Alþýðublaðið - 09.12.1987, Blaðsíða 8
HVAÐ
Miðað við 100 fermetra
ibúð á fjórar milljónir króna
er áætlað leigugjald sam-
kvæmt kaupleigufrumvarpi
félagsmálaráðherra, 10.050
krónur á mánuði í félagsleg-
um kaupleiguíbúðum og
15.750 krónur á mánuði í al-
mennum. Óski leigjandi að
kaupa íbúðina yrði greiðslu-
byrði kaupenda 12.300 krónur
á mánuði í félagslegu íbúð-
unum og 18.000 krónur á
mánuði í almennum.
Þessir útreikningar koma
m.a. fram í greinargerð með
frumvarpi félagsmálaráðherra
sem til umfjöllunar er í þing-
flokkunum.
í forsendum fyrir áætlaða
kostnaðarleigu og greiðslu-
byrði kaupenda í kaupleigu-
kerfinu er tekið mið af upp-
lýsingum frá tæknideild Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
MMÐUBLf\BIÐ
UREVfíLL
68 55 22
Miðvikudagur 9. desember 1987
Kaupleigufrumvarpið:
KOSTAR KAUPLEIGAN?
Samkvæmt þeim er kostnað- ,
arverð 100 fermetra meðal-
íbúðar, brúttó, (4 milljónir
króna í verkamannabústöð-
um).
í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að í leigugjaldi fyrir
kaupleiguíbúð séu fólgnar af-
borganir, verðbætur og vextir
af lánum frá Húsnæðisstofn-
un og vaxtakostnaður af
framlagi framkvæmdaraðila,
auk almenns rekstrarkostn-
aðar. í áætlaðri kostnaðar-
leigu og greiðslubyrði i
greinargerð með frumvarpinu
er hins vegar ekki tekið miö
af rekstrarkostnaði, vegna
viðhalds, hita og rafmagns.
Almennt er gert ráð fyrir
að vextir af framlagi fram-
kvæmdaraðila, sem fara í
leigugjald verði ekki hærri en
vextir af almennum lánum
Byggingarsjóðs ríkisins eða
3.5%. I dæmunum um áætl-
aö leigugjald og greiðslu-
byröi yrði því útkoman eftir-
farandi miðað við áöurgreind-
ar forsendur:
Félagslegar kaupleiguíbúð-
ir: Afborganir og vextir af láni
úr Byggingarsjóði verka-
manna 8.300 krónur. 3.5%
vextiraf 15% framlagi fram-
kvæmdaraðila 1.750 krónur.
Samtals: 10.050 krónur á
mánuði.
Almennar kaupleiguíbúðir:
Afborganir og vextir af 70%
láni úr Byggingarsjóði ríkis-
ins 11.200 krónur. Afborganir
og vextir af 15% láni úr
Byggingarsjóði ríkisins 2.800
krónur. 3.5% vextir af 15%
framlagi framkvæmdaraðila
1.750 krónur. Samtals 15.750
krónur á mánuði.
Þegar leigjandi óskar að
kaupa íbúðina er gerður
kaupsamningur þar sem
kveðið er á um mánaðarlegar
greiöslur vegna lána frá Hús-
næðisstofnun rfkisins og
endurgreiðslu framlags fram-
kvæmdaraðila. Lagt er til að
endurgreiðslutími framlags-
ins verði allt að 30 ár en
heimilt verði að taka þá vexti
sem framkvæmdaraðili þarf
að borga lánadrottnum sín-
um ( þessu sambandi. Það er
talið eðlilegt með hliðsjón af
niðurgreiðslu á húsnæðis-
kostnaði íbúðareigenda fyrir
mijligöngu skattkerfisins.
í dæmunum um greiðslu-
byrði kaupenda er þvf gert
ráð fyrir 7% vöxtum á endur-
greiðslu framlaga fram-
kvæmdaraðila. Ennfremur er
gert ráð fyrir, eins og í
dæmunum um leigugjaldið,
að notað verði sérstakt 15%
lán úr Byggingarsjóði til al-
mennra íbúða; en það beri
4% vexti og verði til 30 ára.
Samkvæmt þessu verður
greiðslubyrði kaupenda eftir-
farandi:
Félagslegar kaupleiguíbúð-
ir: Afborganir og vextir af láni
úr Byggingarsjóði verka-
manna 8.300 krónur. Endur-
greiðsla 15% framlags fram-
kvæmdaraðila 4.000 krónur.
Samtals 12.300 krónur á mán-
uði.
Almennar kaupleiguíbúðir:
Afborganir og vextir af 70%>
láni úr Byggingarsjóði ríkis-
ins 11.200 krónur. Afborgun
og vextir af 15% láni úr
Byggingarsjóði rfkisins 2.800
krónur. Endurgreiðsla 15%
framlags framkvæmdaraðila
4.000 krónur. Samtals 18.000
krónur á mánuði.
