Tíminn - 10.10.1967, Blaðsíða 13
MHÐJUDAGUR 10. október 1967.
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Evrópu bikar-li5 Vals slegið
út af fall-liðinu frá Akranesi
Valur lék án Sigurðar Dagssonar, en jafnvel hann hefði ekki getað forðað ósigri Vals á sunnudaginn.
Alf-Reykjavík. — Hið unga
Skaga-lið, failliðið í 1. deild í
sumar, stendur á bak við óvænt
usfcu úrslitin og stærstu fréttina
í innanlands knattspymunni í ár,
þegar það á sunnudaginn sló
Evrópubikarlið Vals, sjálfa ís-
landsmeistarana út úr Bikar-
keppninni. Sigur Skagamanna var
engan veginn tilviljanakenndur.
Þeir gengu ófeimnir til leiks, full
ir sigurvilja. Og þrátt fyrir, að
Vahir næði forystu í leiknum á
29. mínútu, létu þeir það ekki á
sig fá, heldur jöfnuðu skömmu
siðar, og léku allan tímann sem
betra liðið.
Sigurður Dagson gat ekki ieik-
ið í Valsmarlkinu í þessum leik,
en jafnvel hann hefði ebki get
að forðað tapi. Sannleikurinn var
sá, að Vals-liðið virtist eitthvað
miður sín, og má e.t.v. rekja það
til þess, að nokkrir af leikmönn-
um liðsins komu ekki heim irá
Luxemburg fyrr en seint á laug
ardaginn, daginn fyrir Leikinn.
Með þessari skýringu vil ég ekki
svipta Skagamenn glansinum af
3:2 sigri þeiira. Þeir léku mjög
vel — og auðvitað er aills ekki
bægt að ganga framhjá þeirri
staðreynd, að enginn er betri en
mótherjinn leyfir.
Björn Lárusson var vissulega
hetja Akraness í þessum leik.
Hann var langbezti maður vallar-
ins og hefur aldrei leikið betur.
Hann var srvinnandi, sem annar
miðherji liðs síns, en tók einnig
virkan þátt í miðjuspilinu og
byggði upp. Hann átti allan heið-
ur af undirbúningi fyrsta marks
Akraness, en þá lék hann á
Hart er barizt um knöttinn í haustveðri á Melavellinum. Þröstur Akranesi, hefur stöðvað Reyni Jónsson, Val,
og spyrnir knettinum frá. Ef myndin prentast vel, sést knötturinn speglast í pollinum fremst á myndinni.
(Tímamynd Gunnar).
skemmtilegan hátt fram miðjuna
og gaf knöttinn eldsnöggt út til
hægri á Matthías Hallgrímsson
sem var á auðum sjó — og skor-
aði framhjá Gunnlaugi Hjálmars-
syni í Valsmarkinu.
Þetta skeði á 3S. mínútu og
var staðan 1:1. Hermarxn
Gunnarsson, síasaður á fæti, en
lét það ekki aftra sér frá þvi að
taka þátt í leiknum, hafði sex
miínútum áður náð forystu fyrir
Vai. Gunnlauigur Hjáimarsson í
markinu sneri vörn upp í sóka
á einni sekúndu, þegar hann hljóp
út úr markinu og spyrnti við
stöðulaust fram á völlinn til Alex-
anders á hægra kant. Alexander
sendi strax á Hermann, sem stóð
rétt fyrir utan vítateig Akraness,
og hann lék á tvo af varnarmönn
um Akraness — og skaut síðan
á mark. Tókst Einari Guðleifssyni
ekki að verja frekar laust skot
hans.
Strax á 2. mínútu í síðari hálf-
leik náði Akraness forystu með
marki Benedikts Valtýssonar.
Matthias gaf fyrir á Benedikt,
sem skoraði af örstuttu færi. Vel
af sér vikið hjá báðum. Benedikt
vakti mikla athygli í stöðu mið-
herja og gerði mikinn usla í vörn
inni hjá Vai. Eftir þetta mark
skapaðist mikil hætta við Vals-
markið, t.d. á 17. mínútu, þegar
Björn Lárusson lék á 4 varnar-
menn Vals og skaut á mark, en
Gunnlaugi tókst með naumind-
um að bjarga í horn. Úr horn-
spyrnunni, sem Matthías fram
kvæmdi, náði Bjöm knettinum
og skaut föstu skoti, sem smaug
við slá.
Markið, sem réði úrslitum, kom
á 40. mínútu úr vítaspyrnu, sem
dómarinn, Baldur Þórðarson,
dæmdi á Sigurð Jónsson, en Sig-
urður snerti knöttinn með hendi.
Skoraði Björn Lárusson örugg-
leiga úr vításpyrnunni, 3:1.
Síðasta mark leiksins skoraði
Hermann Gunnarsson, þegar að-
eins nokkrar sekúndur voru til
leiksloka, með skalla eftir fyrir-
gjöf Aiexanders. En þetta mark
gat ekki breytt úrslitunum.
Úrslitin eru óneitanlega^ nokk-
ur vonbrigði fyrir Val, íslands-
meistaraliðið og Ervrópubikarliðið,
sem nýlega veitti ísl. knattspymu
nokkra uppreisn með ágætri
Framhald á bls. 6.
AUSTIN GIPSY
LANDBÚNAÐAR OG ÓBYGGÐABIFREIÐ í SÉRFLOKKI
AUSTIN GIPSY ER VIÐURKENNDUR FYRIR GÓÐA AKST-
URSHÆFILEIKA OG ÖRYGGI.
dieselvélar hljóta einróma lof fyrir góða endingu og mik-
. Meðal margra fylgihluta er:
• Rafknúin framrúðu- • Stýrishöggdeyfir
sprauta. • Öryggisgler
• 700x16 hjólbarðar. í framrúðum.
• • Kraftmikil miðstöS. • Hlíf á varahjóli.
• Dynamór — 30 amper • Hlíf undir millikassa
• Tvö sólskyggni. • Öflugar dráttar- krónur.
VERÐ: Með benzínvél ca. kr. 179.000,00
Með dieselvél — - 199.000.00
Fáeinir vagnar til afgreiðslu nú þegar.
GARÐAR GÍSLASON H.F.
BIFREIÐAVERZLUN — SÍMI 11506