Alþýðublaðið - 19.11.1987, Side 8
AUGLÝSINGAR ffTikVmrm ffikTik
SÍMI 681866 MPiiIUdIííiIIiI \ HREVPILL / 68 55 22
Fimmtudagur 19. nóvember 1987
Þjóðhagshorfur 1988:
VINNUVEITENDUR DRAGA
RIKSVARTA MYND
Vinnuveitenda-
sambandið telur nauð-
synlegt að ríkisstjórn-
in meti sínar efna-
hagsaðgerðir upp á
nýtt í Ijósi gerbreyttra
forsenda frá því þjóö-
hagsáætlun var lögð
fram í byrjun október.
Vinnuveitendur hafa
látið gera sérstaka
álitsgerð, sem þeir
kalla Þjóðhagshorfur
1988. Þar er m.a. talið
að stefni í 9.2 mill-
jarða króna viðskipta-
halla á næsta ári, í
stað 4.4 milljarða
króna halla sem gert
er ráð fyrir í þjóðhags-
áætlun. Ennfremur er
talið að vöruútflutn-
ingur muni dragast
saman um 4% í stað
hálfrar prósentu aukn-
ingar sem þjóðhagsá-
ætlun gerir ráð fyrir.
Ólafur Davíðsson hagfræð-
ingur, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra iðnrekenda,
hafði umsjón með álitsgerð-
inni. Ólafur segir nauðsyn-
legt að ríkisstjórnin endur-
meti sínar efnahagsaðgerðir,
fjárlög, lánsfjárlög og aðrar
aðgerðir í efnahagsmálum.
Hann segir að breyttar for-
sendur í efnahagsmálunum
kalli m.a. á að fjárlög verði
ekki bara hallalaus, heldur
skili afgangi.
I forsendum álitsgerðar
vinnuveitendasambandsins
er gert ráö fyrir að dragi úr
þorskafla og hann verði um
345 þúsund tonn á næsta ári.
Hingað til hefur verið talað
um 390 þúsund tonna afla en
stjórnvöld hafa enn ekki tek-
ið ákvörðun. Framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasam-
bandsins sagði að þessi spá
um heildarafla væri m.a.
byggð á skoðunum manna
innan raða VSI. Samtals
mundi þetta fela í sér um 6%
samdrátt sjávarafurðafram-
leiðslu, en í þjóðhagsáætlun
fyrir áriö 1988 er gert ráö fyrir
óbreyttri framleiðslu. Niður-
staðan yrði sú að vöruútflutn-
ingur dragist saman um rúm-
lega 4%, en í þjóðhagsáætl-
un var gert ráð fyrir 1/2%
aukningu.
í þjóðhagshorfum vinnu-
veitenda er talið aö ekki verði
unnt að búast við veröhækk-
unum á Bandaríkjamarkaöi
og vitnað til sölusamtakanna
um það að teljast megi gott
ef hægt verði að halda núver-
andi verði. Ennfremur er talið
að verð muni ekki hækka á
Evrópumarkaði. Þessar álykt-
anir eru m.a. dregnar af efna-
hagsástandinu í Bandaríkjun-
um. Miðað við núverandi
gengi dollars er talið að við-
skiptakjör geti orðið 2-3%
lakari á næsta ári en á þessu
ári. Miðað er við 2% rýrnun
viðskiptakjara á árinu.
Gert er ráð fyrir að kaup-
máttur verði svipaður og á
þessu ári og því er talið að
einkaneysla verði í samræmi
við fólksfjölgun, 1%. Talið er
UPP
að samneysla verði svipuð og
þjóðhagsáætlun gerði ráð
fyrir, 2%. Talið er að þjóðar-
útgjöld geti þv( aukist um
11/2% á næsta ári.
