Alþýðublaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1919 Fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri á Islandi: EKKI LEYFT AÐ STUNDA FISKVEIDAR NÉ AD FJÁRFESTA í FISKVINNSLU Samkvœmt nýju frumvarpi verður útlendingum ekki heimilt að gefa út dagblöð eða reka útvarpsstöðvar hérlendis, en heimilt að eignast allt að 25% eignarhlut í íslenskum fjöl- miðlum Nefnd sú, er Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra skipaði í september 1987 til þess að gera tillögur að samræmingu á lögum og reglum um fjár- festingu erlendra aðiia í ís- lensku atvinnulífi, hefur lokið störfum. Tillaga að frumvarpi til laga, sem nefndin hefur gert, um þetta efni iiggur nú til umfjöllunar hjá þingflokk- um stjórnaflokkanna. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins mun erlendum aðilum heimilt að fjárfesta i atvinnurekstri hérlendis með ýmsum takmörkunum og skilyrðum. Þar á meðal mun útlendingum ekki heimilt að fjárfesta í fiskveiðum, útgerð og fiskvinnslu og veröur ekki leyft að reka útvarpsstöðvar eða gefa út dagblað. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins felur tillaga nefndarinnar að frumvarpinu um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri á Is- landi í sér eftirfarandi tak- markanir: Erlendum aðilum verður ekki leyft að stunda fiskveiðar í íslenskri land- helgi. Þeim verður einnig óheimilt að reka fiskvinnslu hérlendis eða eiga hlut í ís- lensku fiskvinnslufyrirtæki. Erlendum aöila verður óheim- ilt að gefa út dagblað eða reka útvarpsstöð á íslandi. Þó verður útlendingum heimilt að eiga eignarhluta í íslenskum fjölmiðlum, allt að 25%. Sama er að segja um hlutafjáreign erlendra aðila í viðskiptabanka sem rekinn er af hlutafélagi; hún má ekki vera meiri en 25%. Þá er erlendum aðila óheimilt að gerast félags- maður í félagi sem á heimili eða stundar atvinnurekstur hér á landi þar sem allir fé- lagsmenn bera fulla ábyrgð á skuldbindingu félagsins, nema með sérstöku leyfi við- skiptaráðherra. Erlend ríkis- fyrirtæki mega ekki fjárfesta í atvinnurekstri hérlendis nema með leyfi ráðherra. Heildarfjárfesting erlendra Stjórn Iceland Seafood fundar í dag: LAUNAMÁL GUÐJÓNS TEKIN FYRIR Stjórn lceland Seafood Corporation kemur saman til fundar í dag. Sigurður Mark- ússon, framkvæmdastjóri Sjávarafurðardeildar SIS og stjórnarmaður í lceland Sea- food sagði aðspurður viö Al- þýðublaðið, að launamál Guðjóns B. Ólafssonar yrðu m.a. rædd á fundinum og innlegg í þá umræðu yrðu eflaust skýrsla Geirs Geirs- sonar endurskoðenda Sam- bandsins. Talið hefur verið að á þess- um fundi yrði tekin afstaða til ráðningar nýs forstjóra vestra. Af samtölum sem Al- þýðublaðið átti í gær, má hins vegar gera ráð fyrir að þau mál séu enn ekki til lykta leidd. Stjórn SÍS kemur saman til fundar á þriðjudag. Þar verð- ur að líkindum rætt um launamál Guðjóns og þá nið- urstöðu sem kann að verða á fundi stjórnar lceland Sea- food Corporation. aðila í íslenskum atvinnu- rekstri má ekki fara fram úr 100 milljónum kr. á einu almanaksári nema með leyfi ráðherra. Einnig er erlendum aöilum óheimilt aó reka sjálf- stætt fyrirtæki hérlendis nema að búa í landinu og með sérstöku leyfi viðskipta- ráðherra. Þá er kveðið á um það í tillögu að frumvarpinu, að viöskiptaráðherra geti stöðvað erlenda fjárfestingu í íslenskum atvinnurekstri ef hún ógni öryggi landsins, skerði verulega samkeppni fyrirtækjanna í viðkomandi atvinnugrein eða hafi óæski- leg áhrif á atvinnulíf í landinu. í nefndinni sem viðskipta- ráðherra skipaði og samið hefur tillögu að frumvarpinu, eiga eftirtaldir menn sæti: Baldur Guðlaugsson, hrl., for- maður, Björn Friðfinnsson, aðstoðarmaöur dómsmála- ráðherra, Brynjólfur Bjarna- son, framkvæmdastjóri, Eiríkur Tómasson hrl., Mar- geir Daníelsson, hagfræðing- urog Þorvaldur Gylfason, prófessor. Röntgendeildir ríkisspítalanna: M f TÆKJABUNADUR URELTUR segir Johannes Pálmason framkvœmdastjóri Borgarspítalans. „Yfir- leitt eru tækin notuð í