Alþýðublaðið - 11.03.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 11. mars 1988
7
ÚTLÖND Æ w * i
Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir
BÖÐULLINN VARÐ
MANNESKJULEGUR
Demjanjuk, sem er ákœrður fyrir að hafa verið böðull í dauðabúðunum í D'eblinka, varð
svo mótsagnakennt sem það er, allt að því manneskjulegur við réttarhöldin yfir honum.
Demjanujk talar viö lögfræðing sinn, Yoram Sheftel viö réttarhöldin
Réttarhöldin yfir John
Demjanjuk, þar sem hann var
ákærdur fyrir nasistíska
stríösglæpi, eru nú á enda
eftir aö hafa staöiö yfir í eitt
ár. Þessi réttarhöld hafa verið
lærdómsrik fyrir unga
ísraela, einskonar lifandi
sagnfræöilega kennsla um
„helförina" (Holocaust).
Þaö uröu tímafrekar um-
ræöurviö réttarhöldin um
hvort verið væri aö ákæra
réttan mann, og sumum
fannst vegna þessa, veriö
gert of lítið úr glæpaverkum
nasistanna.
Demjanjuk er annar maöur-
inn sem réttað er yfir í ísrael,
vegna illverka nasista, dómur
veröur kveðinn yfir honum i
apríl. Fyrri maðurinn sem
hlaut sinn dóm i ísrael vegna
stríðsglæpa, var Adolf
Eichmann. Mörgum ísraelum
fannst Demjanjuk vera mann-
eskjulegri en Eichmann,
þetta var að hluta til af því aö
Demjanjuk kunni dálítiö í
hebresku, og einnig vegna
þess aö fjölskylda hans var
svo til alltaf viöstödd réttar-
höldin.
Veröi Demjanjuk dæmdur
getur líflát komió til greina,
en flestir búast viö aö hann
veröi dæmdur í lifstíðar-
fangelsi.
í marga mánuði voru lang-
ar biöraöir ísraela sem vildu
fá sæti í kvikmyndahúsinu,
sem var notaö sem réttarsal-
ur. Fimm manns, sem lifðu
helförina, liföu nú upp aftur
hörmungarnar. Hvernig „Ivan
hinn grimmi“ limlesti gyöing-
ana eins og haldinn kvala-
losta og rak þá því næst inn í
gasklefana í dauðabúóunum í
Treblinka í Póllandi.
Demjanjuk, 67 ára gamall
er fyrrverandi starfsmaður í
bílaverksmiðju, en kominn á
eftirlaun. Hann var sendur frá
Bandaríkjunum til ísraels til
að standa fyrir máli sfnu.
Hann stendur á því fastar en
fótunum, að hann sé sak-
laust fórnarlamb þess, aö
vera tekinn fyrir annan mann.
„Þessi réttarhöld sýna, svo
ekki veröur um villst, hvað
oröagjálfur getur tafiö fyrir
að það sem skiptir máli komi
fram. Menn hanga í einhverj-
um smámunum og lagakrók-
um“, sagöi Ephraim Zuroff,
(sraelski nasista-veiöarinn.
Hundruð allskonar pappira
og gagna, meöal annars
pappírsklemma voru lögö
fram í réttinum, í þeim til-
gangi aö sanna að mikilvæg-
asta sönnunargagn ákæru-
valdsins væri ófalsað en þaö
er flokksskírteini (nasista)
Demjanjuk. Sex sérfræðingar
fullyrtu að skírteiniö væri
ófalsað, og jafnmargir af
hálfu verjenda fullyrtu að þaö
væri falsaö. Demjanjuk full-
yrti aö skírteinið væri falsaö
af Sovétríkjunum til aö hegna
honum fyrir aö vera and-
kommúnistískur.
Manneskja
Mörgum ísraelum finnst
munur á hinum spillta Eich-
mann, manninum sem stjórn-
aði útrýmingarherferðinni og
„Ivan sálsjúka“’ sem fram-
kvæmdi skipanir. Eichmann
var dæmdur og hengdur áriö
1962.
