Alþýðublaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 23.03.1988, Blaðsíða 8
AUGLÝSINGAR SlMi 681866 MMiiiiRnniii Miövi’kudagur 23. mars 1988 Viðræður við PLO: OPINBERUN STEINGRIMS Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra og Þor- steinn Pálsson forsætisráð- herra eru mjög á öndverðum meiði varðandi afstöðuna til Frelsissamtaka Palestínu- manna, PLO. Steingrímur segist reiðubúinn aö ræða við Arafat og jafnvel að fá hann hingað til lands, en Þorsteinn segir að ríkis- stjórnin muni ekki taka þátt í nokkru slíku, hvorki hér á landi né annars staðar. Farið gæti svo, komi utanrikisráð- herra á fundi, að hinum við- kvæma, en dýrmæta fisk- markaði ísiendinga i Banda- rikjunum yrði stefnt í voða. Ekki er heldur vist að íslend- ingar kæri sig um að fá hing- að menn í stórum stíl, sem orðnir eru heimsþekktir fyrir hryöjuverk, þó svo aö við eig- um það til að stæra okkur af því að vera fordómalausir friðarsinnar. Eins og fram hefur komið I fréttum sagði Steingrímur Hermannsson utanríkisráð- herra i samtali við Elias Daviðsson ritara Samtakanna Ísland-Palestína á útvarps- stöðinni Rót um helgina, að hann væri reiðubúinn að ræða við háttsetta embættis- menn Frelsissamtaka Palestínu, PLO. Aðspurður sagði utanríkisráöherra að fróðlegt væri, og kæmi vel til athugunar, að bjóða Yasser Arafat forystumanni PLO til íslands. Ósammála ráðherrar Á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna, sem hefst í Tromsö i Noregi í dag, ætlar Steingrímur Hermannsson að leggja til að framferði ísraels- manna á hernumdu svæðun- um á Gaza og vesturbakka Jórdanár, verði fordæmt, og að Norðurlöndin lýsi yfir stuðningi við frjálst ríki Palestínumanna. En eftir ummæli Stein- grims á Rót, hafa þeir skipst á yfirlýsingum í fjölmiðlum, hann og Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra. Steingrím- ur segir að sér sýnist að ís- land gæti orðið staður þar sem stríðandi öfl gætu hist og rætt saman. Þorsteinn Pálsson segir að ekki komi til greina að ríkisstjórnin taki upp viðræður við PLO, hvorki Steingrimur Hermannsson og Yasser Arafat. Gestgjafinn og gesturinn? á íslandi né annars staðar. Ekki einu sinni þó PLO leiti eftir þeim. Í DV í gær segir Þorsteinn: „Ég held að heim- urinn fylgist nú varla með af andakt þó aö formaður Fram- sóknarflokksins ræði við ein- hvern skæruliðaleiðtoga." En, samkvæmt ummælum Elíasar Davíðssonar eru skilaboðin frá Steingrími komin til höfuðstöðva PLO. Hagsmunir í hœttu? Það hefur löngum viljað loða við utanríkismálapólitík íslendinga, að hún hefur ver- ið samtvinnuð ýmsum við- skiptahagsmunum. Stefnan kannski verið mótuð með það í huga að styggja ekki þá' sem eru okkur mikilvægir í viðskiptum. Þá vaknar spurn- ingin hvort þetta mál gæti skaðað viðskiptahagsmuni okkar? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að gyðingar eru mjög áhrifamiklir í banda- rísku viðskiptalífi. í því sam- bandi má geta þess að stjórnarformaður og aðaleig- andi veitingahúsakeðjunnar Long John Silver, sem er stærsti kaupandi á íslensk- um fiski í Bandaríkjunum, er gyðingur að nafni Rosenthal. Erum við að stofna hagmun- um okkar í hættu með þess- ari nýju sveiflu i utanríkis- stefnunni? „Ég gæti ímyndað mér að það væri hætta. Þau eru voðalega viðkvæm í Banda- rikjunum, öll þessi araba- og Palestínumál, og gyðingar eru geysilega sterkir í fjár- hagslífi Bandarikjanna. Ég tel að hættan sé fyrir hendi, en ég hef ekkert fyrir mér í því annað en tilfinninguna," seg- ir háttsettur aðili innan fisk- útflutningsfyrirtækjanna i samtali við Alþýðublaðið. Kjartan Jóhannsson vara- formaður utanríkismála- nefndar Alþingis segir í sam- tali við blaðið, að hann telji að ágætt sé að menn hittist, hverjir sem vilja, en ýmis