Alþýðublaðið - 23.03.1988, Qupperneq 3
Miövikudagur 23. mars 1988
3
FRÉTTIR
SOKNARKONUR HVETJA ÞINGMENN
TIL AD STYÐJA KAUPLEIGUNA
Þórunn Sveinbjörnsdóttir
formaöur Starfsmannafélags-
ins Sóknar hefur, fyrir hönd
félagsins sent forsetum þing-
deilda, félagsmálanefndum
beggja deilda og formönnum
þingflokka bréf þar sem fram
kemur einarður stuðningur
við þær hugmyndir sem birt-
ast í frumvarpi um kaupleigu-
íbúðir. Að mati Sóknarkvenna
er um afar brýnt mál að ræða
fyrir félagsmenn í verkalýös-
hreyfingunni og skorar félag-
ið á Alþingi að samþykkja
kaupleigufrumvarpið á þessu
þingi.
Alyktunin sem Sókn sendi
Alþingi var gerð á fundi
stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs, sem haldinn var 17.
mars síðastliðinn. Þar segir
að félagið lýsi yfir áhyggjum
sínum af húsnæðisvanda
fólks hér á landi i dag, vanda
sem lýsi sér í langri bið fólks
eftir lánum frá Húsnæðis-
stjórn, miklum skorti á leigu-
húsnæði, sem leiði til okur-
leigu á húsnæði og upp-
sprengdu verði með hárri
útborgun.
Síðan segir i ályktuninni:
„Félagið telur þær hug-
myndir sem koma fram í
frumvarpi félagsmálaráðherra
um kaupleiguíbúðir henti
mjög vel því fólki sem nú er í
erfiðleikum, þar sem einnig
er um að ræða fastar hófleg-
ar mánaðargreiðslur auk
þess sem fólk á kost á að
velja um leigu eða kaup á
íbúð. Ennfremur geta leigj-
endur með kaupum á eignar-
hlut í íbúð tryggt sér öruggan
búsetarétt á íbúð.
Þar sem hér er ufn afar
brýnt mál að ræða fyrir fé-
lagsmenn í verkalýðshreyf-
ingunni skorar félagið á Al-
þingi að samþykkja kaup-
leigufrumvarpiö á þessu
þingi.“
Búsáhöld, filmur og hjól
UMTALSVERÐ VERÐ-
LÆKKUN í KJÖLFAR
TOLLALÆKKUNAR
Frá biaðamannafundinum í gærdag. „Meyrasta kjöt sem ég hef smakkað" sagði Úlfar Eysteinsson, veitinga-
maður, um leið og hann skar kjötið.
ÚTSALA Á GÖMLU KJÖTI
Framkvœmdaraðilar, fulltrúar Kaupmannasamtakanna og Fram-
kvœmdarnefndar um búvörusamning, segja kjötið meyrt og gott
og fullkomlega hæft til neyslu.
Samkvæmt verðkönnun
sem Verðlagsstofnun gerði
um mánaðamótin febrúar-
mars er algengt að búsáhöld
hafi lækkað í verði um
20-25% frá því i desember,
þegar Verðlagsstofnun gerði
sambærilega könnun. Verð á
ijósmyndafilmum sem stofn-
unin kannaði hafði lækkað
um 0-26%. Hjól höfðu lækk-
aö um 10-30% frá því i des-
ember og barnavagnar og
barnakerrur um 20-30%.
í frétt frá Verðlagsstofnun er
haft eftir kaupmönnum að
lítil sala sé að jafnaði i búsá-
höldum i janúar og febrúar.
Nú voru hins vegar vörubirgð-
ir lækkaöar í verði til að örva
söluna. Kaupmenn segja að
nýjar vörur verði almennt
komnar í verslanir í þessum
mánuói eða næsta.
Tollalækkanir 1. janúar áttu
að leiða til um 40% verð-
lækkunar á flestum búsá-
höldum miðað við þær for-
sendursem stjórnvöld lögðu
til grundvallar um erlent inn-
kaupsverð, gengi, álagningar-
prósentu og fleira.
Þrátt fyrir þá gengisfell-
ingu sem síðan hefur orðið
ætti verð á flestum bús-
áhöldum að lækka enn frekar
að mati Verðlagsstofnunar
þegar nýjar vörur koma í
verslanirnar.
Gerð var verökönnun á
filmum frá Kodak, Fuji og
Konica. Frá því í desember til
könnunarinnar um mánaöa-
mótin hafði verð lækkað um
0-26%. Mest hjá Fuji, Ijós-
myndavörum i Skipholti.
Verð á filmum hefði átt að
lækka um 23% í kjölfar tolla-
breytinganna miðað við
óbreyttar aðstæður.
Verslanir höfðu lækkað
verð á reiðhjólum, þríhjólum
og þrekhjólum um 10-30%.
Til dæmis kostaði þríhjól í
Fálkanum kr. 2.990 í mars, en
kostaði kr. 3.980 í desember.
Verðlækkun var um 25%.
Þrekhjól í Erninum kostaði kr.
12.410 í mars, en kr. 15.150 í
desember sem er 18% lækk-
un. í Markinu var 10% verð-
lækkun á reiðhjólum, en
10-30% á þrektækjum. Sam-
kvæmt upplýsingum kaup-
manna var aðallega um
lækkun áeldri birgðum að
ræða, en von er á nýjum
vörum bráðlega.
Þríhjól hefðu átt að lækka
um 32% í verði fyrir áhrif
tollabreytinganna, reiðhjól
um 21% og þrekhjól um 24%
að gefnum áðurnefndum for-
sendum frá því um áramót.
