Alþýðublaðið - 23.12.1987, Page 6

Alþýðublaðið - 23.12.1987, Page 6
6 Miðvikudagur 23. desember 1987 SMÁFRÉTTIR Frá afhendingu framlaganna taliö frá vinstri: Hannes Hauksson, fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands, Ómar Kristjánsson, forstjóri Þýsk- íslenska verslunarfélagsins og Helgi Magnússon forstjóri feröaskrif- stofunnar Útsýn. Stórgjafir í Hjálparsjóð Fyrir nokkrum dögum voru Rauða krossi íslands afhent- ar 100.000 kr. frá Ferðaskrif- stofunni Útsýn og 100.000 frá Þýsk-íslenska verslunarfélag- inu i hjálparsjóö félagsins. Auk þess hafa Hjálparsjóði RKI borist stórgjafir frá ýms- um öðrum aðilum til styrktar hjálparstarfinu í Eþíópíu. Fyrir nokkru efndi Rauði krossinn til kynningarátaks til eflingar á hjálparsjóði fé- lagsins. Átak þetta var gert í tilefni af því að Rauði kross Islands hyggst taka þátt í starfi Alþjóða rauða krossins til hjálpar þeim Eþíópíubúum sem hungursneyð nú vofir yfir í kjölfar alvarlegs upp- skerubrests af völdum þurrka. Þroskahjálp, 5. tölublað Tímaritið Þroskahjálp 5. tölublað 1987 er nú komið út og er útgefandi þess Lands- samtökin Þroskahjálp. Leiðari þessa tölublaðs er um Kópavogshæli og er það Unnur Ólafsdóttir sem skrif- ar. Annað í heftinu er m. a. grein um Landsþing Þroska- hjálpar, spjallað er við for- menn Þroskahjálpar, fráfar- andi og nýkjörin. Seinni hluti af þættinum „Að norðan" birt- ist í ritinu og er það að finna viðtöl við Björgu Pétursdóttur og Svanfríði Larsen. Rann- veig Traustadóttir skrifar fyrsta pistil sinn, frá Banda- ríkjunum og skýrir þar frá því helsta sem er að gerast í kringum hana vestan hafs. Þá er haldið áfram með efni frá þingi NFPU, norrænna sam- taka um málefni vangefinna, sem haldið var í Svíþjóö á liðnu sumri og er m. a. birt erindi Þórarins Eldjárns sem hann flutti á þessu þingi. „Eins og skepnan deyr“ á myndbandi. Bandaríska stórfyrirtækið RCA/Columbia Pictures er um þessar mundir að gefa út kvikmynd Hilmars Oddsson- ar, „Eins og skepnan deyr“ á myndbandi í samvinnu við Skífuna h/f. ísland er fyrsta landið sem myndin er gefin út fyrir, en RCA/Columbia hefur keypt alheimsrétt á dreifingu myndbandsins. „Eins og skepnan deyr“ er fyrsta islenska myndin sem er gefin út á myndbandi af er- lendu fyrirtæki. Framleiðandi myndarinnar er Jón Ólafsson en leikstjóri og höfundur handritsins er Hilmar Oddsson. Aðalhlut- verk eru I höndum Eddu Heiðrúnar Backman, Þrastar Leós Gunnarssonar og Jó- hanns Sigurðssonar. Veglegar gjafir Á undanförnum árum hefur Lionsklúbburinn Njöróur gef- ið Borgarspítalanum ýmsar gjafir og hinn 26. nóvember sl. afhenti klúbburinn nokkrar gjafir til notkunnar á hinum ýmsu deildum spitalans. Hjartadeild var gefin „Ytri gangráður" sem er notaður til að jafna óreglulegan hjart- slátt. Endurhæfingadeild fékk að gjöf fjóra meðferðar- bekki fyrir sjúklinga með sjúkdóma í miðtaugakerfi. Háls-, nef og eyrnadeild voru gefin tvö tæki til speglunar á nefi, koki og barka, og einnig vardeildinni gefið tæki til skoðunar á afholum nefs (sónar). Félagar i Lionskúbbnum Nirdi, fulltrúar deildanna og formaður stjórnar sjúkrastofnana Reykja- víkurborgar, Páll Gíslason. w Starfsmenn kirkjugarðanna aðstoða Eins og undanfarin ár munu starfsmenn kirkjugarð- anna aðstoða fólk, sem kem- ur til að huga að leiðum ást- vina sinna. Á Þorláksmessu og að- fangadag verða talstöðvabílar dreifðir um Fossvogsgarð og munu í samvinnu við skrif- stofuna leiðbeina fólki eftir bestu getu. Skrifstofan er opin til kl. 16.00 á Þorláks- messu og til kl. 15.00 á að- fangadag. I Gufunesgarði og Suður- götugarði verða einnig starfs- menn til aðstoðar og sérstak- ar ferðir verða í Gufunesið með strætisvögnum sem hér segir: A aðfangadag verða farnar tvær ferðir. Frá Lækjartorgi kl. 10.30 og kl. 14.00. Frá Hlemmi kl. 10.35 og kl. 14.05. Frá Grensásstöð kl. 10.45 og kl. 14.15. Vagnarnir bíða meðan far- þegar fara í garðinn. I fréttatilkynningu frá Kirkjugörðunum segir að það auðveldi mjög alla aðstoð ef gestir vita leiðisnúmer. Þeim sem ekki vita það og eru ekki öruggir að rata er bent á að hafa samband við skrifstof- una, síma 