Alþýðublaðið - 28.11.1987, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 28.11.1987, Qupperneq 15
Laugardagur 28. nóvember 1987 15 VERÐLA UNAKROSSGATA NR. 6 Sendandi: Stafirnir 1-23 mynda málshátt, sem er lausn krossgátunnar. Sendiö lausnir tll Alþýöu- blaðsins, Ármúla 38, 108 Reykjavík. Verölaun eru að þessu sinni bókin Um höf til hafna, sjó- ferðaævintýri Jóns Stein- grímssonar. Vaka-Helgafell gefur bókina út. Fjöldi lausna við gátu nr. 4 sló öll met. Lausnin var Af litlu skal manninn marka. Verðlaunahafi er Bryndís Gunnlaugsdóttir, Álftamýri 36, 108 Rvk. Fær hún senda bókina Þjóö bjarnarins mikla. Til þess að koma til móts við Þá sem búaallra lengst frá höf- uðstöðvum blaðsins, verður frestur til að skila inn fyrir 5. krossgátu framlengdur til 4. desember og frestur fyrir þessa gátu nr. 6 er til 14. des- ember. KVIKMYNDIR Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar ENN FYRIR RETTI Bióborgin, Laganeminn (From the Hip): Bandarísk, árgerö 1987. Framleiöendur: René Dupont og Bob Clark. Leikstjórn: Bob Clark. Handrit: David E. Kell- ev og Bob Clark, samkvæmt skáldsögu þess fyrrnefnda. Kvikmyndun: Dante Spinotti. Tónlist: Paul Zaza. Aðalieikar- ar: Judd Nelson, John Hurt, Elisabeth Perkins, Darren McGavin og Dan Monohan. Robin Weathers er nýbak- aður lögfræðingur, sem hefur verið ráðinn til þekktrar lög- mannastofu. En hann vantar alla reynslu fyrir rétti og sér ekki fram á að hann geti öðl- ast hana án nokkurra bragða. Hann grípur því vitaskuld til klækja, enda klókur að eðli, og getur (fyrir bragðið) tekið að sér mál bankastjóra sem hefur danglað hendi I andlit kollega síns. Málarekstur Robins í þessu máli verður til að vekja mikla athygli á hon- um, og svo fer að honum er fært í hendur næstum óvinn- andi mál til að leysa úr eftir afgreiðslu síns fyrsta máls, ýmsum samstarfsmönnum hans á stofunni til meinlegrar skemmtunar, en skjólstæð- ingi hans, harla skrítnum og otboð veimiltítulegum karli, til nokkurrar vonar um farsæl- an endi. Við erum semsé mætt fyrir rétti einn ganginn enn í kvik- myndasögunni. Helstu auka- hlutverk sem fyrr. flatur, for- viða kviðdómur, sem leikið er með og á eftir bestu kúnst. Kvikmyndavélum hefur farið margt verr en að ana um dómssali, enda sverja dóms mál sig I ætt við helstu hefð- ir í handritsuppbyggingu kvikmynda. Ferill dómsmála er rannsókn, málarekstur (gjarnan örvæntingafullur) og dómsorð rétt eins og gangur kvikmyndar er kynning, flétta (gjarnan með risi) og endir. Það er meðal annars af þess- um skyldleika sem svo marg- ar myndir hafa gerst innan veggja dómssala, en reyndar ekki síður af öðrum ástæð- um, þeim helstum að einkar auðvelt er að mqía persónur úr þeim efniviði sem dóms- mál spinna hverju sinni. Dómsmál eru áhrifarík leið til að kynnast öfgum fólks, og það sem meira er; einföld og skýr aðferö til að vekja sam- úð og hatur og allt þar á milli meðal fólksins úti í sal. Laganeminn er kvikmynd fyrir rétti og er sek um getu- leysi I handritsgerð og pers- ónusköpun: Fléttan erveik og heldur engan veginn at- hygli áhorfenda þó ekki væri nema vegna þess að allan aðdraganda vantar að henni þannig að fólk fái samúð (eða hatur) með (á) persónum hennar og skilið þá breytni sem þær kusu, sjálfum sér til vansæmdar. Ef ekki væri fyrir hendi firnagóður leikur John Hurt í rullu stefnda, fengi þessi mynd mínar allra mestu skammir, en Hurt hef- ur ekki leikið betur I annan tíma síðan í Hit (og muna menn ekki ennþá eftir honum úr Midnight Express Alan Parkers, þar sem hann lék vonlausa veimiltltu, svo hor- aða og búkurinn gúlpaði þeg- ar görugur reykurinn var sog- aður ofan í lungu). Jæja, hér er svo sem ekki miklu traust- ari týpa á ferðinni, tíu árum seinna, barnalegur bók- menntafræðingur, meiddur á sálu, og svo bitur að augun gráta innan frá alla myndina á enda. Leiksigur. Ekkert minna. Þessi breski úrvals- leikari leikur á slappan leik- stjórann, sólar upp tilfinn- ingakantinn og dúndrar túlk- un sinni beint í mark áhorf- enda. Ekkert minna. Judd Nelson hefur átt í töluverðum erfiðleikum frá því myndir á borð við Break- fast Club Hughes og St. Elm- os Fire Schumacher skiluðu honum áleiöis inn í sviðsljós Hollywood. Hann ræður ekki við bindishnútinn í þessu hlutverki, kann sig ekki full- orðinn og fær enga hjálp frá leikstjóra eða handriti sem færir honum gjarnan svo ein- staklega klénar samræður upp í hendurnar að undrun vekur að þessi húmoristi skuli hafa komist í gegnum rulluna brosviprulaust. Elisa- beth Perkins er jafn vand- ræðaleg í rýru hlutverki elsk- andans í myndinni, líður fyrir ósennileg samtöl og fálm- kennda leikstjórn. Þessi mynd rís hátt, mjög hátt, í einstökum leik John Hurt, en dettur langt, mjög langt niður ( einstökum afleik leikstjórans sem trúir ekki frekar á efnivið sinn frekar en áhorfandinn þegar upp er staðið. En svona er þetta bara, stundum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.