningum. „Annars þarf að
lesa bókina til að skilja hvað
við er átt,“ sagði Loftur.
Bókin skiptist i þrjá hluta,
fyrsti hlutinn er „Hvíldardag-
urinn“ og er byggður upp á
spjalli í leikritsformi, eftir
Loft og svo hinum ýmsu hug-
leiðingum um t. d. fáfræði,
hatur og öfund. Annar hluti
nefnist „Skammturinn" og er
átta kaflar er Loftur kýs að
kalla „Rödd meistarans".
Þriðji hlutinn er kynning á
Flokki Krists og er fjallað um
flokkinn í sambandi við m. a.
við Bibliunni og hver eru
framboðs mál flokksins.
Bókin, sem er 313 bls.
verður ekki seld í verslunum.
Fólk getur sent inn beiðni
um bókina og þá verður hún
send heim til viðkomandi.
Þórarinn V Þórarinsson framkvœmdastjóri VSÍ:
GENGISFELLING EINNIG RÆDD
HJÁ VERKALÝÐSHREYFINGUNNI
Fádœma slæm staða útflutningsgreinanna meginmálið
Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins segir að
bæði hjá verkalýðshreyfing-
unni og vinnuveitendum finn-
ist menn sem meti svo að
starfsskilyrði útflutnings- og
samkeppnisgreina verði
aðeins leiðrétt með gengis-
fellingu.
i samtali við Alþýðublaðið í
gær sagði Þórarinn ennfrem-
ur að menn í sömu hópum
efuðust um hvaða áhrif
leiddu af gengisbreytingum,
t.d. hvað varðaði laun og
rekstrarkostnað.
( Alþýðublaðinu í gær var
haft eftir Guðmund J. Guð-
mundssyni formanni Verka-
mannasambandsins að
ákveðin öfl í röðum vinnuveit-
enda sigtuðu á gengisfell-
ingu. Þórarinn segir hins veg-
ar þetta eigi við ákveðna
hópa í röðum beggja. „Meg-
inmálið er að rekstrarstaða
útflutnings- og samkeppnis-
greina, hvort sem er sjávarút-
vegs eða iðnaðar, er fádæma
slæm. En við höfum engar
patentlausnir á þessu,“ sagði
Þórarinn.
Guðmundur J. hefur einnig
lýst því yfir að líkur bendi til
þess að fljótlega slitni upp úr
viðræðum vinnuveitenda og
Verkamannasambandsins.
„Það getur vel farið svo,“
sagði Þórarinn aðspurðurog
vildi engu þar við bæta.