18166, og fá upp- gefió númer þess leiöis er vitja skal. Fatlaðir og Félagsmála- ráðuneytið Félagsmálaráðuneytið hef- ur, á þessu ári, beitt sér fyrir útgáfu á ýmsu efni til kynn- ingar á málefnum fatlaðra. Gefnir hafa verið út bækling- ar t.a.m. um Svæðisstjórnun, Fjárhagsaðstoð við framfær- endur, Stuðningsfjölskyldur, Námsstyrki og námslán og Styrki og lán til verkfæra- og tækjakaupa. Þá hefur ráðu- neytið látið gera myndband um fimm sambýli hér á landi, sem öll hafa tekið til starfa á sl. 5 árum. Texti og umsjón með gerð myndbandsins var í höndum Margrétar Margeirs- dóttur, deildarstjóra í málefn- um fatlaðra í félagsmálaráðu- neytinu en kvikmyndagerðin Sýn h.f. annaðist töku mynd- bandsins. Myndbandið er til bæði með sænskum og ís- lenskum texta og hefur m.a. verið sýnt á norrænu þingi um málefni þroskaheftra í Uppsölum í Svíþjóð sl. sum- ar. í tilkynningu frá félags- málaráðuneytinu segir enn- fremur að það muni halda áfram að beita sér fyrir áframhaldandi útgáfu á ýmisskonar kynningarefni, enda sé slíkt í samræmi við lög um málefni fatlaðra. Tvöföld verðmerking Vegna fyrirhugaðra breyt- inga á tolla- og skattalögum skorar Neytendafélag Reykja- víkur og nágrennis á kaup- menn að taka upp, um tak- markaðan tíma, tvöfalda verð- merkingu er sýni bæði verð vörunnar eins og það hefði verið án breytinga og verð vörunnar eftir breytingu. í ályktun frá Neytendafé- laginu segir, að þessar laga- 'breytingar muni hafa í för með sér margvíslegar breyt- ingar á vöruverði og því nauð- synlegt að gera allt sem hægt er til þess að draga úr hugsanlegum misskilningi og tortryggni. Neytendafélag- ið minnir á reynslu þá sem fékkst af myntbreytingunni í upphafi áratugarins. Á þennan hátt segir að kaupmenn þjóni bæði hags- munum sjálfra sín og við- skiptavina sinna. Hjúkrunar- fræðingar mótmæla I ályktun frá stjórn Félags háskólamenntaðra hjúkrunar- fræðinga, er andmælt ákvörðun ríkisstjórnarinnar um breytingar á óbeinum sköttum vegna þeirra breyt- inga á vöruverði, sem fylgja í kjölfarið. í ályktuninni segir: „Kostn- aður við heilbrigðisþjónustu ereinn stærsti útgjaldaliður ríkisins. Forvarnir, sem stuðla að heilbrigði þjóðarinnar er árangursríkasta leiðin t. a. lækka þennan kostnað. Alþekkt er, að mataræði hefur bein áhrif á heilbrigði fólks. Ákvörðun rikisstjórnarinn- ar, sem m. a. felur i sér hækkun á brauði, fiski, nýju grænmeti og nýjum ávöxtum brýtur i bága við íslenska heilbrigðisáætlun, sem lögð var fram á 109. löggjarfar- þingi 1986—1987. í þeirri áætlun segir m. a.: „Það á að ýta með ýmsu móti undir neyslu kornmetis, fisks, kjöts sem er magurt, kartaflna og grænmetis." Má ætla að umrædd ákvörðun ríkisstjórnarinnar verði síst t. a. ýta undir neyslu þessara fæðuteg- unda.“ Nám í flugumferðarstjórn Augiýst er eftir umsækjendum til náms í flugum- ferðarstjórn. Inntökuskilyrði til námsins eru að um- sækjendur hafi lokið stúdentsprófi, tali skýrt mál, riti greinilega hönd, hafi gott vald á íslenskri og enskri tungu, fullnægi tilskiildum heilbrigðiskröf-: um, séu 20—30 ára gamlir, leggi fram sakavottorð og fullnægi ákvæðum laga og reglugerða um loftferðir. Umsóknareyðublöð fást hjá móttökudeild flugmála- stjórnar, 1. hæð flugturnsbyggingarinnar á Reykja- víkurflugvelli og þangað skal skila umsóknum fyrir 12. janúar 1988. Flugmáiastjóri. KRATAKOMPAN Jólabingó Skrifstofa Alþýðuflokksins verður með glæsileg- asta bingó ársins í glæsilegasta samkomuhúsi landsins, Hótel íslandi, við Ármúla þriðjudaginn 29. desember kl. 20.00. Aðalvinningur verður splunkuný LANCIA bifreið, að auki verðurfjöldi heimilistækja í vinninga. Nánarauglýst síðar. Takið þennan dag frá á almanakinu. Skrifstofa Alþýðuflokksins. Jólakrataplata Skrifstofa Alþýðuflokksins selur nú jólalagasafnið „Gleðileg jól“ með 24 lögum sem eru flutt af mörg- um góðum söngvurum svo sem Björgvini Halldórs- syni, Þuríði Sigurðardóttir og Þóri Baldurssyni. Lögin eru til á kasettu eða tveimur plötum í umslagi. Verðið er kr. 1.000.-. Hringið eða komið. Við tökum vísa og eurocard.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.