Samkvæmt könnun Verð-
lagsstofnunar höfðu barna-
vagnar og barnakerrur lækk-
|aö um 20-30%. Sem dæmi
má nefna að barnakerra hafði
lækkað úr kr. 13.900 í kr.
9.800 eða um 29% og barna-
vagn hafði lækkað úr kr.
34.500 í kr. 24.000 eða um
30% ( versluninni Vörðunni.
Barnakerra hafði lækkað úr
kr. 16.900 i kr. 12.500 eða um
26% I versluninni Fífu, svo
dæmi sé tekið.
Barnavagnar og barnakerrur:
áttu að lækka um 41% við
tollabreytinguna miðað við
óbreytt innkaupsverð og
gengi og sömu álagningar-
prósentu og var I desember.
Framkvæmdarnefnd um
búvörusamninga og Kaup-
mannasamtökin fóru af stað
með útsölu á tveggja ára
gömlu kindakjöti í gærdag
og mun hún standa fram til
20. april n.k. Kjötið er úr
flokknum D II O frá árinu
1986 og verður það selt á
helmingi lægra kilóverði
heldur en leyfilegt smásölu-
verð er. Útsölustaðurinn er
að Lynghálsi 3, Reykjavik og
er gert ráð fyrir að selja um
200 tonn. Á blaðamannafundi
sem framkvæmdaraðilar
efndu til i gærdag kom m.a.
fram að kjötiö væri meyrt og
gott, nokkuð feitt en fullkom-
lega hæft til sölu.
Auðunn Bjarnason starfs-
maður Markaðsnefndar land-
búnaöarins, hefur haft veg og
vanda af útsölunni og á
fundinum I gær sagði hann
m.a. að kjötið væri vel hæft
til neyslu þannig að neytend-
um gæfist hér kostur á að
kaupa kjöt á mjög hagstæðu
verði. Verðið á kjötinu er 139
krónur pr. kíló en hámarks-
smásöluverð á þessum kjöt-
flokki út úr verslun er 265,60
pr. kíló. Kjötið er selt niður-
sagað I plastpokum sem
vega frá 9-12 kg. hver. Hrygg-
ur er heill en annað er sagað
I súpukjöt. Læri og slög
fylgja ekki og sagði Auðunn
ástæðu þess vera mikil sala I
lærum, en að slögin hefðu
hins vegar verið illa farin og
þvi skorin í burt.
Tekið er á leigu aðstaða til
kjötsögunar hjá Afurðarsölu
Sambandsins og munu félag-
ar úr Lionsklúbbnum Vála
vinna við sögun og pökkun á
kjötinu, næstu kvöld og helg-
ar, undir stjórn reyndra kjöt-
vinnslumanna.
Islenska söngvakeppnin:
„ÉG Á 30 KRÓNUR EFTIR“
segir sigurvegarinn Sverrir Stormsker
Þaö er nú heyrum kunnugt
að fulltrúar íslands i söngva-
keppni Evrópskra sjónvarps-
stööva, Eurovision, sem fram
fer í Dublin á írlandi 30. apríl,
veröa þeir Sverrir Stormsker,
tónskáld og textahöfundur
og Stefán Hilmarsson,
söngvari. Lag Sverris, „Þú og
þeir“ vann yfirburðarsigur i
íslensku söngvakeppninni er
haldinn var á mánudag, hlaut
fullt hús stiga eöa 96 stig. í
samtali viö Alþýðublaðið í
gærdag sagðist Sverrir vera
alsæll, eða í „i tíunda himni“
eins og hann orðaði það.
— Hvað tekur nú við?
„Það tekur við veigamikill
undirbúningur. Ég þarf að
útsetja lagið, fyrir básúnur,
fiðlur, munnhörpu o.fl. Svo
þarf ég að fá mér stuttbuxur
og ílát til að geta komið með
bjór í land sem smyglvarning
og sitthvað fleira. Eg ætla
ekkert að breyta laginu held-
ur hafa það nákvæmlega eins
að það er“.
— Hvernig ætlið þið að
koma fram? „Samkvæmt regl-
um verður að flytja lagið
„life“ allavega að hluta til og
(Dað munum við gera. Hvernig
við komum fram er eitthvað I
undirbúningi hjá sjónvarpinu
en ég verð nú lítið að vasast I
því og ætla bara að láta Birni
Emilssyni eftir að ákveða það
hvort viö verðum i nærbrók-
um innanundir buxunum eða
ekki. Siðan held ég að Stefán
hætti þessu rölti I kringum
píanóið, og kannski verður
hann bara njörvaður niður
með hendina við planóið,
svona eins og óperusöngvari,
en allavega verðum við penir
og prúðir.
— Ertu búinn með 500
þúsundin? „Nei, ekki alveg
ég á 30 krónur eftir og ætla
að nota þær til að borga út-
setjaranum.
Sigurvegarinn í islensku söngvakeppninni Sverrir Stormsker. Hann og
félagi hans Stefán Hilmarsson fara til Dublin i apríl og keppa fyrir ís-
lands hönd i Eurovision.
— En svona án gríns, í
hvað eiga peningarnir að
fara? „Þeir munu að mestum
hluta fara I undirbúning og
þ.a.m. er farmiði út og uppi-
hald fyrir mig og mína heitt-
elskuðu og Stefán og hans
stelpu.“
— Finnst þér þaö óþægi-
legt aö ísland skuli vera fyrst
i rööinni? „Já, mér finnst það
nú frekar óþægilegt. Annars
vona eg bara að við verðum
númer eitt I orösins fyllstu
merkingu."