„Brauð handa hungruðum heimi“:
HUNGURSNEYÐ FYRIR DYRUM
Líf sjö milljóna manna í hœttu. Talið að allt að 1.4 milljóna tonna af matvœlum þurfi til
að koma í veg fyrir hungursneyð. Allar líkur benda til þess að ástandið verði verra heldur
en árið 1984.
Hin árlega jólasöfnun
Hjálparstofnunar kirkjunnar
er nú farin af stað og ber yfir-
skriftina „Brauð handa
hungruðum heimi.“ Verið er
að dreifa, inn á öll heimili
landsins, gíróseðlum ásamt
söfnunarbaukum og beinir
Hjálparstofnunin því til
landsmanna að taka beiðni
þeirra vel. Ennfremur munu
verða seld Friðarkerti, tólf
stunda útikerti, til hjálpar
nauðþurftum í Eþíópíu.
Söfnunin hófst formlega 6.
desember sl. og mun söfnun-
arfénu verða varið til hjálpar
Eþíópíubúum. Þar er nú mikil
neyð því fyrirsjáanlegur er
uppskerubrestur vegna
þurrka. Búist er við hungurs-
neyð strax í byrjun næsta árs
og bendir allt til að ástandið
verði enn alvarlegra en þegar
hungursneyðin ríkti 1984.
Ástandið er hvað alvarlegast
f sex héruðum sem eru þau
sömu og urðu harðast úti í
þurrkunum 1984. Nú er áætl-
að að 1.4 milljóna tonn af
matvælum skorti til að
bægja hungrinu frá og líf allt
að sjö milljóna manna sé í
hættu.
Hjálparstofnun kirkjunnar
stendur nú einnig að bygg-
ingu heimilis fyrir munaðar-
laus börn í Wollohéraði í
noröur Eþíópíu. Börnin haf-
ast nú við í tjöldum en búist
er við að þau geti flutt inn i
húsið fljótlega á næsta ári.
Hjálparstofnun kirkjunnar
vonast til að islenska þjóðin
bregðist jafnvel við nú, og
1984 en þá var hægt að
senda til starfa i Eþíópíu þrjá
hópa hjúkrunarfræðinga,
lækni og þrjá hjálparsveitar-
menn. Veiðarfærabúnaður var
einnig sendur frá íslandi, 90
tonn af mjólkurdufti, 43 tonn
af fatnaði og eggjahvíturíkt
kex.
í Eþíópiu er búist við alvarlegri
hungursneyð strax í byrjun
næsta árs. Ef ekkert verður að
gert kann ástandið að verða enn
alvarlegra en árið 1984, þegar
algjört neyðarástand rikti.
■Hnm|
□ 1 2 3 n 4
5 □ v
6 □ 7
8 9 ... -
10 □ 11
□ 12
13
• Krossgátan
Lárétt: 1 birtist, 5 grandi, 6 svelg-
ur, 7 hvað, 8 svíðing, 10 rykkorn,
11 fiskur, 12 flöt, 13 traustió.
Lóðrétt:1 venjur, 2pípur,3eins,4
Breti, 5 oft, 7 sylla, 9 þögulan, 12
heimili.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 fráir, 5 fjær, 6 jól, 7 SU,
8 alltaf, 10 NA, 11 æla, 12 ofur, 13
angar.
Lóðrétt: 1 fjóla, 2 ræll, 3 ár, 4
raufar, 5 fjanda, 7 salur, 9 tæfa,
12 og.
• Gengtö
Gengisskráning 7. desember 1987
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 36,890 37,010
Sterlingspund 66,098 66,313
Kanadadollar 28,116 28,208
Dönsk króna 5,7207 5,7393
Norsk króna 5,7048 5,7233
Sænsk króna 6,1046 6,1244
Finnskt mark 8,9866 9,0158
Franskur franki 6,5125 6,5337
Belgiskur franki 1,0560 1,0594
Svissn. franki 27,0118 27,0997
Holl. gyllini 19,6067 19,6705
Vesturþýskt mark 22,0608 22,1325
ítölsk lira 0,02996 0,03006
Austurr. sch. 3,1354 3,1456
Portúg. escudo 0,2713 0,2721 ,
Spanskur peseti 0,3264 0,3275
Japanskt yen 0,27789 0,27880
• Ljósvakapunktar • Rás 1
•RUV Kl. 20.40. Kynlegir kvistir.
Á tali hjá Hemma Gunn kl. 21.20. Bein útsending úr Ævar R. Kvaran segir frá.
sjónvarpssal. • Ötrás Kl. 21.00. Þegar vindurinn
• Stöð 2 blæs verða stampasmiðirnir
ríkir. Umsjón Indriði H. Indr- iðason frá Menntaskólanum
Mannslíkaminn kl. 21.25. við Hamrahlíð.