Alþýðublaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 2
Laugardagur 16. apríl 1988 ''' i ■ ....... LÍTILRÆÐI Flosi Ólafsson skrifar AF HORFUN Er þaö ekki meö fádæmum hvað vel getur legið á manni dag eftir dag. Mér er nær að halda að manni sé bara ekki sjálfrátt. Ég segi það satt. Það er bókstaflegaeinsog allt geti orðið til að kæta mann. Þegar tuttugu stiga frost er á Þingvöllum eru bara tíu stig hérna I bænum fyrir utan gluggann minn og tuttugu stiga hiti innihjá mér, en ég sjálfur með kjörhita, nákvæmlega 37 stig. — Þetta getur bara ekki betra verið, hugsaég og velti mér uppúr því, hvað ég hef það nú rosalega gott. Þegar þessi gállinn er á mér á ég það til að kíkja svona útundan mér á mestu alvöru- menn samfélagsins. Og mér finnst þeir margir svo brúnaþungirað ég ferað velta því fyrir mér, hvað sé eiginlega að hjá þeim. Og ég hugsa sem svo: — Kannske er hitaveitan hjá honum biluð, eða konan farin frá honum, nema hvorttveggja sé. Eða: Gæti þetta verið sjónvarpinu að kenna? Eðajafnvel útvarpinu? Hver veit? Stundum finnst mér að allir séu enda- laust í einhverri maraþonfýlu útaf sjónvarp- inu og útvarpinu. Það hálfa væri nóg. Og samt elskar íslenska þjóðin ekkert eins heitt einsog sjónvörp og útvörp. Sjáið þið bara skoðanakannanirnar. Allir alltaf að horfa á þá stöðina sem borgar fyrir skoðana- könnunina. Sjáið þið súluritin í dagblöðun- um dag eftirdag. Súlurit í öllum regnbogans litum. I auglýsingum annarrar sjónvarps- stöðvarinnarsérmaðurað allirvoru að horfa á þá stöð dagana sem könnunin var gerð og enginn á hina. En í auglýsingunum frá hinni stöðinni sér maður að sömu daga voru allir að horfa á þá stöð, en engin á hina. Auðvitað er þetta allt orðið léttur og skemmtilegur brandari sem þjóðin bara hlaer að, ef hún er ekki í fýlu. Útúr skoðanakönnunum sem Ríkissjón- varpið lætur gera kemur það, að tíu vinsæl- ustu þættirnir sem þjóðin horfir á, séu á skjánum I Ríkissjónvarpinu. En ef Stöð 2 lætur gera skoðanakönnun, eru tíu vinsæl- ustu þættirnir í stöð 2. Þetta er kallað að verið sé að gera könnun á (afsakið orðbragðið) „horfun“ og þegar niðurstöðurnar koma ætlar venjulega allt vitlaust aó verða í höfuðstöðvum þeirrar stöðvarinnar sem ekki stóð að könnuninni sem verið er að birta. Svo eru niðurstöðurnar teygðar, togaðar, túlkaðar og rangtúlkaðar þangað til þær eru orðnar úthverfar og marklausar og allir farnir að hlæja nema fýlupokarnir. Persónulega horfi ég jafnan á báðar sjón- varpsstöðvarnar í einu og er með lítinn kubb I hendinni. Á honum eru takkar og með því að ýta á þá, eftir vissum reglum, get ég „svissað11 milli stöðva, þannig að þegar kossar verða of langir á annarri stöðinni, „svissa" ég yfir á hina og kem inná skot- bardaga. Þegar ég er svo búinn að horfa á manndrápin góða stund, „svissa“ ég aftur yfiráhitt sjónvarpiðog þarerkossinn búinn og bílaeltingaleikur byrjaður. Þegar ég er búinn að horfa á bílaeltingaleikinn góða stund „svissa“ ég afturyfirog rétt næ því að verið er að murka lífið úr einhverjum með hrottalegum hætti, en á hinni „rásinni“ er verið að nauðga vinnukonu í þýskum fram- haldsþætti. Og enn ýti ég á takkann og þá kemur í Ijós að eiginkona olíukóngs er komin I göturæsið á rúngandi fyllirí rétt einu sinni, en hinumegin er vangefinn og bæklaóur sænskur maður að reyna að