Alþýðublaðið - 11.03.1988, Side 8
AUGLÝSINGAR KTiiViiirM inin AUGLÝSINGAR
SlMI SÍMI
681866 XlIjx 1 JLf UHJjJllf IJf Föstudagur 11. mars 1988 681866
„STABA JOHONNU STYRKIST“
— segir Guðmundur Einarsson, framkvœmdastjóri Alþýðuflokksins um skoðanakönnun
HP og Skáíss
Samkvæmt skoðanakönn-
un HP og Skáíss, sem birtist
í Helgarpóstinum í gær, hef-
ur Alþýöuflokkurinn aukið
fylgi sitt úr 12,5% i 14,5% frá
því að sambærileg könnun
var gerö í janúar. Fylgi Borg-
araflokksins er hrunið, sam-
kvæmt könnuninni og Sjálf-
stæðisflokkur eykur sitt fylgi
sem því nemur. Framsóknar-
flokkurinn minnkar fylgi sitt
um 3% og Alþýðubandalag
stendur í stað. Kvennalistinn
heldur stórsókn sinni áfram
og viröist ætla að festa sig í
sessi sem annar stærsti
stjórnmálaflokkur á íslandi.
Vinsældir Steingríms
Hermannssonar virðast seint
ætla að dvína og fær hann
yfir 200 atkvæði. Jóhanna
Sigurðardóttir stekkur úr
fimmta sæti í annað og næst
á eftir henni koma Þorsteinn
Pálsson og Halldór Ásgríms-
son.
í könnuninni var einnig
spurt um afstöðu til rikis-
stjórnarinnar. Af þeim sem
afstöðu tóku studdu 46%
ríkisstjórnina og 54% ekki.
Staða stjórnarinnar hefur
samkvæmt þessu skánað
siðan i janúar, þá studdu
hana 44% en 55,6% ekki.
Alþýðublaðið tók Guð-
mund Einarsson, fram-
kvæmdastjóra Alþýðuflokks-
ins tali og innti hann eftir
nánari niðurstöðum skoðana-
könnunarinnar.
— Hver er staða Alþýðu-
flokksins samkvæmt þessari
könnun?
„Mér sýnist að staða
flokksins sé að styrkjast. Það
sem hefur verið honum sér-
staklega erfitt að undan-
förnu, er bardaginn vegna
skattbreytinganna. Þá urðu
þingmenn flokksins, eins og
þingmenn stjórnarflokka gera
yfirleitt, að neita sér um að
tala mikið á þingi, en hins
vegaróðu þingmenn hinna
stjórnarflokkanna uppi með
óheiðarlegan málflutning og
þetta var okkur nokkuð erfitt.
En mér sýnist að fólk sé nú
að átta sig á að við vorum að
gera þarna mjög nauðsyn-
lega hluti."
— Hvernig koma mál
Jóhönnu Siguröardóttur, fé-
lagsmálaráðherra þarna inn
í?
„Mér sýnist alveg augljóst
að eitt af sterku málunum í
pólitík í dag er kaupleigu-
frumvarpið. Það sést meðal
annars á því að Jóhanna
Guðmundur Einarsson: „Kvenna-
listinn er stjórnarandstöðuafl,
sem andstæðingar stjórnarinnar
fylkja sér um.“
stendur mjög sterk í pólitik.
Andstæðingar hennar, eins
og Alexander Stefánsson,
komast ekki einu sinni á blað
þegar spurt er um stjórn-
málamenn. Og reyndar þurfti
ekki neina skoðanakönnun til
þess að ég gerði mér grein
fyrir því að hennar mál
standa mjög sterkt meðal
þjóðarinnar. Það er hins veg-
ar spurning, hvað margir salt-
stólpar ætla að verða til á Al-
þingi til þess að þvælast fyrir
henni í því efni.“
— En efnahagspólitík
Jóns Baldvins og Jóns
Sigurössonar?
„Það er Ijóst að menn
tengja ennþá nauðsynlegar
aðgerðir rlkisstjórnarinnar í
ríkisfjármálum og skattbirt-
ingu um áramótin, Jóni
Baldvin. En ég er hins vegar
ekki I vafa um að þegar tím-
inn líður sjái menn aö hér var
djarflega tekið á hlutum og
eins og þurfti."
— Hvað má lesa út úr
niðurstöðum um fylgi hinna
flokkanna?
„Ef maður veltir fyrir sér
tilhneigingunum frekaren
einstökum tölum, þá sýnist
mér að Kvennalistinn njóti
þess aö vera stjórnarand-
stöðuafl, sem andstæðingar
stjórnarinnar fylkja sér um.
Þetta hlýtur að vera svona,
þvl hann hefur ekki lagt til
mörg eða merkileg mál, eða
einhverjar lausnir I pólitík, en
nýtur þess að vera í stjórnar-
andstöðunni. Og það kemur
líka fram þannig að hinir tveir
stjórnarandstöðuflokkarnir,
annaðhvort hrynja, eins og
Borgaraflokkurinn eða standa
i stað, eins og Alþýðubanda-
lagið.“
— Hvers vegna hrynur
fylgi Borgaraflokksins?
„Því er nú erfitt að svara. í
fyrsta lagi skildi ég nú aldrei
almennilega af hverju fólk
kaus Borgaraflokkinn og
þess vegna skil ég ekki hvers
vegna fólk segist ætla að
hætta að kjósa hann og ég
hef aldrei botnað I stefnu
þessa flokks fyrr en ég hlust-
aði á þagnarræðu Hreggviðs
Jónssonar. Þessi flokkur hef-
urekki staðið fyrir neinni
pólitík og þaö er kannski ein
skýringin."