Miðað við þessa aukningu
þjóðarútgjalda, 18% verð-
bólgu og fast gengi er taliö
að vöruskiptin snúist úr 1400
milljóna króna afgangi á ár-
inu 1987 í 4700 milljóna
króna halla á árinu 1988. Talið
er að þessi halli geti jafnvel
orðið mun meiri, vegna þess
að hallinn á þessu ári verði
óhagstæðari en áður var ætl-
að. I heild er gert ráð fyrir að
viðskiptahallinn á næsta ári
verði 9.2 milljarðar króna en í
þjóðhagsáætlun var gert ráð
fyrir 4.4 milljarða halla. Hall-
inn yröi þá nær 4% af lands-
framleiðslu í stað 1.2% á
þessu ári.
NÚ KEMUR STAÐGREIÐSLAN
Sæmileg samstaða náðist
í milliþinganefndinni sem nú
hefur skilað áliti um stað-
greiðslukerfi skatta. Senni-
lega má því vænta þess að
ný lög um staðgreiðsluna og
síðan framkvæmd þeirra
verði í svipuðu formi og
nefndin hefur nú hugsað sér.
Miðað við hinn skamma
starfstíma nefndarinnar er
álit hennar talsvert plagg eða
rífar 30 síður þegar allt er
talið.
Svo mikið er vlst að
áhyggjur flestra landsmanna
af uppsöfnuðum sköttum til-
heyra liðinni tíð. Staðgreiðsl-
an gengur í gildi um áramót
og fyrir lang flesta þýðir það
að þau laun sem þeir fá f
hendurnar eru peningar sem
leyfilegt er aö eyða, án þess
aö hafa áhyggjur af því
hversu mikið kunni að til-
heyra ríkinu.
Þetta er þó ekki algilt, því
þeir sem stunda sjálfstæöan
atvinnurekstur í eigin nafni
þurfa eftir sem áður að
greiða skatta eftir á. í nýju
lögunum verður að vísu
heimild til þess að þessir
aðilar geti staðgreitt skatt-
ana sína samkvæmt fyrirfram
gerðri tekjuáætlun, en milli-
þinganefndin leggur ekki til
að það verði unnt fyrr en á ár-
inu 1989.
Algengur skattur:
10—15 þúsund
Samkvæmt reikningsdæm-
um sem milliþingan'efndin
leggur fram með áliti slnu
virðist sem 10—15 þúsund
krónur verði algengasti
skattafrádráttur á mánuði.
Einhleypingur með um 70
þúsund króna mánaðarlaun,
mun samkvæmt þessu þurfa
aö borga rétt innan við 10
þúsund á mánuði I skatt og
ætti þvl eftir áramót að fá
rétt um 60 þúsund skrifuð á
launatékkann.
Hjón sem samtals hafa um
130 þúsund á mánuði munu
samkvæmt öðru dæmi
nefndarinnar, greiða samtals
riflega 15 þúsund á mánuði. I
þessu dæmi er reiknað með
að tekjurnar skiptist þannig
að annað hjónanna hafi 80
þúsund I mánaöarlaun en hitt
50 þúsund.
Að reikna skattana sína í
megindráttum, er ekki sér-
staklega flókið mál, I nýja
kerfinu. Nefndin leggur til að
svonefnt skatthlutfall verði
34.75% og persónuafsláttur
kringum 180 þúsund krónur á
ári, eða um 15 þúsund á
mánuði.
Skatturinn reiknast einfald-
lega þannig að fyrst er reikn-
aöur skattur samkvæmt
skattahlutfalli af mánaöar-
laununum og skattafsláttur-
inn slðan dreginn frá útkom-
unni. Það sem eftir stendur
er skattur sem hið opinbera
fær f sinn hlut.
Málið flækist að vfsu nokk-
uð þegar börn koma til sög-
unnar. Barnabætur munu, ef
tillögur nefndarinnar verða
samþykktar greiöast fyrirfram
á þriggja mánaða fresti, en
þessar bætur hafa verið
greiddar eftir á. Barnafólk
mun því væntanlega fá
glaöningu I janúar þegar
barnabætur verða tvöfaldar.
Barnabæturnar vega auðvitað
nokkuð á móti skattgreiðsl-
um foreldra, en þar sem þær
greiðast út, munu þær ekki
hafa bein áhrif á launafrá-
dráttinn.
