Alþýðublaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 11. mars 1988
3
FRETTIR
SJOMENN NOKKUD ANÆGÐIR
MED FISKVERDIÐ HÉR
segir Sœvar Gunnarsson í Grindavík
„Ég held að óhætt sé að
segja að sjómenn hér séu
nokkuð ánægðir með fisk-
verð og því tel ég að menn
séu ekki tilbúnir að fara út í
einhverjar aðgerðir. Hér eru
almennt greiddar um 40 kr.
fyrir kílóiö af þorskinum og
við höfum séð að greitt hefur
verið allt upp í 45 kr. en út-
gefið fiskverð Verðlagsráðs
er á milli 34 og 35 kr. hvert
kíló,“ sagði Sævar Gunnars-
son formaður Sjómannafé-
lags Grindavíkur þegar
Alþýðublaðið ræddi við hann.
Sævar sagði, að þó gæti far-
ið svo að sjómannafélagið í
Grindavík segði upp samn-
ingum og hefði þá lausa, en
Sjómannasamband íslands
hefur skorað á aðildarfélög
sín að segja upp samningn-
um.
„Fiskverðsmálin eru víðast
hvar í góðu lagi hér, en þó er
einstaka aðili sem reynir að
sniðganga fiskmarkaðinn, en
það verður vonandi,ekki
lengi,“ sagði Sævar. — Þá
sagði hann, að afli Grindavik-
urbáta hefði glæðst verulega
síðustu daga. Mest fengist af
þorski og margir bátanna
væru með yfir 10 tonn í róðri
sem teldist gott.
Fulltrúaráð KI:
RðSKUN A SKOLA
STARFI RÍKINU
AÐ KENNA
Fulltrúaráö Kennarasam
bands íslands lýsir fullri
ábyrgö á hendur ríkisvaldinu
vegna þeirrar röskunar sem
verða kunni á skólastarfinu
náist ekki samningar á
næstu vikum.
Fulltrúaráö segir aö eitt
mikilvægsta skrefið í eflingu
skólastarfs í landinu, sé að
bæta kjör kennara og meta
kennslustarfiö aö verðleikum.
Ekki sé hægt aö sætta sig
við kjarasamning sem ekki
geri ráð fyrir launahækkun
viö undirskrift og aðeins 6%
hækkun seinni hluta árs ’88,
slíkt þýöi í raun kjaraskerð-
ingu.
I ályktun sem samþykkt
var á fulltrúaráðsfundi KÍ fyrir
skömmu, segir að eitt mikil-
vægasta skrefið til að efla
skólastarf í landinu sé að
bæta kjör kennara og meta
kennarastarfið að verðleikum.
Menntamála- og fjármála-
ráðuneyti hafi tekið undir
þessi sjónarmið í starfskjara-
nefnd sem skilaði tillögum
sínum í des. sl.
Fulltrúaráðið harmar að
ekki skuli hafa náðst sam-
komulag i samningaumleit-
unum hingað til og lýsir fullri
ábyrgð á hendur rfkisvaldinu
vegna þeirrar röskunar sem
verða kunni á skólastarfinu,
náist ekki samningar á
næstu vikum. Segir ennfrem-
ur í ályktuninni að fulltrúaráð
KÍ geti ekki sætt sig við að
félögum í KÍ sé boðið upp á
samning er ekki geri ráð fyrir
launahækkun við undirskrift
og einungis tæplega 6%
hækkun á seinni hluta árs
1988. Slíkt þýði í raun veru-
lega kjaraskerðingu.
NÝIR EIGENDUR
AD CAFÉ HRESSÓ
Sigurjón Ragnarsson veit-
ingamaður hefur nú selt Café
Hressó þeim Ríkarð Jónssyni
framreiðslumanni og Viöari
Vilhjálmssyni og áttu eig-
endaskiptin sér stað 6. febrú-
ar s.l. Þeir Ríkarð og Viöar
hafa stofnað hlutafélag um
rekstur staðarins, sem nefn-
ist Café Hressó hf.
Ríkarð sagði I samtali við
Alþýðublaðið í gær, að
ákveðnar breytingar væru fyr-
irhugaðar á rekstri staðarins,
hægt yrði farið í þær, en fólk
myndi örugglega verða vart
við breytingarnar þegar kæmi
fram í maímánuð.
Sjálfur hefur Ríkarð starfað
sem framreiðlumaður i 17 ár,
þar af síðustu 2 árin á
Hressó. „ Það má segja að
Hressó sé búið að vera mitt
annað heimili þessi tvö ár og
svo verður ugglaust áfram,
enda hlakka ég til að reka
þennan stað,“ sagði hann.