— En nú heldur formaður-
inn, Albert Guðmundsson,
ennþá vinsældum, hvað veld-
ur því?
„Ég veit ekki hvort það er
samúð eða trygglyndi fólks
sem Albert hefur einhvern
tímann sinnt. Hann hefur
ekkert leynt því að hann hafi
liðsinnt fjölda fólks og ég tel
það alveg vlst að margt af
þessu fólki sýni honum
persónulega tryggð. En það
er greinilegt að fólk tekur
hann alveg úrtengslum við
flokkinn."
— Hvernig stendur á
minnkandi fylgi Framsóknar-
flokksins?
„Það getur nú verið að ein-
hverju leyti vegna þess að þó
Steingrimur sé vinsæll, held
ég að hann hafi ekki komið
sterkt út úr málum undan-
farnar vikur. Ég hef á tilfinn-
ingunni að trúnaðarbrot
hans, sem ég tel vera, á
Kópavogsfundinum í sam-
bandi við efnahagsráðstafan-
ir ríkisstjórnarinnar og alveg
óviðurkvæmilegt athæfi hans
í sambandi viö hugmyndir
um heimsókn Vigdísar
forsetatil Rússlands hafi ver-
ið vond mál fyrir Steingrlm.
Að hann hafi talað þarna eins
og fólki finnst ekki að lands-
faðirinn eigi að tala."
— Hver er hiutur SÍS-
málsins?
„Það kann vel að vera að
umræður um launakjör SÍS
forstjóra, eins og þær blönd-
uðust inn í kjarasamninga,
hafi haft áhrif á Framsóknar-
flokkinn. En þó held ég að
það þurfi ekki að vera.“
— Sókn Kvennalistans
heldur áfram og hann virðist
ætla að halda þessari stöðu
sem annar stærsti stjórn-
málaflokkur landsins, er það
framtíðin?
„Það getur ekki veriö aö sá
flokkur eigi, allavega óbreytt-
ur, framtíð fyrir sér. Vegna
þess að í honum sjálfum
byggir stærsta mótsögn í ís-
lenskri pólitík, að framboðs-
listarnir séu lokaðir helmingi
þjóðarinnar. Þetta getur ekki
átt sér framtið, nema að
þessi flokkur þróist yfir í
venjulegan vinstri flokk, op-
inn bæði konum og körlum."
— Nú kemur fram í þess-
ari skoðanakönnun að minni-
hluti, eða 46% styðji ríkis-
stjórnina, er stjórnin hrunin?
„Alls ekki. Það var ein af
dægrastyttingum minum
þegar ég var á Alþingi árin
’83-’87 að vera alltaf viðbúin
því, ef það hringdi í mig
fréttamaður, að sýna framá
að sú stjórn væri hrunin. Það
var alltaf hægt að tína til 10
atriði sem sýndu að stjórnin
væri að hrynja. En það sem
stærstu máli skiptir alltaf í
sambandi við svona ríkis-
stjórn er að persónulega hafa
þeir sem orðnir eru ráðherrar
áhuga á að þaö ástand vari
sem lengst. Og ég spái þvi
að þessi stjórn sitji allt kjör-
tímabilið.”
□ 1 2 3 q
■
6 □ 7
§ 9
□ 11
□ 12 ■
13 L □
Krossgátan
Lárétt: 1 skar, 5 úrgangur, 6
draup, 7 utan, 8 stækkuðu, 10
kvæði, 11 ílát, 12 drabb, 13 hrað-
ann.
Lódrétt: 1 löður, 2 gljáhúð, 3
borðaði, 4 efni, 5 öskra, 7 eftir-
spurn, 9 yndi, 12 átt.
Lausn á siöustu krossgátu:
Lárétt: 1 kænur, 5 fola, 6 éta, 7
ss, 8 linnti, 10 að, 11 ein, 12 ekka,
13 sorta.
Lódrétt: 1 kotið, 2 ælan, 3 NA, 4
rósina, 5 félags, 7 stika, 9 nekt,
13 er.
Gengtö
nmwi—
Gengisskráning 48 — 9. mars 1988
Kaup Sala
Bandarikjadollar 38,990 39,110
Sterlingspund 71,549 71,769
Kanadadollar 31,105 31.201
Dönsk króna 6,1034 6,1222
Norsk króna 6,1776 6,1966
Sænsk króna 6,5739 6,5942
Finnskt mark 9,6689 9,6987
Franskur franki 6,8911 6,9123
Belgiskur franki 1,1152 1,1186
Svissn. franki 28,2240 28,3108
Holl. gyllini 20,7697 20,8337
Vesturþýskt mark 23,3215 23,3932
ítölsk lira 0,03161 0,03171
Austurr. sch. 3,3197 3,3299
Portúg. escudo 0,2847 0,2856
Spanskur peseti 0,3480 0,3491
Japanskt yen 0,30409 0,30502
m&sam&smmm.
• Ljósvakapunktar
•RUV
Mannen frán Majorka (Mað-
urinn frá Mallorka). Sænsk
sakamálamynd, sem unnið
hefur til fjölda verðlauna.
Myndin hefst kl. 22.25.
• Stöð 2
Séstvallagata kl. 20.30. Þátt-
ur um fólk sem býr á Sést-
vallagötu en hún er á milli Er-
vallagötu og Tilvallagötu.
• fós 1
Andvaka kl. 23.10. Pálmi
Matthíasson reynirárangurs-
laust að sofna.
• Útrás
Bleikir inniskór kl. 16.00.
Gunnar Atli Jónsson IR Iftur
yfir helgarstuðið.