vandamál kunni að verða því samfara að halda fund hér á landi. Æskilegra væri að það yrði annars staðar. Ýmis vandamál fylgi því að fá hing- að þekkta menn, og enn frek- ar, komi þeir frá stríðandi öfl- um. „Ég hef nú ekki komið auga á það“, segir Kjartan um hvort einhver raunhæfur möguleiki sé á því að okkur takist að stilla til friðar, þar sem svo mörgum hefur mis- tekist. FRÉTTASKÝRING Hattkur Holm skrifar Friðarparadísin Island? Vera kann að fólki hugnist illa aö fá hingað Palestinu- menn og ísraela til viðræðna. Yfir þjóðina hafa flætt frétta- myndir í fjölmiðlum, þar sem ýmis óhæfuverk eru framin, og íslendingar óttast kannski að nálgast atburðina um of. Þegar þeir hittust hér á landi, Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov, á stór- veldafundinum I nóvember 1986, varð ísland nafli al- heimsins um stund, og urðu margir stoltir af. Mikið var tal- að um að sáralitlu hafi mun- að að leiðtogarnir næðu sam- komulagi hér, sem hefði fest fundinn fullkomlega á spjöld sögunnar. Að vísu var minnst á þegar þeir síðan undirrit- uðu samkomulag sitt I Washington fyrr i vetur, að grunnurinn að því hafi verið lagður í Reykjavík. Eftir Reykjavíkurfundinn var oft gælt við þann möguleika manna á milli, að Island ætti kannski að hasla sér völl í al- þjóðastjórnmálum, á sviði friðarfunda. Hvort Steingrímur Her- mannsson er haldinn þeirri áráttu er ekki gott að segja. Verið gæti, að hann hafi bara sagt aðeins og mikið, eins og honum hefur stundum hætt til, og oft fylgt miklar umræð- ur í kjölfarið. Eða kannski er það vinsælasti stjórnmála- maður landsins að viðhalda vinsældum sínum, með því að játa öllu og vera til í allt. Með þessari afstöðu sinni gæti hann höfðað til vinstri manna og ekki síst Kvenna- listans, sem er stórveldi í ís- lenskum stjórnmálum þessa stundina. Auðvitað er það góðra gjalda vert að reyna að leggja sitt á vogarskálarnar í þágu friðar, en eins og fram hefur komið, má það teljast hæpið að utanríkisráðherra geti komið á friði í hinum stríðs- hrjáðu löndum, þegar reyndir samningamenn hafa ekki haft erindi sem erfiði. En spurningin er einnig einfaldlega sú hvort að Stein- grímur hafi einfaldlega ekki farið yfir strikið í hita leiksins í hrifningu sinni að vera kannski orðinn friðardúfa á heimsmælikvarða? □ 1 2 3 4 ■ 6 □ 7 É— 9 10 □ 11 □ 12 ■ 13 _ □ • Krossgátan Lárétt: 1 skeldýr, 5 þjark, 6 útlim,. 7 lengdarmál, 8 umhyggjusam- ar, 10 íþróttafélag, 11 spfra, 12 hugarburður, 13 talar. Lóðrétt: 1 megnar, 2 þó, 3 sam- stæóir, 4 viðkvæmrar, 5 hugsan- ir, 7 masar, 9 líkamshluti, 12 kvæði. Lausn á siðustu krossgátu Lárétt:1 skært, 5stef,6vin,7óm, 8 angana, 10 nn, 11 mæt, 12 gleði, 13 tjóni. Lóörétt: 1 stinn, 2 keng, 3 æf, 4 tómati, 5 svangt, 7 ónæði, 9 amen, 12 gó. * Gengið Gengisskráning 56 -21. mars 1988 Kaup Sala Bandarikjadollar 39,200 39,320 Sterlingspund 71,840 72,060 Kanadadollar 31,417 31,513 Dönsk króna 6,0569 6,0754 Norsk króna 6,1718 6,1907 Sænsk króna 6,5612 6,5813 Finnskt mark 9,6409 9,6704 Franskur franki 6,8275 6,8484 Belgiskur franki 1,1096 1,1130 Svissn. franki 28,0501 28,1360 Hoil. gyllini 20,6582 20,7215 Vesturþýskt mark 23,2056 23,2766 itölsk lira 0,03135 0,03145 Austurr. sch. 3,3017 3,3119 Portúg. escudo 0,2840 0,2848 Spanskur peseti 0,3462 0,3472 Japanskt yen 0,30770 0,30865 • Ljósvakðpunktar • RUV 21.33 Á tali hjá Hemma Gunn. Þáttur fyrir þjóðina. • Rás 1 22.30 Sjónaukinn. Bjarni Sigtryggsson beinir kíkinum að þjóðmálaumræðu hér- lendis og erlendis. • ROT 20.30 Frávímu til veruleika. Krísuvíkursamtökin stjórna hálftíma dagskrá. • Stöð 2 23.40 Rocky IV. Sylvester Stallone sýnir gúmmístælt- an kroppinn, við misjafnan fögnuð áhorfenda.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.