Reynt var að ná í Sigurjón
Ragnarsson og spyrja hann
um ástæðuna fyrir sölu stað-
arins en án árangurs. Hress-
ingarskálinn eða Café Hressó
eins og staðurinn hefur verið
nefndur siðustu árin, var rek-
inn af Sigurjóni og hans fjöl-
skyldu um áraraðir.
Samstarfshópur um húsnæðismál efndi til blaðamannafundar i gær um ástandið í húsnæðismálum og skoru-
ðu á þingmenn og stjórnvöld að sjá sóma sinn í að efla félagslega húsnæðiskerfið.
Húsnœðismál:
EFLUM FÉLAGSLEGA KERFIÐ
segir í kröfu samstarfshóps um húsnæðismál
Samstarfshópur um hús-
næðismái skorar á félög og
heildarsamtök launafólks aö
láta húsnæöismál til sín taka
og fylgja eftir samþykktum
sínum og baráttumálum á því
sviöi, og á fulltrúa stéttarfé-
laga í stjórnum lifeyrissjóða
aö beita sér fyrir því aö Ví
framlags sjóðanna til hús-
næðiskerfisins renni til fé-
lagslegra íbúðabygginga.
Á fundi hópsins í gær, sem
i eru ýmis samtök námsfólks,
fatlaðra og aldraðra, auk Bú-
seta og Leigjendasamtak-
anna, var einnig skorað á
stjórnvöld og þingmenn að
láta þegar af niðurskurði til
húsnæðismála, og að stjórn-
málamenn ættu að sjá sóma
sinn i að efla félagslega hús-
næðiskerfið. Er vakin athygli
á því að sú kvöð sem lögð er
á sveitarstjórnir, að þær leggi
fram 8.5% af byggingarkostn-
aði hverrar íbúðar í verka-
mannabústöðum, hefur verk-
að sem dragbítur á byggingar
slíkra íbúða ( mörgum sveit-
arfélögum. Er skorað á ráða-
menn að færa þessa kvöð að
mestu eða öllu leyti yfir á rik-
isvaldið.
Nýtt frumvarp:
KOSIÐ VERÐI TIL ÞJOÐ-
FUNDAR Ullll STJÓRNARSKRÁ
Á Alþingi liggur nú frammi
frumvarp um að kallaður
verði saman þjóöfundur og á
fundurinn að fjalla um nýja
stjórnarskrá. Flutningsmaður
er Jón Bragi Bjarnason vara-
þingmaður Alþýöuflokksins.
í frumvarpi Jóns segir, að
Þjóðfundur skuli skipaður 60
fulltrúum, kosnum með jöfn-
um atkvæðisrétti allra lands-
manna sem kosningarétt
hafa og er gert ráð fyrir að
kosningar til fundarins fari
fram síðasta laugardag i maí
1990.
Þá er gert ráð fyrir að Þjóð-
fundurinn komi saman 17.
júní 1990 og eigi að starfa í 3
mánuði í tvö sumur og störf-
um skuli lokið innan tveggja
ára. Einnig er lagt til að for-
seti Sameinaðs þings setji
Þjóðfund, stýri hönum og
slíti. Þá segir í frumvarpinu
að Þjóðfundur skuli starfa í
einni málstofu og að þrjár
umræður skuli fara fram um
ályktun fundarins.
Jón Bragi Bjarnason talar
fyrir frumvarpinu n.k. þriðju-
dag og verður það jómfrú-
ræða varaþingmannsins.
Bifreiðavarahlutir:
Verðmunur allt að
Samkvæmt verökönnun
Verðlagsstofnunar hefur verö
á varahlutum í bíla lækkað
allnokkuð i kjölfar tollalækk-
unar og afnáms vörugjalds í
byrjun ársins, margar versl-
anir hafi þó lækkaö verð á
birgðum. Dæmi voru um í
könnuninni aö 367% verö-
munur var á samskonar vöru i
tveimur verslunum.
I Ijós kemur að oft er
verðið hæst í varahlutaversl-
unum bifreiðaumboðanna, þó
hafi Hekla h.f. og Bifreiðar og
landbúnaðarvélar aldrei verið
með hæst verð, og f 7 og 8
367%
tilvikum af 12 með lægsta
verðið. Verð á kveikjuloki í
Toyota Tercel var hæst kr. 949
í umboðinu, en kr. 203 í Há-
bergi Skeifunni og er munur-
inn 367%. Stýrisendi í Saab
900 kostaði kr. 1.871 i umboð-
inu, en kr. 530 í Bilanaust og
er þaö 253% munur.