helmingi lengri tíma en œskilegt er“ Jóhannes Pálmason fram- kvæmdastjóri Borgarspítal- ans segir það staðreynd að tækjabúnaður á spitölum og þá sérstaklega röntgendeild- um sé úreltur. Segir hann aö verið sé að halda úti gömlum tækjum með miklum tilkostn- aði sem gæti, í sumum til- vikum, veriö jafnmikill og jafnvel meiri en sem nemur nýju tæki. Borgarspítalinn er um þessar mundir að skipta á 20 ára gömlu tæki fyrir nýtt og segir Jóhannes jafnframt að sumstaðar séu tæki i notkun er komin eru hátt á fertugsaldur. í Alþýðublaðinu í gærvar fjallað um íslensku heil- brigðisáætlunina. Segir þar m.a. að Islendingar séu orðnirheilum áratugáeftir öðrum í hátækni og að fjöldi röntgentækja sé orðinn svo úreltur að ekki séu lengur framleiddir varahlutir í þau. Framkvæmdastjóri Borgar- spítalans, Jóhannes Pálma- son, staðfesti þessi ummæli í samtali við Alþýóublaðið og segir það staðreynt að verið Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspitalans, segir tækjabúnað á röntgen- deildum löngu úreltan og aö sum- staðar séu i notkun tæki frá fjórða áratugnum sé að halda úti tækjum meó miklum tilkostnaði og fyrir- höfn. Sagði hann jafnframt að mörg þessara tækja gætu orðið hættuleg þegar líða tæki á þannig að oft sé teflt á tæpasta vað. „Það skortir að mínu mati allan skilning á því að það þurfi að endurnýja þennan tækjabúnað eins og allan annan tækjabúnað. það kemur til vegna þess að um er að ræða miklar fjárhæöir en á sama tíma eru endur- nýjaðar heilar brýr í togurum, keyptir nýjr dýptarmælar og rannsóknartæki og þykir öllum sjálfsagt" sagði Jó- hannes. Eftir því sem tækin verða eldri er meiri hætta á að frá þeim komi hættulegir geislar. Geislaeftirlit ríkisins fylgist með öllum tækjum og sagði Jóhannes aö Borgarspitalinn væri einmitt nú að fá nýtt tæki í staðinn fyrir tæki er tekið var i notkun árið 1968, sama ár og spitalinn tók til starfa. Sagöi Jóhannes það ekki óalgengt að tæki væru svona gömul og að það væri yfirleitt þannig aó þau væru notuð helmingi lengur en æskilegt væri. „Ég veit líka að það eru notuð tæki sem eru komin á þriöja og jafnvel fjórða áratuginn" sagði Jó- hannes. JON BALDVIN MED FUNDI I FJORDUNGUNUM Fundur með öllum þingmönnum Alþýðuflokksins í Reykjavík á Hótel Loftleiðum á fimmtudagskvöld. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, er þessa dagana á fundaferð um landið. Fyrsti fundurinn var haldinn á ísafirði á iaugardag. Á fundinum voru einnig þingmennirnir Karvel Pálmason og Sighvatur Björgvinsson. Á mánudags- kvöld var fundur á Seyðisfirði en ásamt Jóni Baldvin á þeim fundi var Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri flokksins. í gærkvöldi voru formaðurinn og Jón Sæ- mundur Sigurjónsson al- þingismaður með fund á Siglufirði. Á fimmtudag veröur siðan fundur á Hótel Loftleiðum með öllum þing- mönnum Alþýðuflokksins i Reykjavík. A laugardag verður sam- eiginlegur fundur flokkstjórn- ar- og sveitarstjórnarmanna Alþýðuflokksins. Fundurinn verður haldinn á Hótel Loft- leiðum og hefst klukkan 11.00 um morguninn. Að sögn Guðmundar Ein- arssonar var góð mæting á fundinn á Seyöisfiröi á mánu- dagskvöld, þrátt fyrir harða samkeppni frá Sverri Storm- sker, sem á sama tíma var að heilla þjóðina í beinni út- senaingu rra bjonvarpssai. Guömundur sagði að þetta heföi veriö góður pólitískur fundur. Formaðurinn fór í gegnum stöðunaog ræddi þær mótsagnir sem uppi eru i þjóðfélaginu og stjórnmál- unum í dag. Minnti hann á að á sama tíma og fluttir eru inn 25 þúsund bílar og sólar- landaferðir uppseldar, þá eru gífurleg kjaraátök, upplausn wy L/anocyja. Þetta sagði for- maðurinn að birtist ekki sist í gjánni á milli Reykjavíkur og landsbyggðar. Þá ræddi Jón Baldvin lið fyrir lið þær breytingar sem hrundið hefur verið í fram- kvæmd síðan hann settist i fjármálaráðuneytið. Enn- fremur rakti hann þær breyt- ingar sem eru á döfinni eins og t.d. virðisaukaskatt og eignaskatta.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.