Alþýðublaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 11. mars 1988
FRÉTTIR
Fjarkennslunám í gegnum sjónvarp:
HENTAR ÖLLUM ALDURSHÓPUM
Tilraunaútsendingar hefjast 19. mars í sjónvarpi og í útvarpi með vorinu. Námsefnið
verður mismunandi og œtlað fólki á öllum aldri.
Tilraunir með skipulegt
fjarkennslunám í gegnum
sjónvarp hefst 18. mars n.k.
og með vorinu munu hefjast
útsendingar í útvarpi. Út-
sendingar i sjónvarpi verða á
laugardögum og um klukku-
stundarlangir. A fréttamanna
fundi er Fjarkennslunefnd
boðaði til kom fram að til-
gangur þessa væri sá að
bjóða fólki upp á þann mögu-
leika aö geta stundað nám
án þess að mæta í skóla.
Hefur verið ákveðið að kanna
útsendingarnar „Fræðslu-
varp.“
Usendingarnar sem byrja
19. mars eru einungis tilraun
og til undirbúnings viðameiri
og skipulegri fjarkennslu
sem stefnt er að því að hefj-
ist næsta haust. Sent veröur
út á laugardögum og verða
útsendingar í um klukkutíma.
Á fréttamannafundi Fjar-
kennslunefndar sagði Sigrún
Stefánsdóttir, sem veitir
Fræðsluvarpinu forstöðu, að
námsefnið ætti að miðast við
mismunandi aldur fólks og
að bæði yrði almenn fræðsla
og svo sérhæfð prógrömm.
Umsjón með framkvæmd
fjarkennslunnar er í höndum
sérstakrar framkvæmda-
nefndar sem var skipuð sl.
sumar og hefur hún markað
sér þá stefnu að standa ekki
sjálf fyrir kennslunni heldur
fela öðrum framkvæmd henn-
ar t.d. skólum. Nefndin mun
hins vegar skapa þeim aðil-
um sem vilja stunda fjar-
kennslu aðgang að fjölmiðl-
um og dreifitækni fjarkennsl-
unnar. í nefndinni eiga sæti
Jón Torfi Jónasson, formaö-
ur, Þuríður Magnúsdóttir,
Stefán Stefánsson, Þór Vig-
fússon og Gunnar G.
Schram.
Öll starfsemi Fræðslu-
varþsins er enn í mótun og
þessar fyrstu vikur verður
dagskrá af ýmsum toga. Til
að mynda þættir fyrir grunn-
skóla vegna samræmdu próf-
anna í vor, þætti um eyðni,
skáklist, garðrækt o.fl.
Hluti af Fjarkennslunefnd t.f.v. Sigrún Stefánsdóttir, Jón Torfi Jónasson, Gunnar G. Schram og Stefán
Stefánsson.
Hver er munurinn á þessum varahlutum?
Verðmunurinn
Samkvæmt 10. tölublaði Verðkönnunar VERÐLAGS-
STOFNUNAR á bifreiðavarahlutum, sem gefið var út 9.
mars, kemur fram að mikill verðmunur mælist milli
varahlutaverslana.
Þessi tvö kveikjulok eru ætluð Hondu Civic Sedan
GL árgerð 1983. Lokið til vinstri er frá versluninni
Blossa, sem selur þessi lok ódýrast á 168 kr. Lokið til
hægri er frá Hondaumboðinu þar sem það kostar
695 kr. Verðmunurinn er því 527 kr. eða 314%
- það munar um minna.
VERUM Á VERÐI
Könnun VERÐLAGSSTOFNUNAR náði til 11
bifreiðaumboða og verslana sem selja varahluti í bifreið-
ar. í könnuninni má merkja að verðlækkun á varahlut-
um er þegar orðin allnokkur vegna tollalækkana og
niðurfellingar vörugjalds, en þess er þó ekki að vænta
að lækkunin verði að fullu komin fram fyrr en með vor-
inu.
Dæmin sýna að það margborgar sig að gera verðsam-
anburð á milli varahlutaverslana í stað þess að kaupa
blindandi.
VIÐSKIPTARAÐUNEYTIÐ