Spurningarmerki við
útsvarið
Sem kunnugt er hefur
Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra tekið sér
frest til að ákveða útsvars-
prósentuna fyrir næsta ár, en
lögin gera ráö fyrir að þessi
ákvörðun liggi.fyrir um miðj-
an nóvember. í áliti nefndar-
innar er reiknaö meö þvl aö
þessi tala verði 6.25% og
það er sú tala sem notuðu er
við útreikning I dæmum
nefndarinnar.
Sveitarfélög in hafa hins
vegar dregið I efa að þessi
upphæð dugi til að tryggja
þeim óbreytta tekjustofna og
hafa I staðinn sett fram kröfu
um 7.5% útsvar. Ef svo færi
aö félagsmálaráðherra féllist
á þessi tilmæli yrði annaö
tveggja að gerast að rlkiö
lækki sinn hluta af skattbyrð-
inni, eða skattarnir hækki
sem þessu nemur. Hvað
flesta venjulega launþega
áhrærir hefði það þau áhrif
að skatturinn hækkaði sem
svarar 1.25% af tekjum, þ.e.
um 125 krónur af hverjum 10
þúsundum á mánuði.
Misgengishópurinn
skilinn eftir
Sá hópur fólks sem harð-
ast varð úti á misgengisárun-
um fær ekki mikið bitastætt
út úr umfjöllun nefndarinnar,
eins og þó hafði verið gert
ráð fyrir. Nefndin komst að
þeirri niöurstöðu að „mörg
og alvarleg tormerki" væru á
þvl að leysa vanda þessa
fólks með skattalegum að-
ferðum og vlsar þvl mis-
gengishópnum frá sér að
mestu leyti.
Sú undantekning er reynd-
ar á þessari afstöðu nefndar-
innar að hún mælir með þvl
aö svonefnt afsláttarhlutfall
vaxta I vaxtaafsláttarútreikn-
ingi vegna húsnæðiskaupa,
hækki úr 30% I 40%. Þennan
vaxtaafslátt er hægt að fá I
sex ár og I nefndinni komu
fram hugmyndir um að lengja
þennan tíma I tíu ár, eða jafn-
vel að afnema tímatakmark-
anir. Þetta sjónarmið mætti
hins vegar sterkri andstöðu I
nefndinni.
• Veðrið
Noröan og norðvestan átt, víðast stinningskaldi. Él
um norðanvert landið en þurrt og víða bjart syðra. Hiti
á bilinu 0-5 stig.
• Brandari dagsins
— Hvað segirðu mér af honum frænda þínum? Var
hann ekki að sækja um vinnu í ráðuneytinu? Hvað
gerir hann núna?
— Ekkert. Hann fékk vinnuna.
17. Nóvember 1987
Bandarikjadollar
Sterlingspund
Kanadadollar
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Finnskt mark
Franskur franki
Belgiskur franki
Svissn. franki
Holl. gyllini
Vesturþýskt mark
itölsk llra
Austurr. sch.
Portúg. escudo
Spanskur peseti
Japanskt yen
37,270 37,390
65,418 65,629
28,309 28,400
5,6977 5,7160
5,8076 5,8263
6,1038 6,1235
8,9624 8,9912
6,4944 6,5154
1,0497 1,0531
26,7687 26,8548
19,4927 19,5554
21,9494 22,0200
0,02995 0,03004
3,1195 3,1295
0,2717 0,2725
0,3260 0,3271
58,449 58,637
• Ljósvakapunktar
•RUV
Kastljós, kl. 20.35. Þáttur
um innlend málefni I um-
sjón Gunnars Kvaran.
• Rás 1
Torgiö kl. 18.03. Þórir Jökull
Þorsteinsson fjallar um at-
vinnumál — þróun, ný-
sköpun.
• Rás 2
Niöur í kjölinn. Skúli Helga-
son fjallar um hina ýmsu
tónlistarmenn I tali og tón-
um.
• Stjarnan
Kl. 21.00. Örn Petersen tek-
ur á málum líðandi stundar.
Hann fær til sín gesti og
hlustendur geta lagt orð I
belg.
MHHH