Alþýðublaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 11. mars 1988
STOFNAÐ
I * 919 |
49. tbl. 69. árg.
Fisk veiðasjóður:
EIGID FRAMLAG VERDI
50% í STAÐ 40% ?
Stjórn Fiskveiðisjóðs ihug-
ar nú hvernig hægja beri á
lánveitingum til nýsmiða eða
breytinga á fiskiskipum er-
lendis. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Alþýðu-
blaðsins, þá mun nú rætt um
að eigið framlag fyrirtækja
verði hækkað, um leið og
ýmis önnur skilyrði verða
sett vegna lánafyrirgreiðslu.
Fram til þessa hafa menn
fengið lánafyrirgreiðslu úr
Fiskveiðasjóði, ef menn hafa
sannað að þeir gætu lagt
fram 40% smiða- eða breyt-
ingakostnaðar á smíða- eða
breytingatímabili.
Alþýðublaðinu hefur verið
tjáð, að nú muni mönnum
verða gert skylt að leggja
40% inn á sérstaka bók í við-
skiptabanka áður en lánveit-
ing verði samþykkt í Fisk-
veiðasjóði. Ennfremur munu
stjórnarmenn í Fiskveiða-
sjóði hafa rætt, að ef hert
innborgunarregla á eigin fé
dugi ekki, þá geti farið svo
að Fiskveiðasjóður lækki
lánshlutfall þegar fiskiskip
eru smíðuð erlendis úr60%
niður ( 55% eða jafnvel 50%.
Þegar efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar voru kynnt-
ar var einn liður þeirra, að
fara þess á leit við stjórn
Fiskveiðasjóðs að hægt yrði
á lánveitingum til nýsmiða
fiskiskipa og því hefur stjórn
sjóðsins rætt breyttar lána-
reglur að undanförnu.
..ATVINNUREKENDUR
í GRINDAVÍK
VITA UM HVAÐ
MÁLIN SNÚAST“
segir Benóný Benediktsson formaður Verka-
lýðsfélags Grindavíkur
Félagsmálaráðuneytið og
Jafnréttisráð eru að undirbúa
fund með forráðamönnum
ráðuneyta, stofnana og fyrir-
tækja á vegum hins opin-
bera, þar sem mælst verður
til að unnin verði fram-
„Þó svo að VSÍ hafi fellt
samning okkar við vinnuveit-
endur í Grindavík, hef ég ekki
miklar áhyggjur. Þeir menn,
sem við sömdum við eru
þekktir fyrir að standa við
það sem þeir lofa,“ sagði
Benóný Benediktsson for-
maður Verkalýðsfélags
Grindavíkur i samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Benóný sagði þegar rætt
var við hann, að í gærkvöldi
hefði átt að ræða um bónus i
saltfiskverkuninni. Það væri
staðreynd að aldrei hefði
náðst bónus í saltfiskverkun
eins og í frystingunni og
stefndu menn i Grindavík að
því að bónusinn næði fram
aö ganga. Hann sagði að
eftirfund i bónusnefnd
verkalýðsfélagsins, ætti
nefndin að hitta fulltrúa at-
vinnurekenda og menn von-
uðust til að árangur næðist á
fundinum.
í kjarasamningnum sem
Verkalýðsfélag Grindavíkur
samþykkti, var gert ráð fyrir
svokölluðum vertíðarbónus
og átti hann að vera 6000 kr.
á þriggja mánaða fresti eða
eftir að fólk hafði skilað 500
klst. i dagvinnu í sama fyrir-
tæki. Samtals hefði þessi
uppbót gert 24.000 kr. á ári
hjá fastráðnu fólki. Þá átti
fólk að fá auka orlofsdag og
þann 1. febrúar 1989 áttu
laun að hækka um 5% en
ekki 2% eins og í VSÍ samn-
ingnum.
„Þeir menn sem við semj-
um við hér í Grindavik vita
vel um hvað málið snýst.
Þessir menn eru sjálfir
sívinnandi, ýmist á skrifstof-
um fyrirtækjanna, í verkun-
inni eða um borð í bátunum
og flestir byrjuðu þessir
menn okkar megin við boriö.
Því tel ég langtum, langtum
auðveldara að semja við þá
heldur en einhverja stráka
inn i Garðastræti, sem
þekkja hvorki sporð né haus
á fiski,“ sagði Benóný.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra sat fyrir svörum í kratakaffinu i Félagsmiðstöð Alþýðuflokksins
að Hverfisgötu i fyrrakvöld og ræddi efnahagsaðgerðirnar, húsnæðismálin, kjarasamningana, stöðu Alþýðu-
flokksins og önnur heit mál. A-mynd GTK.
SÉRSAMNINGUM
LÍKUR Á
Karl Steinar Guðnason for-
maður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur segir
gott ef Grindvíkingar nái
betri samningum en náðst
hafa og að líklegt sé að ein-
staka féiög reyni að ná fram
sérsamningum á sínum stöð-
um.
Karl Steinar Guðnason:
„Mér þykir það bara mjög
gott ef þeir geta náð betri
samningum en þegar hafa
náðst. Þessir samningar
fjalla aðeins um fiskvinnsl-
una og „markerast" náttúr-
lega af þvi,“ segir Karl Stein-
ar ( samtali við Alþýðublaðið.
Segir hann að erfitt sé að
spá um framhald mála, „mað-
ur þarf helst að fara í anda-
glas til að vita það.“
„Það er líklegt að hin ein-
stöku félög leiti eftir sér-
samningum á slnum stöðum.
Við erum t.d. með sérsamn-
inga á fjölmörgum stöðum
m.a. í fiski.“
Jóhanna Sigurðardóttir: Boðar
áætlun ásamt Jafnréttisráði um
jafnrétti kynjanna i stofnunum.
kvæmdaáætlun um hvernig
stuðla megi að jafnrétti karla
og kvenna í viðkomandi
stofnunum.
í ræðu sem Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráð-
herra hélt á Alþingi I síðustu
viku kom fram, að fyrirhugaö-
ur er fundur með forráða-
Félagsmálaráðherra boðar áœtlun:
JAFNRETTI KYNJA I STOFNUNUM
mönnum ráðuneyta, ríkisfyrir-
tækja- og stofnana, þar sem
tilmælum verður beint til
þeirra að þeir hlutist til um
að hvert fyrirtæki og stofnun
vinni að framkvæmdaáætlun
um hvernig stuðla megi að
jafnrétti karla og kvenna er
þar starfa. Er þetta skv.
norskri fyrirmynd.
Sagði félagsmálaráðherra
að hjá norsku Póst- og síma-
málastofnuninni væri starf-
andi sérstök nefnd, sem ætl-
að er að vinna að auknu jafn-
rétti kynjanna. í henni sitja
fulltrúar stjórnar stofnunar-
innar og starfsmannafélags.
Eiga þessar aðgerðir sem
hér eru í undirbúningi að
rétta verulega hlut kvenna frá
þvi sem nú er á jákvæðan
hátt og án lagaþvingana.