komast áfram I lífinu. Og af því að myndin er sænsk reikna ég með því að það taki langan tíma að komast til botns í því hvort mannkertið „meiki það“. Þessvegna get ég gefið mér rúman tíma til að fylgjast með barni sem drepur fjölskyld- una sína með köldu blóði, af því aó djöfull- inn hefur tekiö sér bólfestu I snáðanum. Ég geri lítið af því að hlusta á útvarpið á meðan ég er að horfa á báðar sjónvarps- stöðvarnar, nema ef eitthvað sérstaklega skemmtilegt er þar á boðstólum, en tefli afturámóti oft við skáktölvuna mína á meðan ég horfi á sjónvörpin, svona einsog I framhjáhlaupi. Ég er að sjálfsögðu með afruglara og það gefur „horfuninni", að mínum dómi aukið gildi í vissum tilfellum. Stundum finnst mér að forsvarsmenn sjónvarpsstöðvanna séu eina fólkið í land- inu sem ekki fattar að skoðanakannanir um „hlustun" og „horfun" eru orðnar brandari. Mér svona dettur þetta í hug vegna þess að um daginn þegar ég var, rétt einu sinni, með báðar stöðvarnar í takinu, álpaðist ég einsog fyrirslys inná umræðuþátt áannarri- hvorri sjónvarpsrásinni og þar var verið að taka félagsvísindamenn — væntanlega skoðanakannendur, til bæna. Ég náði nú ekki nema brotabrotum úr þessum umræðuþætti, sem greinilega var um skoðanakannanir. Ég gat ekki hugsað mér að fórna efnisþræðinum í hinni „rás- inni“ en þar var verið að sjónvarpa vanda- málum og búksorgum svía nokkurs sem vildi ekki gefa hjartað úr konunni sinni tyrr en hún væri dauð. Þó náði ég því að heyra og sjá Pál Magnússon varpa fram þeirri skarplegu at- hugasemd að ef maðurhefði tvo brjóssykur- mola fyrir framan sig, þágæti maðurdæmt um það, hvor brjóssykurmolinn væri betri, en ef maður hefði aðeins einn brjóssykur- mola fyrir framan sig, þá gæti maður ekki dæmt um hvor brjóssykurmolinn væri betri. Svo ég tali nú einusinni í alvöru, býst ég við að hann hafi átt við að ekki sé hægt að horfa á tvö sjónvarpstæki ef slökkt sé á öðru. En það er rangt hjá honum, einsog ég hef þegar sýnt framá. Hinsvegar finnst mér rétt að það komi fram hér, svo ég verði ekki sakaður um hálf- kæring, að áður en ég fékk afruglarann, þá fannst mér stundum þegar ég var að horfa á ruglað efni, að það væri einsog að éta brjós- sykur og konfekt uppúr Makkintossdollu, án þess að opna hana. Þessvegna skil ég svo vel samlíkinguna með brjóssykurinn. Afturámóti er það nú svo að eftir að ég fékk afruglarann, þá er ég ef til vill einn af fáum íslendingum sem hæfur er til að dæma um það hvor er'betri, Stöð eitt eða Stöð tvö, einfaldlega af því að ég horfi alltaf á þær báðar í einu. Er með báða molana í takinu. Og þegar maður borðar tvo brjóssykur- mola saman, þá verður það alltaf útkoman að þeir eru báðir nákvæmlega jafn góðir. Þetta hefur reynslan kennt mér. Sama má segja um sjónvarpsstöðvarnar. Ef maður nýtur þeirra saman, þá kemur í Ijós að þæreru nákvæmlega jafn góðar, óhollar að vísu, einsog brjóssykurinn, en jafn eftir- sóknarverðar. Og það hvað ég er jafnan I góðu skapi, má þakka því að nú þarf ég ekki lengur að enda- sendast um allarjarðirtil að leigjamérsjón- varpsefni á myndböndum og setja vídeó- kassettur sjálfur I vídeótækið mitt. Stöð eitt og Stöð tvö taka af mér ómakið. Bon Giomo - við erum byrjuð að œfa ítölskuna, fyrir áœtlunarflugið til Mílanó.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.