Áhorfendur sáu lítið af
Eichmann, sem sat í skot-
heldu búri, en þeim finnst
framkoma Demjanjuk öllu
manneskjulegri. Hann rabbar
við verðina, brosir og hrópar
hebreskt „Shalom" til áhorf-
enda þegar hann er leiddur í
handjárnum til og frá réttar-
höldunum. Hann reyndi aö
taka í hönd eins þeirra sem
lifði af hörmungarnar í
Treblinka, en sá hörfaði til
baka og kallaði Demjanjuk
moröingja.
Hinn ákærði er fæddur í
Ukraníu. Eiginkona hans
Vera, þrjú börn þéirra og
tveggja ára barnabarn hafa
oftast verið viðstödd réttar-
höldin og sorg þeirra hefur
birst í sjónvarpi og dagblöð-
um í ísrael.
„Skammist ykkar, þiö eruð
miskunnarlausir", hrópaöi frú
Demjanjuk grátandi, þegar
réttarhöldin voru á enda á
dögunum. Hún sakaði ákær-
endur um aö Ijúga, og aö
eiginmanninum hefói ekki
verið sýnt réttlæti.
Daginn sem réttarhöldun-
um lauk, lýsti einn af áhorf-
endunum Mordechai Fuchs,
þeim sársauka sem þessi
löngu réttarhöld höföu valdiö
fórnarlömbum nasista, en
Fuchs var einn af þeim sem
komst lifandi frá Treblinka.
Um leið og hann veifaði
myndum af foreldrum sínum,
þremur bræórum og systur,
sem öll voru myrt í Treblinka,
hrópaöi hann grátandi að
verjendur væru lygarar.
Toby Greenwald, ísraels-
maóur fæddur í Bandaríkjun-
um, segir: „Hver sem dómur-
'inn verður getur enginn sagt
að ekki hafi verið fariö ofan í
saumana á minnstu smá-
atriöum. Þaö er áríóandi
vegna þess, að fólk gæti lát-
ið sér detta í hug aö dómarar
af gyðingaættum, gættu ekki
fyllsta réttlætis þegar stríðs-
glæpamenn eiga hlut að
máli.“
Verjendur óhæfir?
Sumir segja aö mal
Demjanjuk hafi ekki fengiö
réttláta meðferð, aö hluta til
vegna vanhæfni verjenda og í
annan staö vegna fjaðrafoks í
kringum málið.
Demjanjuk rak sjálfur lög-
fræöing sinn, Mark O’Connor
en hann haföi verið lögfræö-
ingur Demjanjuk í sjö ár.
Demjanjuk var ekki ánægöur
meö frammistöðu O’Connor.
Mörg vitna verjenda virtustu
óörugg og eitt þeirra dró
framburó sinn til baka og
annað reyndi að fremja sjálfs-
morö þegar vitnisburóur þess
var dreginn í efa.
Margar staðhæfingar verj-
enda virtust út í hött. Sjálfur
fór Demjanjuk hjá sér þegar
einn verjenda hélt því fram
aó sovéska leyniþjónustan
notaði hugsanaflutning til að
koma óvinum sínum fyrir
kattarnef og koma á stað ill-
indum á Vesturlöndum!
Demjanjuk hefur sjálfur
skaðað sitt eigið mál, með
mótsagnakenndum útgáfum
af aðgerðum sínum í heims-
styrjöldinn siöari.
Áður en verjendur byrjuðu
vörnina, var ég ekki viss um
sekt. Demjanjuk", sagði
Ebud Offer, 31 árs gamall
myndhöggvari „En vörnin
hefur máð út allar efasemd-
ir“.
Dómararnir þrir hafa nú
hafist handa við að fara í
gegnum 15.000 siður af papp-
irum og 500 muni sem taldir
eru til sönnunargagna.
(Det fri Aktuelt.)